Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Qupperneq 50

Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1996, Qupperneq 50
LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 1996 IjV 58 afmæli Baldvin Tryggvason sparisjóðs- stjóri, Bjarmalandi 19, Reykjavík, verður sjötugur á mánudaginn. Starfsferill Baldvin fæddist á Ólafsfirði, lauk stúdentsprófi frá MA 1948 og lögfræðiprófi frá HÍ 1953. Hann stundaði ýmis lögfræði- störf, var framkvæmdastjóri full- trúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1956-60, Almenna bóka- félagsins 1960-76 og hefur verið sparisjóðsstjóri SPRON frá 1976. Baldvin var formaður Heimdall- ar 1957-58, formaður fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík 1963-68, sat í miðstjórn Sjálfstæðis- flokksins 1970-77, var varaborgar- fulltrúi í átta ár, formaður Æsku- lýðsráðs Reykjavíkur og Fræðslu- ráðs Reykiavíkur um skeið, var fulltrúi borgarstjóra í leikhúsráði Leikfélags Reykjavíkur 1963-94, sat í Menntamálaráði 1958-78, formað- ur framkvæmdastjórnar Listahá- tíðar 1974-76 og nú formaður Lista- sjóðs, er formaður Sambands ís- lenskra sparisjóða frá 1978 og hefur gegnt fjölmörgum öðrum trúnaðar- störfum á vegum sparisjóðanna innan lands og utan. Fjölskylda Baldvin kvæntist 11.4. 1956 Júlíu Sveinbjarnardóttur, f. 29.8. 1931, d. 21.10. 1984, BA og leiðsögumanni. Hún var dóttir Sveinbjörns Sigur- jónssonar skólastjóra og k.h., Soff- íu Ingvarsdóttur húsmóður. Baldvin kvæntist 15.8. 1992 Halldóru Jónasdóttur Rafnar, f. 31.5. 1947, BA. Hún er dóttir Jónas- ar Rafnar, alþm. og bankastjóra, og k.h., Aðalheiðar Bjarnadóttur Rafnar húsmóður. Börn Baldvins og Júlíu eru Sveinbjörn Ingvar Baldvinsson, f. 27.8. 1957, rithöfundur í Reykjavík, kvæntur Jónu Finnsdóttur kvik- myndagerðarmanni og eru börn þeirra Arna Vala, Baldvin Kári og Finnur Sigurjón; Tryggvi Marteinn Baldvinsson, f. 4.8. 1965, tónskáld í Reykjavík, kvæntur Vilborgu Ein- arsdóttur kennara og eru synir þeirra Sveinbjörn Júlíus, Einar Sverrir og Baldvin Ingvar. Stjúpsynir Baldvins eru Jónas Friðrik Jónsson, f. 10.11. 1966, lög- fræðingur í Reykjavík, kvæntur Lilju Dóru Halldórsdóttur lögfræð- ingi og er dóttir þeirra Steinunn Dóra; Magnús Jónsson, f. 8.7. 1980, nemi í Reykjavík. Systir Baldvins er Dýrleif Jón- ína, f. 5.4. 1929, húsmóðir í Reykja- vlk. Foreldrar Baldvins voru Tryggvi Marteinsson, f. 17.11. 1889, d. 5.4. 1969, bátaformaður og útgerðar- maður í Ólafsfirði, og k.h., Rósa Friðflnnsdóttir, f. 26.6. 1897, d. 17.7. 1971, húsmóðir. Ætt Meðal systkina Tryggva má nefna Helgu, veitingakonu á Röðli, og Sigurbjörgu, ömmu Jóns Gunn- laugssonar dagskrárgerðarmanns. Tryggvi var sonur Marteins, b. og sjómanns á Burstarbrekku í Ólafs- firði, Sigurðssonar og Elínar Sess- elju, systur Sigurbjargar, móður Jóns Þorsteinssonar, stofnanda Vélsmiðjunnar Odda á Akureyri, afa Sigurveigar Jónsdóttur leikkonu. Annar sonur Sigurbjarg- ar var Þorsteinn, faðir Þorvalds, sparisjóðsstjóra á Ólafsfirði, föður Þorsteins, sparisjóðsstjóra þar. Dóttir Sigurbjargar var Kristín, amma Kristínar Jóhannesdóttur kvikmyndagerðarmanns. Elín Sesselja var dóttir Jóhannesar, b. á Hornbrekku, Skúlasonar, frá Víði- mýri, Jónssonar. Móðir Skúla var Sigríður sól Einarsdóttir, b. í Álfta- gerði, Skúlasonar. Móðir Elínar var Guðrún Símonardóttir, í Hóla- hreppi, Jónssonar, b. á Steini á Reykjaströnd, Hallsteinssonar. Móðir Símonar var Sigríður Jóns- dóttir Egilssonar. Móðir Guðrúnar var Guðrún Sæmundsdóttir, b. á Enni í Viðvíkursveit, Þorleifsson- ar. Rósa var dóttir Friðfinns, b. í Sauðaneskoti í Svarfaðardal, Jó- hannssonar, b. á Auðnum, Jóns- sonar, b. á Ytra-Kambhóli, Jóns- sonar, bróður Sigríðar, langömmu Pálinu, móður Hermanns Jónas- sonar forsætisráðherra, föður Steingríms seðlabankastjóra. Sig- ríður var einnig langamma Þorkels Þorkelssonar veðurstofustjóra og Kristjáns, föður Sigurðar skóla- stjóra og Hugrúnar rithöfundar, móður Helga læknaprófessors. Móðir Jóhanns var Anna Jónsdótt- ir, systir Jóns, afa Lofts, langafa Jóns L. stórmeistara og Más Gunn- arssonar, starfsmannastjóra Flug- leiða. Systir Önnu var Arnbjörg, langamma Einars Olgeirssonar. Móðir Friðfinns var Ingibjörg Gísladóttir, systir Gunnlaugs, langafa Jóns, föður Gísla, mennta- skólakennara á Akureyri. Móðir Rósu var Anna Þorsteins- dóttir, b. á Skáldalæk, bróður Guð- rúnar, langömmu Axels, föður Jó- Baldvin Tryggvason. hanns læknaprófessors. Þorsteinn var sonur Sigurðar, hreppstjóra á Hrísum, Jónssonar, bróður Halls, langafa Péturs, föður Páls félags- málaráðherra. Annar bróðir Sig- urðar var Guðmundar, faðir Jó- hannesar sýslumanns, föður Jó- hannesar, alþm. og bæjarfógeta, afa Matthíasar Johannessen skálds. Þriðji bróðir Sigurðar var Jóhannes, afi Vilhjálms Stefáns- sonar landkönnuðar. Móðir Önnu var Kristín, dóttir Jóns Jónssonar, b. á Ytra-Kálfsskinni, og Guðlaugar Hálfdánardóttur. Baldvin og Halldóra taka á móti gestum í forsal Borgarleikhússins á morgun, sunnudaginn 11.2., kl. 16.00-19.00. Afmælisdagskrá á stóra sviðinu hefst kl. 16.30. Til hamingju mei Már Lárusson afmælið 10. febrúar 85 ára___________________ Herdís Ólafsdóttir, Brennigerði, Skarðshreppi. Bertel Erlingsson, Stigahlíð 12, Reykjavík. 80 ára___________________ Anna Ólafsdóttir, Efstasundi 41, Reykjavík. 75 ára SofQa Björgúlfsdótir, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík. Guðmundur J. Helgason, Borgarhrauni 3, Grindavík. Baldvin H. Óskarsson, Klömbrum, Aðaldælahreppi. 70 ára Þorsteinn Guðmundsson, Æsufelli 2, Reykjavík. 60 ára Eva Jónsdótt- ir, Klapparstíg 5, Sandgerði. Eiginmaður hennar er Ár- mann Halldórs- son. Þau taka á móti gestum í sam- komuhúsinu í Sandgerði eftir kl. 16. Kristján Reinhardtsson, Hrauntungu 117, Kópavogi. 50 ára Hafdís Moldoff, Brattholti 3, Mosfellsbæ. Kristín R. Jónsdóttir, Drekavogi 6, Reykjavík. Guðni Bergsson, Keldunúpi, Skaftárhreppi. Gunnar Davíð Jones, Álíholti 10, Hafnarfirði. Hörður Blöndal, Akurgerði 4, Akureyri. Unnur Guðbjartsdóttir, Amartanga 30, Mosfellsbæ. 40 ára Guðjón Þór Helgason, Hjallalundi llc, Akureyri. Ingibjörg Jónsdóttir, Fífumóa 20, Njarðvík. Valdís Þ. Vilhjálmsdóttir, Furugrund 76, Kópavogi. Gunnar Benediktsson, Markholti 12, Mosfellsbæ. Böðvar Ingvason, Keilusíðu 12d, Akureyri. Solveig Axelsdóttir, Sunnubraut 4, Akranesi. Húsnæði óskast Ríkissjóður leitar eftir kaupum á húsnæði fyrir sambýli fatl- aðra í Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði. Um er að ræða a.m.k. 200-250 m2 einbýlishús í góðu ásigkomulagi með rúmgóðum svefnherbergjum. Nauðsynlegt er að húsnæðið sé á einni hæð og allt aðgengi innan dyra sem utan í góðu lagi með tilliti til fatlaðra. Tilboð, er greini staðsetningu, stærð, byggingarár og -efni, herbergjafjölda, brunabótamat og fasteignamat, afhending- artíma og söluverð, sendist eignadeild fjármálaráðuneytis- ins, Arnarhváli, 150 Reykjavík, fyrir 20. febrúar 1996. Fjármálaráðuneytiö, 8. febrúar 1996 Már Lárusson, fyrrverandi verk- stjóri, Hraunbæ 54, Reykjavik, er sextugur í dag. Starfsferill Már fæddist á Fáskrúðsfirði en ólst upp á Raufarhöfn. Hann lauk fiskimannaprófi frá Stýrimanna- skólanum í Reykjavík 1965. Strax að loknu skyldunámi hóf Már störf til sjós. Mestallan sjómannsferil sinn var hann á bátum frá Vest- mannaeyjum. Má þar nefna bátana Þórunni, Kristbjörgu, Lundann, Gjafar og Ingiber Ólafsson. Ýmist var Már háseti, stýrimaður eða skipstjóri. Eftir sextán ár til sjós hóf Már störf sem verkstjóri í frystihúsinu Eyjabergi í Vest- mannaeyjum en þar starfaði hann frá 1968-1973. Árið 1973 fluttist Már með fjöl- skyldu sína til Neskaupstaðar þar sem hann bjó til 1991. Már starfaði sem yfirverkstjóri hjá fiskvinnslu Síldarvinnslunnar í Neskaupstað í um það bil 18 ár en fluttist til Reykjavíkur árið 1991. Már var til fjölda ára virkur fé- lagi 1 Alþýðubandalaginu. Hann var formaður Alþýðubandalagsfé- lagsins í Neskaupstað 1986-1987. Einnig var hann meðlimur í Rotaryklúbbi Norðfjarðar um margra ára skeið. Már Lárusson. Fjölskylda Már kvæntist Guðlaugu Pálsdótt- ur 28.12. 1957, skrifstofumanni, f. 14.4. 1939. Foreldrar hennar eru Fanný Guðjónsdóttir húsmóðir og Páll Eyjólfsson, forstjóri Sjúkra- samlags Vestmannaeyja. Börn Más og Guðlaugar eru Sig- ríður Fanný, f. 19.3. 1958, verslun- armaður á Siglufirði, maki Þórhall- ur Jónasson verkfræðingur og eiga þau tvö börn; Harpa, f. 27.3. 1959, húsmóðir í Reykjavík, maki Júlíus Heiðar Haraldsson verslunarmað- ur og eiga þau tvö börn; Ólöf, f. 15.7. 1960, hjúkrunarfræðingur í Rykjavík, sambýlismaður Smári Rúnar Hjálmtýsson vélstjóri og eiga þau tvö börn; íris, f. 12.9. 1964, förðunarfræðingur í Fellabæ, sam- býlismaður Helgi Gíslason fram- kvæmdastjóri. íris á eina dóttur. Systkini Más eru Guðmundur, f. 1941, rafvirkjameistari á Siglufirði; Jóna, f. 1951, húsmóðir og fisk- vinnslukona í Vestmannaeyjum; Margrét, f. 1949, húsmóðir og starfsstúlka í Vestmannaeyjum. Foreldrar Más voru Lárus Guð- mundsson, f. 20.4. 1909, d. 17.11. 1975, kennari, og Sigríður Jónsdótt- ir, f. 17.4. 1912, d. 14.3. 1994, hús- móðir. Þau bjuggu á Raufarhöfn. Ætt Lárus var sonur Guðmundar Guðfinnssonar, læknis og þing- manns Rangæinga, og konu hans, Margrétar Lárusdóttur. Sigríður var dóttir Jóns Sigurðssonar, sjó- manns frá Fáskrúðsfirði, og konu hans, Ingibjargar Jónínu Benja- mínsdóttur. Már tekur á móti gestum í dag frá kl. 17-19 að Sléttuvegi 3, í húsi SEM samtakanna. Niels P. Sigurðsson Niels P. Sigurðsson sendiherra, Sólheimum 15, er sjötugur í dag Starfsferill Niels fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann var stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1944 og lauk laganámi frá Háskóla Islands í janúar 1950. Niels var í framhaldsnámi við Oxford og Sor- bonne og útskrifaðist sem hdl. í desember árið 1951 og hrl. í maí 1966. Niels hóf störf í utanríkisþjón- ustunni í október árið 1952 og starfaði þar bæði hér heima og er- lendis til ársloka árið 1995 er hann lét af störfum vegna aldurs. Fjölskylda Niels er kvæntur Ólafiu R. Sig- urðsson hússtjórnarkennara. Þau eiga þrjú börn. Þau eru: Rafn Alex- ander, kvæntur Önnu Júlíönu Sveinsdóttur óperusöngkonu; Karitas Sigurðsson matvælasér- fræðingur, gift Alexander Mitrogogos, viðskiptafulltrúa Grikklands; Sigurður Baldvin Sig- urðsson framkvæmdastjóri, kvæn- ist í dag Michelle M. Vaccaro. Niels og Ólafía eiga fjögur barnaböm. Niels dvelur í New Jersey á af- mælisdaginn. Niels P. Sigurðsson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.