Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Qupperneq 6

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 Fréttir Frumvarpið um stéttarfélög og vinnudeilur var sent 300 aðilum til umsagnar: Það vakti athygli að Einar Oddur Kristjánsson tók ekki til máls í utan- dagskrárumræðunni í gær. Hér er hann hins vegar að ræða við Gunn- laug Sigmundsson í þingsal í gær. Nokkrir þingmenn, sem verið hafa talsmenn þess í fjölmiðlum að auka kvóta, höfðu fjarvistarleyfi í gær en það voru þau Siv Friðleifsdóttir, Ein- ar K. Guðfinnsson, Sturla Böðvars- son og Kristján Pálsson. DV-mynd GS arútvegsráðherra eigi að auka þorskkvóta þessa fiskveiðiárs um 20 þúsund lestir,“ sagði Sighvatur. Þyngri rök gegn aukningu Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra benti á að tekin hefði ver- ið ákvörðun um að leyfa veiðar á 25 prósentum veiðistofns þorsks. Hann sagði rétt að stofninn væri að styrkjast. Það væri ekki vegna þess að stærri árgangar væru á ferðinni heldur af því að fiskurinn væri að þyngjast vegna góðæris í hafinu. Hann sagði síðan frá niðurstöðum viðræðna sinna við hagsmunaaðila. Þar hefðu skoðanir verið skiptar. „Það þarf ríka ástæðu til að auka kvótann á miðju fiskveiðiári,“ sagði Þorsteinn. Hann sagðist hafa hlust- að á rök með og á móti og það væru að sínum dómi þyngri rök gegn því að auka kvótann en hin sem mæla með því. Með og á móti Fyrir utan Sighvat og Þorstein tóku 10 þingmenn þátt í umræð- unni. Hjörleifur Guttormsson var andvigur því að auka kvótann. Svanfríður Jónasdóttir sömuleiðis, Hjálmar Árnason vildi aukinn kvóta. Guðný Guðbjömsdóttir var á móti, Gísli S. Einarsson var með aukningu, Árni R. Árnason á móti, Stefán Guðmundsson á móti, Árni Johnsen var með aukningu, Ágúst Einarsson á móti, Guðjón Guð- mundsson var með og Hjálmar Jónsson var meðmæltur því að auka kvótann. -S.dór Utandagskrárumræða á Alþingi um kvótamálið: Eigum að hirða þorskinn en kasta þrjóskunni - sagði Hjálmar Jónsson og lagði til að kvótinn yrði aukinn „Þorskstofninn hefur vaxið hrað- ar en vísindamenn reiknuðu með. Það segir okkur að sjómenn voru nær réttu lagi og fara með rétt mál. Það er eðlilegt að taka ákvarðanir á þessum grundvelli eins og brugðist var við þegar staðreyndir lágu fyrir um hrynjandi þorskstofn. Það er engin áhætta að taka hluta strax af væntanlegri hækkun næsta fisk- veiðiárs. Verði kvótinn ekki hækk- aður núna þá kallar það á aðra ákvörðun. Þeim sem eru búnir með þorskkvótann en eiga eftir kvóta í öðrum tegundum þarf að banna að fara.á sjó. Á öllum miðum er þorsk- ur og þeir sem eru búnir með þorsk- kvótann þurfa að ná meðaflanum. Hvernig eiga þeir að fara að þvi? Hvort vilja háttvirtir ráðherrar frekar að komið verði með þorskinn að landi eða að honum sé hent í sjó- inn? Um það snýst spurningin. Mitt svar er að við eigum að hirða þorskinn en henda þrjóskunni í sjó- inn,“ sagði Hjálmar Jónsson í um- ræðum utan dagskrár um þorsk- kvótann á Alþingi í gær. Þorsteinn á að auka kvótann Það var Sighvatur Björgvinsson sem hóf umræðuna. Hann benti á að nýjustu upplýsingar sýndu að veiði- stofn þorsksins væri stærri en menn hefðu talið. Hann sagði þær raddir nú verða æ hávarari sem vildu að þorskkvóti þessa fiskveið- iárs yrði aukinn. Hann nefndi í því sambandi fjölda stjórnarþingmanna og jafnvel forsætisráðherra sem teldi óhætt að auka kvótann eitt- hvað. „Ég tel að Þorsteinn Pálsson sjáv- Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráðherra ræddi við Davíð Oddsson forsæt- isráðherra skömmu áður en utandagskrárumræðan um kvótamálið hófst á Alþingi í gær. DV-mynd GS Upplýsingafundur á Hótel Sögu: Tveir skólar í Horsens kynntir Upplýsingafundur fer fram á Hót- el Sögu í kvöld þar sem tveir skólar í háskólabænum Horsens á Jótlandi í Danmörku verða kynntir. Þetta eru Horsens Handelsskole og Hor- sens Polytechnic. í Horsens Polyt- echnic, þar sem nú stunda 25 íslend- ingar nám, má læra tækniteiknun, korta- og mælingatækni, véltækni, byggingariðnfræði og byggingar- fræði. í Horsens Handelsskole má stunda nám í markaðshagfræði, tölvufræði, verslunarfræði og læra til verslunarprófs á 3 eða 1 ári. Námsdvöl í Horsens ætti ekki að vera framandi fyrir íslendinga því þar búa hundruð íslendinga. Öflugt íslendingafélag hefur verið þar starfandi frá árinu 1982 og veitt ís- lendingum margháttaða þjónustu og aðstoð. Fulltrúi frá Horsens Polytechnic, Færeyingurinn Johan Eli Ellenders- en, kemur sérstaklega til íslands vegna fundarins í kvöld. Ferðir af þessu tagi hafa aukist verulega til annarra landa hjá skólanum. Sífellt færri Danir fara í tækninám og hafa tækniskólar þurft að berjast fyrir lífi sínu ef svo má segja. Fjármagn til skólanna fer nefnilega eftir nem- endafjölda og hefur æ meira verið leitað eftir nemendum út fyrir Dan- mörku. Islenskir nemendur þykja eftirsóttir enda hefur fjöldi bygg- ingafræðinga sem hér starfa útskrif- ast frá Horsens. Hjálmar Árnason er einn harðasti talsmaður þess að auka þorskkvóta þessa fiskveiðiárs. Hér ræðir hann við Tómas Inga Olrich. DV-mynd GS Mikil vinna fram undan að vinna úr umsögnunum -segir Kristín Ástgeirsdóttir, formaður félagsmálanefndar Alþingis „Frumvarp félagsmálaráðherra um stéttarfélög og vinnudeilur var sent til um 300 aðila til umsagnar. Þeim ber að skila í síðasta lagi mið- vikudaginn 17. apríl og þá tekur við mikil vinna við að fara yfír umsagn- irnar og kalla fyrir nefndinina ýmsa aðila er málið snertir. Ég spái því að það geti verið allt að þriggja vikna vinna fram undan við það,“ sagði Kristín Ástgeirsdóttir, for- maður félagsmálanefndar Alþingis, í samtali við DV í gær. Hún sagði að umsagnaraðilar væru öll félög innan ASÍ, BSRB og BHMR og öll þau verkalýðsfélög sem standa utan þessara stóru sambanda. „Jafnframt var frumvarpið sent lagastofnun Háskóla íslands til að kanna það hvort framlagning frum- varpsins væri óeðlilegt inngrip í innri málefni verkalýðsfélaga. Einn- ig til að kanna hvort ákvæði þess stæðust mannréttindasáttmála Sam- einuðu þjóðanna, mannréttindayfir- lýsingu Evrópuráðsins, félagsmála- sáttmála Evrópu og nokkrar sam- þykktir Alþjóða vinnumálastofnun- arinnar. Þessi álitsgerð kemur væntanlega þegar líða fer á mánuð- inn,“ sagði Kristín. Páll Pétursson félagsmálaráð- herra sagði málið nú í höndum fé- lagsmálanefndar. Hann sagðist von- ast eftir rökstuddum tillögum um breytingar á ákveðnum liðum frum- varpsins frá verkalýðshreyfingunni en ekki bara kröfu um að draga frumvarpið til baka. Kristín Ástgeirsdóttir sagði að álitsgerðir verkalýðsfélaganna væru farnar að streyma inn en nefndin væri ekkert farin að fara yfir þær enn þá. Meðferð málsins væri því ekki hjá nefndinni. -S.dór

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.