Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Qupperneq 33

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Qupperneq 33
JjV LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 Fíkniefnamarkaðurinn í Evrópu veltir árlega um 35 þúsund milljörðum króna. Ríkisstjórnir ýmissa landa vilja nú framleiða heróín fyrir þegna sína tii þess að bæta heilsufarið og minnka glæpi. Framleiðslan kostar 250 krónur grammmið en er seld ólöglega á hundrað sinnum meira eða 25 þúsund krónur. Tilraunin kemur því í veg fyrir að fíklarnir stundi glæpi til að fjármagna fíknina og slá um leið á gríðarlegan hagnað fíkniefnahringanna. Ókeypis heróín í Danmörku og Hollandi Fíkniefnaráð dönsku ríkisstjórn- arinnar mun á næstu vikum skila skýrslu um kosti og galla þess að út- hluta fikniefnaneytendum ríkis- heróíni, eins og það er kallað. For- maður nefndarinnar er Preben Brandt landlæknir og hann er ekki í vafa um að kostirnir séu fleiri en gallarnir. Þó hefur hann lagt áherslu á að samhliða verði að auka upplýsingastreymið verulega og herða mjög á forvörnum, einkum meðal yngra fólks. Heróín úr lækna- höndum gæti sent þau skilaboð til ungu kynslóðarinnar að efnið væri ekki eins hættulegt og raun ber vitni. Þær meðferðaraðferðir sem boðið er upp á hjálpa ekki meiri- hluta fikniefnaneytanda og því telur Preben Brandt að ríkisheróín veiti þeim heilbrigðara líferni og mögu- leika til að fá sér vinnu og húsnæði. I Hollandi eru menn tilbúnir með tilraunaáætlun um dreifingu heróins á sömu nótum og í Sviss. Þar á tilraunin að miðast við borg- irnar Rotterdam og Amsterdam. Áætlunin er tilbúin og einungis beð- ið eftir niðurstöðum úr alþjóðlegum rannsóknum áður en endanleg ákvörðun verður tekin. Frjálsræði í stað hafta Preben Brandt, landlæknir í Dan- mörku, telur að það eigi alls ekki bíða eftir niðurstöðum svissnesku tilraunarinnar sem í fyrsta lagi mun liggja fyrir á árinu 1997. Til- ráunina á að setja í gang svo fljótt sem auðið er í Danmörku til þess að hægt sé að bera niðurstöðurnar saman við niðurstöðurnar frá Sviss og Hollandi, og reyndar Þýskalandi og Englandi þar sem tilraunir í smærri stil hafa staðið yfir. Hann hefur einnig lýst því yfir að nú þeg- ar eigi að ákveða hvort Danir skuli halda fast við þær baráttuaðferðir sem notaðar eru í Bandaríkjunum og á Norðurlöndunum eða færa sig yfir á frjálslyndari brautir, eins og Svisslendingar og Hollendingar. Kirsten Thue Skinhoj, aðstoðar- forstjóri Miðstöðvar um vímuefnar- annsóknir í Danmörku, er á sama máli og hefur sagt að ekki þurfi að ræða málið frekar. Tilraunin í Sviss sé afar vönduð og hentug. Niður- stöður þaðan séu ótvírætt jákvæðar og því sé ekki eftir neinu að bíða. Fjölmargir aðrir hafa lýst sig fylgj- andi slíkri tilraun í Danmörku og eins og áður segir er talið fullvíst að nefnd sem skipuð var leggi eindreg- ið til að þessi leið verði farin. Hins vegar er talið að enn sé ekki meiri- hluti fyrir þessu á danska þinginu. Leysið mig úr helvíti Þetta er hreint helvíti, segir Margit, 29 ára heróínisti, í viðtali við BT. Hún hefur verið fíkniefna- neytandi í 12 ár og neyðist daglega til þess að selja illa leikinn líkama sinn á Halmtorgiriu og Istedgade í Kaupmannahöfn. Hún þarf 15 þús- und daglega til efniskaupa og hefur reynt fjölda meðferða án árangurs. Nú vonar hún að svissneska til- raunin verði að veruleika í Dan- mörku þannig að hún geti hætt að liggja undir mörgum afar ókræsileg- um karlmönnum á degi hverjum. í framhaldi af því vonast hún til þess að geta tekið upp samband við níu ára gamlan son sinn og fjölskyldu. Þegar Margit var að hefja fíkni- efnaneysluna eignaðist hún barn sem dó af heilaskaða. Hún kenndi sjálfri sér um og fór hratt niður eft- ir það. Reyndar varð hún ólétt aftur og eignaðist heilbrigðan son ári síð- ar. Hún losaði sig undan fíkninni í fjögur ár - en féll aftur í sama farið. Fíkniefni fyrir 35 þús- und milljarða! Talið er að verðmæti ólöglegra viðskipta með fíkniefni í Evrópu nemi árlega 35 þúsund milljörðum króna. Hér er um gríðarlega upp- hæð að ræða eða sem svarar öllum íjárlögum íslenska ríkisins í 350 ár! Á árinu 1994 lögðu lögregla og toll- gæsla hídd á 6 tonn af heróíni, 29 tonn af kókaíni, 733 tonn af hassi og tvö tonn af amfetamíni. Aukning á haldlögðu efni frá fyrra ári varð í öllum efnisflokkum, eða frá 15 og upp í 70 prósent. í skýrslu fíkniefnaskrifstofu Evr- ópusambandsins og fíkniefnadeild- ar Europol er einkum varað við hættu á framgangi hinna nýju glæpahringa í Mið- og Austur-Evr- ópu sem hafa útibú í öllum löndum Evrópu. í Póllandi er gríðarlega um- fangsmikil framleiðsla og dreifing á amfetamíni og fleiri efnum og þessi framleiðsla vex hratt, einkum í Ung- verjalandi, Tékklandi og baltnesku löndunum þremur. Þessir glæpa- hringar sjá einnig um dreifingu á heróini, ópíum og kókaíni sem eink- um kemur frá gullna þríhyrningn- um, Pakistan og Suður-Ameríku. 41 Misstu ekki afspennandi aukablödum I ífebrúar og mars! Aukablöð DY eru löngu orðin landsþekkt. Blöðin eru bæði fræðandi og skemmtileg og fjalla uni margvísleg og gagnleg sérsvið. Bttar '96 I TTflðÍny^erj$ íinna heildstætt yfirbt yfir þá fólksbiía og jeppa sem bílaumljoðin hafa í boði á árinu 1996. Blað sem enginn bílaeigandi má láta fram hjá sér fara. 28. febrúar Fjölbreytt og efnismikið blað nm allt sem viðkemur hljómtækjum. Þar verður meðal annars fjallað um helstu nýjungar á markaðnnm. 6. marst Ferðir - erlendis Ita3^3f®ðpplýsingar um þá ferðamöguleika sem eru í boði á árinu 1996 hjá ferðaskrifstofunum, ásamt ýmsum hollráðum varðandi ferðalög erlendis. uiars Fermingar- •gjafa- andbók Nauðsynleg upplýsinga- og innkaupahandbók fyrir alla þá sem eru í leit að fermingargjöfum. M * LjúUuvyU útg'áfa á dep _

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.