Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Page 38
46
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 MlÞ'SF
Hin annálaða Sæluvika Skagfirðinga hefst á morgun:
Leikfélag Sauðárkróks
frumsýnir nýtt leikrit
- eftir Jón Ormar Ormsson í leikstjórn Eddu V. Guðmundsdóttur
Sæluvika Skagfirðinga, hin ann-
álaða gleðisamkoma, hefst á morg-
un. Þá hefst sjö daga löng dagskrá
sem verður í gangi bæði á Sauðár-
króki og í Miðgarði í Varmahlíð.
Boðið verður upp á leiksýningar,
kvikmyndasýningar, kóratónleika,
kirkjukvöld, listsýningar, matar-
kvöld, diskótek, popptónleika, djass-
tónleika, dansleiki og dægurlaga-
keppni. Á Sauðárkróki fara þessir
viðburðir fram í félagsheimilinu
Bifröst, íþróttahúsinu, Safnahúsinu,
kirkjunni, Sveinsbúð og á Kaffi
Krók og Hótel Mælifelli.
Hæst ber á Sæluviku frumsýning
Leikfélags Sauðárkróks á nýju ís-
lensku leikriti eftir Jón Ormar
Ormsson sem nefnist Sumarið fyrir
stríð. Leikstjóri er Edda V. Guð-
mundsdóttir. Leikritið verður frum-
sýnt annað kvöld í Bifröst.
SöguSviðið er Skagaíjörður sum-
arið 1939. Jón Ormar segir að þetta
verk sé ekki sagnfræði, enginn at-
burður eða persóna sé fyrirmynd að
neinu því atriði sem upp sé brugðið.
Jón segir að fjórði áratugurinn sé í
raun umfjöllunarefniö.
„Áratugurinn milli 1930 og 1940
var um margt líkur þeim tímum
sem við lifum nú. Stjórnmálabarátt-
an og stéttaátök voru að vísu miklu
harðari, en margt var með líkum
hætti. Kreppa með miklu atvinnu-
leysi, sauðfjársjúkdómar í stað
kvóta og mikið landabrugg svo eitt-
hvað sé nefnt. Það er andblær frá
þessum árum sem við erum að
reyna að kalla fram með þessari
sýningu. Okkur er hollt að hugsa
um þessa tíma og þá sem hér lifðu.
Og við samanburð mun margt koma
okkur á óvart,“ segir Jón Ormar
m.a. í veglegri leikskrá.
Alls taka hátt í 50 manns þátt í
uppfærslunni. Mikið er um tónlist í
sýningunni en söngtextar eru eftir
Ársæl Guðmundsson, Björn Björns-
Höfundur Sumarsins fyrir stríð, Jón Ormar Ormsson, ásamt leikstjóranum, Eddu V. Guðmundsdóttur.
son og þriðji höfundurinn er undir
nafnleynd. Stjórnandi tónlistar er
Rögnvaldur Valbergsson. Höfundur
lýsingar er Páll Arnar Ólafsson og
Söngkonan Emilíana Torrini verður með tvenna tónleika á morgun á Kaffi
Krók í tilefni af Sæluviku.
leikmyndina hönnuðu Edda, Jón
Ormar, Gunnar Már Ingólfsson og
Jóhannes Hinriksson. Þau Edda og
Jón komu einnig nálægt búningun-
um ásamt Helgu Sigurbjörnsdóttur
og Jónu Bergsdóttur. Með helstu
hlutverk fara Agnar Gunnarsson,
Kristinn Einarsson, Styrmir Gísla-
son, Bára Jónsdóttir, Guðbrandur J.
Guðbrandsson, Gerður Hauksdóttir,
María Gréta Ólafsdóttir og Júlíana
Ingimarsdóttir.
Sumarið fyrir stríð er fjórða leik-
sýningin sem Edda sviðsetur í
Skagafirði. Hún lauk námi frá Leik-
listarskóla íslands og að því loknu
lék hún með Alþýðuleikhúsinu,
Leikfélagi Akureyrar og Leikfélagi
Reykjavíkur, auk þess sem hún hef-
ur leikið í sjónvarpsmyndum og
kvikmyndum. Edda hefur sviðsett
leikrit víða um land. Undanfarin
sex ár hefur hún unnið sem ráðgjafi
hjá SÁÁ að Vogi.
Jón Ormar segir að leiksýningin
sé óbeinn liður i þeim hátíðahöld-
um sem fara í hönd á Sauðárkróki í
tilefni af nokkrum stórum tímamót-
um í sögu bæjarins. Fyrst og fremst
hafi Leikfélag Sauðárkróks viljað
setja upp eftirminnilega sýningu í
tilefni af því að í febrúar sl. voru
liðin 120 ár frá fyrstu leiksýning-
unni á Sauðárkróki.
Dægurlagakeppni
í þriðja sinn
Margt fleira stendur upp úr á
Sæluviku Skagfirðinga en leiksýn-
ingin. Fyrst skal telja dægulaga-
keppni Kvenfélags Sauðárkróks sem
fram fer í íþróttahúsinu fimmtudag-
inn 2. maí. Þetta er þriðja árið í röð
sem kvenfélagið heldur keppnina en
hún var fastur liður á Sæluviku á
Kjartanssonar.
Þá verður veitinga- og skemmti-
staðurinn Kaffi Krókur með ýmsar
Úr leikritinu Sumarið fyrir stríð í uppfærsiu Leikfélags Sauðárkróks. Frum-
sýning er annað kvöld og þar með hefst sjö daga löng dagskrá á Sæluviku
Skagfirðinga.
árum áður. Keppnin hefur vakið
mikla athygli síðustu þrjú ár, það
sýnir mikill fjöldi laga sem borist
hefur hvaðanæva af landinu.
Stórtónleikar verða í Miðgarði
laugardaginn 4. maí, bæði um dag-
inn og kvöldið. Þar koma fram
Söngsveitin Drangey, Karlakórinn
Heimir, Karlakór Reykjavíkur og
Rökkurkórinn. Dansleikur verður
að síðari tónleikunum loknum með
Hljómsveit Geirmundar. Sama
kvöld fer fram dansleikur á Sauðár-
króki með Hljómsveit Magnúsar
uppákomur. Þær helstar eru tvenn-
ir tónleikar á morgun með söngkon-
unni Emilíönu Torrini, djasstón-
leikar á mánudagskvöld með Kuran
Swing og dansleikur með Sixties
um næstu helgi.
Hér hefur aðeins verið talið upp
brot af þeirri metnaðarfullu dag-
skrá sem verður á Sæluviku Skag-
firðinga 1996. Þar verður eitthvað
fyrir alla, hvort sem þeir eru Skag-
firðingar eða annarra sveita kvik-
indi. Svo mikið er víst. -bjb