Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.1996, Síða 56
ll f'imrrtfnMur
1 1. vinningur *
j
l'krtu vtíbúinín! idnningi
..'?96®©@®
25.4.
Heilsugæsla Reykjavíkur:
Ekki amast
við fríhelgi
erlendis
- segir forstjórinn
„Þaö hafa verið farnar starfs-
mannaferðir til þess að kynna sér
rekstur annarra heilsugæslustöðva
bæði innanlands og erlendis. Við
höfum ekki amast við því þótt fólk-
ið hafi átt fríhelgi erlendis í leiðinni
enda er það svo að nýtt hafa verið
helgarfargjöld og tilboð sem eru
mun ódýrari en þegar flogið er út og
heim samdægurs," segir Guðmund-
ur Einarsson, forstjóri Heilsugæsl-
unnar í Reykjavík. Hann segir að
ein reglugerð gildi um Tíundarsjóði
allra heilsugæslustöðva í borginni.
-SÁ
Skafmiði fylg-
ir hverju ein-
taki DV í dag
DV, Lego og Kjörís standa nú fyr-
ir Lego-leik og fylgir skafmiði með
hverju eintaki af Helgarblaði DV í
dag. Skafmiðar fylgja einnig í köss-
um af íspinnum og hlunkum frá
Kjörís. Vinningar í Legoleiknum
eru 8.020. Þeir eru tvær ferðir til
Legolands fyrir tvo, 18 Pro Style
,-k- fjallahjól, 2000 Lego smáöskjur og
fleira. -em
Á ofsahraða
Keflavíkurlögreglan tók í gær 17
ára gamlan ungling á ofsahraða á
Garðvegi, milli Keflavíkur og Garðs.
Reyndist hann vera á 144 kílómetra
hraða þar sem 90 kílómetrar eru há-
markið. Hann missti fjögurra mán-
aða gömul ökuréttindi sín á staðnum
í þessari viku hefur Keflavíkurlög-
reglan svipt sex ökumenn réttindum
sinum vegna ofsaaksturs. -GK
ERU ÞETTA ÞÁ
KOMU-GJALDAFAR-
ÞEGAR?
KIN
KIN
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fuilrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Starfsfólk þriggja heilsugæslustööva út í heim fyrir komugjöld:
Þetta er til skammar
- segir Arnþór Helgason, forystumaöur í samtökum öryrkja
„Þessi gjaldheimta og ráðstöfun
fjárins er til skammar og ég skora
á Ingibjörgu Pálmadóttur heil-
brigðisráöherra að taka þetta mál
til alvarlegrar athugunar," segir
Arnþór Helgason sem lengi hefur
verið í forystusveit samtaka ör-
yrkja.
Arnþór segir að þegar verið sé
að spara í heilbrigðiskerfinu þá
gangi það hreinlega út yfir aflan
þjófabálk þegar sparnaðurinn
felist m.a. í því að skemmta starfs-
mönnum. „Þessar skemmtiferðir
sem maður hefur heyrt um, bæði
til Edinborgar og Parísar, og að
jafnvel árshátíöir starfsfólks séu
kostaðar úr þessum sjóði, hljóta að
leiða til þess að þeir sem leita til
stöðvanna spyrji sjálfa sig til
hvers þeir séu eiginlega að greiða
þessi komugjöld.
Ég tel að heilbrigðisráðherra
verði að kreíjast þess að fá í hend-
ur ítarlegar ferðaskýrslur eftir
þessa Edinborgarferð Kópavogs-
starfsmannanna og Parísarferð
Hafhfirðinganna,“ segir Arnþór
Helgason.
„Það er alveg klárt aö reglugerð
um Tíundarsjóð heimilar stöðvun-
um að nota hann til endurmennt-
unar starfsfólks en ef um misnotk-
un er að ræða á þeirri túlkun þá
komum við til með að bregðast
mjög hart við því,“ segir Þórir
Haraldsson, aðstoðarmaður Ingi-
bjargar Pálmadóttur heilbrigðis-
ráðherra.
. Þórir segir að ráðuneytið hafi
kallað eftir upplýsingum um
hvemig þessir sjóðir hafi verið
notaðir og það hafi vitneskju um
dæmi þar sem notkunin var í það
minnsta vafasöm. Viðbrögð al-
mennings við frétt DV í gær um
Parísarferð heilsugæslustarfs-
fólksins í Hafnarfirði hafa verið
mjög sterk og öll á einn veg; fólk
er hneykslað á því að sjúklingar
séu látnir kosta utanlandsferðir
starfsmannanna, jafnvel hurtséð
frá því hvort um sé að ræða
skemmtiferðir eða að þær séu
farnar í þeim tilgangi að fræða
starfsfólkið og gera það hæfara í
starfi.
Maður sem gegnir stjómunar-
stöðu í heilbrigðiskerfmu segir að
fræðslugildi þess að senda hópa
samstarfsfólks út í helgarferðir til
erlendra ferðamannaborga orki
mjög tvímælis.
Um þessa helgi em flestir starfs-
manna heilsugæslustöövarinnar í
Kópavogi staddir í Edinborg og í
gær sinnti afleysingafólk störfum
Edinborgarfaranna. Ekki er langt
síðan starfsfólk stöðvarinnar í Ár-
bæjarhverfi var í London.
-SÁ
Að þessu sinni brást það ekki að sumarið kæmi með fyrsta sumardegi. Veðurblíða síðustu daga hefur verið einstök
og það líkar ungviðinu. í görðunum spretta laukarnir upp og litlar hendur fá nóg að starfa í sumar. Myndin er tekin í
gróðrarstöðinni Grænuhlíð þar sem Kristín B. Birgisdóttir, 5 ára, var að hlúa að nýgræðingunum. Fjöiærar plöntur
er nú farnar að springa út mörgum vikum fyrr en í meðalári. DV-mynd GS
* í ^ ':i
Ú t j 11
SB'- 1 ffi m J ” r , N * 1 íí ■
1
Drengur í lífs-
hættu eftir sjö
metra fall
Sjö ára gamall drengur slasaðist
alvarlega þegar hann féfl nær 7
metra niður í grjóturð við foss i El-
liðaánum. Drengurinn var fluttur á
slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
og var hann lífshættulega slasaður
að sögn læknis í gærkvöld.
Slysið varð siðdegis í gær nærri
félagsheimili Rafmagnsveitu
Reykjavikur. Drengurinn mun hafa
verið að leik á hjóli þegar hann féll
fram af berginu við fossinn. -GK
Kópavogur:
Nágranninn
bjargaði
húsinu
Ávökull náganni kom í veg fyrir
að stórtjón yrði í eldi á íbúðarhúsi í
austurbæ Kópavogs í gær. Eldurinn
kom upp í garðhýsi við húsið síð-
degis. Heimilisfólkið er statt í út-
löndum en nágranninn sá hvað
verða vildi og gat slökkt áður en
stórbruni varö. Að sögn lögreglu
bendir flest til íkveikju. -GK
Hæg breytileg átt
Á morgun verður norðvestangola eða kaldi. Sums staðar dálítil súld norðan- og vestanlands en skýjað með köflum á Suður- og Austurlandi.
Hiti 2 til 10 stig, mildast suðaustanlands.
Á mánudag verður hæg breytileg átt og skýjað að mestu en þurrt. Hiti 2 til 8 stig.
Veðrið í dag er á bls. 61