Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Page 13
JO"V LAUGARDAGUR 2. MARS 1996 13 „Af hverju heilsar maðurinn með vinstri, er hann örvhentur?" spurði ég. Eiginkonan sat við hlið mér í afmælismessu skáta í okkar byggðarlagi og veitti mér upplýs- ingar. Ég hafði aldrei fyrr setið í skátamessu og margt kom mér á óvart. „Hvað er þetta, maður?“ sagði frúin. „Skátar heilsast alltaf með vinstri. Þannig þekkir þú skáta úr.“ Ég tók eftir því að þeir kræktu litla fingri einhvern veg- inn saman en þorði ekki að hafa orð á því frekar. Þessi handtök gengu hratt fyrir sig og litli fingur slapp óskaddaður frá þessu, að því er séð varð. Við vorum stödd í þéttskipaðri kirkjunni. Allir voru i hátíðar- skapi, ungir jafnt sem aldnir. Til stóð að heiðra tengdapabba fyrir þægilegt viðmót og þjónustu við skátana í áraraðir. Það fór vel á því og um leið var tilhlýðilegt að stórfjölskyldan væri viðstödd. Ég var í mínu finasta pússi en mætti það seint að ég var settur í hliðar- sal. Það kom ekki að sök, ég sá ágætlega það sem fram fór. Minning um stuttbuxur í mínu ungdæmi voru allir skátar í ljósbrúnum klæðum og í minningunni voru þeir í stuttbux- um. Það kann að vera rangminni. Svo var ekki í messunni. Þar voru skátar í finum bláum skyrtum, karlar jafnt sem konur. Ylfingar og ljósálfar voru í dökkbláum bún- ingi. Einhvern veginn æxlaðist það svo að ég gekk ekki í skátafélag í æsku. Við félagarnir vorum annað að hugsa. Fótbolti gekk fyrir öðru og handboltinn ekki síður. Auk þess fór ég í sveit að vori og mætti ekki til byggða fyrr en eftir réttir. Eflaust hef ég misst af einhverjum skemmtilegheitum vegna þessa. Mér sýnist skátar nefnilega vera með afbrigðum hressir menn. Þeir fara fyrir í leikjum og syngja meira en aðrir. Skátastarfið gerir þá óþvingaða og æfir þá í að koma fram. Kvæntur foringja Messan fór vel fram. Þar voru sungin skátalög í stað sálma. Ég heyrði að eiginkona mín söng þau hástöfum án þess að líta á blað. „Af hverju kannt þú alla þessa texta?“ spurði ég. „Ég var í skát- unum,“ sagði konan, svona rétt eins og ég ætti að vita það. „Ég var meira að segja foringi," bætti hún við. Mig setti hljóðan. Þarna í miðri skátamessu kom í ljós að ég hafði verið kvæntur skátaforingja í nær 23 ár án þess að hafa hugmynd um það. Ég renndi yfir lífshlaup okkar i huganum og sá nú margt í skýr- ara ljósi. Konan er hress og kát og söngelsk mjög. Þetta hef ég alltaf talið náttúrulega eiginleika henn- ar en sennilega helgast þetta af áralöngu skátalíferni, kafla í lífi konu minnar sem ég hafði. ekki hugmynd um. En látum það vera. Hún sagðist ekki hafa verið óbreyttur skáti heldur foringi. Nú er ég ekki vel að mér í stjórnskipulagi skáta en gef mér það að hún hafi verið flokksforingi. Þá hafi hún haft yfir tiltöluléga fámennum en öguðum hópi að ráða. Þarna í miðri mess- unni rann upp fyrir mér ljós. Það var þess vegna sem hún hafði svona góða stjórn á manni sínum og börnum. Við vorum eins konar framlenging af skátasveitinni. Við vorum að vísu ekki í einkennis- búningi en hún stjórnaði okkur af festu og öryggi. Framlenging skátaútilegunnar Skátaútilegur eru fastir liðir í skátastarfinu. Þá er farið með nesti og nýja skó í ævintýralegar ferðir. Skátaforinginn á mínu heimili hefur greinilega haldið þessu lífsmynstri áfram án þess að ég gerði mér grein fyrir því. Utan- landsferðir frúarinnar eru sýni- lega nokkurs konar skátaútilegur nútímans. Þar hnýtir hún þá hnúta sem hnýta þarf. Hún getur auðvitað látið líta svo út sem aðr- ir liðsmenn hennar, ylfingar jafnt sem ljósálfar, hafi eitthvað um þær útilegur að segja. Þegar til kastanna kemur er það þó augljós- lega skátaforinginn sem ræður. Laugardagspisti LM II J ónas Haraldsson fréttastjóri • ■ * 9.V Omeðvitað skátabuxui r 11 Skátasöngurinn í messunni hélt áfram. Konan söng með en ég þagði og sá samlíkingarnar alls staðar. Var það einleikið hve mjög minn betri helmingur gekk eftir því að ég fengi mér hálfbuxur um leið og hún náði mér til útlanda? Það var nánast á flugvellinum í Lúxemborg sem mér bar að skipta. Eins og mér þykja hálfbuxur á fullorðnum karlmönnum ljótar. Ég hef jafnvel keyrt land úr landi í hálfbuxum. Ég veit að þið kannist við þetta. Hnén á mönnum koma niður undan skálmunum og síðan hvítir sokkar upp úr strigaskón- um. Margt er nú fallegra en mið- aldra karlpeningur með ber hné og misloðnar lappir. Ég stóð í þeirri meiningu, öll þessi ár, að konan setti mig í þess- ar hálfbuxur vegna sumarhitans í útlöndum. Nú sá ég glöggt að hún vildi hafa mig eins og skáta undir stýri. Ég vaknaði upp úr þessum draumum mínum þegar skátafor- inginn fyrrverandi við hliðina á mér hnippti í mig. Tengdapabbi gekk fram tU þess að láta heiðra sig. Yfirforingi skátanna sagði nokkur vel valin orð um góða þjónustu og krækti í hann merki. Ég vUdi klappa að þessu loknu en siðameistari minn og betri helm- ingur var fljótur að stoppa mig af. „I fyrsta lagi klappar maður ekki í kirkju og í öðru lagi klappa skátar ekki á samkomum.“ Leiddar af siðameistara En það voru fleiri heiðraðir en tengdapabbi. Skátar fengu hpið- ursmerki fyrir dygga þjónustu í fimm ár og tíu ár og voru vel að þeim merkjum komnir. Helst vakti athygli mína þegar heiðrað- ar voru mætar konur, mæður og ömmur skáta sem stutt höfðu ung- mennin dyggilega. Þær höfðu aflað fjár til starfseminnar, bakað og gert aUt það sem góðar konur gera. Siðameistari skátanna, eldri heiðursmaður, kallaði konurnar upp með nafni, eina og eina í senn. Þær stóðu upp þar sem þær sátu í kirkjunni og biðu eftir siðameist- aranum. Hann gekk til þeirra, tók undir handlegginn á þeim og leiddi þær að altari kirkjunnar. „Eru þær blindar?" spurði ég konuna í sakleysi mínu og kunn- áttuleysi í skátastörfum. Mér fannst spurningin eðlileg vegna þess að siðameistarinn leiddi kon- urnar alla þessa leið, hverja á fæt- ur annarri. Konan gaf mér fast olnbogaskot. „Hvers konar vit- leysa er þetta í þér, maður. Sérðu ekki að siðameistarinn leiðir kon- urnar svona í heiðursskyni?" Skátakaffi og söngur Ég sá að þarna hafði ég gengið of langt í ályktunum mínum og at- hugunum í skátamessunni. Það var því nauðsynlegt að gera gott úr hlutunum. Messunni var að ljúka og ég stakk því upp á því að við fengjum okkur kaffi að hátíð lokinni hjá skátunum. Þeir buðu til veislu af rausnarskap. Konan tók vel í þetta enda held ég að hún hafi verið búin að ákveða að fara í kaffið hvort sem var. Kaffiveislan var haldin í stóru íþróttahúsi og veitti ekki af. Hund- ruð manna mættu og borð svign- uðu af veisluréttum. Ég horfði girndaraugum á kaffiborðið en fyrst vildu skátarnir syngja. Hvert lagið kom af öðru og alltaf söng konan með. Ég vildi sýna lit og klappa milli atriða en var einn um það. Það mátti ekki fremur klappa í íþróttahúsinu en kirkjunni. Þessi í stað hrópuðu skátarnir eitthvað á eftir skemmtiatriðum, söng og ræðum. Ég kann ekki skil á því og kunni ekki við að óska eftir skýr- ingum. Aðrir virtust vera með á nótunum. Fingrapolki Konan var kát þegar við kom- um heim. Hún hafði endurnýjað kynni sín við skátahreyfinguna, sungið og skemmt sér. Mér leið hins vegar eins og hálfgerðum ylfingi. Ég fann að ég var ekki innvígð- ur. í örvæntingu minni reyndi ég að bæta stöðuna með því að heilsa konunni með vinstri. Hún skildi ekki málið og litlu fingurnir þvældust hvor fyrir öðrum. Staða mín var eiginlega í hnút og ekki nema fyrir vana skátafor- ingja að leysa úr slíkum vanda.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.