Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Blaðsíða 43
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996
tóníist 5i
- var að senda frá sár enn eina plötuna og er lögð af stað í hljómleikaferð um Evrópu
Deep Purple: Hljómsveitin er enn í fullu fjöri þótt hápunktur ferilsins hafi verið fyrir aldarfjórðungi.
ísland
— plötur og diskar—
| 1. (1 ) Life
Cardigans
t 2. ( 3 ) Crougie d’ou lá
Emilíana Torrini
# 3. ( 2 ) Murder Ballads
Nick Cave and The Bad Seeds
| 4. ( 4 ) Presidents of the United States...
Presidents of the United States...
$ 5. ( 5 ) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
| 6. ( 6 ) The Bends
Radiohead
t 7. (Al) Jagged Little Pill
Alanis Morrisette
t 8. (Al) Boys for Pele
Tori Amos
# 9. ( 8 ) Melon Collie and the Infinite ...
Smashing Pumpkins
110. (11) Different Class
Pulp
111. (14) The Boy With The X-Ray Eyes
Babylon Zoo
# 12. (10) Waitingto Exhale
Ur kvikmynd
113. (18) Exit Planet Dust
Chemical Brothers
114. (17) The Memory of Trees
Enya
115. (16) Love Songs
Elton John
# 16. ( 7 ) Pottþétt 1995
Ýmsir
117. (19) Liquid Swords
Genius
118. (Al) Gleöifólkið
KK
119. (Al) Gangsta's Paradise
Coolio
#20. (12) Palli
Páll Oskar
London
-lög-
t 1. (-) Don't Look Back In Anger
Oasis
t 2. ( 3 ) Children
Robert Miles
# 3. ( 2 ) Anything
3T
# 4. ( 1 ) Spaceman
Babylon Zoo
t 5. (- ) Perseverance
Terrorvision
t 6. (10) I Wanna Be a Hippy
Technohead
# 7. ( 4 ) | Got 5 on It
Luniz
# 8. ( 5 ) Lifted
Lighthouse Family
t 9. (- ) Disco Revenge
Gusto
t 10. (- ) Falling Into You
Celine Dion
New York
-lög-
t 1- (1 ) One Sweet Day
Mariah Carey & Boyz II Men
| 2. ( 2 ) Not Gon' Cry
Mary J. Blige
t 3. ( 5 ) Sittin' Up In My Room
Brandy
t 4. ( 4 ) Nobody Knows
The Tony Rich Project
# 5. ( 3 ) Missing
Everything but the Girl
t 6. ( 6 ) Be My Lover
La Bouche
t 7. ( 7 ) Jesus to A Child
George Michael
t 8. ( 8 ) Exhale (Shoop Shoop)
Whitney Houston
t 9. ( 9 ) One of Us
Joan Osbourne
t 10.(11) Follow You Down
Gin Blossoms
Bretland
— plötur og diskar—
t 1.(2) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
t 2. ( 5 ) Jagged Little Pill
Alanis Morrisette
t 3. ( 4 ) Bizarre Frut/Bizarre Fruit II
M People
# 4. (1 ) Expecting To Fly
Bluetones
t 5. ( 8 ) Different Class
Pulp
t 6. ( 7 ) The Bends
Radiohead
t 7. (12) Stanley Road
Paul Weller
# 8. ( 3 ) Don't Stop
Status Ouo
t 9. (16) Definitely Maybe
Oasis
t 10. (17) Histiory Past Prestent And F.
Michael Jackson
Bandaríkin
-plötur og diskar—
t 1. (- ) All Eyez On Me
2 Pac
# 2. (1 ) Jagged Little Pill
Alanis Morrissette
# 3. ( 2 ) Waiting to Exhale
Ur kvikmynd
# 4. ( 3 ) Daydream
Mariah Carey
# 5. ( 4 ) (What's the Story) Morning Glory?
Oasis
# 6. ( 5 ) The Woman in Me
Shania Twain
# 7. ( 7 ) Cracked Rear View
Hootie and the Blowfish
# 8. ( 6 ) Sixteen Stone
Bush
t 9. (- ) Revelations
Wynonna
tlO. (- ) Congratulations l'm Sorry
Gin Blossoms
Gamla rokksveitin Deep Purple
er komin á kreik á nýjan leik. Eftir
að hafa stimdað æfingar í Plymouth
í nokkra daga hófst hljómleikaferð
sveitarinnar, fyrst um Bretland og
síðan liggur leiðin yfir sundið tU
Þýskalands tíunda mars. Síðan má
reikna með að Deep Purple verði
við hljómleikahald vítt og breitt um
Evrópu í vor og fram á sumar við að
kynna tónlistina á nýrri plötu sinni,
Purpendicular, sem kom út fyrr í
þessum mánuði.
Purpendicular er fyrsta hljóð-
versskífan sem Deep Purple sendir
frá sér síðan árið 1993 þegar platan
The Battle Rages on kom út. Þá var
hljómsveitin skipuð með sama
hætti og þegar vinsældir hennar
risu sem hæst fyrir um það bil ald-
arfjórðungi. Það var einmitt um
sama leyti og hljómsveitin kom
hingað tU lands og hélt tónleika í
LaugardalshöU. En síðan The Battle
Rages on kom út hefur ein breyting
orðið á liðsskipaninni. Ritchie
Blackmore gítarleikari er hættur og
í hans stað kominn pUtur að nafni
Steve Morse. Aðrir i Deep Purple
um þessar mundir eru Ian GUlan,
Jon Lord, Roger Glover og Ian
Paice.
Það kom svo sem fáum á óvart
þegar Ritchie Blackmore kvaddi
sina gömlu félaga skyndilega árið
1993, skömmu áður en þeir héldu tU
Japans til að fylgja The Battle Rages
on eftir.
AUir sem fylgst hafa með sögu
Deep Purple vita að honum og Ian
GUlan söngvara hefur komið ákaf-
lega illa saman um langt skeið. Fyr-
ir sjö árum eða svo var spennan
miUi þeirra tveggja orðin slík að þá
var GUlan látinn róa og i hans stað
var ráðinn gamaU félagi Blackmor-
es úr hljómsveitinni Rainbow, Joe
Lynn Turner. Hann sá einmitt um
sönginn þegar platan Slaves and
Masters kom út - þokkalegasta
skífa sem fékk misgóðar viðtökur
hljómsveitarinnar. Turner entist
hins vegar ekki lengi og Gillan var
ráðinn að nýju.
Sögufræg rokksveit
Saga hljómsveitarinnar Deep
Purple hefur reyndar alla tið ein-
kennst af mannabreytingum. Hún
var stofnuð árið 1968 og af stofnend-
unum eru aðeins tveir innan borðs
um þessar mundir, það er að segja
Lord og Paice. Rod Evans söngvari
og Nick Simper bassaleikari kvöddu
fljótlega og fimmti maðurinn,
Ritchie Blackmore, hefur hoppað út
og inn nokkrum sinnum á ferlinum.
Á þessum langa tíma hefur tón-
list Deep Purple verið i tísku og
dottið úr tísku til skiptis. Hljóðfæra-
skipanin gítar, bassi, orgel og
trommur auk söngsins þykir all-
mörgum sennilega fremur lummu-
leg um þessar mundir. En hver veit
nema hún eigi eftir að þykja góðra
gjalda verð að nýju um aldamótin
eða svo! Eitt er þó væntanlega víst
að liðsmenn Deep Purple eiga tæp-
lega eftir að breyta stórkostlega rnn.
Þeir þurfa að hafa orgelið á sínum
stað til að geta sem best flutt gömlu
slagarana sína sem þeir hljóðrituðu
og gerðu vinsæla á árunum
1970-1973 þegar veldi hennar var
sem mest. Þá nutu lög eins og Black
Night, Strange Kind of Woman,
Smoke on the Water, Highway Star
og fleiri ómældra vinsælda. Og ekki
má gleyma rólegum lögum á borð
við Child in Time.
Mörg þessara gömlu laga er ávallt
að finna á lagalistanum þegar Deep
Purple leggur upp í hljómleikaferð-
ir til að fylgja eftir nýjum plötum.
Að þessu sinni er Fireball upphaf-
slagið og meðal annarra á listanum
að þessu sinni eru Highway Star,
Speed King, Black Night, Pictures of
Home og að sjálfsögöu Smoke on the
Water. En þar er einnig að finna sjö
lög af nýju plötunni og hugsanlega
bætast fleiri við síðar. Á öðrum tón-
leikunum í ferðinni lét hljómsveitin
sig ekki muna um að spila í tvær
klukkustundir og fimmtán mínútur
og aðdáendurnir fullyrða að hljóm-
urinn hafi sjaldan eða aldrei verið
betri en einmitt núna. Deep Purple
virðist því ætla að rokka af sínum
gamla krafti enn um sinn meðan
liðsmenn hljómsveitarinnar tínast
hver af öðrum yfir á sextugsaldur-
inn. Án þess að láta nokkurn bilbug
á sér finna. -ÁT