Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996
13
Fréttir
,
___
Jón Sigurðsson GK við bryggju í Grindavík og líkanið af honum á siglingu. Líkaninu er fjarstýrt og það gengur fyr-
ir rafmótor. DV-mynd Ólafur Rúnar
Bræöur í Grindavík vekja athygli fyrir skipalíkön úr dósablikki:
Sumir segja að
þetta sé ekki hægt
- segir Hlynur Helgason, 16 ára, sem nýlokið hefur smíði á „loðnubát“
„Við byrjuðum fyrir þremur eða
fjórum árum á að gera nokkuð stór-
an bát sem við draghnoðunum sam-
an. Það var heldur gróf smíði en síð-
an hefur þetta þróast smátt og smátt
og ég er að sjálfsögðu ánægðastur
með nýjasta bátinn,“ segir Hlynur
Helgason, 16 ára Grindvíkingur,
sem í vor lauk við smíði á líkani af
loðnuskipinu Jóni Sigurðssyni GK.
Líkanið tók á móti frummyndinni
við komuna til landsins frá Skot-
landi í síðasta mánuði.
Handlagni Hlyns og eldri bróður
hans, Hafþórs, hefur vakið verð-
skuldaða athygli í Grindavík og
raunar víðar. Þeir hafa verið að
prófa sig áfram með að smíða skipa-
líkön úr dósablikki og náð undra-
verðum árangri. Efnið er það sama
og flestir þekkja í málningar- eða
baunadósum.
Ónothæft efni
„Sumir segja að þetta sé ekki
hægt,“ segir Hlynur þegar hann er
spurður um vandann við að vinna
fína vinnu í blikk. Flestir líkana-
smiðir nota tré og önnur viðráðan-
legri efni við verk sín. Þá er hægt að
pússa og slípa til að fá nákvæmlega
rétta útlitið.
Hlynur og Hafþór nota blikk og
smíða skipin eins og um raunveru-
leg stálskip væri að ræða. Hafþór er
nú að mestu hættur smíðunum
enda segir Hlynur að hann hafi
núna „meiri áhuga á stelpum en
skipum“.
Hlynur ætlar hins vegar að halda
ótrauður áfram enda er baráttan við
að ná tökum á smíðaefninu nú loks
að skila árangri. Likanið af loðnu-
skipinu Jóni Sigurðssyni GK er
ótrúlega nákvæmt enda smíðað eft-
ir sömu teikningu og sjálft skipið.
Fyrstu tilraunir Hlyns og Hafþórs
eru nokkru grófari enda viður-
kenna þeir að vandamálin við að
nota blikkið séu mörg.
„Ég geri skapalón að öllum hlut-
unum í pappa áður en ég sníð bút-
ana úr blikkinu. Síðan verður að
beygja hvern hlut á réttan hátt og
valsa það sam þarf að valsa áður en
blikkið er lóðað saman," segir Hlyn-
ur.
Til þessara verka hefur hann
venjuleg skæri, þrjár tangir og lóð-
bolta. Lítil borvél kemur líka að
góðum notum þegar borað er í gegn-
um vír til að nota í rekkverk og
handrið.
Hlynur segir að það hafi marga
kosti að vinna með blikk þótt það sé
að sumu leyti erfiðara. Honum líkar
ekki að pússa mikið en það er þó
ekki aðalatriðið.
Eins og alvöruskip
„Ég vil að líkönin geti flotið og að
það sé hægt að hafa í þeim mótor.
Líkön úr tré þola oft ekki vatn og
þyngdarhlutföllin í þeim eru heldur
ekki rétt. Skipslíkan úr blikki ber
sig á sjó alveg eins og alvöruskip,"
segir Hlynur.
Þetta sannaðist þegar líkanið af
Jóni Sigurðssyni GK tók á móti
frummynd sinni í Grindavíkurhöfn
á dögunum. Útgerð skipsins hefur
nú keypt líkanið og einnig hefur
Fiskanes hf. í Grindavík fengið lík-
an af fyrsta skipi sínu, Geirfugli,
sem kom til landsins árið 1966.
Upphafið að líkanasmíðum bræð-
ranna er að þeir fóru með föður sín-
um að prófa líkön sem voru til leigu
á Rauðavatni. Þegar heim kom var
þegar hafist handa við að smíða
enda þóttust þeir bræður jafnvel
geta gert betur. Þeir voru hins veg-
ar aldrei mjög hrifnir af hefðbundn-
um plastlíkönum sem flestir ung-
lingar hafa spreytt sig á að líma
saman.
Hafnirnar þræddar
Vinnan fer öll fram í bílskúrnum
við heimili bræðranna í Grindavík.
Faðirinn, Helgi Sæmundsson smið-
ur, er einnig með í ráðum og marg-
ar bílferðirnar fara þeir feðgar sam-
an um bryggjurnar í Grindavík og
öðrum útgerðarbæjum. Þá er verið
að svipast um eftir fallegum bátum.
Hlynur vann að smíði Jóns Sig-
urðssonar GK i tvo mánuði í vetur.
Hann lauk verkinu um miðjan mars
og hefur síðan verið upptekinn við
próflestur. Hann er í tíunda bekk og
stefnir á fjölbraut næsta vetur.
Framtíðin er hins vegar óráðin og
Hlynur gefur ekkert út á hvort
skipaverkfræði verði fyrir valinu.
Það kemur bara í ljós.
-GK
Bræðurnir Hafþór og Hlynur í „skipasmíðastöðinni" í Grindavík. Þeir hafa gert mörg líkön af bátum og skipum.
DV-mynd GS
NYJU NILFISK RYKSUGURNAR HAFA FEIKNA SOGAFL
OG FULLKOMNASTA SÍUNARBÚNAÐ SEM VÖL ER Á*
Nilfisk AirCare Filter® Með 2ja laga pappírspoka, grófsíu
og HEPA-síu heldur Nilfisk eftir 99,97% allra rykagna sem
eru stærri en 3/10.000 úr millimetra (0,3 my).
*l sænskri neytendaprófun (Konsumentverket) á 11 þekktum ryksugum var
Nilfisk með HEPA-síu sú eina sem fékk toppeinkunn fyrir síunarhæfni.
NÝ NILFISK - NÚ Á FRÁBÆRU KYNNINGARVERÐI
NILFISK gerd»» GM-300 GM-310 GM-320 GM-330
Verölistaverö 24.750 28.400 31.350 33.920
Kynningar- og stgr. afsl. 3.590 4.120 4.550 5.930
Staðgreiðsluverð nú 21.160 24.280 26.800 28.990
NILFISK fæst í 4 litum
og 4 mismunandi útfærslum.
Komdu og kynntu þér kostina.
/FOnix
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur
húsbréfa í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991 - 18. útdráttur
3. flokki 1991 - 15. útdráttur
1. flokki 1992 - 14. útdráttur
2. flokki 1992 - 13. útdráttur
1. flokki 1993 - 9. útdráttur
3. flokki 1993 - 7. útdráttur
1. flokki 1994 - 6. útdráttur
1. flokki 1995 - 3. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júlí 1996.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu flokkunum
hér að ofan birt í dagblaðinu Degi föstudaginn
10. maí. Upplýsingar um útdregin húsbréf liggja
frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á Húsnæðis-
skrifstofunni á Akureyri, í bönkum, sparisjóðum
og verðbréfafyrirtækjum.
cSg HÚSNAÐISSTOFNUN RÍKISINS
I 1 HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SlMI 569 6900
--------------------'ÆJTÆÆÆÆÆÆÆÆÆÆA
Smáauglýsingadeild DV er opin:
• virka daga kl. 9-22
• laugardaga kl. 9-14
• sunnudaga kl. 16-22
Tekið er á móti smáauglýsingum
til kl. 22 til birtingar næsta dag
Ath.
Smáauglýsing í Helgarblað DV þarf þó að
berast okkur fyrir kl. 17 á föstudag
V