Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Blaðsíða 12
2 mrlend bóksjá LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 JjV Metsölukiljur I •••••••••••••#: Bretland Skáldsögur: 1. Rosamunde Pllcher: Comlng Home. 2. Josteln Gaarder: Sophle's World. 3. Nlck Hornby: Hlgh Fldellty. 4. Stephen Klng: The Two Dead Glrls. 5. Kate Atkinson: Behlnd the Scenes at the Museum. 6. Irvine Welsh: Tralnspottlng. 7. John Grisham: The Rainmaker. : 8. P.D. James: Orlglnal Sln. 9. John le Carré: Our Game. 10. Danlelle Steel: Wlngs. Rit almenns eölis: 1. Will Hutton: The State We’re in. 2. Lorenzo Carcaterra: Sleepers. 3. John Cole: As It Seemed to Me. 4. Graham Hancock: Flngerprints of the Gods. 5. John Gray: Men Are from Mars, Women Are from Venus. 6. Nelson Mandela: Long Walk to Freedom. 7. Brlan Lowry: The Truth is out there. 8. Helen Prejean: Dead Man Walklng. 9. Alan Bennett: Wrlting Home. 10. D. & E. Brlmson: Everywhere We Go. (Byggt á The Sunday Tlmes) Danmörk 1. Jane Austen: Fornuft og folelse. 2. Jung Chang: Vilde svaner. 3. Llse Norgaard: Kun en pige. 4. Nat Howthorne: Den flammende bogstav. 5. Terry McMillan: Ándenod. 6. Lise Norgaard: De sendte en dame. 7. Peter Hoeg: De máske egnede. (Byggt á Politiken Sondag) I 1 1 vísindi Brodkey - Garðar Hólm bandarískra bókmennta Farvegir bókmenntalegrar frægð- ar eru stundum harla skrítnir. Það rifjast upp nú þegar bandaríski rit- höfundurinn Harold Brodkey er all- ur, 65 ára að aldri. Það orðspor fór af Brodkey meðal bókmenntamanna vestra í meira en þrjá áratugi að hann væri einn mesti skáldsagnahöfundur landsins, „Proust Ameríku“, maðurinn sem væri að semja hina „miklu amer- ísku skáldsögu", - en eftir því fyrir- brigði virðast Bandaríkjamenn alltaf vera að bíða. Blaðran sprakk ekki fyrr en árið 1991 þegar Brod- key gerðist svo djarfur að senda sög- una miklu frá sér. Ferill þessa höfundar hlýtur að minna íslendinga um margt á Garð- ar Hólm, nema hvað sá mikli söngv- ari hafði vit á því að flytja aldrei list sína opinberlega. Einstaklega gáfaður Brodkey fæddist 25. október 1930 í Staunton, Illinois. Faðir hans var skransali, hnefaleikari og drykkju- rútur. Móðirin lést skömmu fyrir tveggja ára afmæli drengsins, sem varð svo mikið um að hann sagði ekki orð í tvö ár. Frændfólk tók hann til sín. Að eigin sögn var hann einstaklega gáfaður: „Ég lærði að lesa á 30 sekúndum," lét hann hafa eftir sér af þeirri „hæversku" sem einkenndi ummæli hans um sjáffan sig allt hans líf. Brodkey lauk prófi frá Harvard, kvæntist, eignaðist dóttur og settist að í New York. Hann var ákveðinn í að gerast rithöfundur og eftir að safn níu smásagna, „First Love and Joseph Brodkey. Other Sorrows," kom út árið 1958 snerist allt líf hans um það mark- mið. Gagnrýnendur tóku smásagna- safninu vel og settu hann á bekk með öðrum nýjum höfundum þeirra tíma (t.d. John Updike og Philip Umsjón Elías Snæland Jónsson Roth). Brodkey fór samstundis að huga að skáldsögunni miklu, sem hann sagði öllum sem heyra vildu að yrði meistaraverk bandarískra bókmennta. Margir urðu til að trúa því. Árið 1964 samdi hann við forlag ve'stra um útgáfu skáldsögunnar. Það var upphaf af löngu ferli. En alltaf lét skáldsagan bíða eftir sér. Þegar forlagið gafst upp á biðinni eftir 25 ár samdi Brodkey við annað; þau urðu fimm áður en yfir lauk. Á áttunda áratugnum bárust fréttir af að handritið væri orðið mörg þús- und blaðsíður. 1977 birti New York Times forsíðufrétt undir fyrirsögn- inni: „Brodkey Delivers". En engin kom skáldsagan. Brodkey baðaði sig hins vegar ótæpilega í sviðsljósi lista- og samkvæmislífs New York borgar þar sem litið var á hann sem snilling. Loksins, loksins Það var svo árið 1991 að skáldsag- an var gefin út, 32 árum eftir að hann hóf ritun hennar. Mestur hluti „The Runaway Soul“, sem er 837 blaðsíður, tjallar með einum eða öðrum hætti um kynlíf. Þótt persón- ur komi og fari er inntak sögunnar þankagangur sögumanns sem hefur einstakan áhuga á að lýsa öllu sem fyrir hann ber í smáatriðum. Sem dæmi má nefna að höfundurinn þurfti fjóra kafla til að segja frá því þegar söguhetjan vaknar og gengur fram á klósett. Brodkey var sár yfir þeim viðtök- um sem skáldsagan fékk, en árið 1993 vakti hann loksins þá athygli með skrifum sínum sem hann hafði alltaf vonast eftir, er hann birti í New Yorker grein um að hann væri með eyðni og ætti skammt eftir ólif- að. „Ekkert sem ég hef skrifað hefur vakið eins mikla athygli og tilkynn- ingin um dauða minn,“ sagði hann í viðtali skömmu áður en hann lést. : : : | 1 1 Metsölukiljur Bandaríkin Skáldsögur: 1. Maeve Binchy: The Glass Lake. 2. Davld Guterson: Snow Falllng on Cedars. 3. John Grlsham: The Ralnmaker. 4. Catherlne Coulter: The Cove. 5. Danielle Steel: The Gift. 6. Amanda Quick: Mystlque. 7. Elizabeth Lowell: Autumn Lover. 8. Jane Smiley: Moo. 9. V.C. Andrews: Tarnished Gold. 10. Michael P. Kube-McDowell: Before the Storm. 11. Steve Thayer: The Weatherman. 12. Michael Palmer: Sllent Treatment. 13. Wllbur Smith: The Seventh Scroll. 14. Josteln Gaarder: Sophie's World. 15. John Sandford: Mind Prey. Rit almenns eölis: 1. Ann Rule: Dead by Sunset. 2. Lorenzo Carcaterra: Sleepers. 3. James Carvllle: We’re Right, They’re Wrong. 4. Mary Pipher: Revlvlng Ophella. 5. Helen Prejean: Dead Man Walking. 6. Thomas Cahlll: How the Irish Saved Clvillzatlon. 7. Oliver Sacks: An Anthropologist on Mars. 8. Robert Fulghum: From Begfnnlng to End. 9. Thomas Moore: Care of the Soul. 10. Rlchard Preston: The Hot Zone. 11. M. ScottPeck: The Road Less Traveled. 12. Nicholas Negroponte: Being Digital. 13. B.J. Eadie & C. Taylor: Embraced by the Ught. 14. Butler, Gregory & Ray: America’s Dumbest Criminals. 15. Clarissa Pinkola Estés: Women Who Run wlth the Wolves. (Byggt á New York Times Book Revlew) : DV Ný reikistjarna Tveir bandarískir stjarnvís- indamenn hafa fundið nýja reiki- stjörnu sem er á sporbaug um fastastjörnu í um 50 ljósára fjar- lægð frá jörðu. Reikistjarnan er hin fimmta utan sólkerfis okkar sem hefur fundist að undan- förnu. „Við sjáum ljós frá stjörnunni eins og það var fyrir 50 árum,“ sagði Geoffrey Marcy, annar vís- indamannanna. Hann og félagi hans, Paul Butler, hafa fundið þrjár nýju reikistjarnanna. Félagamir vöktu mikla athygli í janúar þegar þeir lýstu því yfir að umhverfið á tveimur þeirra kynni að standa undir lifi. Því er þó ekki að heilsa á nýjustu upp- götvuninni, til þess er hún of heit. Ný leið fyrir vatnstap heimsins Rannsókn á grunnvatni sem lekur í Atlantshafið undan suð- austurströnd Bandaríkjanna sýn- ir að margar milljónir lítra af vatni fara í sjóinn, næstum helm- ingur af því sem kemur úr ám. Þetta er mun meira en áður var haldiö. Willard Moore, jarðfræðingur við háskólann í Suður-Karólínu, notaði radíum í vatninu til að rekja slóð þess um jarðlög neðan- jarðar og út í sjó. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Mnrliiv minlkrin puI hir M\ ! Froskareru mUUUI iiijuiiviii cyi IVUI CIXIXI hoppandi lyfjabúr greind hjá hvítvoðungum „Flestir sérfræðingar um heilsu- far barna eru sammála um að brjóstagjöf sé hin fullkomna aðferð við næringu barna. Mæður sem geta ekki eða kjósa að hafa börn sín ekki á brjósti þurfa ekki lengur að hafa áhyggjur af því að börn þeirra verði ekki jafn greind. Bestu sann- anirnar fyrir því eru að greindar, ástríkar og umhyggjusamar mæður eru líklegri til að eignast greind börn, óháð þvi hvernig þær kjósa að næra börnin sín,“ segja læknarnir William Feldman og Mark Feinman við barnaspítala háskólans í Toronto og við Scarborough Grace sjúkrahúsið. Tilefnið er grein í ný- legu tölublaði læknablaðsins Lancet um tengslin milli brjóstagjafar og gáfnafars barna. Höfundar greinarinnar í Lancet, þau Catherine Gale og Christopher Martyn við aðalsjúkrahúsið í Sout- hampton á Englandi, segja ekki neinn marktækan mun á gáfnafari þeirra sem eingöngu hafa nærst á móðurmjólkinni og þeirra sem ein- göngu fengu pela eöa voru bæði á brjósti og drukku úr pela. Vísindamennirnir komust að þessari niöurstöðu eftir að hafa kannað 994 karla og konur sem fæddust í Hertfordskíri á Englandi á árunum 1920 til 1930. Mjög ná- kvæmar skýrslur voru haldnar um fólk sem fæddist á þessum tíma, um foreldra þess, heimili og umönnun. Aðeins eitt hafði eitthvert for- spárgildi um greind, að sögn vís- indamannanna tveggja, og það var notkun snuðs. „Við fundum sterk tengsl milli snuðnotkunar ungbarna og greind- ar á fullorðinsárum. Fólk sem not- aði snuð fékk að meðaltali 3,5 stig- um lægra á greindarprófum en þeir sem ekki höfðu notað snuð,“ segja vísindamennirnir og klykkja út með því að segja að greind barnsins sé meira undir félagslegu umhverfi þess komið en undir næringargildi móðurmjólkurinnar. Allmargar rannsóknir hafa bent á tengsl milli brjóstagjafar og greind- ar. Brjóstagjöf er vissulega góð fyrir heilsuna því i móðurmjólkinni eru öll lífsnauðsynleg næringarefni og læknar höfðu uppi kenningar um að þau hefðu áhrif á greindina jafnt og heilsuna. En hvers vegna skyldi notkun snuðs vera neikvæð? Því svara Gale og Martyn svona í grein sinni: „Kannski eru börn sem eru tilleið- anleg að meðtaka snuð ekki alveg jafn greind og þau sem neita að vera með snuð.“ Höfundarnir benda líka á að á þeim tíma sem hér um ræðir hafi það verið opinber stefna að telja for- eldra ofan af því að láta börn sín nota snuð. Það kunni því að vera að aðeins þeir foreldrar sem voru ekki eins greindir og menntaðir hafi lát- ið börn sín nota þau. „Froskar eru gangandi lyfja- búðir og ef froskar hverfa, hverfa með þeim tækifæri á að íeita að nýjum lyfjasamsetningum," segir Mike Tyler, vísindamaður í Ástr- alíu, sem hefur, ásamt mörgrun starfsbræðrum sínum, hvatt til þess að aukið fé verði lagt í rann- sóknir á froskum og efnasam- böndum í þeim sem hægt væri að nota til lyfjaframleiðslu. Froskar eru víða í útrýmingar- hættu og því ríður á að rannsaka eiginleika þeirra sem fyrst. Tyler og starfsbræður hans hafa fundið efni í græna ástr- alska trjáfrosknum sem lofa góðu i baráttunni gegn sveppa-, veiru- og bakteríusýkingum. ■ ■ | jrm ■ smjori betra Austur á Nýja-Sjálandi hafa vísindamenn komist að því að smjörlíki sé betra fyrir heilsuna en smjör, að minnsta kosti fyrir þá sem hafa mikið kólesteról- magn í blóðinu. Vísindamennirnir rannsökuðu 49 einstaklinga sem læknar höfðu úrskurðað aö hefðu mikið kólesteról. Fólkinu var skipt upp I tvo hópa og réð tilviijun því hvar hver lenti. Smjör var í fæðu annars hópsins en smjörlíki hjá hinum. Við rannsókn kom svo í ljós að þeir sem neyttu smjörlik- is voru með 10 prósent minna af svokölluðu slæmu kólesteróli í blóðinu en smjöræturnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.