Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Side 13
IjV LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
W*—
enning
Alfred Schnittke
Meðal þekktustu rússneskra tón-
I skálda á okkar tímum er Alfred
' Schnittke. Á ekki ósvipaðan hátt og
landi hans Dmitri Shostakovich
gerði á sínum tíma, hefur Schnittke
I tekið þátt í hinum miklu tónlistar-
legu umbyltingum aldarinnar, en þó
i fjarlægð og með vissri varkárni og
tortryggni og án þess að sleppa tök-
um á hinni rússnesku hefð. Fyrir
bragðið er stíll hans mjög persónu-
legur, nútímalegur með gamaldags
ívafi. Meðal ein-
kenna hans má
nefna sterka til-
finningu fyrir
því dramatíska.
Oft er bók-
menntalegur
bakgrunnur að verkunum. Vinnu-
brögð hans byggja á thematík og
smástígri hljómfræði. í nýrri verk-
um sínum teflir Schnittke oft saman
óskyldu efni, lánuðu og frumsöndu í
anda hins vinsæla coliage stíls.
Nú fæst í hljómplötuverslunum
diskur með viðamiklu hljómsveitar-
verki eftir Schnittke, sem hann
nefnir Symphony no. 2, „St. Flori-
an“. Það hefur lengi verið í tísku
hjá sumum tónskáldum að segja
rómantískar sögur um tilurð verka
sinna í anda þjóðsögunnar um
það,þegar Beethoven samdi Tungl-
skinssónötuna. Schnittke fer að
þessu dæmi og segir sinfóníuna
sprottna af heimsókn sinni í austur-
ríska kirkju, „St Florian" þar sem
hann stóð um hrið og lét áhrifin
streyma inn í sál sína. Til þess að
undirstrika trúarlegt eðli verksins
skrifaði hann hljóma þess þannig að
þeir mynduðu kross á nótnablað-
inu. Allt þetta kann að hljóma
bamalega en kemur þó ekki að sök
því þessa gætir hvergi í tónlistinni.
Hún er ekta Schnittke, bæði að inn-
taki og ytra byrði. Stórformið bygg-
ir á hinu gamla messuformi og hver
kafli hefst á gregorssöng, en síðan
tekur hljómsveitin við og aðalefni
verksins er í hennar höndum. Slík
samblöndun óskylds efnis er
vafasöm frá listrænu sjónarmiði og
hljómar oftast eins og ódýr lækning
á hugmyndaskorti. Vandinn er að
gera slíkt verk að sjálfstæðri heild.
Til eru dæmi um að mönnum takist
þetta vel. Má þar nefna flðlukonsert
Bergs þar sem gamall sálmur í
hljómsetningu Bachs kemur fyrir.
Lausn Bergs byggir m.a. á því að
flétta tónbilabyggingu sálmsins inn
í tólftónaröð verksins svo að hann
rennur eðlilega
inn og út úr verk-
inu. Sálmurinn
verður sama
kyns og aðrir
hlutar verksins
en með öðrum lit.
Hjá Schnittke er ekki slíku til að
dreifa. Gregorssálmarnir eru í eng-
um tengslum við verkið að öðru
leyti en hvað hugblæ varðar, sem
jafnan er hátíðlegur og alvarlegur.
Þetta gefur verkinu hráan svip. Það
er eins og tónskáldið hafi ekki
nennt að kafa til hlítar niður í efn-
við sinn og mikið álitamál er hvort
ekki hefði verið betra að sleppa
gregorssöngvvmum.
Þrátt fyrir þessar athugasemdir
er það ánægjuleg reynsla að hlusta
á þetta verk. Schnittke hefur
óvenjulega gott vald á að tjá stemn-
ingu og tilfmningar. Hann býður
ekki aðeins upp á falleg hljóð held-
ur virðist fleira búa að baki. Þján-
ing og gleði, myrkur og birta fær
ríkulega útrás í vönduðum búningi
hins þjálfaða tónskálds.
Diskur þessi er gefinn út að BIS
útgáfunni og flutningur er í hönd-
um Royal Stockholm Philharmonic
Orchestra ásamt einsöngvurum og
kór undir stjórn Leifs Segerstams.
Ekki er annað að heyra en að flutn-
ingur þeirra sé til fyrirmyndar og
hljómur verksins mjög góður. Ef að
einhverju mætti finna þá er endur-
ómur ef til vill fullmikill á stöku
stað.
Hljómplötur
HnnurM Stefánsson
Örugg raflögn er ódýr fjölskyldutrygging.
Slys vegna lélegra raflagna eru of dýru verði keypt.
Búðu fjölskyldunni öruggt umhverfí.
Láttu viðurkenndan fagmann lagfæra það sem betur má fara.
RAFMAGNSVEITA LANDSSAMBAND RAFIDNAÐARSAMBAND
REYKJAVÍKUR ÍSLENSKRA RAFVERKTAKA ISLANDS
y _
sviðsljós
~~k ýc
Á leið á frumsýningu
7////////////////,
15% staðgreiðslu- og greiðslukortaafsláttur og
stighækkandi birtingarafsláttur ggg
Smá-
auglýsingar
Richard Gere elskar ekki ljós-
myndara en lætiu sig þó hafa það
að stoppa og leyfa þeim að smella af
sér myndum þegar myndimar hans
Richard Gere leyfði myndatöku þeg-
ar hann var á leið á frumsýningu
myndarinnar The Birdcage í Los
Angeles nýlega. Með honum er vin-
kona hans, Carey Lowell, úr Sleep-
less in Seattle.
eru frumsýndar. Hér er Gere spari-
klæddur á leið á frumsýningu
myndarinnar The Birdcage í Los
Angeles ásamt vinkonu sinni og
leikkonunni, Carey Lowell. Eins og
lesendur muna gerði Lowell garð-
inn frægan í Sleepless in Seattle.
Dagar þnmgnir
gróðurilmi og
ljúfu lifi
VORt
Lágmarksdvöl er 3 dagar og hámarksdvöl er 7 dagar. Síðasti heimkomudagur er 2. júní.
Hafðu samband við sölufólk okkar, ferðaskrifstofumar eða í síma 50 SO 100
(svarað mánud. - föstud. frá kl. 8 -19 og á laugard. frá kl. 8 -16.)
FLUGLEIDIR
Traustur íslenskur ferðafélagi
Vorferðir
á sérstöku
tilboðsverði
til 2. júní
10.000 kr. afsláttur
af verði pakkaferða.
Flug, gistingí 3,4 eða 7 nætur
og íslensk fararstjóm.
Verðfrá
^820 kr.
á mann í tvíbýli í 3 daga.