Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 T>V
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14,105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sfmi: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Hjörðin og hirðirinn
Þingmenn Sjálfstæðisflokksins skeifdust, þegar þeir
voru spurðir, hvort þeir vildu, að formaður flokksins
byði sig fram til forseta íslands. „Ekki spyrja mig“ báðu
þeir. Aðeins einn þingmaður flokksins treysti sér til að
hafa skoðun á einu helzta umræðuefni þjóðarinnar.
Eins og þingflokkurinn er skipaður, telja þingmenn
ekki hlutverk sitt að hafa skoðun á máli, fyrr en formað-
urinn hefur sagt þeim, hvaða skoðun þeir eigi að hafa.
Og hann hefur ekki sagt þeim, hvaða skoðun þeir eigi að
hafa á þessu máli. Því eru þeir bjargarlausir.
Örfáar undantekningar eru á þessu, en þær snerta
jafnan afmörkuð mál. Einar Oddur Kristjánsson treystir
sér til að hafa sérstaka skoðun á framboði formannsins
til forseta. Og Egill Jónsson á Seljavöllum treystir sér til
að hafa sérstaka skoðun á landbúnaðarmálum.
Flestir þingmenn flokksins tengjast ákveðnum hags-
munum, til dæmis byggða eða atvinnugreina eða ein-
stakra fyrirtækja, en eru ekki fulltrúar neinnar sérstakr-
ar línu í stjórnmálum. Þeir eru aðilar að kosningavél,
sem hefur engan sérstakan tilgang annan en völdin.
Þetta er raunar nákvæmlega það sama og einkennir
þingflokk Framsóknarflokksins í jafn ríkum mæli og að
meira eða minna leyti flesta aðra þingflokka. Þeir eru
sagnfræðileg og tæknileg fyrirbæri, en ekki pólitísk.
Enda tala verk allra ríkisstjórna sama rómi.
Þegar Matthías Bjarnason, fyrrverandi ráðherra,
skammaði sína menn fyrir skoðanaleysi í framboðsmáli
formannsins, benti hann á, að enginn munur væri leng-
ur á einstökum deildum fjórflokksins gamla á Alþingi.
Þeir gætu þess vegna boðið framan sameiginlega.
Engin flokkur hefur þróað þetta skipulag betur en
Sjálfstæðisflokkurinn. Þar snýst veröldin umhverfis for-
manninn. Einstakir flokksmenn og verkstjórar telja ekki
hlutverk sitt að reyna að hafa áhrif á stefnuna, enda
skiptir alls engu máli, hver hún er á pappírnum.
Þetta gekk mjög vel, þegar Bjarni Benediktsson var
formaður og gengur aftur vel núna, þegar Davíð Odds-
son er formaður. Á milli var óróatímabil ósamkomulags
um formenn. Sá ágreiningur hentaði flokknum illa og
menn voru fegnir að fá Davíð til að hugsa fyrir sig.
Nú eru menn svo eðlilega og notalega skoðanalausir,
að þeir hafa enga skoðun á því, hvort landsþing flokks-
ins skuli vera að vori eða hausti, þetta árið eða hitt. Þeir
bíða bara eftir ákvörðun formanns. Þeir mundu sætta
sig við, að landsþingi yrði frestað til aldamóta.
Skoðanalaus og foringjahollur flokkur er kjörinn
valdaflokkur. Hann nær léttu samkomulagi við aðra
flokka um myndun ríkisstjórnar, af því að menn eru
innilega sammála um að láta ekki málefnaágreining
standa í vegi. Hrein og tær völd eru eina stórmálið.
Það hentar slíkum flokki að vera í samstarfl um skipt-
ingu valdsins við Framsóknarflokksins, sem tímabundið
hefur komið upp svipuðu formannsveldi og Sjálfstæðis-
flokkurinn. Ekkert mælir á móti því, að samstarfið hald-
ist fram eftir næstu öld, ef kjósendur bara leyfa.
Þannig er ekki hægt að merkja, að ríkisstjórnir, sem
Sjálfstæðisflokkurinn skipar, séu hægri sinnaðri en aðr-
ar. Allar ríkisstjómir vemda miðstýringuna, af því að
hún hentar sterku hagsmunaaðilunum, sem hafa aðgang
að valdinu og hafa þingmenn á sínum snærum.
Einn góðan veðurdag segir formaðurinn flokki sínum,
hvort hann ætlar að verða forseti landsins. Allir verða
áfram afar hamingjusamir og una glaðir við sitt.
Jónas Kristjánsson
Kínverskt taugastríð
gegn Taívanbúum
Af öllum smátígrunum í Aust-
ur-Asíu, ört dafnandi efnahags-
veldum, hefur Taívan náð þeim
árangri sem mestum undrum sæt-
ir. Eyja undan suðausturströnd
Kína, um þriðjungur íslands að
flatarmáli, með 21 milljón íbúa,
ræður nú yflr einhverjum rífleg-
asta gjaldeyrissjóði í heimi vegna
blómlegs iðnaðarútflutnings.
Jafnframt hafa stjórnarhættir
tekið stakkaskiptum á Taívan.
Fyrst eftir að Sjang Kaisék flýði til
eyjarinnar með stjórn og leifar af
her Kuomintang-flokksins í Kína
undan sigursælum kommúnistum
rikti hann og síðan eftirmenn
hans með harðri hendi. Kröfum
Taívanbúa sjálfra um áhrif og lýð-
réttindi var drekkt í blóði.
Eftir því sem elli felldi leiðtoga
Kuomintang tók stjórnarfarið að
breytast í frjálsræðisátt. Nú situr
lýðræðislega kjörið þing í höfuð-
borginni Taipei og forsetakosning-
ar með mörgum frambjóðendum
eru fram undan 23. mars.
Að undirlagi Bandaríkjastjóm-
ar var látið svo heita fram yfir
1970 að stjómin á Taívan væri
Kínastjórn og fór hún með umboð
landsins hjá Sameinuðu þjóðun-
um. Raunveruleg Kínastjórn í
Peking gerði það ætíð að skilyrði
fyrir stjómmálasambandi við önn-
ur ríki að þau ryfu formleg milli-
ríkjatengsl við Taívan.
Nixon Bandaríkjaforseti varð
að sæta þessu eins og aðrir þegar
hann kom á stjórnmálasambandi
milli Bandaríkjanna og Kína. Var
það illa séð af sumum flokks-
bræðrum hans i Repúblikana-
flokknum sem vildu halda til
streitu þeirri afstöðu að tvær
stjórnir væru á kínversku landi,
önnur á Taívan.
Nú er Kína að endurheimta yf-
irráð yfir svæðum sem fyrr meir
urðu nýlendur erlendra ríkja.
Hong Kong fer undir kínversk yf-
irráð frá Bretum 1997 og Macao
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
frá Portúgölum 1999. Talsmaður
utanríkisráöuneytis Kína sagði í
vikunni að eftir það kæmist efst á
blað að ráða til lykta „stöðu Taí-
vans og sameiningu ættjarðarinn-
ar“.
Taívanstjóm hefur þá afstöðu
að ræða megi stöðu eyjarinnar við
Kínastjórn en algert skilyrði fyrir
því sé að Kína skuldbindi sig til
að gripa þar ekki til valdbeitingar.
Þrátt fyrir þá sjálfheldu hafa sam-
skipti og viðskipti yfir sundið
milli eyjar og meginlands vaxið
ört síðustu árin. Fjármálamenn á
Taívan eru meðal mestu fjárfesta
á þróunarsvæðunum í Kína sunn-
an- og austanverðu.
Svo stendur nú á í Kína að
Deng Hsiaoping, æðstráðandi í
Kommúnistaflokknum, er kominn
að fótum fram og yngri menn búa
sig undir átök sem orðið geta um
eftirmanninn þegar hann fellur
frá. Þegar þar að kemur skiptir
miklu hvar herforustan leggst á
sveif.
Til þessa má að verulegu leyti
rekja tilhneigingu Kínastjómar til
aö beita hervaldsógnun gagnvart
Taívan síðustu misseri. Upphafið
var mikið uppnám í Peking þegar
forseti Taívans, Lí Tenghúí, fékk
vegabréfsáritun til Bandaríkjanna
í fyrra að sækja bekkjarafmæli í
háskóla sínum. Auk mótmæla við
Bandaríkjastjóm var efnt til eld-
flaugaskotæfmga á hafmu nærri
Taívan.
í nóvember æfðu svo floti og
flugher Kína landgöngu á eyjum á
Taívansundi. Nú berast fregnir af
liðsamdrætti á meginlandinu
gegnt Taívan. Fáir búast við að til
meiri tíðinda dragi í bráð en báð-
ir aðilar vígbúast. Kínastjórn hef-
ur samið við Rússlandsstjórn um
tækniyfirfærslu tii smíöi vandaðri
árásarflugvéla en hún ræður nú
yfir og Taívanstjóm á von á F-16
orrustuflugvélum frá Bandaríkj-
unum og Mirage-vélum frá Frakk-
landi.
En undirrót ýfinga frá Peking
er ekki einvörðungu valdastreitan
sem þar kraumar vegna heilsufars
Dengs. Valdhöfunum, sem börðu
niður lýðræðishreyfinguna í höf-
uðborg Kína 1989, er meinilla við
að sjá lýðræðislega stjórnarhætti
festast í sessi á svæðum sem þeir
ætla sér yfirráð yflr. Þess vegna
hefur Kínastjórn lýst yfir að hún
muni afnema þær lýðræðislega
kjörnu stofnanir sem Bretar komu
upp í Hong Kong á allra síðustu
árum áður en þeir eiga að afhenda
Kína borgina.
Verði Lí Tenghúi endurkjörinn
forseti Taivans í næsta mánuði,
eins og líkur benda til, verður
hann í sterkari aðstöðu en áður,
með ótvírætt umboð frá lands-
mönnum. Fyrir Kínastjóm vakir
öðrum þræði að fæla frá honum
fylgi til frambjóðanda sem vill
fara hægar í sakirnar gagnvart
Kína.
Lí Tenghúí, forseti Taívans, veifar til stuðningsmanna sinna á samkomu í kosningaskrifstofu sinni í Taipei.
Símamynd Reuter
skoðanir annarra
Aðrir hnappar Clintons
„Það hefði ekki átt að þurfa áríðandi símtöl frá
Bill Clinton forseta til að afstýra hemaðarátökum
milli Grikkja og Tyrkja um tvo óbyggða kletta í
Eyjahafi í síðustu viku. Grikkir og Tyrkir eru sam-
an í NATO og Clinton hefur öðrum og mikilvægari
hnöppum að hneppa. Við lá að upp úr syði vegna
| þess að forsætisráðherrar í veikri stöðu reyndu að
slá við þjóðernissinnuðum andstæðingum sínum á
sama tíma og lýðskrumspressan ól á nær þúsund
' ára óvild Grikkja og Tyrkja.“
Úr forustugrein New York Times 5. febrúar.
Nýr stíll í París
„Það er breyttur still í embætti Frakklandsfor-
j seta. Francois Mitterrand hafði yfir sér leyndar-
Ídómsfulla og upphafna ró en Jacques Chirac geisl-
ar af eirðarlausri orku. Chirac er nýliðinn meðal
margreyndra leiðtoga stórveldanna. Ákafi hans í að
Frakkland komist aftur í fremstu röð og hafi áhrif
hefur valdið nokkmm innbyrðis óróleika meðal
stórveldanna undanfarna mánuði."
Úr forustugrein Jyllands-Posten 5. febrúar.
Endurmenntun borgar sig
„Lögfestur réttur á fríi til að endurmennta sig er
góð hugmynd, svo lengi sem við höfum efni á að
borga það sem slíkar umbætur kosta. Thorbjöm
Jagland, formaður Verkamannaflokksins, hefur rétt
fyrir sér þegar hann segir að ekkert borgi sig jafn
vel fyrir samfélagið og að fjárfesta í menntun og
hæfni. En þaö verður líka að fjármagna íjárfesting-
ar sem borga sig. Rekstur margra norskra fyrir-
tækja gengur vel nú en varla nokkurt þeirra hefur
ráð á að gefa starfsmönnum sínum ársfrí á fullum
launum tíunda hvert ár, eins og verkalýðshreyfíng-
in hefur lagt til.“
Úr forustugrein Aftenposten 7. febrúar.