Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Síða 25
|jV LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
*' íþróttir
- Nick Faldo
Á þessu ári er væn
anleg á markaðinn ný
tegund af golfboltum
og telja fróðir menn
að þar geti orðið um
byltingu að ræða,
bæði fyrir atvinnu-
menn og þá sem
skemmra eru á veg
komnir.
Það er japanska
fyrirtækið Bridge-
stone sem hefur unn-
ið í mörg ár að hönn-
un boltans í samráði
við breska kylfinginn
Nick Faldo. Hönnunin er nú á
lokastigi og reiknað er með að
boltinn komi á markaðinn á síðari
hluta þessa árs.
Reyndist Faldo vel á
US Masters
Hinn nýi golfbolti reyndist
Faldo vel á nýafstöðnu
Masters-móti í Bandaríkjun-
um þar sem hann vann glæsi-
legan sigur. Faldo vann þ-
upp sex högga forskot Greg
Normans á lokahringnun
eins og frægt er orðið og é
Masters lék Faldo með nýja
golfboltanum.
Þögnin ein
Lítið sem ekkert hefur
fengist uppgefið um nýja
Nick Faldo segir að nýji golfboltinn frá Bridgestone hafi hjálpað sér mikið á
með áritað eintak eftir sigurinn á Masters.
Nick Faldo vann glæsilegan sigur á US Masters á
dögunum. Símamynd Reuter
boltann, enda fara framleiðend-
ur sér afar hægt áður en boltinn
verður settur á almennan mark-
að.
Hjá Bridgestone ríkir þögnin
ein. Faldo er eini atvinnumaður-
inn sem enn hefur fengið að nota
boltann.
„Hjálpaði már mikið"
„Þrátt fyrir allt sem sagt hefur
verið og skrifað um þennan nýja
bolta hjálpaði hann mér mikið í
að innbyrða sigurinn á
Masters,“ segir Nick Faldo.
Það eina sem fengist hefur
uppgefið um boltann er að yfir-
borð hans er mjög ólíkt því sem
verið hefur og eins er hann eitt-
hvað frábrugðinn að innan.
Breytingin mun þó einkum fel-
ast í ytra lagi boltans.
„Við erum ekki enn farnir að
fjöldaframleiöa þennan nýja golf-
bolta en það kann að verða gert
fljótlega.
Við höfum látið Faldo hafa
nokkra bolta til prufu og hann er
ánægður," segir Jim Parsons, tals-
maður Bridgestone.
Hjá Tltleist og Maxfli
eru menn rólegir
Titleist og Maxfli hafa verið svo
til einráðir á markaðnum undanfar-
in ár og þar á bæ eru menn rólegir
og kippa sér ekki upp við þá ógn
sem stafar af nýja boltanum frá
Bridgestone.
Heimsfrægir kylfingar eins og
Greg Norman, Tom Watson, Fred
Couples og Ian Woosnam nota allir
Maxfli bolta og staða Titleist er
mjög sterk.
Tuttugu af hæst launuðu kylfing-
um á Evróputúrnum nota Titleist
bolta og þar á bæ eru menn kok-
hraustir enda kannski ekki ástæða
til annars.
„Rúmlega 80% allra atvinnu-
kylfinga á Evróputúrnum nota Tit-
US Masters á dögunum. Hér er hann
Símamynd Reuter
leist bolta. Á síðasta keppnistíma-
bili unnu þeir kylfingar sem nota
bolta frá Titleist 31 mót af 36,“ segir
John Peal, markaðsstjóri Titleist.
SfH
ar ekki einkalífinu
aldo
Faldo fullyrðir að nýi boltinn frá
Bridgestone eigi eftir að valda bylt-
ingu i golfinu. Það kann að vera rétt
en nýi boltinn getur varla breytt
þeim erfiðleikum sem Faldo hefur
átt við að stríða í einkalífinu. Þar
hefur hvert vandamálið af öðru
skotið upp kollinum og eru það
einkum kvennamál hans sem eru í
sviðsljósinu.
Faldo er tvígiftur. Hann skildi
fljótlega við fyrstu eiginkonuna en
tók síðan saman við aðra skömmu
síðar og eignaðist með henni þrjú
börn. Nú er hann í skilnaðarmáli á
ný og hefur tekið saman við tvítuga
mær í Bandaríkjunum en sjálfur er
Faldo kominn á fertugsaldur. -SK
Látið Andy Cole alveg í friði
- fyrrverandi „markaskorarar" hjá Man. Utd eru óhressir með árásir á Andy Cole
Þegar Alex Ferguson,
framkvæmdastjóri enska
knattspyrnuliðsins
Manchester United, keypti
Andy Cole frá Newcastle var
hann harðlega gagnrýndur
af mörgum enda greiddi
Ferguson um 700 milljónir
króna fyrir Cole.
Cole hafði náð ótrúlegum
árangri hjá Newcastle og
skorað 68 mörk í 84 leikjum.
Það var til of mikils ætlast
að Cole héldi uppteknum
hætti hjá United en áhang-
endur liðsins hafa nú tekið
til við að baula á Cole í leikj-
um United og eru alls ekki
ánægðir með það hve fá
mörk hann skorar fyrir lið-
ið.
Nú hafa nokkrir gamlir og
fyrrverandi „markaskorar-
ar“ tekið að sér að bera hönd
fyrir höfuð Cole og sagt
stuðningsmönnum United að
láta hann einfaldlega í friði.
Hann eigi eftir að ná sér
verulega á strik hjá liðinu og
sérstaklega vegna þess að
Alex Ferguson hefur haldið
tryggð við þennan snjalla
leikmann.
Alan Brazil var á sínum-
tíma keyptur til Man. Utd
fyrir mikla peninga. Hann
átti að skora mikið af mörk-
um. Niðurstaðan varð sú að
hann skoraði aðeins 12 mörk
•í 42 leikjum. Gary Birtles
átti að skora enn meira af
mörkum á sínum tima og
kostaði einnig mikla pen-
inga. Hann skoraði aðeins 12
mörk í 63 leikjum.
Til samanburðar má geta
þess að Andy Cole hefur
skorað 24 mörk í 59 leikjum.
Hann hefur því alls ekki
skorað minna af mörkum en
margir félagar hans sem
keyptir hafa verið tO liðsins
gegnum árin. Og hvað sem
mörkunum líður þá er Cole
mörgum gæðaflokkum betri
leikmaður en Alan Brazil og
Gary Birtles voru á sínum
tíma. Cole hefur yfir mun
meiri hraða að ráða, hann
hreyfir sig mun betur
boltalaus og sendingar hans
hafa oft skapað mörk sem
aðrir hafa skorað.
Margir eru á því að Cole
sé búinn að vera sem marka-
skorari á þessu tímabili og
hann muni ekki ná sér á
strik fyrir framan mark and-
stæðinganna. Þeir hinir
sömu halda því hins vegar
fram að á næsta tímabili
muni Cole geta blómstrað á
ný og skorað mikið af mörk-
um. Alan Brazil segir um
Andy Cole:
„Cole leggur gifurlega
hart að sér, kannski einum
of hart. Þegar sjálfstraustið
er farið er oft erfitt að
endurheimta það. Á þessum
erfiðu tímum geta
áhangendur breytt miklu. í
stað þess eru áhangendur
Man. Utd að gera honum
lífið leitt. En Ferguson hefur
mikla trú á Cole og fyrr en
varir mun Cole fara að skora
mikið af mörkúm fyrir
United."
-SK