Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Qupperneq 18
18
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 JjV
Dagur í lífi Ómars Ragnarssonar, frétta- og þáttagerðarmanns:
Eins og að finna gömul handrit
Dagurinn byrjar eins og hjá
bóndanum; að taka veðrið. Litast
um út um gluggana í allar áttir og
hringt í Veðurstofuna til að athuga
hvort það verði veður til að skapa.
Stigið á vogina. 82 kíló. Ejögur far-
in á tveimur vikum og önnur fjög-
ur eiga að fara á næstu tveimur til
þremur vikum. Ágústu Johnson-
aðferðin svínvirkar!
Klukkan níu var ég kominn upp
í Sjónvarp. Ég ræddi við Friðgeir
Má Alfreðsson filmusérfræðing
um litmyndirnar sem hann gróf
upp af afhendingu handritanna
fyrir 25 árum og útbjó tU notkunar
fyrir þáttinn „Takk“, hvalreki.
Eins og að finna gömul handrit!
Takk, Friðgeir!
Að þessu loknu var komið að
morgunfundi á fréttastofunni og
fréttaefni rædd en síðan var haldið
áfram að athuga hvort eigi að fara
vestur á firði í dag til myndatöku í
nýju þáttaröðina, Tónastiklur.
Hringt vestur í hina og þessa til
undirbúnings og í Víöi Gíslason á
Akureyri sem ætlar að koma fljúg-
andi vestur ef af verður. Þetta
verður nefnUega tveggja flugvéla
flug. Frestað þar tU síðdegis á
morgun og verið í bænum í dag í
rólegheitunum. Teknar saman eft-
irhreytur handritaþáttarins í
fyrradag.
Skotist upp í Efstaleiti tU ráða-
gerða með húsverði þar. Hitti
Sveinbjörn I. Baldvinsson dag-
skrárstjóra til að undirbúa fund á
morgun þar sem lagðar verða lín-
ur fyrir 24ra þátta röð um unga
fólkið og fsland. Sóttar ljósmyndir
úr framköUun handa blöðunum
um Tónastiklurnar. Kannað á
hvaða flugvél verði best að fara
vestur og lagðar línur með Frið-
þjófi Helgasyni myndatökumanni.
Ómar Þorfinnur Ragnarsson, sjónvarps-, þáttagerðarmaður, skemmtikraftur og margt fleira. DV-mynd BG
Síðdegis er ráðgast við Gunnar
Þórðarson um upptökur á laginu
Brú yfir boðafóllin með Sigríði
Beinteinsdóttur en Gunnar er líka
að útsetja og spUa inn aðallag þátt-
arins, Við eigum land.
„How sweet it is"
Þá var komið að fundi með ráða-
mönnum póstþjónustunnar vegna
skemmtiatriða á 220 ára afmælis-
hófi hennar 4. mai. Stefnumót við
þáttagerðarmenn „Lonely planet“
á Reykjavíkurflugvelli og lagðar
línur fyrir myndatökur með þeim
á morgun. Flýg með þá i rúmlega
klukkustundar kvikmynda-
tökuflug Reykjavík - BúrfeUsgjá -
Hengill - Nesjavellir - ÞingveUir -
Hvalfjarðarbotn - Reykjavík. Þing-
veUir hrífa útlendingana: Ameríka
á vesturbakkanum en Evrópa á
austurbakkanum.
Rætt við Magnús Ingimarsson
um undirleik og útsetningu á lag-
inu „Flökkusál" fyrir Tónastiklur.
Eftir léttan kvöldmat heima er
farið út á Álftanes á æfingu með
Hauki Heiðari Ingólfssyni undir-
leikara vegna skemmtiþáttar á
Hótel íslandi á föstudag.
Síðan er rennt á knattspyrnuæf-
ingu í KR-húsinu miUi klukkan ell-
efu og tólf. Hörkukeyrsla, barátta
og átök! How sweet it is! Eftir æf-
ingu er tékkað á flugvélinni úti á
flugvelli og þar lögð drög að flug-
inu vestur, því að á morgun munu
þáttagerðarmenn „Lonely planet“
verða frekir á tíma og eins gott að
hafa vélina klára, svo að það verði
hægt að fara strax vestur síðdegis.
Þessi skýrsla síðan hripuð niður
áður en lagst er á koddan klukkan
að ganga tvö. DV hefði kannski átt
að velja einhvern fjörugri dag til
skýrslugerðar, en svona var hann.
Finnur þú fimm breytingar? 356
Afsakið lögregluþjónn en er þetta þriðja gata á hægri hönd.
Nafn:
Heimili:
Vinningshafar fyrir þrjú hundruð fimmtugustu og
fjórðu getraun reyndust vera:
1. Kristín Gestsdóttir
Faxabraut17
230 Reykjanesbær
2. Pálmi Jónsson
Hólavegi 27
550 Sauðárkróki
Myndimar tvær viröast við
fyrstu sýn eins en þegar bet-
ur er að gáð kemur í ljós að
á myndinni til hægri hefur
fimm atriðum verið breytt.
Finnir þú þessi fimm atriði
skaltu merkja við þau með
krossi á myndinni til hægri
og senda okkur hana ásamt
nafni þínu og heimilisfangi.
Að tveimur vikum liðnum
birtum við nöfn sigurvegar-
anna.
1. verðlaun:
SHARP vasadiskó með útvarpi að verð-
mæti kr. 7.100, frá Hljómbæ Skeifunni 7,
Reykjavík.
2. verðlaun:
Tvær Úrvalsbækur, aö verðmæti kr.
1.790. Annars vegar James Bond-bókin
GuUauga eða Goldeneye eftir John Gar-
dner og hins vegar bók Luzanne North,
Fín og rík og liðin lík.
Vinningarnir verða sendir heim.
Merkið umslagið með lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 356
c/o'DV, pósthólf 5380
125 Reykjavík