Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Síða 50
5» afmæli
LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996 TIV
i
Guðmundur Sveinsson
Guðmundur Sveinsson, fyrrv.
skólameistari Fjölbrautaskólans í
Breiðholti, til heimilis að Flúðaseli
30, Reykjavik, verður sjötíu og
fimm ára á morgun.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MR 1941, embættis-
prófl í guðfræði við HÍ 1945, stund-
aði framhaldsnám í gamlatesta-
mentisfræðum við háskólann í
Kaupmannahöfn 1948-50, lauk prófi
í hebresku 1949, stundaði fram-
haldsnám í semítamálum og
gamlatestamentisfræðum við há-
skólann í Lundj og lauk þaðan fil.
cand.-prófi 1951, vann að fræðslu-
störfum við háskólann í Kaup-
mannahöfn 1953-54, við háskólann
í Manchester sumarið 1956, kynnti
sér rekstur samvinnuskóla á Norð-
urlöndum, Þýskalandi og Englandi
sumarið 1955, fór námsferð til Sviss
1956, kynnis- og námsferð til
Bandaríkjanna 1963 og 1974 og til
Norðurlandanna, Þýskalands og
Bretlands 1974.
Guðmundur var stundakennari
við KÍ 1943-45, stundakennari við
Bændaskólann á Hvanneyri
1945-48, 1952-53 og 1954-55, kenndi
guðfræði við HÍ 1952 og 1954, var
skólastjóri Samvinnuskólans í Bif-
röst 1955-74, skólastjóri Bréfaskóla
SÍS 1960-74 og skólameistari Fjöl-
brautaskólans í Breiðholti 1974-91.
Guðmundur var sóknarprestur í
Hestþingum 1945-56. Hann var for-
maður nefndar er samdi heildar-
frumvarp um fullorðinsfræðslu
1971-74, sat í nefnd er gerði tillögur
um skipan fjölbrautaskóla í
Reykjavík 1973, sat i námskrár-
nefnd Fjölbrautaskólans í Breið-
holti frá 1978, var formaður sund-
laugarnefndar Breiðholts frá 1980
og í starfshópi á vegum mennta-
málaráðuneytisins 1981 að sam-
ræma nám í framhaldsskólum með
áfangakerfi 1976.
Guðmundur var ritstjóri Sam-
vinnunnar 1959-63. Hann hefur
skrifað fiölda greina og ritgerða um
guðfræðileg, trúarleg og menning-
arleg málefni.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 15.4. 1944
Guðlaúgu Einarsdóttur, f. 3.5. 1918.
Hún er dóttir Einars Jónssonar,
kennara og verkstjóra í Reykjavík,
og k.h., Guðbjargar Kristjánsdótt-
ur.
Dætur Guðmundar og Guðlaugar
eru Guðbjörg, f. 18.2. 1943, skrif-
stofumaður í Reykjavík, gift Ólafi
Péturssyni og eiga þau tvö börn;
Þórfríður, f. 28.9. 1944, skólastjóri
við Andakílsskóla á Hvanneyri,
gift Gísla Kr. Jónssyni og eiga þau
þrjú börn; Guðlaug, f. 22.5. 1952,
skrifstofumaður í Reykjavík, gift
Steinþóri Guðbjartssyni og eiga
þau þrjú börn.
Systir Guðmundar: Guðrún
Sveinsdóttir, f. 23.7. 1927, kennari í
Kópavogi, ekkja eftir Magnús Bær-
ing Kristinsson, skólastjóra Kópa-
vogsskóla, og eru börn þeirra
fimm.
Foreldrar Guðmundar voru
Sveinn Óskar Guðmundsson, f.
5.11. 1895, d. 13.11. 1973, múrara-
meistari í Reykjavík, og k.h., Þór-
fríður Jónsdóttir, f. 26.4. 1895, d.
20.12. 1973, húsmóðir.
Ætt
Sveinn Óskar var sonur Guð-
mundar Sveinssonar stýrimanns.
Móðir Sveins Óskars var Guðrún
Guðmundsdóttir, b. á Staðarhóli í
Andakíl, Runólfssonar, b. á Innri-
Skeljabrekku, Jónssonar. Móðir
Guðmundar var Ástríður Jónsdótt-
ir. Móðir Guðrúnar var Halldóra,
dóttir Gamalíels Sigurðssonar á
Grjóteyri í Andakíl og Ingibjargar
Halldórsdóttur.
Þórfríður var systir Einars yfir-
verkstjóra, afa Einars G. Jónsson-
ar, sóknarprests á Kálfafellsstað.
Guðmundur Sveinsson.
Þórfríður var dóttir Jóns, b. í Saur-
haga á Völlum, bróður Hjörleifs á
Undirfelli, föður Einars Kvarans
rithöfundar. Jón var sonur Einars,
prests í Vallanesi, Hjörleifssonar,
prests á Hjaltastöðum, Þorsteins-
sonar, bróður Guttorms, prófasts á
Hofi, langafa Þórarins á Tjörn, föð-
ur Kristjáns Eldjárns forseta. Móð-
ir Jóns í Saurhaga var Þóra Jóns-
dóttir, vefara á Kórreksstöðum og
ættföður Vefaraættarinnar Þor-
steinssonar. Móðir Þórfríðar var
Guðlaug Einarsdóttir, b. í Firði í
Mjóafirði, Halldórssonar og Önnu
Jónsdóttur, b. á Urriðavatni, Árna-
sonar í Löndum Torfasonar.
Auður Ingibjörg Ottesen
Auður Ingibjörg Ottesen, garð-
yrkjufræðingur og smiður, Sól-
vallagötu 52, Reykjavík, er fertug í
dag.
Starfsferill
Auður fæddist í Reykjavík en
ólst upp í Hveragerði. Hún stund-
aði nám í húsasmíði, lauk sveins-
prófi í þeirri grein 1984 og lauk
námi í húsamíði 1985 og námi frá
Garðyrkjuskóla ríkisins af garð-
plöntubraut 1990.
Auður vann við smíðar hjá
Slippfélagi Akureyrar 1978-80, hjá
Halldóri Bachmann 1981-84 en hef-
ur svo starfað sjálfstætt við endur-
byggingu gamalla húsa og starf-
rækt garðaþjónustu. Þá var hún
ræktunarstjóri hjá Skógræktarfé-
lagi Reykjavíkur 1992-95. Auður
starfrækir nú leikfangafyrirtækið
Barnagull í handverkshúsinu El-
gömlu ísafold i Þingholtsstræti auk
þess að reka garðaþjónustu.
Fjölskylda
Sonur Auðar og Gunnars Evgen-
íusar Randverssonar, tónmennta-
kennara og ljóðskálds, er Hálfdán
Mörður Gunnarsson, f. 29.7. 1980.
Systkini Auðar eru Skafti Geir
Ottesen, f. 3.10. 1947, hótelstjóri á
Breiðdalsvík, en kona hans er Guð-
ný Gunnþórsdóttir og eiga þau þrjá
syni; Sigurbjörg Ottesen, f. 10.3.
1950, deildarfóstra í Reykjavík, og á
hún þrjá syni; Guðný Ásta Ottesen,
f. 14.8. 1951, skrifstofustjóri í
Reykjavík, en maður hennar er
Sigurður Ólafsson og eiga þau tvö
börn; Anna Katrín Ottesen, f. 28.3.
1954, sjúkraþjálfari í Ólafsvík, en
maður hennar er Stefán Garðars-
son og á hún einn son; Morten Geir
Ottesen, f. 5.4. 1959, húsasmiður í
Ólafsvík en kona hans er Kolbrún
Bjarnadóttir og eiga þau þrjú börn;
Svava Ottesen, f. 8.10. 1964, d. 31.3.
1965; Sólhildur Svava Ottesen f.
13.4.1967, háskólanemi í Reykjavík.
Foreldrar Auðar eru Oddgeir
Ágúst Lúðvík Ottesen, f. 18.12.1922,
gistihússtjóri og fyrrv. oddviti í
Hveragerði, og k.h., Geirlaug
Skaftadóttir Ottesen, f. 10.7. 1927,
húsmóðir.
Ætt
Oddgeir er sonur Mortens Ottes-
ens, fulltrúa í Reykjavík, sonar
Oddgeirs Ottesens, b. á Ytra-Hólmi,
Oddssonar, Péturs, b. þar, Lárus-
sonar, kaupmanns í Reykjavík,
Oddssonar, klausturhaldara, bróð-
ur Sigurðar, biskups á Hólum.
Hálfbróðir Odds var Ólafur Steph-
ensen, ættfaðir Stephensenættar-
innar, en hálfsystir Odds var Sig-
ríður, ættmóðir Thorarensenættar-
innar. Móðjr Odds Péturs var
Sigrine, veitingakona í Dillons-
húsi, Þorkelsdóttir, kaupmanns í
Reykjavík, bróður Ólafs í Vind-
hæli, föður Magnúsar, ættföður
Bergmannsættarinnar, Björns, ætt-
föður Olsenættarinnar, og Oddnýj-
ar, móður Guðrúnar, ættmóður
Blöndalættarinnar. Móðir Mortens
var Sigurbjörg, systir Oddnýjar,
móður Jóns Helgasonar ritstjóra.
Bróðir Sigurbjargar var Ásgeir,
faðir Magnúsar skálds og Leifs pró-
fessors. Sigurbjörg var dóttir Sig-
urðar, b. á Efstabæ, Vigfússonar,
og Hildar, systur Símonar, afa Jó-
hannesar Zoéga, fyrrv. hitaveitu-
stjóra. Hildur var dóttir Jóns, ætt-
föður Efstabæjarættarinnar, Sím-
onarsonar, bróður Teits, ættföður
Teitsættarinnar, langafa Helga Sig-
urðssonar hitaveitustjóra og Ósk-
ars Vilhjálmssonar, garðyrkju-
stjóra Reykjavíkur. Móðir Hildar
var Herdís Jónsdóttir, b. á Þor-
valdsstöðum, Auðunssonar. Móðir
Auður Ingibjörg Ottesen.
Jóns var Margrét Þorvaldsdóttir,
systir Jóns, ættfóður Deildartungu-
ættarinnar.
Móðir Oddgeirs var Anna Bjarn-
arson frá Saurbæ í Dölum. Geir-
laug er dóttir Skafta Þorlákssonar
og Önnu Katrínar Jónsdóttur frá
Viðey.
111 hamingju með
afmælið 27. aprH
95 ára_______________
Ása Þ. Gissurardóttir,
Hrafnistu í Reykjavík.
85 ára
Hrólfur Jakobsson,
Hólabraut 16, Skagaströnd.
80 áxa
Hulda Sveinbjörnsdóttir,
Engihjalla 11, Kópavogi.
María Guðnadóttir,
Vallholtsvegi 17, Húsavík.
Jóhann Kr. Hannesson,
Grettisgötu 19A, Reykjavík.
75 ára
Brynhildur Jónsdóttir,
Borgabraut 13, Hólmavik.
70 ára
Huldís Annelsdóttir,
Langholtsvegi 56, Reykjavík.
Gunnhildur A. Magnúsdóttir,
Öldusíg 10, Sauðárkróki.
Andreas Færseth,
Háaleiti 22, Keflavík.
Guðmundur Jónsson,
Ketilsstöðum, Dalabyggö.
60 ára
Hrafnhildur Sigurðardóttir,
Fannafold 2, Reykjavík.
Eðvarð Siguijónsson,
Aðalgötu 5, Stykkishólmi,
Ulrik Arthúrsson,
Lambastaðabraut 2, Seltjarnar-
nesi.
Anna Bjamadóttir,
Gnoðarvogi 58, Reykjavík.
Sigríður Bjamadóttir,
Ásbraut 7, Kópavogi.
50 ára
Hlín Aðalsteinsdóttir,
Stelkshólum 2, Reykjavík.
Jóhanna Dagbjört Jónsdóttir,
Laugarvegi 44, Siglufirði.
Bjöm Árnason,
Ásbúð 62, Garðabæ.
40 ára_____________________
Rúnar Steinn Ólafsson,
Meistaravöllum 7, Reykjavík.
Vilhjálmur Ari Arason,
Leiöhömrum 10, Reykjavík.
Guðrún Aradóttir,
Hraunbæ 48, Reykjavík.
Magnús Gíslason,
Flókagötu 49, Reykjavík.
Tómas Guðmundsson
Tómas Guðmundsson, fyrrv.
sóknarprestur og prófastur í
Hveragerðisprestakalli, Frostafold
25, Reykjavík, er sjötugur í dag.
Starfsferill
Tómas fæddist að Uppsölum í
Norðurárdal í Mýrasýslu en ólst
upp í Tandraseli í Borgarhreppi.
Hann stundaði nám við Héraðs-
skólann í Reykholti 1942^54, Hér-
aðsskólann á Laugarvatni 1945-46,
lauk stúdentsprófi frá MA 1950,
kandidatsprófi í guðfræði frá HÍ
1955 og stundaði framhaldsnám í
sjúkrahúsþjónustu og kirkjulegu
félagsstarfi við St. Lukas stiftelsen
í Stokkhólmi 1970.
Tómas stundaði ýmis sumarstörf
á námsárunum, s.s. við skógrækt,
trésmíðar, múrverk og vann við
raflagnir. Þá var hann lögreglu-
þjónn í Reykjavík 1952-55.
Tómas var sóknarprestur í Pat-
reksfiarðarprestakalli 1956-70, og
gegndi þá oft aukaþjónustu í Bíldu-
dals-, Sauðlauksdals- og Brjáns-
lækjarprestaköllum, og var sóknar-
prestur í Hveragerðisprestakalli
1970-95. Hann var prófastur í Ár-
nesprófastsdæmi frá 1986. Þá var
Tómas skólastjóri Iðnskólans á Pat-
reksfirði í tólf ár og stundakennari
við Iðnskólann á Selfossi í tíu ár.
Fjölskylda
Tómas kvæntist 20.10. 1951 Önnu
Ólöfu Sveinbjörnsdóttur, f. 13.6.
1931, iðjuþjáífa. Hún er dóttir
Sveinbjörns Sigurðssonar loft-
skeytamanns og Ólafiu Þuríðar
Pálsdóttur húsmóður.
Börn Tómasar og Önnu Ólafar
eru Sveinbjörn Sigurður Tómas-
son, f. 5.4. 1952, vöruflutningabíl-
stjóri, en kona hans er Dagmar Ás-
geirsdóttir og eiga þau þrjár dætur,
Önnu Ólöfu, Fanneyju og Erlu
Snædísi; Ólöf Elín Tómasdóttir, f.
18.11. 1958, fatahönnuður, og á hún
þrjú börn, Díönu, Svein og Tómas,
en maður hennar er ísleifur
Sveinsson; Guðmundur Tómasson,
f. 19.4. 1964, flugmaður, en kona
hans er Fríða Jónsdóttir og eiga
þau þrjú börn, Jón Andra, Önnu
Helen og Kristrúnu Lóu.
Systur Tómasar eru Fjóla Guð-
mundsdóttir, f. 12.10. 1912, fyrrv.
húsfreyja 1 Stóru-Skógum; Hall-
dóra, f. 8.10. 1917, hjúkrunarkona í
Kópvogi; Margrét, f. 10.4.1921, hús-
móðir á Selfossi; Ásta, f. 28.10.1930,
húsmóðir á Selfossi.
Foreldrar Tómasar eru Guð-
mundur Tómasson, f. 14.9. 1891, d.
13.9. 1989, bóndi í Tandraseli í
Borgarhreppi, og k.h., Ólöf Jóns-
Tómas Guðmundsson.
dóttir, f. 15.11. 1887, d. 15.8. 1955,
húsfreyja.
Ætt
Guðmundur var sonur Tómasar
Guðmundssonar, b. á Einifelli, og
k.h., Ásrósar Sumarliðadóttur.
Ólöf var dóttir Jóns Bjarnasonar,
b. á Einifelli, og k.h„ Gróu Hall-
dóru Jónsdóttur.