Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Qupperneq 7

Dagblaðið Vísir - DV - 16.04.1996, Qupperneq 7
ÞRIÐJUDAGUR 16. APRÍL 1996 7 Fréttir Reiði vegna auglýsingar um Æskulínu Búnaðarbankans: Ekki upplýst að um sé að ræða 30 mánaða bindingu - segir Anna Friðriksdóttir - Sjálfsagt að leiðrétta misskilning, segir bankinn „Börnin horfa á þetta og fimm ára sonur minn og fleiri börn vilja endilega komast í þetta til þess að fá gjafirnar frá bankanum. Ég veit um 10 ára bam sem hefur verið að safna sér fyrir hjóli og fékk leyfi til þess að stofna reikning í Einkalín- unni. Þegar það kom heim með bankabókina kom í ljós að um var að ræða bundinn 30 mánaða reikn- ing og barnið grét sig í svefn þegar það frétti að það gæti ekki tekið út af reikningnum fyrr en það væri orðið þrettán ára,“ segir Anna Frið- riksdóttur, reið vegna auglýsingar um Æskulinu Búnaðarbankans þar sem þar er ekki tekið fram að um 30 mánaða bindingu er að ræða. „Mér finnst ekki gott þegar verið er að höfða til barna með auglýsing- um af þessu tagi, jafnvel þótt verið sé að tala um sparnað. Þú leggur inn þúsund krónur í dag og aðrar þúsund krónur eftir tvo mánuði en síðan geturðu ekki tekið alla summ- una út í einu. Það þurfa að líða 30 mánuðir frá því lagt er inn í bæði skiptin. Það finnst mér ekki eðli- legt,“ segir Anna. Hæstu vextirnir „Það er ekkert sem skyldar okkur að auglýsa að þessir reikningar séu bundnir í þetta langan tíma. Þarna kemur fram að um svokallaða Stjörnubók er að ræða og þær eru einfaldlega bundnar í 30 mánuði. Slíkar upplýsingar er hægt að fá hvenær sem er í öflum okkar útibú- um. Hins vegar ef hér hefur orðið einhver misskilningur er sjálfsagt mál aö leiðrétta hann og borga kon- unni peningana út aftur,“ segir Edda Svavarsdóttir, markaðsstjóri Búnaðarbanka íslands. Edda segist alls ekki sjá neitt óeðlilegt við það að hvetja ung börn til þess að spara. Yfirleitt séu reikn- ingar þeirra ekki hreyfðir svo árum skipti og því sé einungis verið að hugsa um þeirra hag. Á Stjörnubók- unum séu einfaldlega bestu vextirn- ir. Edda segir að spari fólk með reglulegum greiðslum geti það tekið alla summuna út í einu að 30 mán- uðum liðnum. -sv Óbreyttar þorskveiöiheimildir: Gott fýrir Granda - segir Halldór Þorláksson skipstjóri Halldór Þorláksson, skipstjóri á Þorsteini Gíslasyni GK, telur að þegar formaður LÍÚ lýsir sig and- vígan aukningu þorskveiðiheimilda sé hann að gæta hagsmuna stóru togaraútgerðanna í landinu. „Afstaða Kristjáns ræðst af því að verði þorskkvóti aukinn þá lækkar söluverð kvóta. Stærstu kvótaeig- endurnir eru stóru togaraútgerðar- félögin eins og Grandi og fleiri. Þær ráða ríkjum í sjávarútveginum og Kristján gengur erinda þeirra," seg- ir Halldór. -SÁ Eldur í ruslafötum Slökkvfliðið var kallað að fjölbýlis- húsi við Bergstaðastræti í fyrrakvöld eftir að kveikt hafði verið í plastrusla- tunnum þar. Greiðlega gekk að slökkva eldinn og þurfti að reykræsta á eftir. Litlar skemmdir urðu, þó aðal- lega af völdum reyks og sóts. Mikið hefur verið um að kveikt hafi verið í ruslafötum undanfarið og hvetja slökkviliðsmenn fólk til að gæta að því að ruslafótur standi ekki nálægt gluggum og upp við hús séu þau byggð úr timbri. -PP Sóðar í heimsókn Brotist var inn í sundlaug Hafn- arfjarðar aðfaranótt laugardags. Engu var stolið en þeir sem þarna voru á ferð hentu jarðvegsþjöppu út í sundlaugina og sementspoka út i heita pottinn. Sundlaugin var opn- uð seinna á laugardagsmorgun en venja er til. Tók það starfsfólk um tvær klukkustundir að þrífa ósómann upp eftir sóðaheimsókn næturinnar. -pp Leiðrétting: Ekki amfetamín Skilja mátti á því sem haft var eft- ir Vigfúsi Guðmundssyni, hjá Borg- arapóteki, í blaðinu í gær að am- fetamín væri einhvers staðar selt í sjálfsafgreiðslu. Um slíkt er hvergi að ræða og segir Vigfús að hættan í sambandi við hnupl beinist fyrst og fremst að verkjalyfjum, sjóveiki- stöflum og slíku. Vigfús segir am- fetamín alls staðar vera geymt í læstum skápum. DV biðst velvirð- ingar á þessum misskilningi. -sv Pappakassahús hefur verið afdrep einhvers eða einhverra um páskana. Starfsmenn í Fjöðrinni höfðu tekið á móti miklu af vörum fyrir páskana og raðað pappakössum og brettum snyrtilega upp í portinu. Þegar opnað var á þriðju- dag blasti þetta haganlega gerða pappakassahús við. Um er að ræða svefnálmu og setustofu, auk forstofunnar sem er þannig gerð að ekki sést auðveldlega inn og vindinum er líklega aiveg haldið fyrir utan. Á borði í setustofunni voru þrjú sprittkerti og flet hafði verið útbúið í svefnálmunni. Svo virðist sem hér hafi engin börn verið að leik held- ur maður eða menn sem hvergi hafi átt höfði sínu að að halla yfir hátíðina. Starfsmaður Fjaðrarinnar virðir hér fyrir sér húsakostinn. DV-mynd GVA Fræðsluráð málmiðnaðarins efndi nýlega til námskeiðs í málmsuðu í Fjölbrautaskóla Suðurlands þar sem iðnaðar- menn á svæðinu bættu við kunnáttu sína og fengu endurþjálfun. Námskeiðið stóð í 7 daga og þátttakendur voru, talið frá vinstri, Kristján Vignisson, Guðmundur Brynjólfsson, Frímann Helgason, Kári R. Sigurjónsson, Valdimar Þorsteinsson, Pétur Maack kennari, Ragnar Guðmundsson, Ingvar Ingvarsson kennari, Pétur Kúld og Lárus Hjart- arson. DV-mynd KE Selfossi Bú stjórnarmanns í Bjargráðasjóði fékk bætur úr sjóðnum: Ekkert óeðli- legt við málið - segir framkvæmdastjóri sjóðsins Félagsbúið í Sveinbjarnargerði í Eyjafírði, sem er í eigu Hauks Hall- dórssonar, fyrrverar.di formanns Stéttarsambands bænda, og bróður hans, Jónasar Halldórssonar, fékk styrk úr Bjargráðasjóði skömmu fyrir síðustu áramót meðan Haukur Halldórsson sat í stjórn sjóðsins. Búið í Sveinbjarnargerði rekur kjúklingaframleiðslufyrirtækið Fjö- regg en þar kom upp salmonella í fyrrasumar. „Það er af og frá að neitt sé óeðlilegt við þessa styrkveit- ingu. Búið fékk bætur í samræmi við það sem hafði gerst áður við sambærilegt tjón. Tjónið nam tug- um milljóna en aðeins brot af því er viðurkennt sem bótaskylt,“ segir Birgir Blöndal, framkvæmdastjóri sjóðsins. Birgir segir að þegar styrkurinn til Sveinbjarnargerðis hafi veriö ræddur og afgreiddur á fundum sjóðsstjórnar hafi Haukur Halldórs- son vikið sæti. Birgir vill ekki gefa upp hversu hárri upphæð styrkur- inn til Fjöreggs nam, því að upp- hæðir styrkja til einstalö'a aðila séu aldrei gefnar upp. Upphæðin sé hins vegar talsvert lægri en 15 milljónir eins og heimildir DV herma. Bjargráðasjóður er rekinn af Sambandi ísl. sveitarfélaga og er honum ætlað að bæta tjón í af völd- um náttúruhamfara, sjúkdóma eða slysa sem tryggingar bæta ekki. Sjóðnum er skipt upp í landbúnað- ardeild og almenna deild. Undir al- mennu deildina heyra bætur vegna tjóns á eignum og tilteknu lausafé. Sjóðurinn er fjármagnaður þannig að bændur greiða til hans af fram- leiðslu sinni en almenni hlutinn er íjármagnaður með greiðslum frá sveitarfélögum og vaxtatekjum. Samanlagðar eignir sjóðsins nema nú um 100 milljónum króna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.