Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1996, Síða 45
LAUGARDAGUR 2. MARS 1996
tiftéttir
Flutningur grunnskólans til sveitarfélaganna:
Kennarar segja að
flutningurinn sé í uppnámi
- Björn Bjarnason menntamálaráðherra segir svo ekki vera
Á meðan kennarar og rfkisstjórn deila hlýtur flutningur grunnskólans að
vera í biðstöðu hvað sem menn segja.
Kennarar hafa hætt þátttöku í
undirbúningi á flutningi grunnskól-
ans til sveitarfélaganna 1. ágúst
næstkomandi. Þeir segja að ríkis-
stjórnin hafi sett flutninginn í upp-
nám. Frumvarpsdrög ríkisstjómar-
innar um réttindi og skyldur starfs-
Fréttaljós
á laugardegi
Sigurdór Sigurdórsson
manna ríkisins, um Lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins og um sátta-
störf í vinnudeilum feli í sér grófa
árás á starfskjör og réttindi launa-
fólks verði þau samþykkt. Þeir kalla
frumvörpin „leiftursókn gegn lífs-
kjörum“. Fyrst og fremst er það
skerðingin á lífeyrisréttindum sem
kennarar setja fyrir sig.
Ekki úrkula vonar
Bjöm Bjarnason menntamálaráð-
herra var spurður hvort hann gæti
haldið áfram starfinu við flutning
grunnskólans eftir að kennarar hafa
hætt þátttöku:
„Ég vinn að því að flytja grunn-
skólann til sveitarfélaganna sam-
kvæmt lögum þar um. Og ég er að
vinna að því núna að ná samkomu-
lagi við sveitarfélögin um kostnað-
arþáttinn. Kennarar segjast hættir
þátttöku að svo stöddu. Ég er alls
ekki úrkula vonar um að máí þróist
á þann veg að kennarar sjái hag
sinn í að taka upp samstarf við okk-
ur aftur,“ sagði Björn.
Hann sagðist ekki hafa verið í
vinnu við þau frumvörp sem kenn-
arar setja nú fyrir sig. Hann segir
að Eiríkur Jónsson, formaður KÍ,
hafi lagt aðaláhersluna á lífeyris-
sjóðamálin.
„Það eru mál sem enn eru til um-
Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Islands:
Það er verið að reyta ór réttindapakka okkar
- því erum við hætt þátttöku í flutningi grunnskólans til sveitarfélaganna
„Við erum algerlega hætt þátt-
töku í flutningi grunnskólans til
sveitarfélaganna. Það er ljóst, eftir
að ríkisstjórnin gaf þá yfirlýsingu
að skerðingarfrumvörpin, sem við
köllum svo, yrðu lögð fram, að við
getum ekki tekið þátt í þessu verk-
efni lengur. Þessi ákvörðun ríkis-
stjómarinnar gengur þvert á þá sátt
sem var í grunnskólamálinu og var
undirrituð 1. febrúar," segir Eiríkur
Jónsson, formaður Kennarasam-
bands íslands.
Hann var spurður hvort færsla
grunnskólans yfir til sveitarfélag-
anna gæti gengið í gegn án þátttöku
kennarafélaganna:
„Við getum auðvitað ekki stoppað
Alþingi í því að flytja skólann án
samráðs og samvinnu við kennara.
Það verður þá bara á öðrum for-
sendum. Það er merkilegt í þessu
samhengi öllu að þegar svokölluð
réttindanefnd var að skoða yfir-
færslu réttinda kennara frá riki yfir
á sveitarfélög, það er að segja lög-
■ bundinna réttinda og reglu-
geröarbundinna réttinda,
þá var það viðhorf ríkis-
valdsins í nefndarstarfinu
_ >að kjarasamningur kenn-
arafélaganna væri órjúfan-
legur hluti af kjörunum. Ef
menn væru að tala um að
flytja lögbundin og reglu-
gerðarbundin réttindi yfír
þá væri það órjúfanlegt að kjara-
samningurinn yrði að vera hluti af
þeim pakka. Undir þetta sjónarmið
vorum við tilbúin að skrifa.
En nú er ljóst að til að mynda líf-
eyrisréttindin, sem á að bjóða upp á
tfl framtíðar, eru lakari en þau eru
nú. Þannig er farið að reyta út úr
þessum réttindapakka og þar af leið-
andi er ekki lengur sátt um að
kjarasamningurinn flytjist á milli
aðila. Verði grunnskólinn fluttur
undir þessum formerkjum þá er það
morgunljóst að enginn kjarasamn-
ingur verður í gildi 1. ágúst næst-
komandi varðandi grunnskóla-
kennslu, nema búið verði
að gera nýjan kjarasamn-
ing milli kennarafélaganna
og sveitarfélaganna,“ segir
Eiríkur.
Hann segir að eins og
frumvarpið liggi fyrir núna
sé það ekki í þeim anda
sem var þegar sáttin var
gerð 1. febrúar síðastliðinn.
„Þar var gert samkomulag um að
lífeyrisréttindi yrðu ekki skert við
flutninginn og að kennarar í fram-
tíðinni ættu skilyrðislaust rétt á aö-
ild að sjóðnum. Nú er búið að setja
þetta þannig fram að til þess að
kennarar framtíðarinnar geti kom-
ist í lífeyrissjóðinn verðum við að
samþykkja þessar breytingar á lög-
um um sjóðinn sem fela í sér skerð-
ingar. Þetta er í okkar huga stærsta
málið en það er líka ýmislegt fleira
sem við getum ekki sætt okkur við,“
sagði Eiríkur Jónsson. -S.dór
Flutningur grunnskólans:
VerSum að halda okkar striki
- segir Þórður Skúlason, framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga
„Við höfum ekki látið
þetta trufla okkur, ekki enn
sem komið er að minnsta
kosti. Við bæði vonum og
ætlumst til að kennarar og
ríkisstjórn leysi sín ágrein-
ingsmál svo þau setji ekki
flutning grunnskólans tfl
sveitarfélaganna í uppnám.
Þess vegna getum viö ekki
annað en haldið áfram að vinna eft-
ir þvi striki sem sett haföi verið,“
segir Þórður Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Sambands sveitarfé-
laga, í samtali við DV vegna þess
hnúts sem nú er komin á
flutninginn eftir að kennar-
ar drógu sig út úr vinn-
unni.
Hann segist ekki þora að
segja til um það hvort flutn-
ingurinn sé framkvæman-
legur án þátttöku kennara.
„Það er að visu búið að
setja lög um þennan flutn-
ing. Þau eru skilyrt því að Alþingi
setji áður lög um flutning á tekju-
stofnum og breyti lögum um lífeyr-
issjóð starfsmanna ríkisins og lög
um ráðningarréttindi kennara og
skólastjóra grunnskólar þessu
hvoru tveggja var búið að vinna í
bærilegri sátt kennara, -fíkis og
sveitarfélaga. En svo koma önnur
mál upp núna sem trufla þetta.allt
saman og verða tfl þess að kennarar
draga sig út úr. Við hjá sveitarfélög-
unum getum ekkert annað gert en
að halda okkar striki og undirbúa
flutning skólans eins og lögin kveða
á um, enda eigum við enga aðild að
þessari deilu. En auðvitað fer hún
að bitna á undirbúningi flutnings-
ins, haldi hún áfram,“ sagði Þórður
Skúlason. -S.dór
ræðu og hann situr í nefnd um þau
málefni. Þess vegna á ég von á því
að menn geti komist að þeirri niður-
stöðu að þetta eigi ekki að trufla
flutning grunnskólans sem allir eru
sammála um að sé mikið nauðsynja-
mál,“ segir Björn.
Hann vill ekki viðurkenna að
frumvarpið um lífeyrismálin skerði
réttindi kennara.
„Frumvarpið er enn tfl umræðu
og það er ekki búið að taka neinar
ákvarðanir um lífeyrissjóðamálin,
þau eru óafgreidd," sagði Bjöm
Bjamason.
Launþeaahreyfingin
mótmæíir
Það er greinilegt að kennarar eru
ekki jafn bjartsýnir á lausn málsins
og menntamálaráðherra. Það má
enda segja aö þessi þrjú fyrrnefndu
fmmvörp hafi sett launþegahreyf-
inguna í landinu á annan endann.
Frumvarpið um sáttastörf í vinnu-
deilum hefur verið til meðferðar hjá
Alþýðusambandinu sem hefur alfar-
ið hafnað því og boðar harðar að-
gerðir gegn því. Sömuleiðis boða
BSRB og BHMR, ásamt kennurum,
aðgerðir gegn hinum frumvörpun-
um!
Aðgerðir undirbúnar
Þessir aðilar hafa stofnað að-
gerðanefnd og undirbúa nú vinnu-
staðafundi um allt land vegna máls-
ins.
Það er því ljóst að ríkisstjómin
verður að breyta frumvörpunum
umtalsvert ef sátt á aö takast um
þau. Fyrr en það verður gert er
flutningur grunnskólans í uppnámi.
Verði sk&linn fluttur án sam-
vinnu við kennara eru kjarasamn-
ingar þeirra lausir 1. ágúst næst-
komandi. Þá er komið upp alvarlegt
mál fyrir ríkið, sveitarfélögin og
skólastarfið í landinu því kennarar
segjast ekki skrifa undir nýja kjara-
samninga fyrr eft þeir hafi heimt til
baka allt það sem þeir segja aö ver-
ið sé að skerða með frumvörpunum.
Elna K. Jónsdóttir, formaður Hins íslenska kennarafélags: '
Nú á að kollvarpa lífeyriskjörunum
- og það sættum við okkur ekki við
„Það blandast engum
hugur um það að lífeyris-
kjörin, lífeyrissjóðsréttind-
in, eins og þau liggja, og all-
ur umhúnaður um okkar
ráðningarkjör er auðvitað
hluti af öllum kjarapakkan-
um. Það eru margir sem
hafa orðið til þess að benda
á það þessa dagana að líf-
eyriskjör opinberra starfsmanna
voru notuð til að réttlæta það að
greiða okkur lakari laun. Meira
segja hefur þetta komið fram hjá
Kjaradómi. Hann mat okkur einu
sinni lakari laun vegna þess að líf-
eyriskjör okkar væru svo góð. Og
nú á að kollvarpa lífeyriskjörunum
og það sættum við okkur að sjálf-
sögðu ekki við,“ sagði Elna K. Jóns-
dóttir, formaður Hins íslenska
kennarafélags.
Hún segir að kennarar hafi talið
að í sjónmáli væri sátt um
flutning grunnskólans yfir
til sveitarfélaganna með
óbreyttum og óskertum
réttindum kennara.
„Ef það verður ekki sjá-
um við ekkl betur en að all-
ir kennarar séu með lausa
kjarasamninga 1. ágúst
næstkomandi, það er að
segja ef ríkisstjómin ætlar að keyra
á flutning skolans hvað sem hver
segir. Ástæðan er einföld, núgild- *
andi kjarasamningur var gerður við
ríkið en eftir flutninginn væri kom-
inn nýr vinnuveitandi, sem eru
sveitarfélögin. Vegna alls þessa er
ljóst að kjarasamningaumhverfið
fer á flot við þau áform sem nú eru
uppi hjá ríkisstjórninni. Það gildir
ekki bara um kennara heldur alla
opinbera starfsmenn líka," sagði
Elna K. Jónsdóttir. -S.dór
Þrír ævintýradagar í miðri viku í mars, meðan húsrúm leyfir.
Fjölbreytt skemmtidagskrá
Verö kr. 4.950
Iiuiifalið: Gisting í 3 nætur og morgunverður af
lilaðborði alla dagana, dagleg skemmtidagskrá og einn
þríréttaður kvöldverður.
Upplýsingar og bókanir á Hótel Ork, Hveragerði.
Fyrstur kemur • fyrstur fœr
HÓTEL ÖEK
Hveragorði, sími 483-4700. Bréfsími 483 4775
Lykillinn að ísfenskri gestrisni f