Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Síða 24
24
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 JL^V
Hann á sér allsérstætt áhugamál,
bóndinn í Austvaðsholti í Holta- og
Landsveit. Þegar hann er ekki að
sinna búinu og sinni 31 árskú, kálf-
um, kvígum og kindum þá situr
hann við tölvuna og teflir Email-
skákir eða tölvupóstskákir. Áður
fyrr hétu þetta bréfskákir, sem gátu
staðið í nokkur ár, en eftir að bónd-
inn tileinkaði sér tölvutæknina og
tölvupóstinn tekur aðeins 2 til 3
mánuði að ljúka hverri skák, sem
klukkuskákmönnum þykir líklega
heil eilífð en bréfskákmönnum, en
þeir eru nokkrir tugir virkir hér-
lendis, þykir eitt andartak.
Lærði skák
á unglingsárunum
Sá sem hér er rætt um heitir
Hannes Ólafsson. Ættfeður Hannes-
ar hafa stundað búskap aö Aust-
vaðsholti frá því um miðja átjándu
öld eða í tæplega fjórðung þess tíma
sem ísland hefur verið í byggð.
„Ég 'lærði skák á unglingsárum
mínum, um 1970, þegar ég var í
gagnfræðaskólanum að Skógum.
Svo fór ég að tefla og varð Suður-
landsmeistari nokkrum sinnum.
Hannes segir vel í myndinni að efna til tölvupóstskákmóts hér á landi og þá með skemmri umhugsunartíma en
tíðkast f því heimsmeistaramóti sem hann keppi á. Það gæti orðið til að efla áhugann á skákinni hér á landi.
DV-mynd EJ
sem er að ryðja sér til rúms. Sem
dæmi má nefna Svíana Jonny Hect-
or og Ulf Anderson. Hannes segir
spennu allt eins fylgja ástundun
bréfskáka og tölvupóstskáka og
klukkuskák en þó geti þær dregist
það á langinn að þær séu leiðinleg-
ar. Menn fylgi að sjálfsögðu allt
öðru tempói en lúmsk spenna sé því
fylgjandi að stunda bréfskák.
Fann mig vel í þessu
„Ég fann mig strax vel í þessu
tómstundagamni. Ég hef gaman af
því að keppa að hlutunum og hafa
markmið og þetta hjálpar mér í því.
Ég var hins vegar orðinn dálítið
leiður á þessu og þá kom tölvutækn-
in mér til bjargar. Staðreyndin er
líka sú að bréfskákin, sem var mjög
vinsæl hér á árum áður og allt þar
til á þessum áratug, á orðið undir
högg að sækja - hún er að keppa við
svo margt annað. Ég hef þá trú að
tölvupósturinn hleypi nýju lífi í
þetta form skákarinnar og einnig
takist henni að höfða til yngra fólks
sem liggur yfir tölvunum og Inter-
netinu kvöldum saman.“
í dag hefur Hannes komið sér upp
gagnabanka þar sem hann leikur
Bréfskákmenn tölvuvæðast og Islendingur keppir á heimsmeistaramótinu í tölvupóstskák:
Lengsta skákin
stóð í rúm fimm ár
- segir Hannes Olafsson, bóndi og alþjóðlegur stórmeistari í bráfskák
Síðan tók ég þátt í íslandsmótum í
áskorendaflokki en árið 1979 byrjaði
ég að tefla bréfskák. Það var um það
leyti sem ég byrjaði búskap og tími
til að binda sig yfir klukkuskákmót-
um var ekki lengur aflögu. Ég varð
íslandsmeistari í bréfskák, það mót
hófst árið 1979 og mótinu lauk á
tveimur árum,“ segir Hannes.
Hann segir þess dæmi að menn
tefli yfir 100 bréfskákir í einu en al-
gengara sé þó að tefldar séu 15 til 20
skákir í einu. Mest hefur Hannes
teflt 38 skákir samtímis sem hann
segir reyndar allt of mikið.
„Bréfskákirnar geta tekið nokkur
ár, allt eftir því hvar andstæðin-
garnir eru staddir í heiminum. Inn-
anlands og á Norðurlöndunum er al-
gengt að hver skák taki um 2 ár en
ef keppendur búa á fjarlægari slóð-
um tekur hver skák lengri tíma.
Nokkuð algengt er að mót keppenda
sem búa langt hvor frá öðrum geti
tekið allt að 5 ár. Til dæmis tók 7 ár
aö knýja fram úrslit í síðustu
heimsmeistarakeppni í bréfskák, þó
fóru síðustu leikirnir fram með
hjálp tölvupósts."
Hannes segir lengstu skák sína
hafa staðið yfir í hálft sjötta ár. Telf-
dir hafi verið 70 til 80 leikir í þeirri
skák sem endaði svo að lokum meö
jafntefli. Andstæðingurinn hafi ver-
ið Austur-Þjóðverji en þetta var á
meðan þýsku ríkin voru aðskilin
eða snemma á 9. áratugnum. Hann-
es viðurkennir að þessi skák hafi
verið í lengra lagi enda hafi honum
verið farin að leiðast hún. Önnur
enn þá hægari skák hafi verið á
móti Búlgara undir lok níunda ára-
tugarins. Hún hafi tekið rúmlega
fimm ár og leiknir hafi verið 36 leik-
ir eða að jafnaði 7 leikir á ári.
Aldagamalt form
Hér er um að-ræða aldagamalt
form á iðkun skáklistarinnar.
Hannes segist hafa heyrt sögu af
tveimur biskupum á Ítalíu sem
tefldu bréfskák fyrr á öldum meðan
póstþjónustan var I frumbernsku.
Skemmst er frá að segja að biskup-
unum entist ekki aldur til að ljúka
skákinni.
Bréfskákmenn hafa myndað með
sér nokkur félög. Má þar nefna
ICCF, Alþjóðasamtök bréfskák-
manna, IECG, Alþjóðasamtök tölvu-
póstskákmanna, FÍBS, Félag ís-
lenskra bréfskákmanna, sem er inn-
an vébanda ICCF og Skáksambands
íslands, sem aftur er innan vébanda
FIDE. Þessi félög bréfskákmanna
standa að skákmótum sem sum
hver gefa stig til stórmeistaratitils
og alþjóðlegs stórmeistaratitils í
bréfskák. Hannes Ólafsson er til
dæmis eini íslendingurinn sem hef-
ur hlotið alþjóðlegan stórmeistara-
titil ICCF en það var á síðasta ári.
Hins vegar varð hann alþjóðlegur
meistari árið 1991.
IECG eru samtök sem stofnuð
voru árið 1994 af áhugamönnum um
tölvupóstskák. Þessi samtök hófu
sína fyrstu heimsmeistarakeppni 15.
janúar sl. og hlaut Hannes þann
heiður að vera meðal 9 þátttakenda
í mótinu og keppir því við 8
mótherja í einu. En þess má geta að
klukkuskák er einnig tefld manna á
millum á Internetinu.
Mikill heiður
„Þetta er mikill heiður fyrir mig
en ég hefði kosið að æfa mig aðeins
fyrst í að nota tölvuna á þennan
máta. Ég keypti tölvu í haust og þá
tengdist maður þessu blessaða
Interneti og þá opnaðist sá mögu-
leiki að tefla nýtt form bréfskákar.
Þetta er.miklu fljótvirkara, til dæm-
is er verið að tala um að mót klárist
á 3 til 4 mánuðum. Maður gat orðið
leiður á að bíða eftir leikjum í
gamla bréfskákmótaforminu. Um-
hugsunartíminn í þessu er líka tal-
inn í dögum en ekki mánuðum.
Maður þarf að leika 10 leiki á 40
dögurn."
Það fylgdi þessu spenna
í Alfræðibókinni um skák eftir
dr. Ingimar Jónsson segir að
bréfskák hafi tíðkast þegar á 17. öld
en fyrstu varðveittu bréfskákirnar
séu frá upphafi 19. aldar. Á fyrstu
áratugum 19. aldar hafi þetta form
skáklistarinnar færst í vöxt og
stuttu eftir aldamót 20. aldar varð
Þorvaldur Jónsson, læknir á ísa-
firði, fyrstur íslendinga til að tefla
bréfskák. Þegar líða tók á öldina
jókst síöan áhugi á bréfskák hér á
landi og árið 1981 var Jón A. Páls-
son útnefndur alþjóðlegur meistari í
bréfskák, fyrstur íslendinga.
Mikið er um góða skákmenn í
bréfskákinni og tölvupóstskákinni
bréfskákir sínar. Áður fyrr þurfti að
halda bókhald og stilla upp hverri
skák fyrir sig þegar nýr leikur barst
og honum var svarað. Þá nota sum-
ir skákforrit þar sem þeir athuga
hvaða leikir eru líklegir í stöðunni
hverju sinni en það nota klukku-
skákmenn, með alla sína aðstoðar-
menn sumir hverjir, lika. Hannes
segist þó að mestu tefla sínar skák-
ir sjálfur.
„Gagnabankinn, sem í er að finna
tugi þúsunda skáka, heldur mikið
betur um þetta og ég get athugað
betur hvaða leikir hafa áður verið
leiknir í áður telfdum skákum og þá
náttúrlega hvaða svör eru líklega
við mínum leikjum. Áður þurfti ég
að skrifa allt saman niður og maður
var að skrifa þetta á umslög og ann-
að bréfsefni sem var við höndina og
svo týndi maður því. Tölvutæknin
hjálpar manni þannig mikiö að
halda utan um þetta.“
Hann segir þetta áhugmál hins
vegar tímafrekt eins og mörg önnur
og það þurfi að sinna því vel til að
ná góðum árangri og halda honum.
Þetta sé hins vegar skemmtilegt og
því tímanum vel varið við bréfa- og
nú tölvupóstskákir. -pp