Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Blaðsíða 26
26
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996 DV
Menntaðasta körfuboltalið á íslandi
er líklega í Kópavoginum:
Hefur nær
100 ára
langskóla-
námað
baki
- þar eru átta læknar, þrír lögfræðingar,
verkfræðingar og fleiri fræðingar
Þau eru líklega fá íþróttaliðin
sem geta státað af því að hafa leik-
menn með samanlagt hátt í 100 ára
langskólanám að baki. 2. deildar lið
körfuknattleiksdeildar HK í Kópa-
vogi er þó eitt slíkra liða. Þar er að
finna 8 lækna, 3 lögfræðinga, 2 verk-
fræðinga, viðskiptafræðing, líffræð-
ing, bókmenntafræðing, rafeinda-
fræðing og einn stúdent.
Tuttugu
ára samspil
„Kjarninn í þessum hópi byrjaði
að æfa saman í ÍR fyrir hátt í 20
árum og var saman í bamaskóla.
Við höfum alltaf haldið hópinn og
þegar við byrjuðum í Háskólanum
þá fengum við íþróttasal til afnota
og héldum áfram að spila saman.
Þegar námi lauk þá vildum við ekki
hætta þessu og ræddum við HK-
menn sem ekki voru með nema
körfuknattleiksdeild. Þeir féllust á
að taka okkur inn og
við höfum haldið
hópinn síðan. Þetta
var fyrir tveimur
árum,“ segir tals-
maður hópsins og
þjálfari, Ómar Geir
Þorgeirsson við-
skiptafræðingur.
Hann segir marga
kosti fylgja því að
hafa svona fjöl-
breyttan hóp lang-
skólagenginna
manna í liðinu.
Læknarnir séu klár-
ir með kælipoka,
teygjubindi og teip
og því séu íþrótta-
meiðsl ekki áhyggju-
efni, ef menn séu í
vandræðum með
einhver mál hjá
skattinum þá er lög-
fræðihjálp í seiling-
arfjarlægð, við-
Fremri röð frá vinstri: Kristján Einarsson rekstrarverkfræðingur, Sigurður Einarsson læknir, Ómar Geir Þorgeirsson
viðskiptafræðingur og Pétur Kristinsson stúdent. Efri röð frá vinstri: Sveinbjörn Hannesson bókmenntafræðingur,
Björn Þorvaldsson lögfræðingur, Eggert Jónas Hiimarsson iögfræðingur og Björn Pétur Sigurðsson læknir. Á mynd-
ina vantar sjö manns sem ekki komust á æfinguna vegna anna og meiðsla.
DV-mynd Brynjar Gauti
Ómar Geir hirðir frákastið á æfingu.
skiptafræðingurinn sjái um skatta-
skýrslurnar og bókhald körfubolta-
deildarinnar, bókmenntafræðingur-
inn um lesefni á keppnisferðalögum
og svo megi lengi telja. Þá segir
Ómar Geir liðið hafa haft trésmið
innan sinna raða nýlega og eftirsjá
sé af honum. Líklega þurfi þeir að
leggja meiri áherslu á að ná í iðnað-
armenn til að verða sjálfum sér nóg-
ir í flestum málum.
Símboðar
á æfingar
„Þrátt fyrir að þarna sé hópur
manna sem allajafna ætti að vera
mjög upptekinn á framabrautinni
og að koma sér upp fjölskyldu þá
hefur mönnum tekist að sinna
þessu áhugamáli furðuvel. Þegar
læknarnir hafa verið á vakt hafa
þeir verið að mæta með símboða á
æfingar og sömu sögu er að segja af
lögfræðingunum. Þeir þurfa því
stundum að fara af æfingu ef ósk
um aðstoð berst. Við sýnum því líka
skilning ef menn starfsins vegna
geta ekki mætt á æfingar i hvert
skipti, það koma jú upp tilvik sem
menn eru á ferðalögum vinnu sinn-
ar vegna eða komast ekki frá. Álag-
ið er samt greinilega farið að aukast
núna enda fjölskyldan farin að
heimta sinn tíma líka.“
Ómar Geir segir menn í hópnum
þekkja hver annan mjög vel enda
hafi þeir, sem fyrr segir, flestir spil-
að körfubolta saman frá barnsaldri.
Samstarfið gangi því vel og auðvelt
sé að koma leikkerfum og öðrum
skipunum á framfæri. Hann og Sig-
urður Einarsson, læknir og aðstoð-
arþjálfari, hafi líka tekið að sér
stjómina án þess að hinir hafi feng-
ið miklu um það ráðið. Þeim sé
hlýtt í einu og öllu án þess að mikil
þörf sé á að segja mönnum til.
Lögfræðingar deila
ekki við dómarann
Aðspurður hvort lögfræðingarn-
ir hafi átt það til að skipta sér mik-
ið af dómgæslunni í leikjum segir
Ómar Geir þá sér meðvitandi um að
það þýöi ekki að deila við dómarann
og því sé svo ekki.
Gengi liðsins í 2. deild er ágætt
þótt ekki sé útséð með hvort þeir
komist i úrslitakeppnina og eigi því
möguleika á að komast upp í 1.
deild. Þeim tókst að komast i úr-
slitakeppnina í fyrra, fyrsta árið
sem þeir spiluðu saman, en erfiðið
skilaði ekki þeim árangri sem ætlað
var. Nú er markmiðið að reyna að
koma upp yngri flokkum í HK og
byggja upp körfuboltadeild - þeir fé-
lagarnir verða ekki ellidauðir í
körfuboltanum. Nauðsynlegt er aö
ráða mann til þess starfs enda hafi
þeir ekki þau sambönd inn í skól-
ana sem þörf er á til að byggja upp
markvisst starf í yngri flokkunum.
-pp