Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Page 36
44
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 DV
l.i'J
<4>
Smásagnakeppni um
Tígra í umferðinni
Krakkar?
Munið að senda inn sögur um Tígra í umferðinni fyrir 6. maí
Allir fá verðlaun!
Allir sem senda inn sögur fá að gjöf teinaglit á reiðhjólið.
50 sögur verða valdar og gefhar út í bók;
Tígrabókinni. Þeir sem eiga sögu í
bókinni eiga möguleika á að vinna
reiðhjólahjálm frá versluninni
Markinu, Ármúla 40.
Til að skila inn sögum getið þið
komið við hjá Krakkaklúbbi
DV, Þverholti 14, 105 Reykjavík,
eða sent okkur sögurnar í pósti.
Einnig er tekið við sögum hjá
Umferðarráði, Borgartúni 33,
105 Reykjavík
Það er leikur að skrifa
um Tígra í umferðinni.
/VMR
Á/múkl 40, »lml 91-J Sí 20
i /££1 y k
í samstarfi við
og íjE lögregluna
Skemmtilegt
að leika
á móti litla
drengnum
- segir Erlingur Gíslason sem leikur á móti Bene-
dikt syni sínum í Shakespeare-sýningu
ara en athygli vekur, þegar sýning-
arskráin er skoðuð, að feðgarnir
Erlingur Gíslason og Benedikt Er-
lingsson leika báðir stór hlutverk í
sýningunni. Erlingur leikur reynd-
ar þjón Benedikts, sem fer með hlut-
verk Orlandos, viðamesta karlhlut-
verk sýningarinnar.
Erlingur er, sem alþjóð veit, ekki
að stíga sín fyrstu skref á sviði.
Reyndar á hann 40 ára leikafmæli á
Þjóðleikhúsið frumsýndi síðasta
vetrardag gamaleikinn Sem yður
þóknast eftir meistara leikbók-
menntanna, William Shakespeare.
Hér er ekki um nýtt verk á fjölum
Þjóðleikhússins að ræða heldur var
verkið í raun fyrsta Shakespeare-
sýning leikhússins, árið 1952, og var
þetta jafnframt fyrsta Shakespeare-
þýðing Helga Hálfdanarsonar.
Sýninguna prýðir einvalalið leik-
Shakespeare hefur á þessum tíma verið í fullri samkeppni við aðra afþreyingu eins og við í leikhúsi eigum í hörku-
samkeppni vi.'. ,-jónvarp og annað slfkt. Hann þurfti einhvern veginn að freista fólks til að borga sig inn. Maður finn-
ur á þessari sýr ír.gu að hann var að búa til virkilegt „show“,“ segir Benedikt Erlingsson sem hér er með föður sín-
um í Sem yður þóknast. DV-mynd ÞÖK
næsta ári. Þótt einungis séu tvö ár
síðan Benedikt útskrifaðist úr Leik-
listarskóla íslands er sömu sögu að
segja af honum enda sonur leikara-
hjóna. Feðgamir léku saman í
nokkrum sýningum þegar Benedikt
var bam. Til dæmis lék Benedikt
engil en Erlingur djöfulinn í Gullna
hliðinu eftir Davíð Stefánsson, þá
léku þeir saman í Góðu sálinni frá
Sesúan og Erlingur lætur þess getið
að eiginkona hans, Brynja Bene-
diktsdóttir, hafi verið ófrísk að
Benedikt þegar þau hjónin léku
saman í Púntilla og Matta. Af þessu
dregur Benedikt þá ályktun að hann
eigi 27 ára leikafmæli um þessar
mundir.
Erlingur og Benedikt segjast ekki
hafa átt neinn hlut að máli þegar
þeir voru báðir valdir til að fara
með hlutverk í Shakespeare-sýning-
unni á dögunum. Þeir sem þessu
hafi ráðið séu annars vegar leik-
stjórinn og verkefnastjóm. Hins
vegar hafi samstarfið á æfingum
veriö einstaklega skemmtilegt á
báða bóga en feðgamir leika mikið
saman í sýningunni.
„Mér finnst mjög skemmtilegt að
leika á móti litla drengnum og sam-
starfið hefur verið með ágætum,"
segir Erlingur.
Leiklistin
fjölskyldufag
Aðspurður hvernig á því stóð að
hann ákvað að leggja fyrir sig leik-
list segir Benedikt það líklega
þannig til komið að þetta sé í eðli
sínu fjölskyldufag. Þó hafi tveir
bræður hans náð að forða sér í önn-
ur störf.
„Það má segja að leikhúsið hafi
verið bandið sem hélt fjölskyldunni
saman. Leikhús er erfiður vinnu-
staður en þetta er það sem maður
ólst upp við. Hins vegar sagði ég oft
sem strákur, þegar ég var spurður
að því hvað ég ætlaði að verða þeg-
ar ég yrði stór, að ég ætlaði að verða
múrari," segir Benedikt en Erlingur
segist hafa verið hissa þegar hann
uppgötvaði hvaða ævistarf sonur-
inn ætlaði að leggja fyrir sig.
Sem yður þóknast er gamanleik-
ur um lífið sjálft, ástina og alla
hennar duttlunga. Erlingur segir að
þessu til viðbótar sé eitt og annað
sem leikritið fjalli um enda
Shakespeare verið pólitískur höf-
undur. Benedikt bætir því við að
hugsanlega fjalli leikritið líka um
það hve konur geti farið illa með
menn. Að því leytinu til eigi það
fullt erindi við fólk í dag.
„Shakespeare hefur á þessum
tíma verið í fullri samkeppni við
aðra afþreyingu eins og við i leik-
húsi eigum í hörkusamkeppni við
sjónvarp og annað slíkt. Það er
kannski dansandi björn i næsta
húsi við leikhúsið og hann þarf ein-
hvern veginn að freista fólks til að
borga sig inn. Maður finnur á þess-
ari sýningu að hann var að búa til
virkilegt „show“. Þarna er að sjá
glímu, klæðskiptingsatriði, ástina,
söngva, dónaskap og fjöldamargt
fleira,“ segir Benedikt.
En feðgarnir gera meira en að fá
útrás fyrir túlkunarþörfina á leik-
sviði. í fristundum hafa þeir verið
að reisa fjölnota hús, eins og Erling-
ur kallar það, við heimili þeirra
hjóna í miðbænum. Þar er jafnvel
ætlunin að og vera með uppákomur.
Erlingur er þó ófús að ræða mik-
ið um þetta framtak á meðan það er
ekki lengra komið og því spyr
blaðamaður hvað sé á döfinni hjá
þeim feðgum.
Benedikt segir að næst á dagskrá
hjá sér sé að setja upp einleik, sem
hann hefur unnið upp úr Gunn-
laugs sögu Ormstungu ásamt Hall-
dóru Geirharðsdóttur og að öllum
líkindum verður frumsýndur í
ágúst. Næsta verkefni Erlings er
hins vegar tengt Listahátíð í
Reýkjavík. Um er að ræða
Evripídes, Trójudætur sem sýndar
voru í Iðnó fyrir nokkrum misser-
um. Á Listahátíð verður bætt við
einum þætti sem heitir Jötunninn.
Inga Bjarnason leikstýrir sýning-
unni og Leifur Þórarinsson semur
tónlist við verkið.
- Er von á frekara samstarfi með
fleiri fjölskyldumeðlimum?
„Það er mögulegt ef tími vinnst
til. Samstarf okkar núna hefur gefið
góða raun þannig að það er ekkert
útilokað í þeim efnum."
Smáauglýsingadeild DV er opin:
. virka daga kl. 9-22. laugardaga kl. 9-14. sunnudaga kl. 16-22
auglýsingar
5505000