Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 31
JjV LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
39
Magnea Guðmundsdóttir, oddviti á Fiateyri og maður ársins á rás tvö, gefur Kristjáni J. Jóhannessyni sveitarstjóra
kaffi á vikulegri samverustund Önfirðinga í Reykjavík. DV-mynd Brynjar Gauti
Opið hús fyrirbrottflutta Flateyringa:
Gott fyrir sálartetrið
- segir Björn Ingi Bjarnason, formaður Önfirðingafélagsins
„Það hefur stundum verið það
margt hérna að menn hafa ekki
rúmast hér og hafa þurft að standa
frammi á gangi,“ segir Bjöm Ingi
Bjamason, formaður Önfirðingafé-
lagsins, en félagið hefur staðið fyrir
vikulegri samvemstund í vetur.
„Fyrst eftir flóðið á Flateyri var
Rauði krossinn með opið hús allan
sólarhringinn. Síðan breyttist þetta
í vikulegar stundir í húsnæði
Reykjavíkurdeildar Rauða krossins
og svo núna eftir áramótin þá feng-
um við aðstöðu hér.“
Kerti og pönnsur
Á hverjum þriðjudegi, á milli
klukkan fjögur og sjö, hittast 10 til
30 manns, bæði fólk sem flutti frá
Flateyri eftir flóðin í október sem og
gamlir Önfirðingar, í húsnæði Álfa-
borgar í Knarrarvogi 4. Herbergið
sem félagið hefur til umráða er lítið
en andrúmsloftið er þægilegt. Á
veggjum hanga myndir frá Flateyri
og Önundarfirði, kerti loga á borð-
um og boðið er upp á kaffi og
pönnukökur.
„Menn líta mikið inn hérna, til
dæmis á leiðinni heim úr vinnunni.
Það er mjög gott að hafa svona sam-
verustund, ekki bara fyrir þá sem
mæta heldur er það líka bara mjög
gott fyrir sálartetrið að vita af þessu
að hér er alltaf opið hús. Þannig
hjálpar þetta bæði beint og óbeint
að skapa festu og öryggiskennd,"
segir Bjöm Ingi.
Herdís Egilsdóttir er ein af þeim
sem misstu húsið sitt í flóðinu. Hún
segist koma af og til í Knarrarvog-
inn.
„Þetta er mjög gott. Það er gott að
hitta fólkið hérna og halda þannig
sambandi," segir Herdís.
200 manns litið inn
Um 1100 manns eru í Önfirðinga-
félaginu. Þetta fólk er búsett víða
um landið en flestir þó í Reykjavík.
Björn Ingi segir að alls hafi um 200
manns komið á þriðjudagsstundim-
ar frá því að byrjaö var á þeim.
Þegar DV leit inn í Knarrarvog-
inn síðasta þriðjudag vildi svo til að
oddviti Flateyrar, Magnea Guð-
mundsdóttir, og Kristján J. Jóhann-
esson sveitarstjóri komu þar við I
fyrsta sinn. Þau vom í opinberum
erindagjörðum í Reykjavík og höfðu
verið á leiðinni vestur á Flateyri.
Það var hins vegar ekki flogiö þann
daginn vegna veðurs svo að þau
ákváðu að líta inn.
„Fólk á Flateyri veit vel af þessu
hérna og er mjög ánægt með þetta,"
segir Magnea.
Að sögn Magneu vom alveg um
hundrað manns sem á einn eða ann-
an hátt tengdust hörmungunum síð-
asta haust, annaðhvort lenti í flóð-
inu, varð fyrir tjóni eða ástvina-
missi. Af þessum hundrað fluttu um
60 manns til Reykjavíkur. Að und-
anfórnu hafa sumir snúið aftur en
enn búa margir fjarri Flateyri.
í kvöld halda Flateyringar þorra-
blót sem þar í sveit er kallað Stút-
ungur og segir Björn Ingi að brott-
flutiir Önfiröingar ætli aö fjöl-
menna vestur til að taka þátt í gleð-
skapnum. -ból
Frá fundinum í Reykjavók.
Skíðabogar með
segulfestingum.
Mjög auðvelt í notkun.
Þægilegra getur það ekki verið.
| Verð frá 7.942.
Bílavörubúöin
FJÖÐRIN
Skeifan 2.588-2550
i
HERRAR,
munið Valentínusardaginn,
14 febrúar.
Þú færð undirfötin hennar
hjá okkur.
Esj ps ÍL
Laugavegi 66
Sími 551-2211
EIMSKIP
AÐALFUNDUR
HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS
verður haldinn í Súlnasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 7. mars 1996
og hefst kl. 14.00.
------dagskrá -------
1. Aðalfundarstörf samkvæmt 14. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga félagsstjórnar um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa.
3. Önnur mál, löglega upp borin.
Tillögur frá hluthöfum, sem bera á fram
á aðalfundi, skulu vera komnar skriflega
í hendur stjórninni eigi síðar
en sjö dögum fyrir aðalfund.
Aðgöngumiðar að fundinum verða
afhentir hluthöfum og umboðsmönnum
hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík
frá 29. febrúar til hádegis 7. mars.
Reykjavík, 5. febrúar 1996.
STJÓRN HF. EIMSKIPAFÉLAGS ÍSLANDS