Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Síða 18
26
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996
r
Iþróttir unglinga____________________________________
Skólamót Fjölnis í íslenskri glímu:
Húsaskóli sigurvegari mótsins
- mikill og vaxandi áhugi fyrir íslenskri glímu í grunnskólum
Fjórir bestu í 3. bekk, frá vinstri: Fannar Friðgeirsson, Rimaskóla (1.), Tryggvi G. Teitsson, Húsaskóla (2.), Jóhann
Jónsson, Húsaskóla (3.) og Þorgrímur Björnsson, Húsaskóla (4.).
Ungmennafelagiö Fjölnir í Graf-
arvogi hélt grunnskólamót í glímu
25. apríl, sumardaginn fyrsta, fyrir
skólanemendur í Grafarvogi og ná-
grenni, þriöja árið í röð. Mótið fór
vel fram í íþróttamiðstöðinni Dal-
húsum, undir stjórn formanns al-
menningsdeildar Fjölnis, Ingólfs
Narfasonar. Honum til aðstoðar var
formaður GLÍ, Jón M. ívarsson.
Umsjón
Halldór Halldórsson
Keppt var á tveim dýnulögðum
völlum og kepptu stúlkur á öðrum
og einnig drengir í 4., 5. og 6. bekk.
Þar dæmdu Rögnvaldur Ólafsson og
Magnús Jónsson var glímustjóri. Á
hinum vellinum kepptu drengir í
1.-3. og 7.-9. bekk. Dómari var
Hjálmur Sigurösson en glímustjóri
Orri Björnsson. Keppendur á mót-
inu voru 106, 77 drengir en 29 stúlk-
ur. Þrír efstu menn i hverjum flokki
hlutu verðlaunapeninga en allir
aðrir hlutu viðurkenningarskjöl
Fjölnis. Keppnin fór þannig fram að
væru keppendur fleiri en fjórir var
útsláttarkeppni þannig að keppandi
var úr leik eftir tvær byltur þar til
fjórir stóðu eftir. Þeir kepptu síðan
í hópglímu til úrslita. Til leiks
mættu nemendur frá eftirtöldum
skólum sem þannig eru skamm-
stafaðir: Húsaskóli, Grafarvogi
(Hús.), Lækjarbotnaskóli, Kópavogi
(Læk.), Foldaskóli, Grafarvogi
(Fold.), Kársnesskóli, Kópavogi
(Kárs.) og Rimaskóli, Gcafarvogi
(Rim.).
Ánægður með árangurinn
Það var mikil keppni um efstu
sætin hjá strákunum í 3. bekk en
þar sigraði Fannar Friðgeirsson,
Rimaskóla.
„Þetta er í fyrsta skipti sem ég
keppi í glímu og ég ætla að halda
áfram að æfa því glíman er mjög
skemmtileg íþrótt," sagði Fannar.
Var á glímukynningunni á
Laugarvatni
Völundur Jónsson, Lækjarbotna-
skóla, sigraði í keppni 6. bekkjar:
„Ég hef æft frekar litið en var á
glímukynningunni á Laugarvatni
og lærði heilmikið þar. Glíma er
mjög skemmtileg íþrótt og ég held
örugglega áfram að stunda hana,“
sagði Völundur.
Nils Lyngdal varð í 2. sæti: „Völ-
undur var mjög erfiður í dag en ég
fæ tækifæri til að fella hann
seinna."
Kynntumst 6 mánaða
Frans V. Kjartansson sigraði 1
keppni 4. bekkinga:
„Ég hef aldrei keppt í glímu áður
og þetta er þrælskemmtilegt. Ég ætl-
aði bara að horfa á en félagi minn,
Einar Á. Einarsson, sem varð í 3.
sæti, hvatti mig til að vera með svo
þetta er allt honum að þakka. Við
erum llka svo góðir vinir, enda
kynntumst við fyrst þegar við vor-
um 6 mánaða gamlir en auðvitað
man maður ekkert eftir því. Svoleið-
is var nefnilega að ég var í pössun
hjá mömmu hans, henni Sussy, en
man náttúrlega ekkert eftir þvl
heldur. Eitt er þó klárt, við erum
perluvinir við Einar,“ sagði Frans.
Vaxandi áhugi á glímu
Ljóst er að áhugi skólakrakkanna
beinist mjög að íslensku glímunni
þessa dagana ef marka má þátttöku
skólabarna í Fjölnismótinu. Glímu-
sambandið hefur undanfarin ár eflt
mjög allt útbreiðslustarf til kynn-
ingar á þjóðaríþróttinni og þá ekki
hvað síst í grunnskólunum - og á
þetta starf örugglega eftir að skila
sér á komandi árum.
O/SNfV'
Þessir sköruðu fram úr í keppni krakka í 6. bekk, frá vinstri: Völundur Jóns-
son, Lækjarbotnaskóla (1.), Nils Lyngdal Magnússon, Húsaskóla (2.), Ólafur
Sölvi Karlsson, Húsaskóla (3.) og Tandri Waage, Rimaskóla (4.)
Strákarnir, sem skipuðu fjögur efstu sætin í keppni 4. bekkinga, frá vinstri:
Frans V. Kjartansson, Húsaskóla (1.), Gísli Indriðason, Húsaskóla (2.), Einar
Ásgeir Einarsson, Húsaskóla (3.) og Orri Ingólfsson, Kársnesskóla (4.).
DV-myndir Hson
Knattspyrna á afmælisári:
Skíðadeild Leifturs:
Göngumót á golfvelli
Vinsæl Skagamót í
yngstu flokkunum í sumar
í tilefni 10 ára afmælis Knatt-
spymufélags ÍA og 50 ára afmælis
íþróttabandalags Akraness verður
lögð áhersla á að vanda enn frek-
ar til knattspyrnumóta yngstu
flokkanna á Akranesi i sumar en
þau eru þessi: Landsbankamót í 5.
flokki 14.-16. júní, Lottó-Skagamót
í 7. flokki 19.-21. júlí og Pepsímót í
6. flokki 16.-18. ágúst. Þessi stráka-
mót hafa verið mjög vinsæl und-
anfarin ár og hefur þátttaka veriö
góð.
Ákveöið er að hafa eitt verð á
öll mótin, kr. 6.000 á hvem ein-
stakling. Innifaldar eru ferðir með
Akraborginni, gisting, kvöldverð-
ur á föstudag, morgun- og hádegis-
verður laugardag og sunnudag,
grillveisla, sundmiðar o.fl. Frítt er
fyrir þjálfara og tvo fararstjóra
með hverju félagi.
í tilefni afmælisársins hefur
verið ákveðið að þaö félag sem
sendir lið til keppni á öll mótin
greiði kr. 5.500 á hvern einstak-
ling.
Umsjónarmaður mótanna er
Kristinn Reimarsson, sími 431
3311 frá kl. 9-16. Faxnúmer: 431
3012. Þátttökutilkynningar skulu
berast í pósti eða faxi fyrir 20. maí
ásamt afriti af kvittun um greitt
staöfestingargjald sem er kr.
10.000 fyrir hvert mót. Staðfesting-
argjaldið, sem dregst síöan frá
mótsgjöldum, skal leggjast inn á
reikning 0552-26-1221 í íslands-
banka á Akranesi. Eigandi reikn-
ingsins er Knattspymufélagið ÍA,
kt.: 500487- 1279.
Kiwanismót Súlunnar í skíða-
göngu fór fram 1. maí. Mótið, sem
er árlegt, sótti, auk Ólafsfirðinga,
skíðafólk frá Siglufirði. Akureyr-
ingar, sem var einnig boðið, gátu
ekki komið. Mótið var að þessu
sinni haldið á golfvellinum í
Skeggjabrekku í frábæru veðri.
Úrslit urðu sem hér segir:
7 ára strákar (1 km)
Birkir F. Gunnlaugsson, S . 5,48
Brynjar L. Kristinsson, Ó . . 6,34
Ásgeir Frímannsson, Ó. . . . 7,06
Sigmundur Jónsson, Ó . . . . 8,20
8 ára stúlkur (1 km).
Lena Konráðsdóttir, 6 .... 6,56
9 ára stúlkur (1,5 km).
Elsa Jónsdóttir, Ó.........7,15
Kristín Þrastardóttir, S. . . . 7,34
Anna Svansdóttir, Ó........8,07
Ásgerður Einarsdóttir, Ó . . 8,58
9 ára strákar (1,5 km).
Hjalti Hauksson, Ó........6,21
Örvar Tómasson, S..........7,52
10 ára strákar (1,5 km).
Hjörvar Maronsson, Ó . . . . 5,46
Sigurður Guðgeirsson, S. . . 8,52
11 ára stúlkur (2,5 km).
Freydís Konráðsdóttir, Ó. . 11,59
Guðný Gottliebsdóttir, Ó. . 12,33
Elín Kjartansdóttir, S . . . . 13,16
11 ára strákar (2,5 km).
Freyr Gunnlaugsson, S . . . 10,46
Jóhann Guðbrandsson, S. . 12,01
Sigurjón Óskarsson, S. . . . 13,00
Jakob Sigurðsson, S......13,18
Jón Gestsson, S...........13,32
Jón Kristjánsson, S......13,37
13 ára strákar (2,5 km).
Ámi Steingrímsson, S. . . . 10,34
Bragi Óskarsson, Ó.......11,36
Gunnlaugur Haraldsson, Ó 12,40
DV
Skólamót Fjölnis:
Glímuúrslit
Stúlkur -1. bekkur.
1. Hlín V. Aðalsteinsd.......Hús.
3. bekkur.
1. Giovanna Róbertsdóttir. .... Hús.
2. Guðrún í. Þráinsd.........Rim.
3. Auður Óskarsdóttir........Rim.
4. Erla Ó. Guðmundsd........ Hús.
5. Katrín Árnadóttir.........Hús.
5. bekkur.
1.-2. Hildur Guðjónsd........Hús.
1.-2. Guörún E. Ottósd.......Hús.
3. Ólöf M. Guðjónsd..........Hús.
7. bekkur.
1. Rósa Jónsdóttir..........Fold.
2. Helena Bjarnadóttir.......Rim.
3. Anna Sighvatsd...........Fold.
4. Sólveig Svavarsd.........Fold.
5. Margrét Ólafsd...........Fold.
2. bekkur.
1. Sandra Lind...............Hús.
2. Rut Ingólfsd.............Kárs.
3. Jódís Lilja Aðalsteinsd..Fold.
4. Berglind Ólafsdóttir......Hús.
4. bekkur.
1. Anna R. Harðard...........Hús.
2. Harpa Guðmundsd...........Hús.
3. Ragnheiður Snorrad........Hús.
4. Sonný Þráinsd.............Hús.
6. bekkur.
1. Hallveig Guðmundsd........Hús.
2. Eva Kristjánsd............Hús.
Drengir -1. bekkur.
1. Daniel Þórhallsson........Rim.
2. Þór H. Hrafnsson..........Hús.
3. Sverrir Hermannsson ...... Hús.
4. Haukur V. Alfreðsson......Hús.
2. bekkur.
1. Ottó M. Ingason...........Rim.
2. Þórhallur Pétursson.......Rim.
3. Sæmundur I. Johnsen.......Hús.
4. Jóhann Friðgeirsson.......Rim.
3. bekkur.
1. Fannar Friðgeirsson.......Rim.
2. Tryggvi G. Teitsson.......Hús.
3. Jóhann Jónsson............Hús.
4. Þorgrímur Björnsson.......Hús.
4. bekkur.
1. Frans V. Kjartansson......Hús.
2. Gísli Indriðason..........Hús.
3. Einar Einarsson...........Hús.
4. Orri Ingólfsson..........Kárs.
5. bekkur.
1. ívar Björnsson............Hús.
2. Gunnar Ö. Jónsson........Fold.
3. Jörgen Úlfarsson..........Hús.
6. bekkur.
1. Völundur Jónsson..........Læk.
2. Níls Lyngdal..............Hús.
3. Ólafur Karlsson...........Rim.
4. Tandri Waage..............Rim.
7. bekkur.
1. Ómar R. Magnússon........Hús.
8. bekkur.
1. Hafsteinn Þ. Eggertsson .... Hús.
9. bekkur.
1. Narfi I. Geirsson.........Rim.
2. Viggó Jensen..............Hús.
3. Ingólfur Kolbeinsson......Hús.
Keppendur í 7.-9. bekk kepptu allir í
hópglimu, innbyröis. Þar sigraði Haf-
steinn, þá Narfl, Viggó, Ómar og
Ingólfur.
Stigakeppnin
í stigakeppni milli skólanna
voru stig gefin þannig að fyrsti
maður fékk 4 stig, annar 3 stig
og þriðji 2 stig og fjórði 1 stig.
Stigakeppnin var þrískift og í
keppni 1.-4. bekkjar sigraði
Húsaskóli með 47 stig. Næst kom
Rimaskóli með 21 stig, þá Kárs-
nesskóli með 4 stig og Foldaskóli
með 2 stig.
{ keppni 5.-7. bekkja sigraði
Húsaskóli og hlaut 29 stig. Næst
kom Foldaskóli með 10 stig, þá
Rimaskóli með 6 stig og Lækjar-
botnaskóli með 4 stig.
í keppni 8.-10. bekkja sigraði
Húsaskóli með 13 stig en Rima-
skóli hlaut 4 stig. Veittur var far-
andbikar fyrir sigur í hverjum
flokki og hlaut Húsaskóli þá alla.
Aðalstyrktaraðili mótsins var
Trésmiðja Snorra Hjaltasonar.