Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 21
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 21 skák Landskeppni í skugga hryðjuverka - Islendingar höfðu betur gegn sterkri sveit Israelsmanna , Framtíð ÍSLAIMDS á 60 mínútum Þriðjudagínn WÝJ Aft ÁObUNÖIfc 30. apríl kl. 17:15 á Hótel Borg Frummælendur: Halldór Blöndal, samgönguráöherra Skáklandsliö ísraelsmanna sótti okkur heim í vikunni og háði vin- áttulandskeppni við íslendinga á fimm borðum, sem fram fór á Grand Hótel i Reykjavík. ísraelsmenn eiga á að skipa einu öflugasta skáklands- liði heims og stöðugt bætist í hóp þeirra eftir því sem nýjum landnem- um fjölgar. Með landsliði þeirra sem hingað kom tefldu fjórir fyrr- verandi þegnar Sovétlýðveldanna og þar á meðal fyrrverandi skák- meistari Sovétríkjanna.. Vináttuheimsókn ísraelsmanna hingað er að undirlagi ræðismanns íslands í ísrael sem hefur lengi alið þennan draum í brjósti en skriður komst ekki á málin fyrr en í heim- sókn Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra til ísraels. íslensk stjórnvöld standa straum að ferðum og uppi- haldi ísraelsku skákmannanna en öðruvísi hefði trauðla getað orðið að keppninni ef bágur fjárhagur skák- sambanda landanna er hafður í huga. Atburðirnir í Suður-Líbanon, þar Umsjón Jón L Ámason sem ísraelsmenn sprengdu í loft upp bækistöðvar friðargæsluliða Sam- einuðu þjóðanna með þeim afleið- ingum að á annað hundrað manna fórust, settu nokkurn skugga á heimsókn þessara geðþekku skák- manna. Sá er þetta ritar, sem hafði verið valinn í íslenska liðið, kaus að sitja heima í mótmælaskyni. Ekki þótti ástæða til að fresta keppninni enda verður ekki við ísraelsku skákmeistarana sjálfa að sakast í þessum efnum. ísraelsmennirnir óskuðu sjálfir eftir því að dagskráin yrði ekki of íþyngjandi því að þeir vildu ekki missa af tækifærinu að fá að skoða sig um. Hin eiginlega landskeppni stóð því aðeins í tvo daga - tefldar voru tvöfaldar umferðir á fimm borðum. Gestunum var síðan boðið í skoðunarferðir síðustu daga þeirra og þá var einungis teflt til mála- mynda - hraðskákir á sumardaginn fyrsta og atskákir í gær. Keppnin sjálf var bráðskemmtileg og spennandi. íslenska liðið kom á óvart fyrri keppnisdaginn með þvi að halda jöfnu gegn þessum öflugu skákmeisturum. Seinni daginn bættu okkar menn svo um betur og höfðu sigur með einum vinningi. Glæsilegur árangur. Niðurstaðan varð þessi á einstökum borðum: 1. Margeir Pétursson-Leonid Jud- asin 1,5-0,5 2. Jóhann Hjartarson-Lev Psak- his 1-1 3. Hannes Hlífar-Boris Alter- mann 1,5-0,5 4. Karl Þorsteins-Alon Greenfeld 0,5-1,5 5. Helgi Áss Grétarsson-Yona Kosashvili 1-1 ísland-ísrael 5,5-4,5 Judasin hafði hvítt í fyrri skák- inni við Margeir og náði undirtök- unum en með því að fórna drottn- ingunni fyrir hrók og mann tókst Margeiri að ná upp festu og Judasin sætti sig við jafntefli. í seinni skák- inni tefldi Margeir til sóknar með því að fórna peði sem Judasin þáði. Við það lenti hann í krappri vörn og Margeir varð allsráðandi á svörtu reitunum með drottningu sinni og biskupi. Þegar Judasin tók þann kostinn að gefa hrók fyrir biskup virtist hann ætla að ná einhverju tangarhaldi - á svipaðan hátt og Margeir í fyrri skák þeirra - en Margeir komst í gegn með laglegri skiptamunsfóm. Jóhann tefldi við Lev Psakhis á 2. borði en Psakhis vann sér til frægð- ar að verða skákmeistari Sovétríkj- anna árin 1980 og 1981, í annað skiptið með Garrí Kasparov. Jó- hann gerði sér lítið fyrir og lagði kappann í fyrri skákinni og virtist á góðri leið með að knésetja hann á nýjan leik er þeir mættust aftur. Þá tókst Psakhis hins vegar að klóra í bakkann og hafði betur eftir tíma- hrak. Hannes Hlifar þrengdi að Alter- mann í fyrri skák þeirra og hafði sigur í 76 leikjum eftir langt og strangt endatafl þar sem Hannes átti peði meira með biskup og ridd- ara á mann. Ekki tókst honum að vinna tvöfalt - seinni skákinni lauk með þrátefli. Karl og Greenfeld tefldu fjöruga skák í fyrri umferðinni en svipting- unum lauk með því að kóngur Karls hrökklaðist fram á borðið og með laglegum hnykk gerði Greenfeld út um taflið. í seinni skák þeirra sveif ólíkt meiri friðsemd yfír vötnum og niðurstaðan varð jafntefli. Helgi Áss tapaði fyrri skákinni við Kosashvili en mætti tvíefldur til leiks í annað sinn og ýtti þá and- stæðingi sínum smám saman út af borðinu, slíkur var þunginn í tafl- mennskunni. Kosashvili þoldi ekki álagið, lék af sér, og varð að gefast upp eftir aðeins 27 leiki. Hvítt: Helgi Áss Grétarsson Svart: Yona Kosashvili Bogo-indversk vörn. 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 Bb4+ 4. Bd2 c5 5. a3 Bxd2+ 6. Dxd2 cxd4 7. Rxd4 0-0 8. Rc3 d5 9. e3 a6 10. cxd5 Rxd5 11. Bd3 Rxc3 12. Dxc3 b5 13. Be4 Ha7 14. Hcl e5 15. Rf3 f6 16. Dc5 He7 17. 0-0 Rd7 18. Dc2 g6 19. Hfdl Kg7 20. h4 De8 21. Dc7 f5 22. Bc6 Kh6 23. a4 b4 24. Dd6 b3 25. a5 Df7 26. Bxd7 Hxd7 27. Rxe5! - og svartur gafst upp. Eftir 27. - Hxd6 28. Rxf7 (með skák) Hxf7 29. Hxd6 hefur hvítur unnið hrók fyrir riddara og eftirleikur- inn er auðveldur. Skoðum að endingu seinni skák Margeirs við Judasin en með þess- um sigri Margeirs var sýnt að ís- lendingar myndu hafa betur gegn einu sterkasta skáklandsliði heims. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Leonid Judasin Tarrasch-vörn. 1. c4 c5 2. Rf3 Rf6 3. Rc3 e6 4. e3 Rc6 5. d4 d5 6. a3 cxd4 7. exd4 Re4 8. Bd3 Rxc3 9. bxc3 dxc4 10. Bxc4 Be7 11. 0-0 0-0 12. Hel b6 13. Bd3 Bb7 14. h4 Bxh4 15. Rxh4 Dxh4 16. He3 g6 17. Hg3 De7 18. Bh6 Hfe8 19. Dh5 Dc7 20. Dh4 f5 21. Hel Ra5 22. Hge3 Dd8 23. Dg3 Df6 24. Bb5 Bd5 25. Bxe8 Hxe8 26. Dd6 Dd8 27. Df4 Rc4 28. Hg3 Dd6 29. Dh4 De7 30. Bg5 Dxa3 31. Hh3 h5 32. Dg3 KÍ7 33. Dc7+ Kg8 34. Hg3 Df8 35. Dxa7 Ha8 36. Dc7 DÍ7 37. Df4 Kh7 38. Hd3 Ha3 39. Dg3 Da7 40. Hddl b5 41. Bf4 De7 42. Bg5 Db7 43. Hbl Ha5 44. Bcl De7 45. Df4 Dg7 46. Dg5 Df8 47. Bf4 Rd6 48. f3 Rf7 49. Df6 Dg7 50. Hxe6! Bxe6 51. Dxe6 Ha3 52. Hxb5 Hxc3 53. Hd5 g5 54. Hd7 Kg8 55. Be5 - og nú gafst Judasin upp. Guöbjörg Siguröardóttir, tölvunarfræðingur Geir A. Gunnlaugsson, framkvæmdastj. Marels hf. Fundarstjóri: Elsa Valsdóttir, varaformaður Heimdallar SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN 15%) staðgreiðslu- og greiðslukortaafs og stighækkandi birtingarafsláttur 5505000 Íiék Smíi ///Jfpwr áttur4^ HUSV|S| 20% afsláttur af öllum Tefal vörum m.a. matvinnsluvélar, brauðristar, kaffivélar grill, eldhús -og baðvogir ofl. ofl. í SAMLOKUGRILL KAFFIVELAR 'LLJ ZWILLING J.A. HENCELS Emfle Hemy) Hnírar Lágmúla 8 • Sími 553 8820 Emile Henry leirvörur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.