Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 29
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 37 sent um hæl óundirritað álit tveggja sérfræðinga þar sem annar sagðist ekki mundu hafa gert að brotinu á þennan hátt en hinn lagði blessun sína yfir það hvernig farið var að. í ljós kom, segir Óli Már, að annar sérfræðinganna, sem gaf álit sitt, hafði gefíð unga lækninum, sem gerði að brotinu, ráðleggingar í gegnum síma mn hvernig fara ætti að. í kjölfarið var farið fram á álit tveggja annarra sérfræðinga sem lýstu þvi báðir yfír að'þeir hefðu kosið að fara aðra leið. Hvorugur þeirra treysti sér þó til að segja nokkuð um það hvort mistök hefðu átt sér stað þegar búið var að brot- inu. Fyrir nokkru komu þau hjónjn síðan fram í útvarpsþætti þar sem þau sögðu stuttlega frá máli Óla og í kjölfarið sendi landlæknir þeim grein úr útlendu læknatímariti, frá árinu 1983, þar sem sýnt var fram á að þess væru dæmi að gert hefði verið að sams konar broti og Óli Már hlaut á sama máta og gert var að hans broti. Óskiljanlegt „Það má nú vera lítil framþróun- in í læknavísindunum ef ekkert nýtt hefur komið í ljós á 13 árum. Það getur ekki verið að allt sé eðli- legt þegar svona brot á að taka inn- an við 9 vikur að gróa. Ég skil ekki hvemig menn geta sagt að hvergi í ferlinu hafa verið gerð mistök. Það sem er að vefjast fyrir okkur er hvað við eigum að gera. Mín skoðun er sú að gerð hafi verið mis- tök, eins og ég hef áður sagt. Ég hugsa að margir samþykki það. Þá er það spurning við hvem maður á að fara í mál og staðreyndin er sú að ég get ekki höfðað mál gegn nokkrum fyrr en komið hefur í ljós hver skaðinn er og hvort hægt verð- ur að bæta úr þessu - verður þetta varanleg örorka sem ég hlýt eða ekki? En á meðan ástandið er eins og það er er ég tekjulítill og við get- um ekkert ráðgert með framtíð okk- ar eða unnið að henni. Ef ég verð svo heppinn að beinin gróa saman tekur það samt langan tíma að ná upp fyrri styrk.“ -PP hverja peninga fyrir íbúðina okkar á Ólafsfirði og þeir hafa allir farið í framfærslu okkar. Þetta litla sem maður átti fyrir slysið er allt uppé- tið. Þetta hefur sett stórt strik í reikning, skólagöngu Óla líka, og við þurfum, líkt og aðrir, að standa í skilum með skuldir okkar. Félags- lega séð hefur þetta líka áhrif á fjöl- skylduna. Það eru erfiðleikar sem fylgja þessu. Elsti sonur okkar hætti til dæmis í skóla af því hann vildi eiga pening. Við vorum ekki aflögu- fær þannig að þetta varð niðurstað- an,“ segir Inga og Óli Már bætir við að eftir hverja aðgerð hafi hann ver- ið vongóður um að nú væru erfið- leikarnir að baki og útlitið fram undan bjart. Hann er sömu skoðun- ar nú varðandi næstu aðgerð. Ástandið er samt ekki alslæmt því Óli Már hefur fengið bætur frá Tryggingastofnun og að auki fékk hann 30 þúsund króna mánaðarleg- ar greiðslur frá tryggingafélagi sínu í tæplega ár eftir slysið. Framtíðin í lausu lofti „Það sem mér hefur þótt leiðin- legt er að geta ekki gert plön fram í tímann sem standa. Ég hef átt von á að fara I aðgerðina og ekki getað byijað í skólanum því ég veit að sú önn fer til spillis þegar ég verð skor- inn. Þegar ég fór til dæmis í blóð- prufu 2. janúar var mér sagt að upp- skurðurinn gæti sennilega orðið í seinni hluta febrúar." Óli Már og Inga eru mjög undr- andi á því að enginn skuli þurfa að bera ábyrgð á því sem gerst hefur. Þau hafa leitað til lögmanns sem til þessa hefur verið að safna að sér gögnum. Þá voru þau meðal stofnfé- laga Lífsvogar, samtaka sem í eru þeir sem telja sig fómarlömb lækna- mistaka. Læknamistök? Meðal gagna sem lögmaðurinn hefur fengið er álit tveggja lækna á því hvernig fyrst var gert að meiðsl- um Óla Más. Landlæknir óskaði, samkvæmt beiðni lögmanns Óla Más, eftir áliti tveggja óháðra sér- fræðinga á læknisverkinu og fékk 270 kærur og kvartanir til landlæknis á seinasta ári: Öllum aðgerðum fylgir áhætta - þarf ekki að þýða mistök þótt aðgerð heppnist ekki Á fimm ára tímabili, 1990 til 1994, bárust 211 kvartanir og kærur frá sjúklingum til Landlæknisembættisins vegna meinti-a læknamistaka og óhappatilvika. Sprenging varð hins vegar á síðasta ári hvað fjölda kvartana og kæra varðar en þá bárust 270 kærur og kvartanir. í rúmum helmingi tilfella er ekki beitt að- finnslum eða áminningum við lækna þar sem málin eru minni háttar. Samkvæmt tölum frá landlækni bárust 211 mál að jafnaði á ári á fimm ára tímabili, árin 1990 til 1994. 56 leiddu til þess sem kallað er ábendinga til lækna, 16 til tilmæla til lækna, 23 til áminninga til lækna, 4 til alvarlegra áminninga og ein til- laga var gerð um leyfissviptingu. Af þessu er ljóst að í 35 til 45 prósentum mála telst vera um læknamistök að ræða. Flestar kærurnar koma frá sjúkrastofnunum þar sem grípa þarf til skyndiaðgerða en alvarlegustu kærurnar koma vegna atvika á sérgreiningasjúkrahús- um þar sem flóknustu aðgerðimar em fram- kvæmdar. Ólafur Ólafsson vísar því á bug að hér á landi nái menn ekki fram rétti sínum telji þeir að læknar hafi gert mistök í starfi sínu. Bendir hann orðum sínum til stuðnings á það að hlutfallslega fleiri læknar hér á landi verði fyrir því að missa leyfi eða fá takmarkaö leyfi í samanburði við nágrannalöndin. Á íslandi gerðist það til dæmis á árabilinu 1976 til 1993 að gripið var til aðgerða gegn 17 læknum og af þeim vom sex sviptir leyfi. Þetta eru hlut- fallslega helmingi fleiri en í Svíþjóð og Dan- mörku. „Calculated risk" Hann segir þaö allt of algengt að fólk hér á landi geri sér ekki grein fyrir því að öllum að- gerðum fylgir einhver áhætta. Engin aðgerð sé 100 prósent ömgg. Alltaf sé vitað um ein- hverja fylgikvilla einföldustu aðgerða. Mannslíkaminn sé nú einu sinni eins og hann er - engir tveir menn eru eins. Talað sé um „calculated risk“ í þessum málum - þ.e. öllum aðgerðum fylgi einhver áhætta. „Fólk ruglar þessu oft og tíðum saman við mistök. Flest mála sem ég fæ frá Lífsvon eru af þess- um toga eða þá að þau eru því miður fymd.“ Ólafur segist, aðspurður um mál Óla, ekki geta tjáð sig um einstök mál en segir þó að þess séu dæmi að mál rísi um aðgerðir sem ekki heppnast þótt beitt hafi veriö eölilegri meðferð. „Oft er lika deilt um meðferðir en ef þær er að finna í kennslubókum þá hljóta þær að vera viðurkenndar. Svo er það alltaf einhver hluti aðgerða sem ekki heppnast en undan því verður ekki vikist að stundum koma upp mis- tök.“ Röntgenmynd af handlegg Óla, tekin við komuna á heilsu- gæslustöðina á Ólafsfirði. Til samanburðar má sjá hvernig handleggurinn lítur út í dag. Beinið sem er brotið myndar orð- ið horn. Fleiri kvartanir hér Hér á landi berast 3,8 alvarlegar kvartanir og kærumál til Landlæknisembættisins á hverja 10 þús- und íbúa í samanburði við 3,2 í Svíþjóð og 2,5 í Dan- mörku. Hlutfallið hefur síðan hækkað síðasta ár. Ólafur segir þetta skýrast að miklu leyti til af því hve umræðan um læknamistök hefúr verið ofarlega á baugi meðal almennings og í fjölmiðlum undanfarin ár. Nálægðin sé líka meiri hér. Hann segir þann tíma sem tekur að afgreiða kvart- anir og kærur vegna læknamistaka ekki langan. Til dæmis afgreiði Landlæknisemhættið allflest þeirra mála sem þangað berast innan árs og flest innan sex mánaða. í sama streng tekur lögmaður sem fæst við skaðabótamál vegna læknamistaka. Hann segir lengstan tíma fara í að afla gagna og svo þurfi að bíða þess að sjá afleiðingu mistakanna sem er tími sem oft er mældur í árum. Biðlistar eftir aðgerðum eru oft langir núna - mis- jafnt eftir meininu. Ólafur segir unnið að því að stytta biðlistana. Menn séu farnir að sjá betur óhag- kvæmni biðlistanna og horfa öðrum augum á beinan spamað af niðurskurði sem oft sé sýndur en ekki gef- inn. Landlæknir getur til dæmis lagt til að fólki með veigameiri sjúkdóma verði tryggður réttur til aö- gerða innan þriggja til sex mánaöa, líkt og nú er far- ið að gera í nágrannalöndunum. „Menn tala of mikið um kostnað sem hlýst af bein- um lækniskostnaði en reikna ekki meö þann kostnað sem hlýst af tryggingum, missi atvinnu og fleira því tengdu. Viö höfum verið að benda á að þessa þætti þurfi að reikna með til að fá út heildarkostnaðinn. Við höfum óskað eftir því að fjármálaráðuneytið setji menn í það með okkur að kanna hinn óbeina kostn- að en því miður hefur litið orðið úr því.“ -PP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.