Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Qupperneq 28
36
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ 1996
M
Anna Mjöll æfir fyrir Eurovision.
Ennþá ruglaðri
en venjulega
„Ég er orðin ennþá ruglaðri
en venjulega og mátti nú
kannski ekki við því. Aðalatrið-
ið er að muna í öllum látunum
að þetta er bara ævintýri."
Anna Mjöll, í Tfmanum.
Kunnum að semja af
okkur
„Utanríkisráðherra sagði á Al-
þingi að íslendingar hefðu þurft
að sýna að þeir gætu samið. En
þurftum við að sýna að við gæt-
um samið af okkur?“
Sighvatur Björgvinsson, í Alþýðublað-
inu.
Ummæli
Alveg eins orðið
íslendingur
„Ólympíuleikarnir eru öðru-
vísi mót og það er aldrei að vita
hverjir komast á pall. Það gæti
alveg eins orðið íslendingur."
Pétur Guðmundsson kúluvarpari, í
Morgunblaðinu.
Ekki til að taka
mark á
„Ég er satt að segja hissa á
þessum tillögum því mér finnst
þær lýsa svo mikilli andúð á
Ríkisútvarpinu. Þess vegna held
ég að það sé ekki mikil ástæða
til að taka mark á þeim.“
Svavar Gestsson, í Alþýðublaðinu.
Skýrsluna hefði átt
að semja í Valhöll
„Ég velti því fyrir mér hvort
ekki hefði verið nær að semja
skýrsluna í Valhöll frekar en á
kostnað íslenskra skattborgara."
Þórunn Sveinbjarnardóttur, í Alþýðu-
blaðinu.
Dauðarefsing
Dauðarefsing á sér langa sögu.
Má rekja hana allt aftur til ný-
steinaldar. Þetta sannaðist þegar
Tollund-maðurinn fannst í Dan-
mörku. í dag hafa hávær mót-
mæli gert það að verkum að flest
vestræn ríki eru búin að afnema
dauðarefsingu og það eru aðeins
Bandaríkjamenn sem hafa inn-
leitt hana á ný. Meðal þeirra
ríkja sem enn notfæra sér dauða-
refsingu er Kína þar sem um 500
manns eru tekin af lífi árlega.
Fyrsta þjóðin til að afnema
dauðarefsinu var smáríkið
Liechtenstein árið 1798.
Blessuð veröldin
Fjölmennasta
henging
Aldrei hafa fleiri menn verið
hengdir á einn gálga en þegar 38
Sioux-indíánar, voru líflátnir
skammt frá Mankato í
Minnesota í Bandaríkjunum
annan dag jóla 1862. Var þeim
gefið að sök að hafa myrt vopn-
lausa borgara. í síðari heims-
styrjöldinni, 22. júli 1944, lét nas-
istaforingi hengja í i hefndar-
skyni í einni lotu 50 Grikki úr
andspyrnuhreyfingunni.
Þokusúld sunnanlands og vestan
Yfir Suður-Grænlandi og fyrir
vestan Grænland eru aðgerðalitlar
lægðir en austur af landinu er víð-
áttumikil 1038 mb. hæð.
í dag verður súld eða þokusúld
sunnan- og vestanlands en úrkomu-
Veðrið í dag
lítið annars staðar. Suðvestangola
og skýjað sunnan- og vestanlands en
bjartviðri víða annars staðar í nótt
og í fyrramálið. Vestangola og hæg-
viðri á landinu á morgun.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
sunnan- og suðvestangola í fyrstu
en suðvestan- og vestangola og skýj-
að en úrkomulítið síðdegis. Hægari
og úrkomulaust í nótt og fyrramál-
ið. Hiti 6 til 9 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 22.22
Sólarupprás á morgun: 4.25
Síðdegisflóð í Reykjavík: 24.42
Árdegisflóð á morgun: 0.42
Veðriö kl. 6 í morgun:
Akureyri skýjaö 7
Akurnes þoka í grennd 8
Bergsstaðir skýjaó 10
Bolungarvík skýjaö 7
Egilsstaðir skýjaö 9
Keflavíkurflugv. súld 7
Kirkjubkl. súld 8
Raufarhöfn skýjaö 8
Reykjavík rigning og súld 7
Stórhöföi þoka 8
Helsinki alskýjaö 8
Kaupmannah. rigning 5
Ósló léttskýjað 6
Stokkhólmur skýjaö 5
Þórshöfn skýjaó 6
Amsterdam rigning 6
Barcelona þrumuveóur 15
Chicago alskýjaö 9
Frankfurt rigning 5
Glasgow léttskýjaó 5
Hamborg súld 5
London léttskýjaó 5
Los Angeles heióskírt 16
Lúxemborg hálfskýjaö 4
París skýjaö 6
Róm þokumóöa 15
Mallorca skýjaö 12
New York alskýjaö 12
Nice léttskýjaó 13
Nuuk snjókoma -2
Orlando skýjaö 22
Vin alskýjaó 9
Washington þokumóöa 14
Winnipeg léttskýjaó -4
7
> .'§3
11°
86
j*
y
-7C
3C
9 9
/i Ý /
8°
m
> ? ^■^Logn
Veðrið kl. 6 í morgun
Guðrún Gísladóttir, bikarmeistari í þolfimi:
Ánægjulegt að verða
stigahæst allra á mótinu
„Það var mjög gaman að sigra á
heimavelli fyrir framan þúsund
áhorfendur. Ég hef verið í öðru
sæti á stórmótum þrisvar sinnum
í röð svo það var kominn tími til
að sigra. Það sem gerði þennan
sigur enn ánægjulegri var að á
þessu móti var ég stigahæst allra
keppenda, hvort sem þaö var í
Maður dagsins
kvenna- eða karlaflokki, en meðal
þátttakenda í karlaflokki var ís-
landsmeistari karla,“ segir Guð-
rún Gísladóttir, bikarmeistari í'
þolfimi, en stutt er síðan sú
keppni fór fram á Akureyri. Guð-
rún er Akureyringur og er búin að
keppa I tvö ár í þolfimi, auk þess
sem hún hefur tekið þátt í Fitness-
keppni. Ásamt því að þjálfa sjálf
kennir Guörún þolfimi í Stúdíói
Púls sex daga vikunnar.
„Ég er búin að æfa þolfimi í
Guðrún Gísladóttir.
þrjú ár og keppa á fimm mótum
frá því ég hóf keppni. Áður æfði ég
fimleika í átta ár. Ég er ekki alveg
laus við fimleikana því ég þjálfa
krakka í fimleikum tvisvar I
viku.“
Það mætti halda að þetta væri
alveg fullt starf hjá Guðrúnu en
hún er auk þess i námi við kenn-
aradeild Háskólans á Akureyri og
var að ljúka öðru ári þar. Guðrún
sagöi að bikarmótið hefði verið
lokamótið á þessu tímabili: „Þráð-
urinn veröur tekinn upp í haust
og æft vel fyrir íslandsmótið en ég
er búin að taka tvisvar þátt í því,
var fyrst í þriðja sæti en í öðru
sæti síðast, og stefnan er enn upp
á við. Samkeppnin er mikil og
hópurinn sem tekur þátt í þolfimi-
mótum er mjög jafn þannig að
ekkert þýðir að slaka á.“
Guðrún var spurð hvort nokkur
tími væri fyrir annað en námið og
þolfimina. „Það er það ekki virka
daga en ég reyni aö nýta helgarn-
ar í önnur áhugamál sem eru
mörg. Ég hef gaman af að fara á
skíði og í sund, af ferðalögum og
að fara út að skemmta mér.“ I
sumar ætlar Guðrún að vinna á
Hótel Hörpu. Unnusti Guðrúnar er
Ágúst Herbert Guðmundsson,
körfuboltaþjálfari Þórs á Akur-
eyri. -HK
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1509:
Stafkarl
Myndgátan hér að ofan lýsir hvorugkynsorði
DV
Karólína Eiríksdóttir er eitt átta
íslenskra tónskálda sem á verk á
tónleikunum í Sóloni íslandusi.
í andlit sólar
ErkiTíð ’96 verður framhaldið
í kvöld kl. 20.00 á Sóloni ís-
iandusi en þá verða kammertón-
leikar sem hafa yfirskriftina í
andlit sólar og eru öll verkin eft-
ir íslensk tónskáld en annað að-
alverkefni ErkiTíðar er að flytja
íslenska samtímatónlist. Þau
Tónleikar
tónskáld sem eru höfundar verk-
anna í kvöld eru Karólína Ei-
ríksdóttir, Leifur Þórarinsson,
Páll ísólfsson, Áskell Másson,
Snorri Sigfús Birgisson, Gunnar
Reynir Sveinsson, Ámi Egilsson
og Þorkell Sigurbjörnsson. Ann-
að kvöld verða svo lokatónleikar
ErkiTíðar, söngtónleikar sem
hafa yfirskriftina Út úr haus.
Tónlistarkrossgáta
Lausnir sendist til Ríkisútvarpsins
Rás 2, Efstaleiti 105 Rvk. Merkt
Tónlistarkrossgátan
Bridge
Þetta spil birtist í danska blaðinu
Jyllands-Posten og kom fyrir í spila-
klúbbi í Frederikshavn. Þeim sem
skrifaði um spilið var ekki full-
kunnugt um hvort vestur hefði sýnt
snilldartakta í vörninni eða hvort
hann var einfaldlega heppinn
klaufi. Sagnir gengu þannig, norður
gjafari og enginn á hættu:
4 1032
V D2
4 ÁD7653
4 Á8
4 KG
* 87643
* KG98
* G5
4 ÁD9854
V Á9
4 42
* 1063
Norður Austur Suður Vestur
14 2* 24 pass
34 pass 34 pass
44 p/h
Útspilið hjá vestri var laufagosi
sem sagnhafi drap á ásinn. Nú spil-
aði sagnhafi spaða á drottningu og
vestur drap á kóng. Vestur spilaði
þá laufi, austur fékk slaginn á
drottninguna og spilaði næst laufa-
kóngnum. Suður átti lauf og nú gat
vestur tryggt sér slag á blankan
spaðagosann. En vestur virtist ekki
þurfa að hugsa sig um, hann henti
hjarta. Sagnhafi gekk út frá því sem
vísu að austur ætti spaðagosann
(myndir þú ekki gera það einnig).
Hann trompaði í blindum og svín-
aði næst spaðatíunni. Vestur fékk á
gosann og sagnhafi gat ekki komist
hjá því að gefa slag tU viðbótar á
hjarta. Ef vestur hefði hins vegar
trompað með spaðagosa, hefði sagn-
hafi einfaldlega hent hjarta í blind-
um og fengið 10 slagi. Það var svo
sannarlega heppileg yfirsjón hjá
vestri að henda hjarta, ef það var
ástæðan fyrir spilamennskunni.
ísak Öm Sigurðsson