Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Blaðsíða 37
LAUGAKDAGUR 10. FEBRÚAR 1996
erlendar fréttir
Steve Forbes ver hundruðum milljóna til að fá útnefningu sem forsetaefni repúblikana:
Forríkur pabbadrengur vill kaupa forsetastól
Meö dágóðan skammt af áræði,
bjartsýni og troðfulla vasa af pen-
ingum hefur útgefandinn Steve For-
bes stokkið inn á svið stjómmál-
anna í Bandaríkjunum. Hann ætlar
sér að verða næsti forseti Banda-
ríkjanna. Og vinnur hörðum hönd-
um að útnefningu sem frambjóð-
andi repúblikana í forsetakosning-
unum 5. nóvember.
Þar til fyrir skömmu var. Steve
Forbes nánast óþekktur, ekki tek-
inn alvarlega sem mögulegur fram-
bjóðandi og alls ekki álitinn eiga
tækifæri á útnefningu. En þegar
hann fór skyndilega að bruna fram
úr öldungadeildarþingmanninum
Bob Dole í skoðanakönnunum á
dögunum fóru keppinautarnir loks
að taka hann alvarlega. Og þegar
hann hafði birst á forsíðum tímarit-
anna Time og Newsweek fór fólk
virkilega að spá í hver þetta væri.
Kosningastjórar Forbes fögnuðu
ákaft.
Steve Forbes er stjórnarformaður
og framkvæmdastjóri fiölskyldufyr-
irtækisins Forbes sem á 14 dagblöð
og 10 tímarit, þar á meðal viðskipta-
og fjármálablaðið sem ber nafn fjöl-
skyldunnar: Forbes. Fjármálaveldi
Forbes teygir anga sína víða. Eignir
Steves Forbes sjálfs eru metnar á
tæpa 30 milljarða en fastar eignir
fyrirtækisins eru margfalt meira
virði.
Ólíkur litríkum
föður sínum
Ríkidæmið erfði Forbes eftir föð-
ur sinn, hinn litríka útgefanda
Malcolm Forbes. Hann lifði sam-
kvæmt því mottói að því meira
áberandi sem hann væri því betur
gengi fyrirtækinu. Með gríðarlegum
veislum og lífi í vellystingum tókst
Forbes eldri að laða til sín ríka og
fræga fólkið og ekki síst forstjórana
sem réðu yfir auglýsingafjármagni
fyrirtækjanna.
Malcolm Forbes lést 1990. Sem
elstm’ fimm systkina tók Steve við
meirihlutaeign í fyrirtækjum fóður
síns. Þó moldríkur sé umgengst
hann auðinn á annan hátt en gamli
maðurinn. Sá lét sig ekki muna um
að halda upp á 70 ára afmælið sitt í
Tanger þangað sem flogið var þrem-
ur fullum þotum af gestum. Þar
sýndu 200 berbískir reiðmenn listir
sínar ásamt 600 magadansmeyjum.
Dálæti á Churchill
og söluhæfileikar
Steve Forbes lætur sér nægja að
feta í fótspor fóðurins sem stjóm-
andi. Hann hefur þó erft söfnunar-
áráttuna frá karlinum og er tíður
gestur á uppboðum um allan heim.
Hefur Forbes yngri sérstakt dálæti
á hlutum sem tengjast Winston
Churchill.
En þó Steve Forbes berist ekki á
eins og faðir hans kann hann þó að
njóta lífsins; siglir um á lystisnekkj-
um, á tvær hallir og eina eyju í ná-
grenni eyjunnar Fiji.
En Forbes er ekki bara pabba-
drengur. Hann þykir vel greindur
og er afar virtur innan fjármála-
heimsins, álitinn einn af ábyggilegri
efnahagsspámönnum vestra. Þá
þykir hann hafa gríðarlega sölu-
hæfileika. Frá 1992 hefur ekkert
tímarit getað fagnað jafn háu aug-
lýsingahlutfalli og flaggskip fyrir-
tækisins, tímaritið Forbes. Skákar
hann þar keppinautnum, Fortune,
sem einnig hefur haft Forbes á for-
síðunni, þó ekki með tilvísun í sér-
lega jákvæða umfjöllun.
í Fortune hefur verið sett fram sú
tilgáta að raunverulegt takmark
Steve Forbes sé ekki að komast í
Hvíta húsið heldur að selja fleiri
blöð og tímarit. Framboðsvafstrið sé
ekki annað en kænlega skipulögð
markaðssetning þar sem mottó föð-
ursins er í hávegum haft, að selja
blöð með því að selja sjálfan sig.
Steve Forbes vísar þessu á bug sem
aðdróttunum. Hann segist bjóða sig
fram til sigurs. Enda hefur hann
þegar eytt um 1200 milljónum
króna í kosningabaráttuna.
Steve Forbes þykir ekki hafa lifað
þannig lífi að gefi tilefni til gerð tilfinn-
ingafullra myndbanda tii notkunar í
kosningabaráttunni. „Hann hefur bara
sölutrikk," segir stjórnmálaskýrandi.
Símamyndir Reuter
Ögrað
með 30 skatt-
framtölum
En hvað hefur Steve
Forbes að bjóða sem fær
fólk til að taka hann
fram yfír Bob Dole
eða aðra fram-
bjóðendur
Repúblikana? Fátt
segja margir.
Helsta kosninga-
mál Steve Forbes er að
skipta flóknunm skött-
um eins og tekjuskatti,
eignaskatti og erfðaskatti
út með flötum 17 prósenta
skatti á allar tekjur. Þar
yrðu allir Bandaríkja
i og síðar pólitískur leiðtogi.
Phil Gramm, öldungardeildar-
þingmann frá Texas, sem segir
frá því þegar faðir hans dó
og mamma safnaði
börnunum við eld-
húsborðið til að
leggja á ráðin um
hvemig fjöl-
skyldan ætti að
komast af.
Einn stjórn-
málafræðingur
hefur orðað það
svo að mynd-
band Forbes
verði mjög stutt.
Hann hafi enga
sögu að segja,
bara sölutrikk. En
Forbes klórar í bakk-
ann, segir ævi sína
hafa verið annað og
meira en íspinnar og
einkabílstjórar. Annars
er hann afar fámáll
um einkahagi sína.
Með aðdáendum
Reagans
Forbes er legið á hálsi fyrir að
vera ríki pabbadrengurinn sem tel-
ur allt falt. Reyndar sjá margir það
sem kost að hann geti fjármagnað
kosningabaráttu sína sjálfur að öllu
leyti, sé ekki háður ýmsum vel-
gjörðarmönnum. En mörgum er
þymir í augum að Forbes hafi feng-
ið allt á silfurfati, ekki unnið sig
upp á bandarískan máta eins og
Ross Perot sem bauð sig fram í síð-
ustu forsetakosningum. Þá efast
margir um að hægt sé að kaupa for-
setaembætti og sama hátt og ófáir
hafa keypt sér þingsæti.
Nú er ár síðan Forbes tók ákvörð-
un um að gefa kost á sér. Hann var
valinn til framboðs af félögum sín-
um í klúbbi sem stofnaður var um
hugmyndir Ronalds Reagans, fyrr-
um Bandaríkjaforseta, og hefur þær
í hávegum. Forbes var ekki valinn
vegna persónutöfra sinna, sem
þykja engir, heldur vegna hug-
mynda hans um að bylta þjóðfélag-
inu að hætti fylgismanna Reagans.
Velmegunarhópar vilja forseta
sem fellur að hugmyndum þeirra
eins og flís i rass. Eða eins og fyrr-
nefndur vinur Forbes sagði: „Ef þú
átt fyrirtæki sem rekið er með tapi
ætti þér að vera sama þó ráðinn sé
forstjóri sem líkist hringjaranum
frá Notre Dame. Bara að hann
kunni til verka.“
Erlent
fréttaljós
Bob Dole hefur lotið í lægra haldi
fyrir í Steve Forbes í nýlegum skoð-
anakönnunum. Þó er ekki talið að
Forbes eigi möguleika á móti Bill
Clinton sem sækist eftir endurkjöri.
menn skattlagðir jafnt. Flóknir út-
reikningar og skattskýrslur yrðu
leystar af hólmi með einfóldu póst-
korti. Hann vill leysa markaðsöflin
betur úr læðingi og skera ríkisbákn-
ið niður í nánast ekki neitt. Hann er
fylgismaður þess að tengja dollar-
ann gulli eða öðrum föstum verð-
mætum á ný, vill endurlífga gulifót-
inn.
Tímaritið Fortúne telur Forbes
vera kominn á hálan ís með því að
setja skattamál á oddinn og gefur I
skyn að hann svíki grimmt undan
skatti. Bob Dole hefur auk þess
ögrað Forbes méð því að opinbera
skattaskýrslur sínar 30 ár aftur í
tímann og manar hann til þess sama.
Fram til þessa hefur Forbes hefur
verið í friöi fyrir klóm fjölmiðla og
svarar engu spurningum um skatta-
mál sín eða kynhneigðir föður síns.
Nú er hann hins vegar kominn á
fullt í baráttuna og verður ekki tek-
inn neinum vettlingatökum.
Hefur enga
sögu að segja
Andstæðingar Forbes hafa hlaðið
byssumar. Margt þykir vinna gegn
Forbes. Hann þykir hafa afar stirð-
an talanda, brosið þykir tilgerðar-
legt og bera vott um sjálfsánægju og
síðast en ekki síst á hann starfsferil
sem er gersamlega rúinn beinum af-
skiptum af stjórnunarstörfum fyrir
hið opinbera. Hann hefur ekki verið
í kjöri til eins né neins.
Einn vina Forbes segir að ósam-
ræmið í kosningabaráttu hans mégi
líkja við að hringjarinn frá Notre
Dame taki við stjórn risafyrirtækis.
Annar segir að Forbes sé svo rúinn
allri tilfinningu fyrir hversdagslegu
spjalli, sem nauðsynlegt sé til að
ganga í augun á fólki, að hann snúi
umræðu um haustlaufin á auga-
bragði upp í snakk um gullverð.
Þetta segja menn að eigi eftir að
eyðileggja fyrir honum.
Þá er ótalið að Forbes er ríki
pabbadrengurinn sem er svo ósvíf-
inn að gera tilraun til að kaupa sér
forsetastólinn. Andstæðingarnir
kalla hann Rikka rika (Richie rich)
með tilvísan í bíómynd. Hann sé
reynslulaus og eigi sér enga sögu
sem hann geti notað af viti í kosn-
ingabaráttunni. Helstu erfiðleikarn-
ir sem orðið hafa á vegi Fobes í líf-
inu eru, að sögn hans sjálfs, þegar
hann fór að heiman í heimavistar-
skóla og þegar hann tók við millj-
arðafyrirtæki föður síns.
Þegar spilað er á tilfinningar
kjósenda með myndböndum um
frambjóðendur þykir Forbes ekki
eiga neitt í menn eins og Bob Dole
sem ólst upp við heldur kröpp kjör,
komst helsár úr stríði, varð striðs-
AA)TJK
UPPBOÐ
Munið uppboðið á morgun
sunnudaginn 11. febrúar kl. 16.
HÚSGÖGN.
SMÁVARA
OG
PHRSNESK TEPPI
Sýning uppboðsverka í dag kl. 12-18
og á morgun kl. 12-14.
Sýning og uppboðið sjálft fer fram
í nýjum salarkynnum í Aðalstræti 6.
Stórkostlegt úrval af nýjum vörum
eftir helgi.
BORG
VIÐ INGÓLFSTORG
SÍMI 553-4211