Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Qupperneq 51
JLlV LAUGARDAGUR 27. APRÍL 1996
Ingvar Ingvarsson
Ingvar Ingvarsson, aöstoðar-
skólastjóri og bæjarfulltrúi, Vita-
teigi 2, Akranesi, verður flmmtug-
ur á morgun.
Starfsferill
Ingvar fæddist í Brákarey en ólst
upp á Akranesi. Hann lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Akraness 1963 og kennaraprófi frá
KHÍ 1968.
Ingvar var íþrótta- og æskulýðs-
fulltrúi á Akranesi 1968-70, kenn-
ari við Barna- og unglingaskóla
Hríseyjar 1970-71, skólastjóri
Steinsstaðaskóla í Skagafirði
1971-72, sveitarsjóri Hríseyjar-
hrepps 1972-74, kennari við Lund-
arskóla á Akureyri 1974-85, aðstoð-
arskólastjóri Brekkubæjarskóla á
Akranesi frá 1985 og þar af skóla-
stjóri þar 1993-94.
Ingvar er bæjarfulltrúi á Akra-
nesi frá 1986, var formaður bæjar-
ráðs 1992-93 og forseti bæjarstjórn-
ar 1993-1994. Hann var formaður
skrúðgarða- og vinnuskólanefndar
Akureyrar 1978-82, í stjórn Dvalar-
heimilisins Höfða og formaður fjár-
öflunar- og framkvæmdanefndar
Höfða 1990-94, í stjórn Rafveitu
Akraness 1990-92, í stjórn Akranes-
veitu frá ársbyrjun 1996 og í stjórn
Andakílsárvirkjunar frá 2.4.1996.
Ingvar var formaður stjórnar
Kennarasambands Norðurlands
eystra 1975-76, formaður stjórnar
Bandalags kennara á Norðurlandi
eystra, 1980-81, fulltrúi kennara í
skólanefnd Akureyrar og fræðs-
luráði Norðurlandsumdæmis
eystra 1975-82, í stjórn og fulltrúa-
ráði og samninganefnd Kennara-
sambands Islands 1982-87 og í
stjórn Bandalags kennarafélaga
1984-87, sat í stjórn Félags ungra
jafnaðarmanna á Akranesi 1968-70,
í stjórn Sambands ungra jafnaðar-
manna 1968-70, formaður kjör-
dæmisráðs Alþýðuflokksins á
Norðurlandi eystra 1976-82, og í
flokksstjórn Alþýðuflokksins frá.
1986.
Fjölskylda
Ingvar kvæntist 18.6. 1972 Gunn-
hildi Önnu Hannesdóttur, f. 15.8.
1938, matráöskonu og húsmóður.
Hún er dóttir Hannesar Sveinsson-
ar f. 1906, d. 1991, verkamanns í
Hrísey, og k.h., Jóhönnu Kristins-
dóttur f. 1906, d. 1987, húsmóður og
verkakonu.
Stjúpbörn Ingvars eru Sævar
Sigmarsson f. 20.10 1956, kvæntur
Sigrúnu Hjaltadóttur og eru börn
þeirra Sara Hrönn f. 4.1 1977,
Gunnhildur Anna, f. 23.9. 1983, og
Sævar Örn, f. 30.12. 1990, en dóttir
Sævars er Kolbrún, f. 11.3 1976, og
er hennar maður maður Ólafur
Bjarnason en sonur þeirra er
Bjarni Þór, f. 11.7.1992; Sigurhanna
Sigmarsdóttir f. 6.11. 1961, gift
Ágústi Árna Stefánssyni og eru
börn þeirra Sigmar Ingi, f. 6.2 1979,
og Ágúst Arnar, f. 9.10. 1987, en
sonur Ágústs Árna er Árni Már f.
14.5. 1974; Kristrún Steinunn f. 8.6.
1966, var gift Guðmundi Ómari Pét-
urssyni og er dóttir þeirra Helga
Sigrún, f. 12.3. 1989, en maður
Kristrúnar er Arne Friðrik Karls-
son og eru dætur þeirra Gréta
Karen, f. 16.10. 1993, og Fanndís, f.
20.4.1996, auk þess sem dóttir Frið-
riks er Sandra, f. 29.3. 1991.
Systkini Ingvars: Steingrímur H.
Ingvarsson, f. 16.11. 1939, umdæm-
isverkfræðingur Vegagerðar ríkis-
ins á Suðurlandi; Björn S. Ingvars-
son, f. 10.4. 1942, rafvirki hjá Raf-
verktökum í Reykjavík; Helga
Ingvarsdóttir, f. 31.1. 1950, fulltrúi
hjá Kassagerö Reykjavíkur; Krist-
inn Ingvarsson, f. 13.4. 1962, ljós-
myndari hjá Morgunblaðinu.
Foreldrar Ingvars: Ingvar
Bjömsson, f. 18.6. 1912, d. 28.4 1963,
kennari í Borgarnesi og á Akra-
nesi, og Svava Steingrímsdóttir, f.
8.9. 1921, húsmóðir, saumakona og
skrifstofumaður.
Seinni maður Svövu er Páll Hall-
afmæli
Ingvar Ingvarsson.
grímsson f. 6.2.1912, fyrrv. sýslum-
aður á Selfossi. Þau búa á Selfossi.
Ætt
Ingvar var sonur Bjöms Björns-
sonar og Kristínar Jónsdóttur.
Svava er dóttir Steingríms Davíðs-
sonar skólastjóra og Helgu D. Jóns-
dóttur á Blönduósi.
Ingvar og Gunnhildur taka á
móti gestum á Langasandi laugar-
daginn 27. apríl (í dag) frá kl. 17.00
til 20.00.
Astríður Guðmundsdóttir
Ástríður Guðmundsdóttir hús-
freyja, Efra-Seli í Hrunamanna-
hreppi, verður áttatíu og fimm ára
á morgun.
Starfsferill
Ástríður fæddist í Vatnadal í
Súgandafirði og ólst í í Súganda-
firði.
Eftir að hún gifti sig bjuggu þau
hjónin fyrstu hjúskaparárin í
Reykjavík en fluttu síðan að Efra-
Seli 1945 og stunduðu þar búskap
til 1967. Þá tóku dóttir þeirra og
tengdasonur við búinu auk þess
sem sonur þeirra stundaði þar bú-
skap.
Ástríður og maður hennar áttu
þó áfram heima í Efra-Seli og þar
er hún enn og heldur heimili með
syni sínum.
Fjölskylda
Ástríður giftist 24.10.1936 Daníel
Friðrik Guðmundssyni, f. 23.12.
1909, d. 29.5. 1993, bónda og oddvita
að Efra-Seli. Hann var sonur Guð-
mundar Bjarnasonar og Guðnýjar
Arngrímsdóttur, bænda að Hafur-
hesti í Önundarfirði.
Börn Ástríðar og Daníels Frið-
riks eru Helgi Erling Daníelsson, f.
4.7. 1938, starfsmaður hjá Flúða-
fiski, búsettur að Efra-Seli; Ásdís
Daníelsdóttir, f. 27.2. 1940, búsett í
Kópavogi, var gift Sigurjóni Guð-
röðarsyni og eru börn þeirra
Barði, f. 31.7. 1971 og Ásta, f. 11.4.
1976; Ástríður Guðný Daníelsdótt-
ir, f. 30.1. 1948, bóndi í Efra-Seli,
gift Halldóri Elís Guðnasyni bónda
og eru börn þeirra Daníel, f. 30.4.
1970, en sonur hans er Hákon Egill,
f. 1.4.1995, Halldóra, f. 2.11.1974, en
unnusti hennar er Unnsteinn Logi
Eggertsson; Jóhanna Sigríður Dan-
íelsdóttir, f. 30.1.1948, var gift Jóni
Hreiðari Kristóferssyni, sem lést
1991, og eru börn þeirra Birgir Þór,
f. 20.9. 1970, og Kristín Ásta, f.
20.11. 1980.
Ástríður átti fjögur hálfsystkini
og ellefu alsystkini. Hún á nú tvo
albræður á llfi. Þeir eru Gissur
Guðmundsson, f. 22.3. 1907; Þórður
Finnbogi Guðmundsson, f. 27.5.
1919.
Foreldrar Ástríðar voru Guð-
Ástríður Guðmundsdóttir.
mundur Júlíus Pálsson, f. 31.7.
1859, d. 13.6. 1932, bóndi í Vatnadal
í Súgandafirði, og Herdís Þórðar-
dóttir, f. 23.12. 1872, d. 30.8. 1942,
húsfreyja.
Rútur Skæringsson
Rútur Skæringsson trésmiður,
Víkurbraut 9, Vík í Mýrdal, verður
sjötíu og fimm ára á morgun.
Starfsferill
Rútur fæddist á Rauðafelli i
Til hamingju með
afmælið 28. apríl
90 ára
Kristin Jóhannesdóttir,
Hringbraut 39, Reykjavík.
75 ára
Þórður Tóm-
asson,
safnvörður í
Skógum, Aust-
ur-Eyjafialla-
hreppi.
Þórður er að
heiman á af
mælisdaginn.
Erla Guðmundsdóttir,
Sléttuvegi 15, Reykjavík.
Guðbrandur Guðmundsson,
Miðtúni 3, Kefiavik.
70 ára
Hansína Vilhjálmsdóttir,
Hraunbæ 126, Reykjavík.
Sigurður Sigurðsson,
Vonarholti, Kjalarneshreppi.
Steinimn Aradóttir,
Miðtúni 18, Höfn Hornafirði.
Haraldur Guðmundsson,
Grundarbraut 5, Ólafsvik.
Hann tekur á móti gestum í Dúnd-
ursalnum, Dugguvogi 12, laugar-
daginn 27.4. frá kl. 17.00-20.00.
Gunnar Ólafsson,
Hæðargötu 4, Njarðvík.
Guðmundur Ingólfsson,
Sólvallagötu 57, Reykjavík.
Pétur Torfason,
Sólvöllum 9, Akureyri.
Kristinn Þ. Jensson,
Kirkjubraut 2, Akranesi.
40 ára
50 ára
Bjami Pétursson,
Lautasmára 31, Kópavogi.
Sigurður Ó. Kristófersson,
Kveldúlfsgötu 18, Borgamesi.
Sveinbjörn S. Reynisson,
Melbraut 2, Garði.
Sigrún Sigurðardóttir,
Suðurengi 24, Selfossi.
Valgerður K. Sigurðardóttir,
Hvassaleiti 155, Reykjavík.
María Björk Reynisdóttir,
Miðstræti 16, Vestmannaeyjum.
Gunnar Ingimundarson,
Búlandi 18, Reykjavík.
Emil Þór Guömundsson,
Lækjarsmára 98, Kópavogi.
Margrét Jóhanna Pálmadóttir,
Vesturgötu 27B, Reykjavík.
Guðmann Bjamason,
Kambaseli 25, Reykjavík.
Bjami Ingvarsson,
Mánagötu 6, Reykjavík.
Austur-Eyjafiallahreppi og ólst þar
upp. Hann er trésmiður að mennt
og starfa en Rútur hefur unnið við
smíðar vitt og breitt um Vestur-
Skaftafellssýslu. Hann hefur lengst
af átt heima í Vík í Mýrdal, eða frá
1945.
Fjölskylda
Rútur kvæntist 2.6. 1945 Guð-
björgu Jónsdóttur, f. 9.12. 1915,
húsmóöur. Hún er dóttir Jóns
Hjartarsonar og Sigríðar Heiði-
mannsdóttur, bænda á Eystra-
Skagnesi í Mýrdal.
Böm Rúts og Guðbjargar eru
Sigurjón Rútsson, f. 8.12. 1944, raf-
virki í Vík i Mýrdal, kvæntur
Kristínu Einarsdóttur og eiga þau
þrjú börn; Kristín Rútsdóttir, f.
21.3. 1947, húsmóðir í Reykjavík,
gift Eysteini Helgasyni og eiga þau
þrjú börn; Heiðrún Rútsdóttir, f.
23.4. 1948, húsmóðir í Reykjavík,
var gift Pálma Frímannssyni sem
er látinn, og eru böm þeirra þrjú.
Systkini Rúts: Aðalbjörg Skær-
ingsdóttir; Sigurþór Skæringsson;
Einar Skæringsson; Baldvin Skær-
ingsson; Georg Skæringsson, nú
látinn; Jakob Skæringsson, nú lát-
inn; Anna Skæringsdóttir, nú lát-
in; Ásta Ragnheiður Skæringsdótt-
ir, nú látin; Guðmann Skærings-
son; Kristinn Skæringsson.
Foreldrar Rúts voru Skæringur
Sigurðsson, f. 14.3. 1886, bóndi að
Rútur Skæringsson.
Rauðafelli, og k.h., Kristín
Ámundadóttir, f. 13.4. 1886, hús-
freyja.
Rútur verður að heiman á af-
mælisdaginn.
Rúnar Magnússon
Rúnar Magnússon, starfsmaður í
mötuneyti og í kertagerðinni að
Sólheimum, til heimilis að Undir-
hlíð á Sólheimum í Grímsnesi, er
fimmtugur í dag.
Starfsferill
Rúnar fæddist í Gljúfurholti í
Árnessýslu. Hann hefur búið og
starfað að Sólheimum frá 1957.
Hann starfaði lengi á smíðastof-
unni á Sólheimum en starfar nú í
mötuneytinu og í kertagerðinni
þar.
Rúnar hefur lengi verið virkur
félagi í Leikfélagi Sólheima og tek-
ið þátt í fiölda sýninga með félag-
Fjölskylda
Systkini Rúnars eru Hulda, Hjör-
dís og Jón.
Foreldrar Rúnars voru Magnús
Ólafsson, sem lést 1972, og Margrét
Jónsdóttir sem lést 1986.
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22 • laugardaga kl. 9-14 • sunnudaga kl. 16-22
5SS5M0
auglýsingar
Brúðkaup
Höíum sali
fyrri minni
og stærri
brúðkaup
Látið okkur sjá um
brúðkaupsveisluna.
HÓTEL tlLÁND
5687111