Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Síða 15
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1996
15
„Það er ekki von á góðu þegar ráðherrann
sjálfur hefur ekki þurft að þola eðlilega
atkvæðagreiðslu. Hann er þingmaður
Norðurlandskjördæmis vestra og þess
vegna þarf hann mun færri atkvæði en
þingmenn Reykvíkinga þurfa.“
Fýrir hvern,
ráðherra Páll?
greiða atkvæði um hvort kjara-
samningar eru samþykktir eða
felldir.
Væri ég hluthafi...
Væri ég hluthafi í Eimskip, sem
dæmi, væri lögð á mig ábyrgð í at-
kvæðagreiðslu sem félaga í Sjó-
mannafélagi Reykjavíkur en alls
ekki sem hluthafa í Eimskip. Lýð-
ræðið skal ná til stéttarfélaganna
en ekki til eigenda fyrirtækjanna.
Þegar kemur að fyrirtækjunum
ráða örfáir menn, framkvæmda-
stjórar, stjórnarmenn og að sjálf-
sögðu VSÍ.
Það er ekki von á góðu þegar
ráðherrann sjálfur hefur ekki
þurft að þola eðlilega atkvæða-
greiðslu. Hann er þingmaður
Norðurlandskjördæmis vestra og
þess vegna þarf hann mun færri
atkvæði en þingmenn Reykvík-
inga þurfa. Er þetta hans tvöfalda
lýðræði? Það er sama hvar á mál-
ið er litið. Páll Pétursson virðist
ganga um beina fyrir atvinnurek-
endur.
Verða menn saddir af list?
Ég efast um að Alþýðusamband-
ið, eins og því er stjórnað í dag,
geti verið sá kraftur sem við þurf-
um á að halda. Þar vantar stór-
huga og djarfa forystumenn sem
láta verkin tala, þá meina ég ekki
menn sem hafa smekk tU að sóa
peningum í kaup á listasöfnum
heldur menn sem eru tUbúnir að
berjast fyrir leiðréttingu því hún
þarf að koma tU.
Þessa dagana lesum við nánast
daglega um stórhagnað hvers stór-
fyrirtækisins á eftir öðru. Hagnað-
urinn þarf ekki að koma á óvart.
Við launþegarnir vorum neyddir
með lögum til að færa fyrirtækjun-
um hagnaðinn. Aðstöðugjaldið var
af þeim tekið og fært yfir á okkur.
1 ljósi þeirra breytinga sem orðið
hafa er eðlUegt að ætlast tU að
ekki verði krafist frekari fórna al-
mennings tU að auka hagnað góð-
vina ráðherranna. Eins er eðlUegt
að ætlast tU að hætt verði að ætla
sjómönnum að greiða olíukostnað
útgerðarinnar.
Fyrir liggur að nokkru að
stærstu sjávarútvegsfyrirtæki
landsins hafa fjárfest fyrir veru-
legar fjárhæðir erlendis og eins
liggur fyrir að starfsmenn þessara
fyrirtækja svo og aðrir íslendingar
hafa ekki notið góðs af hagnaði
þessara fyrirtækja.
Farið hefur fé betra
Staða forystu ASÍ er slík að
standist hún ekki atlögur ríkis-
stjómarinnar með reisn getur hún
alt eins látið sig hverfa í frumeind-
ir. Ef svo fer er óhætt að segja að
farið hefur fé betra. Skoðun
margra er að nú sé rétti tíminn tU
að setja fram launakröfur og þær
verða að vera í takt við hagnað
fyrirtækjanna. Ég sé fyrir mér
kröfur upp á 70 til 100% hækkun
launa, sérstaklega á lágu launin.
Miðað við afrakstur fyrirtækjanna
ættu þau að ráða við að auka hlut-
deild launafólks í hagnaðinum.
Með því að setja fram kröfur á
vormánuðum ætti að koma timan-
lega í ljós hvern hljómgrunn þær
fá og ef skilning skortir er ekki
annað að gera en að boða tU verk-
faUa með góðum fyrirvara.
Birgir Hólm Björgvinsson
Páll Pétursson félagsmálaráðherra. „Er þetta hans tvöfalda
lýðræði?“ spyr greinarhöfundur.
Hefur Páll Pétursson áhyggjur
af því hvort einstakir félagar í
verkalýðsfélögum hafi næg áhrif?
Er það ástæða þess að hann hefur
lagt fram á Alþingi frumvarp,
frumvarp sem er tU þess eins að
skerða möguieika þeirra stéttarfé-
laga sem hafa kjark og þrótt tU að
berjast gegn þeirri stefnu sem
fylgt hefur verið, stefnu sem hefur
orðið til þess að þúsundir fjöl-
skyldna eru eignalausar? Hvað
vakir fyrir ráðherranum?
Hann vill að tiltekinn fjöldi fé-
laga í stéttarfélögum greiði at-
kvæði um hvort verkfalli verði
beitt. Hann vill hafa vit fyrir for-
ráðamönnum stéttarfélaga. En vill
hann hafa vit fyrir forystu at-
vinnurekenda? Svarið er nei.
Hann hefur ekki sagt að hann vilji
að ákveðinn hópur hluthafa í al-
menningshlutafélögum þurfi að
Kjallarinn
Birgir Hólm Björgvinsson
í stjórn Sjómannafélags
Reykjavíkur
Snjóflóðavarnir
fyrir þá efnameiri?
Nú hafa Flateyringum verið
kynntar niðurstöður sérfræðinga
um leiðir til að auka öryggi íbúa
staðarins vegna snjóflóðahættunn-
ar sem vofir yfir þorpsbúum.
Nefnd sérfræðinga hefur komist
að þeirri niðurstöðu að vænlegast
sé að koma upp öQugum leiðigörð-
um í hlíðinni ofan við byggðina og
telja þeir að með því sé öryggi íbú-
anna tryggt svo að viðunandi sé.
Það verður alltaf álitamál hvort
hægt sé að telja mannvirki á borð
við snjóQóðavarnir fullkomlega
öruggar.
Umræður á villigötum
Við höfum óþyrmilega verið
minnt á það hversu mjög þekking
okkar íslendinga á snjóQóðum er
lítil og skammvinn. Það hefur til
dæmis verið sýnt fram á það í fjöl-
miðlum að ábendingar útlendra
sérfræðinga í þessum efnum hafa
verið virtar að vettugi.
Þá er það kunnugt að bæjar-
stjórnin á ísafirði hefur tekið um
það pólitíska ákvörðun að snóQóð
hafi ekki fallið niður á Engjaveg á
ísaQrði á sjötta áratugnum. Og var
meðal annars lögreglan send nú fj
haustdögum á svæöið til að leita
Kjallarinn
Guðmundur Sigurðsson
bifreiðarstjóri
verksummerkja um umrætt snjó-
Qóð. - Svona vinnubrögð sýna
okkur svo að ekki verður um villst
að umræður um þá vá sem af nátt-
úruhamförum leiðir er á algerum
vQligötum.
Annars flokks fólk?
Það sem mesta undrun vekur í
tiUögum sérfræðinganna um varn-
ir á Flateyri er sú hugmynd að
kaupa upp húseignir við Ólafstún
á Flateyri og breyta þeim í félags-
legar íbúðir á meðan reynsla er að
fást á varnarvirkin ofan þorpsins.
Ekki ætla ég að leggja á það
neinn dóm hvort það sé tilviljun
ein að oddviti Flateyrarhrepps á
einmitt hús sitt við þessa götu. En
hitt er ljóst að það hlýtur að teljast
svívirðilegt að Qokka fólk, sem býr
í félagslegum íbúðum, sem annars
Qokks fólk sem nota eigi til að
mæla notagildi snjóQóðavama.
Ef umræddar snjóQóðavarnir
teljast það öruggar að óhætt sé að
láta þá gerð af fólki sem býr í fé-
lagslegum íbúðum búa við götuna
ætti að vera jafnöruggt fyrir nú-
verandi íbúa að búa áfram þar í
húseignum sínum.
Pólitískur sóðaskapur
Stéttaskiptingin á íslandi er orð-
in ógeðfelld þegar hún er komin á
þær brautir að skipta íbúunum í
hópa eftir efnahag þcir sem hinir
efnaminni mega búa þar sem hætt-
an er mest á meðan fyrirmanna-
hópunum er búið öruggt skjól á
hættuminni svæðum á kostnaö
rikisins.
íbúar á Flateyri sem og annars
staðar á landinu þar sem búast má
við hörmungum náttúruhamfara
hljóta að gera þá kröfu að þeim
verði ekki mismunað með jafn
herfdegum hætti og hér er gert
ráð fyrir. Slík mismunun er ekk-
ert annað en pólitískur sóðaskap-
ur sem varla verður látinn við-
gangast átölulaust.
Guðmundur Sigurðsson
„Það hlýtur að teljast svívirðilegt að
flokka fólk, sem býr í félagslegum íbúð-
um, sem annars flokks fólk sem nota eigi
til að mæla notagildi snjóflóðavarna.“
Með og
á móti
Á að breyta RÚV í sam-
ræmi við niðurstöður
starfshóps menntamála-
ráðherra
Tímabærar
tillögur
„Flestar til-
lögur nefndar
menntamála-
ráðherra eru
mjög tQ bóta
og löngu tíma-
bært að endur-
skQgreina
hlutverk rikis-
ins á sviði út-
varpsmála. Nú-
verandi út-
varpslög eru
orðin gömul og
löngu kominn tími tO þess að
endurmeta hlutverk rlkisins á
þessum markaði. Bæði hafa
miklar tæknibreytingar orðið og
fjöldi stöðva nú starfræktur
þannig að aðstæður eru allt aðr-
ar en þegar Ríkisútvarpið var
eitt um hituna. Svo fremi sem
menn eru sammála því að ríkið
eigi að stunda einhvers konar
starfsemi á þessu sviði tel ég að
þessi nefnd hafi skilað frá sér
mjög góðum tillögum. Ef við ætl-
um að hlúa að einkaframtaki á
þessu sviði þá er nauðsynlegt að
fá svigrúm á við aðra atvinnu-
starfsemi. Það gerist ekki öðru-
vísi en að taka ríkisrekið útvarp
og sjónvarp út af auglýsinga-
markaði. Þá má Menningarsjóð-
ur útvarpsstöðva missa sín. Til-
lögur nefndarinnar miða líka að
skilviikari stjórnun og einfald-
ara skipulagi stofnunarinnar og
skilgreiningu markmiða sem er
augljóslega í þágu stofnunarinn-
ar sjálfrar, starfsmanna hennar
og þjóðarinnar. Þá tel ég mjög
æskilegt að setja stofnunina á
fjárlög þar sem núverandi fyrir-
komulag afnotagjalda og inn-
heimtu er mjög dýrt.“
Guðlaugur Þór
Þórðarson, formað-
ur Sambands
ungra sjálfstæðls-
manna
Gissur Pétursson,
útvarpsráðsmaður
fyrir Framsóknar-
flokk.
Skýrsla um
aukaatriði
„Ég tel að
viðbrögð við
þessari
skýrslu hafi
verið óþarQega
sterk því að ég
lít ekki á hana
öðruvísi en
sem hvert ann-
að innanhúss-
plagg mennta-
málaráðherra.
Varðandi
Ríkisútvarpið
er um tvær grundvallarspurn-
ingar að ræða: Hvemig verður
menn-ingarleg inn-lend fjölmiðl-
un tryggð, og í öðru lagi, hvern-
ig verður það tryggt að hún kom-
ist til allra landsmanna? Ég tel
óumdeQanlegt að ríkið á að
skipta sér af þvi hvemig þessi
markmið nást. Ef einkaaðQar
eru sannanlega að reyna að ná
þessum markmiðum er sjálfsagt
að styðja þá í því en hingað tQ
hef ég ekki getað séð að svo
væri. TiUögur starfshóps ráð-
herra miðast aðallega við það að
vasast í starfsemi Ríkisútvarps-
ins fremur en að hafa grundvall-
armarkmiðin að leiðarljósi.
Þannig er ljóst að með því að
taka stofnunina af auglýsinga-
markaði og ætla sér ekki að
bæta henni það upp með hærri
afnotagjöldum eða hærri nef-
skatti mun mjög draga úr starf-
seminni og maður hlýtur að
spyrja hvort með því munum við
nálgast fyrrnefnd grundvallarat-
riði þessa máls eða fjarlægjast."
-SÁ