Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Blaðsíða 12
12 FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996 Spurningin Hvernig heldur þú að best sé að vinna að friði í heiminum? Margrét Guðlaugsdóttir, nemi í MH: Með því að rækta mannkær- leikann. Kolbrún Edda Sigurhansdóttir, nemi í MH: Með því að þjóðarleiö- togar komi sér saman. Guðrún Höskuldsdóttir, nemi í MH: Með því að fólk hætti að met- ast og keppast um hlutina. Kjartan Gústafsson fram- kvæmdastjóri: Með sameiginlegu átaki rikja heims. Hrafnkell Helgason nemi: Með því að eyða öllum kjarnorkuvopn- um. Þórólfur Rúnar Þórólfsson nemi: Með því að færa eitthvað af þeim peningum sem notaðir eru til hern- aðar til friðarmála. Lesendur Reglur Húsnæð- isstofnunar - á skjön viö raunveruleikann Kerfið í dag kemur beinlínis í veg fyrir að ungt fólk geti keypt sína fyrstu íbúð. Reglur um fjárhagsbyrði þarf að endurmeta. Brynjólfur skrifar: Þótt viðurkenna verði að hús- bréfakerfi Húsnæðisstofnunar hafi komið mörgum að notum við kaup eigin húsnæðis verður lika að hafa í huga að reglur þær sem Húsnæð- isstofnun notast við nú eru á skjön við raunveruleikann. Húsbréfakerf- ið er því á víssan hátt til trafala fyr- ir ungt fólk sem hyggst festa sér íbúðarhúsnæði í fyrsta sinn. Fram- kvæmdastjóri Ármannsfells út- skýrði þetta t.d. í fréttabréfi Sam- taka iðnaðarins nýlega. - Hann bendir réttilega á að kerfið komi beinlínis í veg fyrir að margir geti keypt sér íbúð þótt þeir hafi til þess fullan fjárhagslegan styrk. Þetta felst aðallega í því að fólk, sem í dag er á leigumarkaði og greiðir, segjum þetta 35 til rúmlega 40 þúsund krónur fyrir leiguíbúð, getur ekki fengið húsbréf vegna þess að reglurnar segja svo til um að það megi ekki verja meira en 18% af launum sínum (þá gjarnan á bilinu 20-25 þús. kr. á mánuði) til húsnæðiskaupa. En eins og hér seg- ir greiðir það jafnvel um 40 þúsund í leigu fyrir íbúðarhúsnæði! í verkamannakerfinu er þó miðað við að fólk megi verja allt að 30% af launum sínum á mánuði til íbúðar- kaupa. Þetta þarf allt að samræma. Allir eiga að sitja við sama borð í þessum efnum. Á hinum almenna markaði - í gegnum húsbréfakerfið - ættu menn að vera fullfærir um að greiða hærri upphæð en 18% af sin- um launum á mánuði. Ekki má þetta hlutfall þó fara of hátt og mættu 25% vera miðviðunarreglan. En það munar líka miklu frá 18 pró- sentunum. Þegar húsbréfakerfið getur veitt 75% lán vegna kaupa á fyrstu íbúð og mánaðarleg greiðslubyrði af kaupunum er um 25 þúsund krónur þá fyrst er þetta komið í þolanlegt ástand. En ekki fyrr. Félagsmála- ráöherra ætti að reka smiðshöggið á annars ágætt framtak sitt í þessum málaflokki með því að gera áður- nefnda lagfæringu á reglum Hús- næðisstofnunar. Frestur er a illu bestur Hákon H. Kristjónsson skrifar: Þegar hugsað er um Langholts- deiluna, sem gerist þó sárasjaldan, skynjar maður skyndilega hve nauðsynlegt er að mál dragist sem mest á langinn, þannig að niður- staða fáist ekki fyrr en seint og um síðir, ef þá nokkurn tíma. En því lengur sem deilan stendur og því harðvítugri þeim mun meiri líkur eru til að yfirstjórn þjóðkirkj- unnar, í víðastri merkingu, ásamt hinum pólitísku stjórnendum, sem ekkert er víst að séu í þjóðkirkjunni (og þurfa ekki einu sinni að vera kristnir), taki á stjórnunarvanda kirkjunnar. í þessu samhengi má vitna til sí- gildrar dæmisögu trésmíðameistar- ans. Þar sagði frá hússtjóm einni sem falið var að ráðskast með tiltek- ið hús. Það var í alla staði ágætt að því undanskildu að þakið lak en hússtjórninni fannst það ekki gera svo mikið til af því það rigndi svo sjaldan og svo lítið í einu. Einn góð- an veðurdag eða öllu heldur votan hélt rigningin þó innreið sína og þaö var engin smáræðisrigning og henni slotaði alls ekki. Stjórn húsfé- lagsins auk allra annarra sem þarna bjuggu, þar með talinn kött- urinn, hundurinn og kanarifuglinn, varð á skömmum tíma gegndrepa en hússtjórnin lét sem ekkert væri og enn er víst ógert við lekann á þakinu. Enn hefur heldur ekki fengist nið- urstaða í Langholtsdeilunni, heldur ekki í biskupsmálinu og biskupi og fjölskyldu hans haldið í eins konar gíslingu að alþjóð ásjándi. Nauðsyn I Arnfríður skrifar: Það er full þörf fyrir almenning að gæta þess vel hvaða matvælateg- undir hækka í verði nú á vordög- um. Það er t.d. segin saga að fersku grænmeti er haldið i hæsta verði fram eftir vori á meðan garðyrkju- bændur eru að koma út sínu nýja grænmeti. Síðan slaknar á þegar þeir anna ekki eftirspurn og þá er leyft allra náðarsamlegast að flytja til landsins nýtt grænmeti. Á allt þetta er bent í ágætri forystugrein í DV nýlega og rakin ástæða þess að grænmeti er selt hér á slíku ofur- verði sem raun ber vitni. Nýtt grænmeti bætir heilsu fólks stórlega og fólk hér er líka farið að nota það miklu meira en áður tiðk- aðist. En við erum sífellt uppi með einhverjar „verndarstefnur". Hér er Nýtt grænmeti bætir heilsu fólks stórlega en á brattann er að sækja vegna stjórnvaldsaðgerða. t.d. íslenskt grænmeti varið af stjórnvöldum með geysiháum verndartollum og það þýðir svo aft- ur að innflutt grænmeti verður jafn- dýrt og hið íslenska. Erlendir ávext- ir sleppa við þetta okur því hér er næsta engin ávaxtarækt og því fást ávextir á skikkanlegu verði. Það er beinlínis lífsnauðsyn að grænmetisverð lækki hér á landi. Við erum eftirbátar annarra þjóða í neyslu grænmetis og einnig í al- mennri heilsuvernd með aðstoð hollra fæðutegunda eins og fersks grænmetis og grænmetisrétta. Auð- vitað eiga neytendur sjálfir að hafa uppi kvartanir opinberlega um ósvífnina, t.d. í verslunum og á mannamótum. Það er liður í barátt- unni fyrir mannsæmandi kjörum og um leið langtum betri heilsu. (L[l§[liE)í\ þjónusta allan I>V Ríkisútvarp án auglýsinga? Kristinn Sig. skrifar: Það er ekkert nýtt að frjáls- hyggjumenn í Sjálfstæðisflokkn- um vegi að Ríkisútvarpinu. Allir muna er þeir sáu ofsjónum yfir rás 2 sem hefur staðið sig vel frá upphafi og skilaö arði. Nú er frjálshyggjudraugurinn kominn á kreik á ný. Svipta á RÚV öllum auglýsingum nema dánartil- kynningum og jólakveðjum. Fólk er neytt til að hlusta á aðrar stöðvar ef það ætlar að auglýsa eða fylgjast með viðskiptum. Ég hlusta ávallt á Ríkisútvarpið og læt ekki frjálshyggjusinna breyta því. En hvar er nú frelsið í viðskiptum? Friður 2000 og barátta Ástþórs Vilhjálmur Alfreðsson skrif- ar: Undanfarið hafa verið umræð- ur um Frið 2000 og stofnanda hans, Ástþór Magnússon. Það kom maður að nafni Jesús Krist- m- tU Jarðar fyrir nærri 2000 ■ árum með mikinn friðarboð- skap. Ég man hins vegar þegar ungur, fátækur sveitastrákur frá Austurríki kom til Þýskalands og varð kanzlari þess lands. Hann barðist fyrir stríði og setti heiminn á annan endann. En Ástþór okkar er að berjast fyrir friði. Eigum við ekki að styðja baráttu hans að þessu sinni? Þeir þakka hlýhuginn Friðrik skrifar: Þeir koma nú fram á sjón- arsviðið (þ.e. í blöðunum) hver af öðrum, þessir heiðursmenn sem vUdu verða forsetar, fengju þeir til þess stuðning, og þakka hlýhug í sinn garð og óhemju hvatningu. En því miður, þeir vilja samt ekki fara í framboð! Ég er nú eiginlega feginn að þetta lið dró sig til baka. Svona einstaklingar, sem ekki mátu það fyrr en seint um síðir að þeir voru vonlausir í forsetann, hefðu ekki mikið haft í embættið að gera. En þaö er enn von á ein- hverjum sem eftir eiga að afboða sig, ef marka má fyrri framboðs- fréttir. Svertingja- lýðveldin Elín Sigurðardóttir skrifar: Það var ekki lítið lóð sem ís- lenskir friðarsinnar svonefndir og uppivöðslufólk á vinstri kant- inum lögðu í baráttu samherja sinna í öðrum löndum til að reka „nýlenduveldin" í Afríkuríkjun- um af höndum sér svo að hinir svörtu innfæddu gætu tekið við stjóminni. Nú hafa þeir svörtu fengið öll ráð. Og hvað skeður, það er hvergi eins mikU ógnar- öld og í þessum nýfrjálsu ríkjum með moröum og pyntingum á samlöndunum. En það verða sennilega tU svör viö þessu. Bara skeUa skuldinni á Bandaríkin. Það er svo einfalt. Farinn „fyrir daginn“ Markús skrifar: Nú er það nýjasta í ensku- skotinni íslensku okkar að segja sem svo þegar maður spyr t.d. á vinnustað. eftir einhverjum sem hættur er að vinna þann daginn: „Hann er farinn fyrir daginn"! Þetta er auðvitað tekið beint og ómengaö úr enskunni sem segir: „He is gone for the day“ og er gott og gUt á þeim vettvangi. En við, hér á útskerjum við brim- rótsins Atlantsála, okkur finnst þetta ábyggUega bæði fínt og fara vel i munni. Það gerir það að sjálfsögðu en er bæði heimskulegt og hlægilegt.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.