Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Blaðsíða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Blaðsíða 58
, afmæli LAUGARDAGUR 2. MARS 1996 -U"\rf Sigríður Sigursteinsdóttir Sigríöur Sigursteinsdóttir, hús- móöir og umboðsmaöur DV og Is- landsflugs á Flateyri, til heimilis að Drafnargötu 17, Flateyri, verður sextug á morgun. Starfsferill Sigríður fæddist að Búrfelli í Hálsasveit og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf. Hún stundaði nám við Húsmæðraskóla Reykja- víkur 1957 og var við verslunar- störf í Reykjavík um skeið. Sigríður flutti til Flateyrar 1958 þar sem hún hefur átt heima síðan. Jafnframt heimilisstörfum stund- aði hún fiskvinnslu á Flateyri um skeið. Hún var umboðsmaður Arn- arflugs á Flateyri og síðan íslands- flugs frá upphafl. Þá hefur hún ver- ið umboðsmaður DV þar frá upp- hafi og áður DB. Sigríður hefur starfað í kvenfélaginu á Flateyri um árabil, sat i stjórn íþróttafélags- ins Grettis og Verkalýðsfélagsins Skjaldar. Fjölskylda Sigríður giftist 29.3. 1959 Jóni Trausta Sigurjónssyni, f. á Húsa- vík 14.10. 1932, d. 16.7. 1978, versl- unarmanni á Flateyri. Hann var sonur Sigurjóns Jónssonar, org- anista á Húsavík, og Guðrúnar Valdimarsdóttur, verkakonu þar. Synir Sigríðar og Jóns Trausta eru Reynir Traustason, f. 18.11. 1953, lengi skipstjóri á Flateyri og nú fréttastjóri DV, búsettur í Reykjavík, kvæntur Halldóru Jóns- dóttur útgerðarmanni og eru böm þeirra Róbert, f. 26.7. 1974, sjómað- ur á Flateyri, Hrefna Sigríður, f. 27.9. 1977, starfsmaður hjá Vest- firskum skelfiski, Jón Trausti, f. 11.4.1980 og Símon Örn, f. 6.4. 1988; Halldór Valdimar, f. 6.9. 1959, vél- stjóri á Flateyri; Björn Jakob, f. 22.2. 1961, d. 25.5. 1961; Þorsteinn, f. 16.6.1962, verkamaður á ísafirði en kona hans er Jóna Símonía Bjarna- dóttir sagnfræðingur; Þórir, f. 2.12. 1977, sjómaður á Flateyri. Systkini Sigríðar; Ólöf Guðríður, f. 29.3. 1939, húsmóðir og fisk- vinnslukona á Akranesi, gift Sig- urði Magnússyni verkamanni og eiga þau þrjá syni; Þorsteinn, f. 18.9. 1950, b. á Búrfelli, kvæntur Kolfinnu Þórarinsdóttur og eiga Til hamingju með afmælið 3. mars 85 ára Droplaug Pálsdóttir, Vifilsgötu 9, Reykjavík. Unnur Pálsdóttir, Vesturvegi 22, Vestmannaeyjum. 80 ára Margrét Sigurðardóttir, Sveinskoti, Bessastaðahreppi. Margrét er að heiman. 75 ára Guðmundur Þorgeirsson matsveinn, Lambastöðum, Garði. Guðmundur er á ferðalagi um þéssar mundir. Guðlaugur Jak- obsson, Víðilundi 20, Akureyri. Jóhann K. Guðmundsson, Sólheimum 45, Reykjavík. 70 ára Einar Sveinn Erlingsson vélstjóri, Heiðarbrún 74, Hveragerði. Einar er heima á afmælisdaginn. Geröur Jóhannsdóttir, Hrísrima 2, Reykjavík. Þuríður Eyjólfsdóttir, Hamrahlíð 28, Vopnafirði. Skúlagötu 66, Reykjavík. Jóna Sigursteinsdóttir, Álfaskeiöi 88, Hafnarfirði. Sigurður Ásgeirsson, Holtagerði 39, Kópvogi. Snorri Þorláksson, Hjaltabakka 32, Reykjavik. Þórir Bjarnason, Óseyri, Stöðvarfirði. Oddný Ingileif Sveinsdóttir, Lónabraut 35, Vopnafirði. 50 ára Þráinn Júiíusson, Sæbólsbraut 30, Kópavogi. Erla Fríður Sigurðardóttir, Ásbúð 24, Garðabæ. Lilja Sigurgeirsdóttir, Hlíðarvegi 26, ísafirði. Haraldur Leifsson, Kirkjubraut 27, Njarðvík. Anna Vachunová, Hvassaleiti 10, Reykjavík. 40 ára Sveinn Kristinsson, Krossum II, Árskógshreppi. Sveinn Valþór Sigþórsson, Stuðlabergi 78, Hafnarfirði. Högni Eyjólfsson, Reykási 43, Reykjavík. Jón Bersi Árnason, Aðalstræti 120A, Vesturbyggð. Hellen Sigurbjörg Helgadóttir, Álfaskeiði 30, Hafnarfirði. 60 ára Hólmar Albertsson, Helga Sigurðardóttir Helga Sigurðardóttir, Hjallavegi 1N, Njarðvík, verður sjötug á morg- un. Starfsferill Helga fæddist að Steig í Mýrdal en ólst upp í Litla-Hvammi í Mýr- dal við almenn sveitastörf. Hún starfaði um skeið við hótelið í Vík í Mýrdal hjá Brandi Stefánssyni móðurbróður sínum, flutti til Reykjavíkur um tvítugt þar sem hún starfaði við Landspítalann og síðan á Hressingarskálanum þar tfl hún gifti sig. Fyrstu hjúskaparárin bjó Helga í Keflavík en þau hjónin fluttu til Njarðvíkur 1957 þar sem hún hefur átt heima síðan. þau fimm börn. Foreldrar Sigríðar eru Sigur- steinn Þorsteinsson, f. 9.10. 1901, d. 5.1. 1988, b. á Búrfeíli í Hálsasveit, og Jakobína Guðríður Jakobsdótt- ir, f. 8.8. 1910, húsfreyja, búsett á Flateyri. Ætt Sigursteinn var bróðir Frey- móðs, fyrrv. bæjarfógeta í Vest- mannaeyjum. Sigursteinn var son- ur Þorsteins, b. á Höfða í Þverár- hlíð, Jónssonar, b. í Síðumúla, Þor- valdssonar, b. á Vflmundarstöðum í Reykholtsdal, bróður Vigdísar, ömmu Hannesar bankastjóra, Zóphaníasar skipulagsstjóra, Páls Agnars dýralæknis og Hjalta, fyrrv. forstjóra innflutningsdeildar SÍS og Vigdísar, móður Páls Bald- vins Baldvinssonar, dagskrárstjóra hjá Stöð 2. Þorvaldur var sonur Jóns, ættföður Deildartunguættar- innar. Móðir Jóns í Síðumúla var Guðrún Finnsdóttir. Móðir Þor- steins var Helga Jónsdóttir, b. á Signýjarstöðum í Hálsasveit, bróð- ur Vigdísar og Þorvalds. Móðir Helgu var Guðrún, systir Helgu, langömmu Guðmundar Arnlaugs- sonar skákdómara og Önnu, móður Flosa Ólafssonar leikara. Guðrún var dóttir Böðvars, b. í Skáney, Sigurðssonar. Móðir Guðrúnar var Ástríður, systir Jóns, Þorvalds og Vigdísar. Móðir Sigursteins var Sigríður Jónsdóttir, b. í Steindyrum á Látra- strönd, Einarssonar. Móðir Sigríð- ar var Ingibjörg Benediktsdóttir frá Hringsdal í Suður-Þingeyjar- sýslu. Jakobína Guðríður er dóttir Jak- obs, trésmiðs í Vík í Mýrdal, bróð- ur Erlends, smiðs þar, afa Erlends Einarssonar, fyrrv. forstjóra SÍS. Jakob var sonur Björns, b. í Holti og á Dyrhólum, bróöur Þuríðar, langömmu Bergsteins brunamála- stjóra og Sigurðar sýslumanns Gissurarsona og Ólafs G. Einars- sonar alþingisforseta. Móðir Jak- obs var Ölöf, langamma Karls, föð- ur Hólmfríðar fegurðardrottning- ar. Ólöf var dóttir Þorsteins, b. á Ketilsstöðum, bróður Finns, langafa Péturs Guðfinnssonar, framkvæmdastjóra ríkissjónvarps- ins, og afa Lárusar, afa Erlends Sigríður Jónsdóttir Sigriður Jónsdóttir, Barmahlíð 46, Reykjavík, er áttatíu og fimm ára í dag. Starfsferill Sigríður fæddist að Syðri- Bakka í Kelduhverfi en flutti með móður sinni að Ytri-Brekkum á Langanesi 1913, eftir að faðir hennar lést. Móðir hennar giftist Þorláki Stefánssyni, bónda að Ytra-Álandi í Þistilfirði, 1924 og fluttu þær mæðgurnar þangað en síðan flutti fjölskyldan að Svalbarði í sömu sveit 1928. Sigríður varð gagnfræðingur frá MA 1929. Hún var húsmóðir á Her- mundarfelli í Þistilfiröi 1934-45 en flutiti þá til Reykjavíkur þar sem hún var iðnverkakona, lengst af í Vinnufatagerð íslands og starfaði á gróðrarstöðinni Sólvangi. Hún hef- ur iðkað listir í tómstundum, eink- um myndlist og dans, og gerir enn. Fjölskylda Sigríður giftist 1934 Páli Krist- jánssyni frá Hermundarfelli. Þau skildu 1950. Alsystir Sigríðar var Aðalbjörg, f. 26.11. 1912, d. 9.11. 1914. Hálfbræður Sigríðar eru Magnús Þorláksson, f. 11.4. 1925, húsgagna- smíðameistari í Reykjavík; Jón Erlingur Þorláksson, f. 27.10. 1926, tryggingafræðingur í Kópavogi; Sigtryggur Þorláksson, f. 5.10. 1928, bóndi og fyrrv. skólastjóri á Sval- barði; Stefán Þórarinn Þorláksson, f. 28.9. 1930, kennari við MA; Vil- hjálmur Þorláksson, f. 27.7. 1933, verkfræðingur í Garðabæ. Foreldrar Sigríðar voru Jón Erl- ingur Friðriksson, f. 13.11. 1878, d. 13.3. 1913, búfræðingur frá Ólafs- dal, bóndi á Syðri-Bakka í Keldu- hverfi, og k.h. Þuríður Vilhjálms- dóttir, kennari og húsmóðir. Ætt Jón Erlingur var sonur Friðriks, b. og smiðs í Svínadal og síðar á Syðri-Bakka, bróður Valdimars, læknis í Friðrikshöfn, og Eldons, föður Hlínar í Herdísarvík, ömmu Eyjólfs Kjalars Emilssonar heim- spekings. Friðrik var sonur Er- lendar, alþm. í Kasthvammi í Lax- árdal og Garði í Kelduhverfi, Gott- skálkssonar, bróður Magnúsar, afa Benedikts alþingisforseta, föður Bjarna forsætisráðherra, föður Björns menntamálaráðherra. Móð- ir Jóns Erlings var Guðmunda Friðbjörg Jónsdóttir frá Víðihóli á Hólsfjöllum er varð hundrað og þriggja ára. Meðal systkina Þuríðar sem upp komust voru Guðmundur, kaupfé- lagsstóri á Syðra-Lóni; Sigtryggur, b. á Ytra-Álandi; Davíð og Axel, b. á Ytri-Brekkum; Aðalbjörg, hús- freyja á Gunnarssöðum, og Árni, læknir á Vopnafirði. Meðal afkom- enda þessarra systkina eru Karen Erla Erlingsdóttir,. ferðamálafull- trúi á Austurlandi, Guðmundur Kr. Guðmundsson, skipstjóri á Höfn í Hornafirði, Brynjólfur Jóns- son, bæklunarlæknir á Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Þorlákur Axel Jóns- son sagnfræðingur, Steingrímur J. Sigfússon alþm. og Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari. Þuríður var dóttir Vilhjálms, b. á Ytri-Brekkum á Langanesi, áður á Skálum og Eldjárnsstöðum, Guð- mundssonar, b. á Skálum en flutt- Helga er einn af stofnendum Kirkjukórsins í Ytri-Njarðvík og hefur sungið með kórnum um ára- tugaskeið. Fjölskylda Helga giftist 17.6. 1955 Erlendi Vilmundarsyni, f. 26.10. 1928, d. 13.1. 1992, pípulagningarmanni. Hann var sonur Vilmundar Áma- sonar og Guðrúnar Jónsdóttur að Löndum í Grindavík. Börn Helgu eru Sigurður Árna- son, f. 18.10. 1945, borgarstarfsmað- ur, og á hann tvo syni, Gunnar, f. 10.8. 1973, og Bryngeir, f. 17.8. 1976; Ástríður Erlendsdóttir, f. 24.11. 1958, húsmóðir í Njarðvík, gift Jóni Agnari Gunnlaugssyni og eiga þau þrjú börn, Erlend Þór, f. 19.8. 1992, Gunnlaug Áma, f. 19.8. 1992, og Helgu Ingibjörgu, f. 3.4. 1995; Guð- mundur Jón Erlendsson, f. 16.8. 1965, símaflokksstjóri í Njarðvík, en kona hans er Margrét Óskars- dóttir og eru börn þeirra Enok Ósk- ar, f. 29.8. 1981, Erlendur Jón, f, 9.8. 1990, og Helga Ruth, f. 28.7. 1992. Systkini Helgu: Gunnar Sigurðs- son, f. 22.9. 1924, d. 4.10. 1992, vöru- bílstjóri í Litla-Hvammi; Stefán Jón Sigurðsson, f. 16.6. 1927, lengst af vinnumaður í Litla-Hvammi, nú búsettur á Hjallatúni í Vík í Mýr- dal; Sigþór Sigurðarson, f. 28.9. 1928, símaverkstjóri, búsettur í Litla-Hvammi, kvæntur Sólveigu Guðmundsdóttur. Foreldrar Helgu voru Sigurður B. Gunnarsson, f. 10.6. 1896, d. 6.11. 1973, smiður og kirkjuhaldari að Litla- Hvammi, og Ástríður Stef- ánsdóttir, f. 14.10. 1903, d. 30.3. 1989, Sigríður Sigursteinsdóttir. Lárussonar, forstöðumanns Trygg- ingaeftirlits ríkisins. Systir Þor- steins var Þórunn, langamma Steinunnar, langömmu Jóhönnu Sigurðardóttur alþm. Þorsteinn var sonur Þorsteins, b. á Vatns- skarðshólum, Eyjólfssonar, og Karitasar Jónsdóttur, stjúpdóttur Jóns eldprests Steingrímssonar. Móðir Jakobínu Guðríðar var Guðríður Pétursdóttur, b. í Vatns- skarðshólum, Erlendssonar, og Guðríður, systur Ólafar í Holti. Sigríður Jónsdóttir. ist til Norður-Dakóta í Bandaríkj- unum 1889. Móðir Þuríðar var Sig- ríður Davíðsdóttir, frá Heiði á Langanesi, dóttir hjónanna Davíðs Jónssonar frá Lundarbrekku í Bárðardal og Þuríðar Árnadóttur frá Sveinsströnd í Mývatnssveit. Bróðir Þuríðar á Heiði var Jón Ámason, faðir Skútustaðabræðra, sem kallaðir voru, Árna á Skútu- stöðum, Sigurðar i Ystafelli, Helga á Grænavatni og Hjálmars á Ljóts- stöðum. Af þeim eru miklar ættir komnar. Systir Þuríðar Árnadóttur var Guðrún, er giftist Jóni Jóns- syni frá Vogum, sem samdi ævi- sögu sína á ensku. Jón lést er þau biðu skipsferðar til Brasilíu árið 1866. En Guðrún giftist aftur Eyjólfi Brandssyni og bjó að Reykj- um í Reykjahverfi. Meðal afkom- enda hennar eru Guðfinna frá Hömrum, skáldkona, og Gísli Kon- ráðsson, forstjóri á Akureyri. Bræður Sigríðar Davíösdóttur á Ytri-Brekkum voru Árni á Gunn- arsstöðum, Vilhjálmur á Heiði og Hjörtur í Hlíð. Sigríður er að heiman á afmælis- daginn. Helga Sigurðardóttir. húsfreyja og organisti að Litla- Hvammi. Helga er í Ósló á afmælisdaginn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.