Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 23
ov LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
23
Mæðgurnar Ingibjörg Möller og Fríða Sigurðardóttir skrifuðu saman verðlaunabók:
„Þetta byrjaði allt þegar pabbi
hans Bjarna fór að hugsa. Eflaust
vita flestir að þegar foreldrar fara
að brjóta heilann getur margt gerst.
Bjarni sat í mestu makindum
inni í herberginu sinu kvöld eitt í
júníbyrjun. Honum leið ósköp nota-
lega, prófin búin (að vísu hafði ekki
geislað af einkunnabókinni), gos og
bland í poka innan seilingar og
græjurnar á fullu. Bjarni var í
æsispennandi og fjörugum tölvuleik
þegar Ingólfur, faðir hans, kom
askvaðandi inn í herbergið, opnaði
gluggann upp á gátt og hleypti inn
mildum kvöldsvalanum."
Þessa lýsingu þekkja margir ungl-
ingar og foreldrar þeirra og þannig
byrjar einmitt nýútkomin bók,
Grillaðir bananar, eftir mæðgurnar
Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurð-
ardóttur, sem er aðeins 16 ára. Þetta
er fyrsta skáldsaga þeirra mæðgna
og fyrsta bók Fríðu, sem byrjar rit-
höfundarferilinn á glæsilegan hátt,
því að þær mæðgur hlutu íslensku
barnabókaverðlaunin 1996. Ingi-
björg er kennari og hefur áður tek-
ið þátt í að skrifa kennslubækur,
meðal annars um Hornstrandir.
Hef ekki haft tíma
„Ön þessi ár hef ég séð auglýsta
þessa árlegu verölaunasamkeppni.
Ég hef alltaf lesið allar verðlauna-
bækurnar og hugsað með mér að
einhvem tímann myndi röðin koma
að mér að senda inn handrit. Ég hef
ekki haft tíma til þess að sitja mik-
ið við skriftir. Ég var einstæð móð-
ir með þrjú börn I sjö ár og hafði
nóg að gera við að vinna. Svo sá ég
að ég hefði tíma til þess í fyrrasum-
ar og strax og ég sá þetta auglýst
ákvað ég að taka þátt,“ segir Ingi-
björg.
Svo heppilega vildi til að um svip-
að leyti voru auglýsingar í blöðun-
um þar sem var verið að auglýsa
nýjung, það voru unglingaferðir til
Homstranda. Ingibjörg segir að sér
hafi fundist tilvalið að hafa sögu-
sviðið þar, setja krakka á land og
láta þá lenda í ævintýrum. Kennar-
ar era alltaf samir við sig og segist
Ingibjörg jafnframt hafa haft í huga
að kynna sögu svæðisins því að
Hornstrandir séu mjög sérstakar,
stærsta svæði á íslandi sem hafi far-
ið í eyði.
Vinnan við handritið hófst í júni
í fyrra og var lokið um miðjan októ-
ber þegar frestur til að skila inn
handritum rann út. Það er frekar
óvenjulegt að ættingjar skrifi bók
saman og sumir hefðu haldið að
mæðgur ættu erfltt með að vinna
saman að slíku verkefni. En hvern-
ig kom Fríða inn í skriftimar?
Börnin gagnrýndu
„Bömin mín voru dálítið gagn-
rýnin á bókina. Þeim fannst hún of
þung, of erfið, of hátíðleg. Svo það
varð úr að þau fóm yfir söguþráð-
inn og endursömdu bókina með
mér,“ útskýrir Ingibjörg. Strákamir
tveir, 21 og 25 ára, höfðu ekki tíma
til að vinna nógu mikið í bókinni
svo aö „Fríða settist við tölvuna
með mér og við fórum að skrifa. Ég
skrifaði söguþráðinn og svo kom
sem hafi haft sérstök og skemmtileg
áhugamál og hún hafi byggt per-
sónulýsingamar að einhverju leyti
á þeim en gætt þess að fróðleikur-
inn væri hvergi á kostnað söguþráð-
arins, í bókinni er til dæmis strák-
ur sem er óhemjufróður um fugla.
Ingibjörg segist hafa verið svo já-
kvæð og haft allar persónurnar svo
góðar, eiginlega „óeðlilega góðar,“
en Fríða hafi sett togstreitu inn í
samskipti persónanna.
„Hún setti inn dálítið mörg
skemmtileg samtöl þar sem er verið
að gera grin að þessum strákum,
tveimur aðalpersónunum sem voru
eiginlega píndir til þess að fara í
þessa ferð, því að þeir kunnu ekkert
að vera í fjallgöngu. Við reyndum
að halda spennu og hraðri atburða-
rás um leið og við reyndum að
koma inn fróðleik og ákveðnum við-
horfum,“ útskýrir Ingibjörg.
Fríða bætir við að þau systkinin
hafi einmitt gert athugasemdir við
rosalegar „náttúrulífslýsingar og
dýralífssögur“ sem gott og gagnlegt
sé að vita en ekki skemmtilegar að
lesa í sögu.
„Þetta var meira fræðsluefni en
við tókum dálitið mikið út, mörg
gullkornin fóru þar forgörðum,"
segir Friða.
-GHS
Mæðgunum Ingibjörgu Möller og Fríðu Sigurðardóttur, 16 ára, sem fengu ís-
lensku barnabókaverðlaunin 1996 fyrir bókina Grillaðir bananar, tókst að
halda spennu og hraðri atburðarás en reyndu að koma inn fróðleik og
ákveðnum viðhorfum. DV-mynd GS
hún heim úr vinnunni um hádegið
og bjó þá til samtöl og setti inn í
bókina." Mæðgumar segja að þær
hafi breytt textanum hvor hjá
annarri aftur og aftur þar til endan-
leg niðurstaða lá fyrir.
„Það eru auðvitað áratugir sem
skilja á milli okkar í aldri en við
reyndum samt að fara bil beggja og
nota málfar beggja," segir Ingibjörg
og Fríða bætir við: „Það var svona
málfar, húmor og brandarar sem
hennar kynslóð myndi stökkva á en
yngri krakkar skilja ekki og finnst
ekkert gaman að lesa. Ég held að
það sé miklu léttara yfir textanum
núna,“ segir hún.
Titillinn er orðaleikur
Dæmi um kynslóðabilið er
kannski titillinn á bókinni en hún
var upprunaleg send inn í keppnina
undir heitinu Tíu garpar á göngus-
kóm. Fríða var mjög óánægð með
það en Ingibjörg segist hafa ráðið
því að handritið fór undir því nafni
í samkeppnina.
„Svo sögðu unglingarnir í dóm-
nefndinni mér að þetta væri ótækur
titill, hægur og langur og gönguskór
svo leiðinlegt orð. Svo datt Fríöu í
hug Grillaðir bananar. Ég var mjög
mikið á móti því en síðan sá ég að
fólkið hjá Vöku-Helgafelli var hrifið
af hugmyndinni þannig að Fríða
hafði sitt fram á endanum,“ segir
Ingibjörg og bendir á að smá breyt-
ingar hafi verið gerðar á handritinu
þannig að þetta sé nú orðaleikur.
- En hvemig ætli mæðgunum
hafi gengið að vinna saman?
Stundum
smá ósætti
„Þetta var dálítið erfitt og náttúr-
lega smáósætti eins og gengur og
gerist en ég held að samvinnan hafi
gengið upp að lokum. Það voru sum
atriði sem ég var búin að þrá að
leiðrétta en hún leiðrétti alltaf til
baka. Við erum báðar þrjóskar en
ég er þrjóskari, held ég. Þetta gekk
yfirleitt en ef það gekk ekki þá leit-
aði ég til bræðra minna og fékk þá
til að taka minn málstað í breyting-
unum,“ segir Fríða
Ingibjörg er greinilega ekki alveg
sammála þessu því að hún segist
búast við að það hafi komið sér til
góða að hún sé kennari og vön að
verkstýra krökkum.
Óhemjufróður
um fugla
Grillaðir bananar fjallar um
Bjarna og níu vini hans sem fara í
ferðalag um Hornstrandir, að til-
stuðlan foreldra Bjarna, eftir að fað-
ir hans fer að hugsa, og lenda þar i
ýmsum hremmingum. En hvert
skyldu persónurnar í bókinni vera
sóttar, má kannski þekkja Fríðu og
bræður hennar í bókinni?
„Ein stelpan var í byrjun alveg
óhugnanlega lík mér. Hún var með
eins útlit og ég, sömu persónuein-
kenni og skap en það breyttist sem
betur fer,“ segir Fríða.
Ingibjörg bendir á að hún hafi
kynnst fjöldanum öllum af krökkum
í kennslunni, til dæmis krökkum
Nýjp varahlutip
...i bifneiðina þina
Við erum aðalumboðsaðilar fyrir bifreiðavara-
hlutina TRIDON Skandinavia A/S.
Varahlutir sem við erum stolt af.
Markvisst þjónum við ykkur erm betur!
B R Æ Ð U
Lágmúla
i 9 • Sími: 553 8820 • Fax: 568 8807
BOSCH verslunln, aðkeyrsla frá Háaleltlsbraut
TRUJUNt^'Böruaðilar:--------------------------------------
GH verkstæðið, Borgarnesi. Þórshamar, Akureyri.
Víkingur, Egilsstöðum. Vélsmiðja Hornafjarðar, Hornafiröi.