Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 17
JjV LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
17
Bridgefélag
Hafnarfjarðar
Mánudaginn 5. febrúar var
spilað 3. kvöldið af 4 í Kauphall-
artvímenningi félagsins. 20 pör
hafa spilað 14 umferðir af 19 og
bestum árangri 3. kvöldið (um-
ferðir 10-14) náðu eftirfarandi
pör:
1. Dröfn Guðmundsdóttir-Ás-
geir Ásbjörnsson 430
2. Hulda Hjálmarsdóttir-Erla
Sigurjónsdóttir 386
3. Halldór Einarsson-Gunn-
laugur Óskarsson 271
Efstu pör .eftir 14 umferðir
eru:
1. Dröfn Guðmundsdóttir-Ás-
geir Ásbjörnsson 1148
2. Friðþjófur Einarsson-Guð-
brandur Sigurbergsson 798
3. Ólafur Ingimundar-
son-Sverrir Jónsson 623
Síöasta kvöldið í Kauphallar-
tvímenningnum verður spilað
mánudaginn 12. febrúar og síðan
er frí frá spilamennsku 19. febrú-
ar vegna Bridgehátíðar. 26. febr-
úar er síðan 1. kvöldið af 3 eins
kvölds tvímenningum í röð hjá
félaginu. Gefin verða sér verð-
laun fyrir besta árangur úr 2 af
þessum 3 kvöldum.
Bridgefélag Hafnai-fjarðar spil-
ar á mánudagskvöldum í félags-
álmu Haukahússins, með inn-
keyrslu frá Flatahrauni. Spila-
mennska byrjar kl. 19.30 og eru
allir spilarar velkomnir.
Föstudagsbridge BSI
Föstudaginn 2. febrúar var
spilaður eins kvölds tölvureikn-
aður Mithcell-tvímenningur með
forgefnum spilum. 27 pör spiluðu
19 umferðir með 3 spilum á milli
para. Meðalskor var 270 og best-
um árangri náðu:
NS
1. Hafþór Kristjánsson-Rafn
Thorarensen 310
2. Ormarr Snæbjörnsson-Sig-
urbjörn Haraldsson 309
3. Þorleifur Þórarinsson-Jón
Stefánsson 291
AV
1. Eyþór Hauksson-Jón Viðar
Jónmundsson 348
2. María Ásmundsdóttir-Stein-
dór Ingimundarson 327
3. Andrés Þórarinsson-Hall-
dór Þórólfsson 314
Föstudagsbridge BSÍ er spilað
öll fóstudagskvöld í húsnæði BSÍ
að Þönglabakka 1. Spilaðir eru
einskvölds tölvureiknaðir tví-
menningar með forgefnum spil-
um. Spilamennska byrjar kl.
19.00 stundvíslega og eru allir
spilarar velkomnir. Dagskrá
næstu föstudaga:
Föstudaginn 16. febrúar: Eng-
in spilamennska vegna
Bridgehátíðar
Föstudaginn 23. febrúar: Mon-
i'ad- barómeter.
Sonarsonur Mahatma Gandhi á Islandi:
Vill friðargarð
„ísland er einkar vel til þess fall-
ið að taka pólitíska forystu í friðar-
málum og ganga fram í því að leysa
millilandadeilur," segir Yogesh
Gandhi sem nú er staddur -hér á
landi. Hann hitti Vigdísi Finnboga-
dóttur forseta í gær og kynnti fyrir
henni hugmyndir sínar um að ís-
land yrði gert að nokkurs konar
friðarmiðstöð heimsins.
Gandhi er sonarsonur Mahatma
Gandhi, fyrrum þjóðarleiðtoga Ind-
verja. Hann er jafnframt forseti
Gandhi friðarstofnunarinnar sem
starfar um allan heim.
Friðarstofnunin starfar í anda
Mahatma Gandhi sem var þekktur
fyrir boðskap sinn í þágu friðar og
mannúðarmála. Mahatma var mjög
áhrifamikill leiðtogi indversku þjóð-
arinnar, heimskunnur fyrir mein-
lætalifnað og boðskap um and-
spymu gegn nýlenduvaldi Breta án
valdbeitingar.
Friðarímynd yfir Islandi
Yogesh Gandhi, sem kom til ís-
lands á vegum friðarsamtakanna
Friður 2000, segir að ísland henti
einkar vel sem miðstöð friðarmála í
heiminum þar sem hér hail aldrei
geisað stríð. Þar að auki hafi landið
yfir sér friðarímynd eftir leiðtoga-
fund Reagans og Gorbatsjovs hér á
landi árið 1986.
Gandhi hefur einnig sett þá hug-
mynd fram að hér verði gerður frið-
argarður og að þar verði reist stytta
af Mahatma Gandhi. Stungið hefur
verið upp á Öskjuhlíðinni sem hugs-
anlegum stað.
„Von mín er að þetta verði fyrsti
friðargarðurinn af mörgum sem
komið verður á fót úti um allan
heim og að hingað geti fólk komið
alls staðar að úr heiminum til að
biðja fyrir friði,“ segir Gandhi sem
ætlar að kynna almenningi þessa
hugmynd sina á fyrirlestri í Ráð-
húsinu á morgun klukkan þrjú.
Með Gandhi hér á landi er Lois
Nicolai sem er framkvæmdastjóri
samtaka sem kallast World Citizen
Diplomats. Samtökin eru að skipu-
leggja fimm ára fyrirlestraferð um
heiminn þar sem þátttakendur
munu fara í skóla og fangelsi og
ræða friðar- og umhverfismál.
Draumur hennar er að þjóðir
heims sameinist um aldamótin og
lýsi yfir friði. í kjölfarið vonast hún
til að komið verði upp sveit friðar-
sinna sem ferðist til átakasvæða til
að koma í veg fyrir styrjaldir.
-ból
Yogesh Gandhi, barnabarn Mahatma Gandhi, hins ástsæla indverska leið-
toga, er staddur hér á landi til að kynna hugmyndir sínar um að ísland verði
miðstöð friðarmála í heiminum. DV-mynd GS
í Öskjuhlíðinni
Afsláttardagar í JWV METRÓ
p. , .. „ 15-50% afsláttur
- Quick-Step parket, 1. gæðaflokkur VblldllÖtl VÖ1T1II1MF
- gólfdúkar - gólfteppi - fíltteppi á lága VerSilM
- stök teppi - baðmottur - dyramottur -
- gúmmímottur - blöndunartæki ðlOIÍStU
hreinlætistæki - baðkör - sturtubotnar
- ýmsar gjafavörur - málning veggfóðursborðar
- flísar, úti og inni - ísskápar - þvottavélar - frystikistur
°4
Opið öll kvöld og allar helgar
iWMETRÓ iWMETRÓ iV\METRÓ
Reykjavík Reykjavík Reykjavík
Málarinn, Skeifunni 8 Hallannúla 4 Lynghálsi 10
sírni 581 3500 sími 553 3331 sími 567 5600
iWMETRÓ
Akureyri
Furuvöllum 1
sími 461 2785/2780
iWMETRÓ
Akranesi
Stillholti 16
sími 431 1799
iWMETRÓ
ísafirði
Mjallargötu 1
sími 456 4644
* Kyrrmynd - hægmynd
* 365 D upptökuminni
* Fjarstýring - Scart-tengi
* Sjálfvirk myndstilling
* Stafræn leitarforritun
* Jogg-hjól
Opið
iaugardaga
kl. 10-14
VBRSLUNIN
Sími 533 2500
leiðandi vörumerki
á viðráðanlegu verði
1912 var fyrirtækið SHARP stofnað, 1953 hófst fjöldaframleiðsla á sjón-
varpstækjum, 1974 var fyrsta myndbandstækið frá Sharp til sölu á íslandi,
Sharp varð fyrst með eins geisla myndvarpa, skjátökuvél og nú
VCM 19, FULLKOMIÐ MYNDBANDSTÆKI
yet
Ný