Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Síða 4
4
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 JÖ'V
fréttir
Viöræður hafnar um sameiningu ÚA og dótturfyrirtækja Samherja:
Samherjamenn að leysa
vanda bæjarstjórnarinnar?
Húsakostur Útqerðarfélags AZkureyringa. DV-myndir gk
Hús Strýtu hf. á Akureyri
DV, Aknreyri:
„Það er alveg ljóst að ef Sam-
herjamenn hefðu ekki komið fram
meö þetta tilboð sitt þá hefði meiri-
hiutinn í bæjarstjórn verið í áfram-
haldandi vandræðum með hvaða
leið skyldi fara í málinu og þessi
vandi nær reyndar til bæjarstjóm-
arinnar allrar. Bæjarfulltrúar hafa
verið að tvístíga með það hvemig
standa ætti að sölu hlutabréfa bæj-
arins í Útgerðarfélaginu, hversu
mikið ætti að selja og svo framveg-
is.“
Þessi orð ónafngreinds aðila, sem
tengist hugsanlegri sameiningu Út-
Fréttaljós
Gylfi Kristjánsson
gerðarfélags Akureyringa og þriggja
dótturfyrirtækja Samherja hf., end-
urspegla þau viðhorf sem hafa verið
uppi í viðræðum manna á milli á
Akureyri undanfarna mánuði um
málefni ÚA og hugsanlega sölu
hlutabréfa Akureyrarbæjar í fyrir-
tækinu en eignarhluti bæjarins
nemur 53%. Ekki var hægt að sjá
hvernig bæjarfulltrúar myndu ná
lendingu í málinu, margir töluðu
um að aldrei yrði nein sátt í bæjar-
stjóm um þá leiö sem fara ætti og
jafnvel hefur verið um það rætt að
þetta gæti orðið banabiti bæjar-
stjómarmeirihlutans.
Samherji með hnífinn
Margir telja aö með tilboði sínu
hafi Samherjamenn birst með hníf-
inn og skoriö á þann hnút sem upp
var kominn, en Samherji bað Akur-
eyrarbæ um könnunarviðræður þar
sem könnuð yrði sameining Útgerð-
arfélags Akureyringa og þriggja
dótturfyrirtækja Samherja, Strýtu,
Söltunarfélags Dalvíkur og Oddeyr-
ar. Þessar viðræður em hafnar og
er talið að ekki taki mjög langan
tíma að sjá hvort þær leiða til já-
kvæðrar niðurstöðu.
í bréfi sínu til Jakobs Bjömsson-
ar bæjarstjóra óskaði Þorsteinn
Már Baldvinsson, framkvæmda-
stjóri Samherja, jafnframt eftir því
að kannaður yrði möguleiki á að
Akureyrarbær seldi hluta 53% eign-
arhluta síns í ÚA til Samherja og
annarra, þó meö það markmið að
Akureyrarbær yrði áfram sterkur
eignaraðili að fyrirtækinu.
Kratar kátir
Allir sem tjáð hafa sig opinber-
lega um þetta tilboð Samherja-
manna hafa tekiö því jákvætt og t.d.
er vitað að þetta fellur vel að vilja
alþýðuflokksmanna sem eiga einn
mann í bæjarstjómarmeirihlutan-
um. Fram að þessu tilboði Samherj-
amanna vom þær raddir ávallt há-
værar að það mætti ekki gerast að
meirihlutinn í ÚA kæmist í hendur
einhverra aðila utan bæjarins sem
myndu síðan hafa sína hentisemi og
e.t.v. flytja reksturinn og kvótann
að einhverju leyti úr bænum..
Margir sem svona hugsuðu telja
að tilboð Samherja tryggi að slíkt
muni ekki gerast og þaö skipti ekki
minnstu máli. Þá er það ekkert
launungarmál að bæjarbúar treysta
flestir a.m.k. Samherjamönnum bet-
ur en öðrum til að stuðla að enn
frekari sókn í útgerð og fiskvinnslu
í bænum.
Besta leiðin
Það kæmi vissulega á óvart ef
ekki gengi saman með þremenning-
unum sem fjalla eiga um sameining-
armálið, Jakobi Bjömssyni bæjar-
stjóra, Þorsteini Má Baldvinssyni
og Jóni Þórðarsyni, formanni
stjómar ÚA. En þá er eftir að ræða
sölu hlutabréfanna. í stöðunni er aö
mati eins viðmælanda DV líklegast
að farin verði sú leið að selja Sam-
herja hlutabréf, e.t.v. 30-35% af 53%
hluta bæjarins. í framhaldi af því er
rætt um að bærinn selji ÚA sjálfu
afgang bréfa sinna. „Það er besta
leiðin að styrkja fyrirtækið þannig.
Það vita flestir að sú þróun er í
gangi að eftir nokkur ár verði eftir
fá stór fyrirtæki í fiskveiðum og
vinnslu sem veröa leiðandi og þessi
leið myndi styrkja ÚA verulega,"
sagði einn viðmælandi DV.
Veltan 6 milljarðar
Fyrirtækin þrjú sem Samherja-
menn hafa boðiö að sameinist ÚA
eru ekki fyrirtæki á vonarvöl. Þau
voru t.d. rekin með um 250 milljóna
króna hagnaði á síðasta ári og velta
þeirra var um 2,5 milljarðar króna.
Velta ÚA á síðasta ári var um 3,6
milljarðar króna þannig að gangi
sameiningaráformin eftir sjá allir
hversu öflugt fyrirtæki yrði til að
sameiningunni lokinni. Þetta er því
svo sannarlega ekkert smámál fyrir
Akureyri og íbúa þar. -gk
Ungur listamaður fann málverk í Kaupmannahöfn:
Líklega áður óþekkt
verk Jóns Stefánssonar
- fannst fyrir tilviljun hjá fornsala
DV, Kaupmannahöfn:
„Hvað ert þú að gera hér, hugsaði
ég þegar ég fann myndina. Þama var
allt í einu komin ein kvennanna sem
hafa horft á mig í biðröðinni í Lands-
bankanum. Ég er 100 prósent viss um
að þessi mynd er eftir Jón Stefáns-
son,“ segir ungur listamaður i Kaup-
mannahöfn. í síðustu viku keypti
hann mynd af fomsala í Kaupmanna-
höfn sem grunur leikur á að sé eftir
listamanninn Jón Stefánsson. Sjálfúr
segir hann að hér sé líklega um að
ræða skissu eftir Jón sem hann hefur
gert fyrir freskumar þekktu í Lands-
bankanum.
Kunnáttumenn sem séð hafa verkið
em sannfærðir um að fúndið sé áður
óþekkt verk eftir Jón Stefánsson. List-
fræðingar vilja þó ekki fúllyrða neitt
fyrr en verkið hefur verið rannsakað
rækilega. Sú vinna hefst væntanlega í
næsta mánuði.
„Síðan ég flutti hingað árið 1991 hef
ég reynt að finna verk eftir Islendinga
á fornsölunum hérna. Þær leynast
víða enda lærðu og störfuöu flestir
gömlu meistaranna héma. Ég varö
rosalega æstur þegar ég fann myndina
enda sannfærður um að um íslenska
mynd væri að ræða. Hún var ansi
kunnugleg þessi bændastúlka með
sjalið og ég vissi að ég hafði séð hana
áður. Myndin var hins vegar það dýr
að ég gat ekki keypt hana strax. En ég
lét sem betur fer verða að því og sé
ekki eftir því,“ segir listamaðurinn
sem ekki vill láta nafii síns getiö.
Myndin er ómerkt og fomsalinn
taldi að verkið væri eftir þekktan
danskan málara. Kaupandinn er hrns
vegar sannfærður um myndin sé eftir
Jón og þeir sem skoðað hafa verkið
em sömu skoðunnar. Haft var sam-
band við Listasafn íslands og fer rann-
sókn fram í næsta mánuði.
„Ég er sannfærður ems og allir aðr-
ir að þetta er eftir Jón og er himinnlif-
andi yfir fundinum," sagði listamaður-
inn að lokum.
Verðkönnun frá Samkeppnisstofnun:
Fjarðarkaup með
lægsta verðið
- Bónus og KEA-Nettó ekki tekin með
Fjarðarkaup i Hafnarfirðí
reyndust með lægsta verðið af 22
stórum matvömverslunum sem
Samkeppnisstofnun tók i verð-
könnun sem birt var í vikunni.
Skráð var verð á 85 algengum
vömtegundum, þ.á m. mjólkur- og
landbúnaðarvörum og nýlendu-,
drykkjar- og hreinlætisvörum.
Reiknað var út meöalverð
hverrar einstakrar vöru og þaö
síöan notað sem stuöull til viðmið-
unar og var miöað við meðaltöl-
una 100. Fjaröarkaup komu út meö
91,4, töluvert undir meöaltalinu,
10-11 var með 93,6, Hagkaup Eiöis-
torgi 96,4, og Nóatún með 100
slétta. Hæst var verðið á ísafirði, í
Kaupfélagi ísfirðinga 113,5 og í
Vöruvali, Skeiði 111,6. Á Akureyri
var KEA Hrísalundi með stuðul-
inn 96,6 og Hagkaup 97. Niöurstöö-
umar eru svipaðar fyrri niður-
stööum að því leyti að ákveðin
tengsl eru á milli verðlags og fjar-
lægðar verslunar frá höfuöborgar-
svæðinu. Verslanir á Akureyri
eru sem fyrr undantekning firá
þessu.
1 könnun Samkeppnisstofnunar
er þess getið að verslanimar Bón-
us og KEA-Nettó hafi ekki verið
teknar með vegna þess að þar hafi
fáar vörutegundir verið saman-
burðarhæfar. Þess er þó getið að í
verslununum var meðalverð lægst
á þeim vörutegundum sem sam-
bærilegar vora.
Bónusmenn hafa sent frá sér
yfirlýsingu þar sem þeir harma
þau vinnubrögð að horft sé fram
hjá Bónusi í verðkönnun sem
þessari því með því sé veriö að
villa um fyrir neytendum um hvar
lægsta vöruverð sé að finna. -sv
Málverkið sem grunur leikur á að sé eftir Jón Stefánsson. DV-mynd pj
Sæluvika Skagfirðinga
DV, Sauðárkróki:
Dagskrá verður með íjöl-
breyttasta móti á Sæluviku Skag-
firðinga sem hefst 28. apríl og stend-
ur út vikuna. Trúlega hefur sjaldan
eða aldrei verið úr jafnmiklu að
velja en að venju hefst sæluvikan
með messu í Sauðárkrókskirkju kl.
14 á sunnudag. Setningarathöfn
verður á eftir í Safnahúsinu og þar
jafnframt opnuð sýning. Síðan verð-
ur haldið áfram alla vikuna og end-
að meö stórtónleikum ýmissa kóra
4. maí í Miðgarði og dansað fram á
nótt í að minnsta kosti þremur hús-
um.
-ÞÁ
Fimm bændur kærð-
ir fyrir ikveikjur
Fimm bændur í Húnavatnssýslu
eiga yfir .höfði sér kærur fyrir að
hafa kveikt í sinu í blíðunni síðustu
daga. Samkvæmt lögum má ekki
kveikja í sinu án leyfis sýslumanns
og að fenginni umsögn oddvita í
hverjum hreppi. Sektir liggja við ef
ekki er farið að lögum.
Lögreglan á Blöndusósi hefur síð-
ustu daga heimsótt bændur sem
kveikt hafa í sinu og gert þeim
grein fyrir að frelsi fyrri ára til að
brenna sinu að vild fram til 1. maí
heyri sögunni til. -GK