Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 2
*\
2 *
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 JjV
Kjallaraleikhúsinu gert að rýma Tjarnarbíó í maí:
Töluðu aldrei um að
vera þarna í sumar
- segir Ómar Einarsson í íþrótta- og tómstundaráði
Kíallaraleikhúsið hefur að undan-
fbrnu sýnt leikritið Þrjár konur
stórar eftir Edward Albee í Tjarn-
arbíói viö góöar undirtektir. Fáar
sýningar eru hins vegar eftir þar
sem KjaUaraleikhúsið þarf að rýma
húsnæðið fyrir sýningum Light
Nights um miðjan maí nk. Eftir það
hefur. Light Nights Tjarnarbíó til
umráða fram í september, sam-
kvæmt samningi við Reykjavíkur-
borg, og á meðan kemst enginn ann-
ar leikhópur að. Forráðamenn Kjali-
araleikhússins hafa kvartað undan
þessu og telja óeðlilegt að Light
Nights einoki húsnæðið í sumar.
„Við höfum gert samning við
Light Nights á hverju ári, síðast í
haust sem gildir fyrir komandi sum-
ar. Kjallaraleikhúsiö hefúr ekki
sent okkur formlegt erindi. Það hef-
ur ekki veriö nein ásókn í þetta hús
á sumrin. Light Nights hefur verið
með sýningar á hverjum degi og á
meöan þau treysta sér til þess þá
hefur ekki verið gerð athugasemd
við það. Kjallaraleikhúsið vissi að
það hefði húsnæðið aðeins fram í
maí og þau töluöu aldrei um að vera
þama í sumar. Það kemur okkur á
óvart ef þau eru að biðja um að fá
að vera í Tjamarbíói yfir sumartím-
ann,“ sagði Ómar Einarsson, for-
stööumaður íþrótta- og tómstunda-
ráðs Reykjavíkur, sem fer með mál-
efni Tjarnarbíós fyrir hönd borgar-
innar.
Ómar sagði að sýningar Light
Nights, sem sérhæfðar hafa verið
fyrir erlenda ferðamenn, væru
færri í sumar en áður. Einn dagur
væri laus en erfitt yrði að nýta það
þar sem leikmynd Light Nights
væri fóst á sviðinu og sett upp einu
sinni fyrir ailt sumarið.
„Mikil starfsemi hefur verið í
húsinu í vetur og púsluspil að koma
því öllu heim og saman í svona litlu
húsi. Það er ekki einu sinni
geymsluaðstaöa fyrir leikmyndir,
það er vandamálið. Eina lausnin er
að byggja viö húsiö en það er bara
ekki á dagskrá,“ sagöi Ómar.
-bjb
Tvö börn á
slysadeild
Tvö börn voru flutt á slysa-
deild i gær eftir aö skólabíll og
vörubíll rákust saman við
Dvergabakka síðdegis í gær.
Meiðsli þeirra reyndust óveru-
leg. Nokkrar skemmdir uröu á
bílunum.
-GK
Borgarnes:
Fríhafnarsamn-
ingur hjá Vöru-
húsiKB
DV, Borgarneai:
Vöruhús KB í Borgarnesi
hefur gert samning við Fríhöfh-
ina á Keflavíkurflugvelli um
endurgreiöslu söluskatts til
feröamanna, svokallað „Tax
Free Shopping". Þetta er meðal
þess sem fram kemur i frétta-
bréfi kaupfélagsins, KB-frétt-
um, sem er aö koma út um
þessar mundir. Samningurinn
gildir hjá þremur deildum
Vöruhúss KB: fatadeild, búsá-
haldadeild og sportvörudeild.
Meö þessari auknu þjónustu
telja forsvarsmenn Vöruhúss
KB að það sé í fremstu röð
varöandi þjónustu viö erlenda
feröamenn og binda vonir við
að þaö skili sér í aukinni sölu.
-OHR
Heppni og dugnaöur fór saman þegar Jónasi litla Haukssyni ó Hvanneyri var bjargað, köldum og illa tll reika, upp úr
tjörn þar á staönum eins og greint hefur verið frá í DV. Hér er hann að bogra á hættusvæðinu en bjargvættirnar Krist-
jón, Arnór og Reynlr standa í forgrunni. DV-mynd OHR, Borgarnesi
Mistök viö kynningu á samræmdum prófum í Bolungarvík:
Nemendur lásu ensku
fyrir íslenskuprófið
- ég ber ábyrgð, segir Rúnar Vignisson skólastjóri
Þú getur svaraO þessari
spurningu meö því aö
hringja í síma 904-1600.
39,90 kr. mínútan.
" ÖJ
Nel 2 I
r ö d
FOLKSIN
904-160
Finnst þér komugjöldum á
heilsugæslustöðum rétt varið?
„Við vitum ekki af hverju þessi
mistök stöfúöu en þaö voru ein-
hverjir nemendur sem stóðu í þeirri
trú að þeir ættu að lesa fyrir ensku-
próf í stað íslensku. Þessi misskiin-
ingur var leiðréttur og ætti ekki að
hafa afgerandi áhrif á útkomuna úr
prófinu," segir Rúnar Vífilsson,
skólastjóri Grunnskólans í Bolung-
arvík, í samtali viö DV.
Að morgni miðvikudagsins 24.
april var samræmt próf í íslensku í
10. bekk grunnskóla landsins. Þetta
vissu nemendur með góðum fyrir-
vara en af einhvejum ástæðum
töldu nemendur í Bolungarvik að
prófa ætti í ensku en ekki íslensku.
Fóru þeir heim í þeirri trú á mánu-
dagsmorgninum og hófu lestur. Síð-
ar um daginn var þó misskilningur-
inn leiöréttur.
„Það er leiöinlegt þegar svona
gerist en það er rétt að einhveijir
nemendur stóöu í þeirri trú að
prófa ætti í ensku. Nemendurnir
hafa hins vegar veriö að læra þessi
fög í mörg ár þannig að fáeinir
klukkutímar í upplestri skipta ekki
öllu fyrir árangurinn á prófinu,"
sagöi Rúnar.
Rúnar sagöi aö ef misskilningur-
inn heföi sannanlega áhrif á árang-
ur nemenda væri hægt aö láta fram-
haldskólann vita hver ástæðan
væri. Við inntöku í framhaldsskóla
í haust væri þá hægt að taka tiliit til
þess. Meö öörum hætti væri ekki
hægt að leiðrétta mistökin vegna
þess að um var að ræða samræmt
próf sem allir nemendur í 10. bekk
ættu aö taka. Rúnar sagði enn frem-
ur að ábyrgðin á þessum misstökum
væri sín.
„Skólastjórinn ber ábyrgð á því
sem gerist í skólanum. Hann er
skipstjóri á þessari skútu,“ sagði
Rúnar.
-GK
Samræmdu prófunum lýkur:
Áhyggjur vegna áfengisneyslu
Fræöslustjórinn í Reykjavík, Ás-
laug Brynjólfsdóttir, hefur sent frá
sér yfirlýsingu vegna frís í skólum
1. maí, daginn eftir að samræmdum
prófum lýkur. Minnir hún á nei-
kvæöa reynslu undanfarinna ára
vegna óhóflegrar neyslu áfengis og
annarra vímuefna. Þeim tilmælum
er beint til foreldra og forráða-
manna nemenda að gera allt sem í
þeirra valdi stendur til að koma í
veg fyrir að þessi jákvæða stund
breytist í andhverfu sína. Foreldrar
eru hvattir til þess að leggja böm-
unum liö við undirbúning þessarar
fagnaðarstundar. .sv
Vestmannaeyjar:
Gæsluvarðhald
til sunnudags
Mennirnir tveir, sem nand-
teknir voru í vikunni í Vest-
mannaeyjum, verða í gæsluvarð-
haldi til morguns. Þeir eru grun-
aðir um að hafa brotist inn í
fjölda fyrirtækja í Eyjum síðustu
mánuði og ýmist haft þaðan
verðmæti eða undirbúið stór-
þjófnaði. -GK
Reykj aneshryggur:
20 til 60 tonn
á sólarhring
Þokkalegur afli hefur imdan-
fama daga verið á karfamiðun-
um á Reykjaneshrygg. Þar eru
nú 19 íslenskir togarar að veið-
um og hafa verið að fá 20 til 30
tonn á sólarhring. Alls er 71 tog-
ari á miðunum og þröngt um
skipin. Þó hefur ekki borið á ill-
deilum síðustu daga. Að jafnaði
er togaö í 12 til 15 tíma og fást 10
til 30 tonn í hali. -GK
Berar sig reglulega
á elliheimilinu
Engin leið virðist vera að hafa
hendur í hári ungs manns sem
með regluleg millibili kemur inn
á elliheimilið Hlíf á ísafirði og
flettir sig klæðum. Aðeins þrír
dagar eru frá því hann kom sein-
ast í heimsókn.
Lögreglan á ísafirði hefur
haldið fund með fólkinu á Hlíf og
var þar ákveðið að læsa húsinu
fyrr á kvöldin en veriö hefur. Þá
var brýnt fyrir fólki að láta lög-
reglu vita um leð og mannsins
yrði vart þannig að lögreglan
ætti meiri möguleika á að ná
honum. -GK
stuttar fréttir
Séra Bolli með valdið
Kirkjumálaráöherra hefur
falið séra Bolla Gústavssyni að
fara með biskupsvald vegna
trúnaðarbrots biskups. Siða-
nefnd presta vísaði málinu til
biskupsembættisins. Biskup
ritaði ráðherra bréf og óskaði
eftir því að annar lyki málinu.
Útvarpið greindi frá.
VIII afnema línu-
tvöföldun
Sjávarútvegsráöherra vill af-
nema línutvöföldunina, að sögn
Útvarps, en vetrarafli á línu
hefur aðeins að hálfu talist tU
kvóta frá því kvótakerfinu var
komiö á. RÚV sagði frá.
Hagnaður hjá SÍF
Hagnaöur SÍF hf. og dótturfé-
laga nam 169 milijónum í fyrra
en 164 milfjónum 1994. Heildar-
veltan var yfír 9,5 milijarðar og
jókst um 4% frá 1994. Útflutn-
ingsverðmæti námu 7,4 millj-
örðum króna.
Tvelr enn á sjúkrahúsi
13 af 124 einstaklingum, sem
veiktust af salmónellusýkingu
á Landspítalanum í febrúar,
hafa enn ekki náð sér. Tveir
eru enn á sjúkrahúsi, að sögn
RÚV.
Afhenti trúnaðarbréf
Sigríöur Á. Snævarr sendi-
herra hefur afhent Nelson
Mandela, forseta Suður-Afríku,
trúnaöarbréf sitt sem sendi-
herra með aðsetur I Reykjavík.
Skuldir sexfaldast
Skuldir íslenskra heimila
hafa sexfaldast á 15 árum. Þær
voru rúmlega 20% af ráðstöfun-
artekjum heimila en nema nú
rúmlega 120 %. RÚV sagöi frá.
318 milljarðar
Skuldir heimila við lánakerf-
ið námu um 318 millöröum í
lok síöasta árs og höfðu þá auk-
ist um 26 milljarða milli ára.
Útvarpið greindi frá.
-GHS