Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Page 8
8
sælkerinn
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 J
Hótel Örk:
Grænmetisbak
Það eru sjálfsagt margir þegar
farnir að hugsa um línurnar fyrir
sumarið. Hér kemur einn hitaein-
ingasnauður grænmetisréttur úr
grænmetisbænum Hveragerði. Það
er Jón Friðrik Snorrason, yfirmat-
reiðslumaður á Hótel Örk, sem legg-
ur til þessa uppskrift.
Hægt er að nota hvaða grænmeti
sem er í þessa böku, allt eftir því
hvað fólki þykir gott. Einnig má
einfalda matartilbúninginn með því
að nota frosið smjördeig sem keypt
er í búð í stað þess að búa til deigið
sjálfur.
Uppskriftin er ætluð fjórum. Und-
irbúningstími er um 20 mínútur og
eldunartími 30 mínútur. I hverjum
skammti eru um 650 hitaeiningar.
Deigið
salt á hnífsoddi
100 g smjörlíki
2 matskeiðar
kalt vatn
Hveiti og salt er sett
í skál og smjörlíkinu
blandaö saman við.
Jón Friðrik
Snorrason,
yfirmatreiðslu-
maður á
Hótel Örk.
DV-mynd Sveinn Pl
2 egg
150 ml mjólk
100 g riflnn ostur
salt og pipar eftir smekk
Allt grænmetið er skolað, skorið í
hæfilega bita og brúnað létt á pönnu
í olíunni. Eggjum, mjólk og osti
blandað vel saman og kryddað eftir
smekk. Grænmetið er sett í formið
og blöndunni hellt yfir það. Þetta er
síðan bakað við 180 gráður í um það
bil 30 mín.
Þetta er hnoðað
saman þar til
blandan líkist
fínu brauðra-
spi. Vatnið
er þá sett
saman við
og hnoðað.
Deigið er
síðan flatt
út og örlítið
hveiti notað
við það. Það
er svo sett I
hringlaga smurt
form, um það
Gráðaostsósa
1 dós sýrður rjómi, 10%
lítið lauf gráðaostur
Ostinum er stappað
saman við sýrða
rjómann eftir því
hvað fólk vill
hafa sósuna
sterka.
Grænmet-
isbakan er
borin
fram með
gráðaostsós-
unni og sal-
ati, til dæmis
frizze-salati,
eikarlaufum,
grilluðum tómötum,
spergilkáli og
gulrótum.
-ból
bil 11 sm í þvermál
og ekki mjög djúpt.
Best er að formið
sé með lausum
botni.
Fylling
1 meðalstór laukur
1 lítið zucchini,
kúrbítur
5 meðalstórir sveppir
2 meðalstórar
gulrætur
2 matskeiðar
ólífuolía
Kartöfluostasúpa
Það eru ekki allir jafn
hrifnir af súrum pungum
og selspiki og hér koma
tvær góðar uppskriftir fyr-
ir þá sem fúlsa við ramm-
íslenskum þorramat. Þessi
súpa er ætluð fjórum.
2 bollar kjúklingasoð
1 meðalstór kartafla
í teningum, 1 bolli
1 meðalstór laukur,
saxaður, V2 bolli
Vi bolli saxað
spergilkál, broccoli
1 meðalstór grófrifin
gulrót, V2 bolli
3 matskeiðar maísmjöl
35 dl mjólk
V, bolli cheddarostur
Blandið saman soöi,
kartöflu og lauk í stórum
potti og látið sjóða. Minn-
kið hitann, setjið lok yfir
og látið malla i 10 minútur
eða þar til grænmetið er
orðið mjúkt. Merjiö kartö-
fluteningana í pottinum
með gafli. Hrærið saman
maísmjöl og smámjólk.
Kartöflusoðið og afgangur-
inn af mjólkinni er síðan
hrært saman við. Bætið
spergilkálinu og gulrót-
inni út í. Hrærið vel og
látið suðuna koma upp
þar súpan er orðin þykk.
Látið sjóða í tvær mínútur
í viöbót og bætið þá ostin-
um út í. Osturinn er rétt
látin bráðna.
Feta- og rækjusalat
Nú er nægt að kaupa
fetaost á íslandi og því
ekki úr vegi að prófa þetta
ljúffenga salat sem í raun
getur verið heil máltíð út
af fyrir sig. Uppskriftin er
fyrir sex.
250 g spagettí,
brotið í tvennt
450 g meðalstórar
rækjur
1 bolli fetaostur
1 bolli kotasæla
8 litlir rauölaukar,
niðursneiddir
2 tómatar, saxaðir
1V2 teskeið oregano
1 teskeið svartur pipar
Sjóðið spagettíið sam-
kvæmt leiðbeiningum á
pakkanum, sigtið og
geymið. Setjið rækju, ost,
lauk, tómat, oregano og
pipar saman í stóra skál
og blandið vel saman.
Bætið spagettíinu út i og
blandið. Berið strax fram.
matgæðingur vikunnar
Þrír síldarréttir
„Síldarréttir hafa svona fylgt okk-
ur hjónunum í gegnum árin og við
höfum alltaf verið mjög mikið með
síld. Síldin er svo alltaf að bætast
meira og meira á þorraborðin og nú
orðið sér maður alltaf eitt eða tvö
síldarsalöt með þorramatnum," segir
Björg Sigurðardóttir, ritstjóri Nýrra
eftirlætisrétta hjá Vöku Helgafelli og
matgæðingur vikunnar.
Björg ætlar að gefa lesendum DV
uppskrift að þremur síldarréttum.
Hún er gift Troels Bendtsen og
kynntist síldinni fyrst í Danmörku
þegar hún var þar við nám í hús-
mæðraskóla.
„Maðurinn minn var leiðsögumað-
ur í laxveiði í mörg ár og erlendir
laxveiðimenn voru því oft í heim
sókn hjá okkur. Þá var
alltaf að reyna að finna eitthvað
sniðugt íslenskt til að bera á
borð. Ég fór þá að prófa mig
áfram með síldina. Hún hefur
síðan alltaf verið vinsælust
og nú er svo komið að þetta
tilheyrir mér svona svolít-
ið.“
Björg býr til flestar sínar
uppskriftir sjálf. „Maður
flettir og les bækur og svo
mótast þetta eftir hendinni.
Það er yfirleitt aldrei sem
ég tek rétti beint upp úr
bók. Ég prófa mig
yfirleitt áfram,
breyti og bæti og
kem með eitthvað
nýtt.“
y ui
ig
kælið. Skerið síldarflökin í frekar
litla bita og leggið í löginn ásamt app-
elsínusneiðum. Berið fram með rauð-
laukssneiðum og appelsínusneiðum.
Appelsínusíld
4 stór marineruð
sfldarflök
2 dl edik
1 dl sykur
25 marin einiber
4 negulnaglar
10 heil svört piparkorn
2 dl appelsínusafi
1 appelsína
1 meðalstór rauðlaukur
Sjóðið saman lög úr ediki,
sykri og kryddi. Bætið appel-
sinusafanum saman við og
Blaðlaukssíld
þarf. Setjið síðan helminginn af
rjómaostblöndunni neðst í fat. Skeriö
kryddsíldina í bita og raðið ofan á,
síðan afganginn af rjómaostinum og
skreytið með þunnum blaðlauks-
sneiðum.
4 kryddsíldarflök
150 g rjómaostur
4 msk. mjólk
3-4 msk. rifin piparrót eða piparrót
i pakka, 3-4 tsk.
safi úr */2 sítrónu
1 lítfll blaðlaukur
1 epli
salt og svartur pipar
Mýkið rjómaostinn með mjólkinni
og kryddið með piparrót,
sítrónu-safa, salti og
pipar. Skerið blað-
laukinn í örþunnar
sneiðar og eplið í
litla teninga og
bætið út i. Bætið
meiri mjólk
saman við ef
Síldarsalat
Björg Sigurðardóttir, ritstjóri Nýrra eftirlætisrétta, er
matgæðingur vikunnar. DV-mynd
3 marineruð síldarflök
4 soðnar kartöflur
5 rauðrófusneiðar niðursoðnar
ásamt örlitlu af leginum
1 sýrð agúrka
2 epli
1 lítill laukur
1 msk. sætt sinnep
1 tsk. sykur
3 msk. olía
1 msk. borðedik
salt og nýmulinn pipar
3 harðsoðin egg
Skerið kartöflur, rauðrófur, sýrða
gúrku og epli í litla teninga og lauk-
inn smátt. Blandið svo öllu saman í
skál. Skerið síldarflökin í litla bita og
blandið saman við. Til að gera sós-
una er sykri og sinnepi blandað sam-
an, olíunni bætt í í smáskömmtum og
þeytt vel á milli. Sósan er síðan
bragðbætt með ed-
iki og hellt yfir
síldarblönduna
og blandað vel.
Setjið salatið í
form eða skál
og látið bíða í
ísskáp yfir
nótt. Hvolfið
svo á fat og
skreytið með
harðsoðnum ekkj-
um í bátum eða sneið-
um.
Björg ætlar að skora á Ástu
Birnu Hauksdóttur flugfreyju að
vera næsti matgæðingur. „Hún
kemur til með að hafa umsjón
með nýjum baksturspakka
sem er að koma út hjá Vöku
Helgafelli. En þó hún sé
| flink að baka þá er hún jafn-
vel ennþá flinkari í austur-
lenskri matargerð."
-ból
Það hefur sjálfsagt ekki farið
fram hjá neinum að þorrinn er
genginn í garð með tilheyrandi
matarstandi. Nú raða allir í sig
súru slátri og hrútspungum, há-
karli, hangikjöti og harðfiski.
Auðvitað er svo allra best að
skola herlegheitunum niður með
ísköldu islensku brennivíni.
í bók Árna Bjömssonar, Saga
daganna, segir að mennta- og
embættismenn hafi á síðari
hluta 19. aldar farið að tíðka
samkomur sem þeir kölluðu
„þorrablót". Þetta voru matar- og
drykkjuveislur þar sem sungin
voru ný og gömul kvæði og
drukkin minni heiðinna goða og
Þorra, sem er persónugervingur
vetrarins.
Þessar veislur lögðust af í þétt-
býli en héldust til sveita og um
miðja 20. öld hófu átthagasamtök
á höfuðborgarsvæðinu þorrablót-
in aftur til vegs og virðingar og
buðu þá upp á „íslenskan" mat
sem þá var orðinn nokkuð sjald-
gæfur í kaupstöðunum.
Fjöldamörg samtök halda
þorrablót á þessum tíma en það
getur ekki verið síður gaman að
hóa í nokkra vini og kunningja
og bjóða í ekta þorraveislu í
heimahúsi. Það þarf ekki að hafa
mikið fyrir slíkum veislum.
Langflestar verslanir landsins
bjóða upp á þorramat um þetta
leyti, bæði í tilbúnum pökkum
og einnig í lausu. Skemmtilegast
er þó auðvitað að leggja sitt af
mörkum með því til dæmis að
baka eigið rúgbrauð og flatkökur
í veisluna.
Heimabakað
rúgbrauð
Hér kemur uppskrift að afar
gómsætu rúgbrauði. Vert er að
benda á að baka þarf brauðið
nokkru áður en veislan hefst þar
sem það þarf að vera tólf klukku-
stundir inni í cfninum.
Hráefni
300 g heilhveiti
250 g rúgmjöl
150 g hveiti
3 tsk. matarsódi
3 tsk. salt
6 dl súrmjólk
2/2 dl síróp
Hveiti, rúgmjöli og heilhveiti
er blandað saman. Matarsóda og
salti er sáldrað yfir og blandað
saman við. Heflið svo súrmjólk-
inni og sírópinu saman við og
hnoðið. Deigið er síðan sett í
smurt flát með loki. ílátinu er
lokað og það er haft lokað allan
tímann. Að lokum er brauðið
bakað í 100 til 110 gráða heitum
ofni í tólf klukkustundir.
Ilát
Það gæti vafist fyrir sumum
að finna heppileg form til að
baka rúgbrauðið í en það þarf
ekki að vera vandamál. Meðal-
stór dós utan af Mackintosh-sæl-
gæti hentar til dæmis ágætlega.
Þá eru margir sem baka rúg-
brauð í tómum mjólkurfernum.
Það er einkar heppfleg aðferð því
að auðvelt er að losa fernurnar
utan af brauðinu þegar búið er
að baka það. Þá er einnig hægt
aö nota tóm kaffibox en erfiðara
gæti reynst að losa brauðið úr
þeim.
-ból