Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Síða 12
12
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996 IjV
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON
Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON
Aðstoðarritstjóri: ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLT111,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVÍK, SÍMI: 550 5000
FAX: Auglýsingar: 550 5727 - Aðrar deildir: 550 5999
GRÆN númer: Auglýsingar: 800 6272. Áskrift: 800 6270
Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/
Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is
AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 461 1605
Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Filmu- og plötugerð: ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF.
Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m. vsk. Lausasöluverð 150 kr. m. vsk., helgarblað 200 kr. m. vsk.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Sigur á andsnúnu kerfi
Hæstaréttardómur í máli ungrar konu, sem slasaðist
alvarlega í dráttarvélarslysi fyrir 9 árum, er sigur henn-
ar gegn þungu og andsnúnu kerfi. Dómurinn, sem féll í
fyrradag, kveður á um skaða- og miskabætur sem auð-
velda henni að takast á við lífið.
í slysinu missti konan handlegg og höfuðleður er hún
festist í drifskafti dráttarvélarinnar. Barátta konunnar
fyrir bótum vegna slyssins hefur tekið nær níu ár. Það
er óheyrilega langur tími og algerlega óviðunandi.
Rúm tvö ár eru frá því að héraðsdómur gekk þar sem
konan vann málið. Viðkomandi tryggingafélag sætti sig
ekki við niðurstöðuna og áfrýjaði. Það tók Hæstarétt á
þriðja ár að komast að niðurstöðu. Sú langa bið hefur
áður verið gagnrýnd í þessu blaði. Það er fyrst núna sem
niðurstaða fæst en konan var 13 ára þegar slysið varð.
Konan sagði í viðtali við DV í gær að vel hefði gengið
að vinna sig út úr hinu alvarlega slysi. Annað var hins
vegar uppi á teningnum þegar kom að baráttunni við
kerfið. „Það var það sem dró mig niður úr öllu valdi og
braut mig mest niður. Þetta var erfiðast. Alltaf voru ein-
hver vandræði.“
Þetta eru orð konu sem slasaðist mjög alvarlega og er
80 prósent öryrki. Hún sættir sig við örlög sín vegna
slyssins en á henni hvílir baráttan við önugt kerfi sem
lá á máli hennar árum saman svo hún var bótalaus frá
því á unglingsárum.
Þessi mikla fyrirstaða varð til þess, eins og sagði í
leiðara þessa blaðs í fyrra, að unga konan átti ekki af
fjárhagsaðstæðum möguleika á námstækifæri á mikil-
vægu aldursskeiði. Þar kom fram hörð gagnrýni á trygg-
ingafélög sem áfrýja miskunnarlaust hverju máli og
reyna með þeim hætti að kúga þá sem minna mega sfn
til uppgjafar eða samninga um smánarbætur.
Á það var einnig bent að viðbrögð Hæstaréttar í mál-
um sem þessum væru óeðlileg. Réttinum ætti að vera
ljóst að aflsmunur og aðstöðumunur væri mikill milli
tryggingafélagsins og þess aðila sem reyndi af veikum
mætti að ná rétti sínum. Því bæri að flýta málum af þess-
um toga.
Tryggingafélagið hefur sent frá sér greinargerð vegna
þessa dóms Hæstaréttar. Þar segir að eftir úrskurð hér-
aðsdóms hafi ríkt mikil óvissa um mörk gildissviðs lög-
boðinna ábyrgðartryggingar dráttarvélar sem ökutækis
samkvæmt umferðarlögum og hvenær slys í tengslum
við notkun þeirra félli undir notkunarhugtak umferðar-
laga. Gjaldskrá félagsins var miðuð við að slys sem
stæðu ekki í sambandi við akstur og notkun dráttarvéla
sem ökutækja féllu utan ábyrgðartryggingar og hún
næði ekki til sérbúnaðar dráttarvéla.
Félagið segir að Hæstiréttur hafi víkkað út bótasvið
tryggingarinnar og því verði að hækka iðgjöld vegna
hennar. Ábyrgðartryggingin taki ekki aðeins til aksturs
heldur einnig til vinnu með vélbúnaði sem tengdur er
dráttarvélum, t.d. gröfum, heyhleðsluvögnum, færibönd-
um og heyblásurum.
Tryggingafélög virðast því hafa túlkað notkun dráttar-
véla mjög þröngt. Augljóst er að hér er miklu frekar um
vinnutæki að ræða, með fjölþættum aukabúnaði, en
samgöngutæki.
Dómur í héraðsdómi og staðfesting í Hæstarétti ætti
því ekki að hafa komið tryggingafélaginu á óvart. Þófið
í málinu er aðilum hins vegar til vansa. Tryggingafélag-
ið þvældist fyrir réttmætri bótakröfu og Hæstiréttur tók
á málinu með hraða snigilsins.
Dómurinn er jafnframt viðurkenning á staðfestu og
viljastyrk ungu konunnar. Hún bugaðist ekki þótt á móti
blési. Jónas Haraldsson
Dini launar óvinum
sínum lambið gráa
í rúmt ár hefur setiö að völdum
á Ítalíu utanþingsstjórn embættis-
manna og sérfræðinga undir for-
sæti Lamberto Dini, áður seðla-
bankastjóra. Hann myndaði stjóm
að frumkvæði Oscars Scalfaro for-
seta, eftir að stjórn mið- og hægri-
flokka undir forsæti Silvio Berlus-
coni féll, fyrst og fremst vegna
þess að forsætisráðherrann efndi
ekki að rjúfa tengsl við stórfyrir-
tæki sín, einkum í sjónvarps-
rekstri, en einnig sökum kæru-
mála á hendur honum fyrir aðild
að mútugreiðslum til að sleppa
létt frá skattendurskoðun.
Yfirlýst hlutverk stjórnar Dini
var að koma fram fjárlögum með
stórlækkuðum ríkissjóðshalla, en
einnig að undirbúa endurbætur á
kosningalögum í þvf skyni að
koma á stöðugra stjórnarfari á
Ítalíu, þar sem ríkisstjórnir frá
stríðslokum telja nálægt fimm
tugi. Þegar til kastanna kom á
þingi reyndist Dini njóta í megin-
atriðum stuðnings bandalags mið-
og vinstriflokka, en Berlusconi og
hans fylking lagði hvem steininn
á fætur öðrum í götu stjórnar
hans.
Að fjárlögum afgreiddum um
áramót hefði Dini gjarnan viljað
haida áfram með utanþingsstjórn
sína til að koma fram stjórnkerfis-
breytingum til frambúðar, en það
strandaði einkum á helsta banda-
manni Berlusconi, foringja arf-
taka nýfasista, Gianfranco Fini.
Einnig var það Fini sem hindraði
að annar maður sem Scalfaro
valdi til að reyna að halda áfram
starfi stjórnar Dini gæti myndað
stjórn með þverpólitískum stuðn-
ingi.
í þessu naut Fini stuðnings
Berlusconi, sem dreymir um að
komast á stól forsætisráðherra á
ný, meðal annars til þess að eiga
hægara með að losa sig úr vond-
um málum í dómskerfinu. Báðir
vildu þeir knýja fram þingkosn-
ingar sem fyrst.
Scalfaro forseti rauf þing og
boðaði til kosninga 21. apríl.
Stjórn Dini starfar fram yfir kjör-
dag. Og nú hefur hann launað
kvölurum sínum í Frelsisbanda-
lagi þeirra Berlusconi og Fini með
því að stofna eigin flokk, ítalska
endurnýjun, og boða þátttöku
hans í þingkosningunum.
Forustumenn Frelsisbandalags-
ins hafa brugðist ókvæða við og
bera Dini hvers konar vömmum
og skömmum. Ástæðan er að þeir
óttast að koma hans á vígvöll ítal-
skra stjórnmála geti riðið þar
baggamuninn og leitt til valda-
samsteypu mið- og vinstriflokka
kenndra við olífutré. Fram til
þessa hefur Frelsisbandalagið haft
átta hundraðshluta fylgi umfram
Erlend tíðindi
Magnús Torfi Ólafsson
Olifutréssamsteypuna í skoðana-
könnunum, þótt ekki nemi meiri-
hluta. Eina von olífumanna um
hreinan meirihluta var að fá í
kosningabandalagið með sér
Noröurbandalag Umberto Bossi,
sem á sínum tíma kippti stoðum
undan stjórn Berlusconi, og End-
urstofnaða kommúnistaflokknum
lengst til vinstri.
Flokkstofnun Dini breytir þess-
um forsendum svo um munar.
Vegna þess sem á undan er geng-
ið er talið víst að flokkur hans
gangi í Olífutréssamsteypuna, þótt
sjálfur segi Dini allt of snemmt að
ræða slíkt að sinni. Skammirnar
sem á honum dynja frá foringjum
Frelsisbandalagsins sýna þó að
þeir eru ekki í neinum vafa um
hvar Dini muni að lokum leggja
lóð flokks síns.
Þar að auki er ljóst að ítölsk
endumýjun getur reynst skeinu-
hætt fylgi flokkanna í bandalag-
inu, einkum Áfram Ítalía, flokki
Berlusconi. Könnun sýndi nýlega
að Dini er annar i röðinni þeirra
manna sem ítalir bera mest traust
til, Antonio Di Pietro, rannsókn-
ardómarinn sem duglegastur hef-
ur verið að fletta ofan af fjármála-
spillingu, kemst einn fram úr hon-
um.
Álit almennings á Dini stafar
ekki einvörðungu af frammistöðu
hans í embætti forsætisráðherra.
Stjórn hans á seðlabankanum
þótti takast með afbrigðum vel, en
ítalir eiga mikið undir traustri
fjármálastjórn á komandi kjör-
tímabili, þegar reynir á getu
landsins til að halda sínu í aðdrag-
anda að stofnun sameiginlegs
gjaldmiðils ESB. Þar að auki kom
Dini á gerbreyttum samskiptaregl-
um ftalskra atvinnurekenda og
verkalýðssamtaka, sem gert hafa
mun friðvænlegra á ítölskum
vinnumarkaði en áður var.
Sjálfur lýsti Dini markmiðum
sínum svo, þegar hann kunngerði
ákvörðunina um flokksstofnun, að
þar ætti að koma til skjalanna
nýtt afl á miðju stjórnmálanna,
hófsamt og umbótasinnað. Haft er
fyrir satt á ítaliu að Dini eigi víst
liðsinni ráðherra sem unnið hafa
sér álit og vinsældir fyrir frammi-
stöðu í stjórn hans.
Lamberto Dini skýrir fréttamönnum frá að ætlun hans sé að byggja á
þeim árangri sem stjórn hans hafi náð í þágu lands og þjóðar.
Símamynd Reuter
skoðanir annarra
f afmæli til tengdapabba
„Það er erfltt að segja til um hvort maður á að
; hlæja eða gráta. Að sjálfsögðu á forsætisráðherra
rétt á einkalífi og því er það ákaflega gleðilegt að
i forsætisráðherrann okkar skuli vera svo ánægður
með eiginkonu sína og tengdafóður, að hann metur
j 90 ára afmæli tengdafoðurins meira en fund með
öðrum leiðtogum ESB og leiðtogum voldugustu
ríkja Austurlanda fjær. Þegar grannt er skoðað er
það skynsamleg afstaða önnum kafins forsætisráð-
i herra af því að fundir af þessu tagi eru oft bara um-
búðir án innihalds."
Úr forustugrein Politiken 27. febrúar.
Réttur Kúbverja
„Kúbverjar, eins og allir aðrir, eiga rétt á að
verja hendur sinar. Þeir hafa líka mátt þola ára-
langan fjandskap bandarískra stjómvalda og tU-
raunir tÚ að steypa stjórninni af stóli. Það er því
hægt að fýrirgefa þeim að vera eUítið tortryggnir f
garð nágrannans I noröri og kúbverskra útlagahópa
sem stjórnvöld í Washington hafa lengi stutt. En
ekkert af þessu réttlætir viðbrögð stjómar Castros
sem lét skjóta niður flugvélarnar sem útlagahópur-
inn Bræður til bjargar höföu leigt.“
Úr forustugrein New York Times 28. febrúar.
Meiri fagmennska I herinn
_ „Tilgangur (umbótanna á franska hernum) er
ekki að uppskera friðarlaunin, þ.e. að spara útgjöld
tU varnarmála. TUgangurinn er fyrst og fremst sá
að gera franska herinn fagmannlegri, í orðsins
fyllstu merkingu, svo franskar hersveitir geti staö-
ið jafnfætis sveitum frá Bandaríkjunum og Bret-
landi ef þær tækju þátt í alþjóðlegum aðgerðum.“
Úr forustugrein JyUands-Posten 26. febrúar.