Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Síða 5
JjV LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 fréttir 5 Sókn mótmælir niðurskurði á sjúkrahúsunum: Starfsmenn þurfa áfallahjálp - segir varaformaöur - vilja fækka yfirmönnum „Ályktunin er farin til ríkis- stjórnarinnar og stjórnar sjúkra- húsanna en við erum ekki farin að fá nein viðbrögð ennþá. Við sendum trúnaðarmönnum á þessum stofn- unum áskorun um að vera vel vak- andi og láta trúnaðarmenn vita ef til stendur að flytja stofnun, fækka fólki eða ráða ekki í stöður sem losna,“ segir Guðrún Óladóttir, varaformaður starfsmannafélagsins Sóknar. Skíðafærið misgott: Nægur snjór í Bláfjöllum Samkvæmt upplýsingum DV um skíðafærið á landinu í gær og horf- urnar um helgina er nægur sjór og gott færi í Bláfjöllum og reiknað er með að 8 til 9 lyftur verði í gangi um helgina þar sem veðurspáin er hag- stæð. í Skálafelli er hins vegar ekki nægur snjór. 2 diskalyftur voru í gangi í gær en ekki stóllinn vegna snjóleysis á toppnum. Á HengUs- svæðinu vantar líka snjóinn. Á Austurlandi snjóaði í gær og reiknað er með að hægt verði að opna skíðasvæðið í Oddsskarði í næstu viku þar sem verðurspá er hagstæð. Snjór er ekki nægur og hefur ekki verið hægt að komast á skíði þar í vetur. í Hlíðarfjalli við Akureyri lítur vel út með skíðafæri um helgina. í gær var suðaustanátt og gott veður og hagstæð spá. Snjórinn er frekar lítUl en þó nægur til að hafa allar lyftur í gangi. Ekki verður skíða- svæðið í Ólafsfirði opið en hins veg- ar verður opið á Dalvík um helgina. Á Seljalandsdal við ísafjörð vant- ar mikinn snjó. Þar verður göngu- svæðið þó opið. Einnig verður opið fyrir æfingakrakka og þá sem koma en ekkert verður auglýst þar sem svæðið er takmarkað. Veður var gott í gær og hagstæð spá. Á Tungu- dal er nánast autt. -ÞK Formaður Alþýðuflokks: Hef ekkert að segja um viðræð- urnarvið Margréti „Ég hélt fund á Eyrarbakka og tók síðan hús á Margréti. Við spjöUuðum síðan svolítið saman og það er ekkert um að segja meira,“ segir Jón Bald- vin Hannibalsson, formaður Alþýðu- Uokksins. DV greindi frá því nýlega að for- menn Alþýðubandalags og Alþýðu- flokks hefðu átt óformlegar viðræður í síðustu viku um hugsanlegt sam- starf Uokkanna. Þá væri ákveðið að stjórnarandstaðan stæði saman að ráðstefnu um ríkisfjármál. „Það hefur ekki verið tímasett né fastmælum bundið hvenær. Það er verið að ræða þetta,“ segir Jón Bald- vin. Jón Baldvin viU ekkert segja um hugsanlega sameiningu þingUokka Þjóðvaka og AlþýðuUokks fyrir 80 ára afmæli AlþýðuUokksins í mars. Eng- in slík ákvörðun liggi fyrir. -GHS Hólmavík: Dráttarvél rann stjórnlaust aftur á bak íbúi á Hólmavík skarst Ula á höfði þegar dráttarvél hans með kerru í eft- irdragi valt í hálku á veginum að ruslahaugunum rétt fyrir utan Hólma- vík skömmu fyrir hádegi á miðviku- dag. Maðurinn var með drasl í kerrunni á leið á haugana. Hann var hálfnaður upp brekkuna þegar vélin fór að renna stjórnlaust aftur á bak í hálku. Hún valt fram af bröttum kanti og maður- inn skarst iUa. Hann var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. -GHS Starfsmannafélagið Sókn mót- mælti harðlega á fundi sínum boð- uðum niðurskurði í sjúkrahúsunum i Reykjavík og skorar á spítalana að byrja niðurskurðinn á yfirmönnum spitalanna í stað þess að láta al- menna starfsmenn sífeUt kenna á því. Fundurinn beindi þeim tilmæl- um til ríkisvaldsins að fram fari aUsherjar úttekt á öUu heUbrigðis- kerfinu í landinu sem leiði tU heU- steyptrar stefnu í heUbrigðismálum og tæki til nokkurra ára í senn í stað þess rótleysis sem fylgir ómarkvissum niðurskurði. „Það er orðið óskaplegt álag á Sóknarfólki. Það er alvanalegt að enginn sé kaUaður út tU að hlaupa í skarðið fyrir þá sem verða veikir. Það er líka vísindalega sannað að veikindi aukast við aukið álag. Við verðum vör við það hér ásamt gífur- legri óánægju. Þessi hópur verður aUtaf fyrir niðurskurðinum en yfir- menn verða aldrei fyrir barðinu á honum. Við höfum áhyggjur af því að fyrsti hópur áfalladeildarinnar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur verði starfsmennirnir," segir Guðrún. Sumir starfsmenn á Landakoti eiga fimm eða sex uppsagnarbréf eins og fram kom í DV í síðustu viku. Guðrún segir að ekki sé hægt að bjóða sjúklingum eða starfs- mönnum á spítölunum upp á svona aðferðir. „Við sameiningu spítalanna var yfirmönnum raðað á jötuna á með- an fyrir lá að skera niður um 380 milljónir. Starfsmenn Sjúkrahúss Reykjavíkur fengu afskaplega hlý- legt bréf frá stjórnendum spítalanna á áramótum þar _sem sagt var að ekki yrði hreyft v’ið neinu. Á sama tíma voru komnar upplýsingar um væntanlegan niðurskurð. Þetta eru ekki heiðarleg vinnubrögð," segir Guðrún. -em *s®f81SSS§^ 1 '0^'' I ’ liMW’AfÁV - * * ixi- Pl « 'zÁMfc**- w § m ■ M; dE v :: .■■p ■ * * 4 „ v* v'' t <a\ *...*: ■ • ’ j $0 wlSf •„'V ". '■'. 1M Einkabókhaldið treystir f jármál heimilisins EINKA# bókhald Einkabókhaldiö er nýtt og notendavænt forrit til þess að halda utan um fjármál heimilisins og gera fjárhagsáætlanir. Forritiö er afar einfalt í notkun, valmyndir eru skýrar og músin er notuö við allar skipanir. Einkabókhaldiö auöveldar þér að: • Koma betra skipulagi á útgjöldin • Reikna út greiðslubyrði lána miðað við mismunandi forsendur • Sjá greiðslustöðuna • Meta áhrif fjárfestinga og tekjubreytinga á greiðslustöðuna • Reikna út ávöxtun innlána • Áætla mánaðarlegar tekjur og útgjöld heimilisins Einkabókhaldið er fyrir PC tölvur, 386 eða öflugri. ítarleg notendahandbók fylgir - betri mynd á fjármálin L Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Heimasíða: http://www.centrum.is/lbank/

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.