Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.1996, Síða 32
FRÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eða er notað I DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum við fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
FÖSTUDAGUR 10. MAÍ1996
Helgarblað DV:
Troðfullt
af lesefni
í helgarblaði DV á morgun má
lesa viðtal við foreldra þriggja ára
drengs sem eytt hefur mestum hluta
ævi sinnar í sjúkrahúsi. Hann er
með fæðingargalla í smágörnunum
og þarf þvi að vera með næringu í
æð 18 tíma á sólarhring. Farið verð-
ur ofan í saumana á Friði 2000 og
ferill Ástþórs Magnússonar rakinn í
fréttaljósi. Þá verður Guðrún Pét-
.ursdóttir forsetaframbjóðandi í yfír-
heyrslu og einnig er rætt við Rúnar
Alexandersson eða Ruslan Ovt-
chinnikov, skærustu stjörnu íslend-
inga í fimleikum.' Auk þessa er
fjöldamargt annað efni við allra
hæfi í blaðinu.
Forsetaslagurinn:
Yfirgnæfandi lík-
ur á framboði
Jóns Baldvins
Samkvæmt heimildum DV eru yf-
irgnæfandi líkur á að Jón Baldvin
Hannibalsson, formaður Alþýðu-
flokksins, tilkynni framboð til emb-
ættis forseta íslands á næstu dög-
um. Búist er við yfírlýsingu þess
efnis strax éftir helgi. Til marks um
þetta eru stuðningsmenn Jóns farn-
ir að leita að húsnæði undir kosn-
ingaskrifstofu og fjársterkir aðilar
eru búnir að heita Jóni stuðningi.
Síðustu tvær vikur hefur þrýst-
ingur aukist verulega á Jón að fara
í framboð. Hann sagði í samtali við
DV í morgun að hann myndi taka
sér tíma til að ræða við það fólk sem
fast hefði sótt eftir framboði við þau
Bryndísi. Þrýstingurinn væri úr öll-
um áttum.
„Þetta er seint fram komið. Þess
vegna þarf að gefa því nauðsynlegan
tíma. Niðurstaðan mun ekki fara
framhjá neinum þegar þar að kem- ur,“ sagði Jón. -bjb
( , ER ÞÁ ÓFRIÐUR '96 ] l I KRINGUM FRIÐ 2000 I
&
L O K 1
Deilur milli Ástþórs Magnússonar og auglýsingastofunnar Eureka:
Auglysingaherferð
Friðar 2000 \ uppnámi
- valdamiklir aöilar kippa í spotta, segir Ástþór
Samningur Ástþórs Magnússon-
ar og samtaka hans, Friðar 2000,
við auglýsingagerðina Eureka er í
uppnámi. Lögmaður Ástþórs, Ró-
bert Árni Hreiðarsson, segir að
Eureka hafi vanefnt auglýsinga-
samninginn á margan hátt og því
hafi greiðslum verið haldið eftir.
Peningarnir séu hins vegar til og
sýnilegir.
„Eureka hefur ekki lagt fram
áætlanir um einstaka liði fram-
kvæmdarinnar né gert grein fyrir
því hvort að framkvæmdinni hafi
verið staðið hvað varöar dreifingu
auglýsinga og birtingu,“ segir Ró-
bert Árni Hreiðarsson lögmaður.
Eureka hefur annast gerð aug-
lýsinganna fyrir Ástþór Magnús-
son undir einkunnarorðunum
Virkjum Bessastaði en auglýsinga-
herferðin hefur veriö mjög áber-
andi um allt land og í Reykjavík
hafa auglýsingarnar einkum birst
á strætisvögnum og flettiskiltum.
Samkvæmt heimildum DV hljóðar
samningurinn við Eureka upp á
tæpar 30 milljónir króna en
hvorki Róbert Ámi né Ástþór vilja
staðfesta þá tölu.
Ástþór Magnússon segir við DV
að auglýsingar hans hafi ekki
birst á þeim stöðum þar sem þær
áttu aö birtast samkvæmt samn-
ingnum við Eureka og jafnvel ver-
ið teknar niður fyrr en samningar
gerðu ráð fyrir, svo sem flettiskilti
gegnt Stjórnarráði íslands, og svo
virðist sem valdamiklir aðilar hafi
kippt þar í spotta.
Heimildir sem DV telur áreiðan-
legar herma að kostnaður við
rekstur Friðar 2000 frá áramótum
sé ekki undir 50 milljónum króna
og eru stærstu liðirnir fyrrnefnd
auglýsingaherferð, hátíðakvöld-
verður í Perlunni nýlega og útgáfa
bókarinnar Virkjum Bessastaði
• sem prentuð var í 80-90 þúsun.Hum
eintaka.
Hvaðan koma allir þessir fjár-
munir? Ástþór Magnússon vildi
ekki svara því nú í morgun en
sagði að hann tæki þá af eigin fé
sínu. Hann kvaðst hafa komist í
álnir með viðskiptum með eigin
tölvuforrit og á flugrekstri, meðal
annars. Hann neitaði því að sjálfs-
eignarstofnun í Kaliforníu í
Bandaríkjunum, sem kennir sig
við Gandhi, hefði látið um 40 millj-
ónir króna í Bessastaðabaráttuna.
Þá neitar hann því að hún sé liður
í kosningabaráttu hans sjálfs til
forsetakjörs, eins og heimildar-
maður DV heldur fram.
-SÁ
Fagnaðarlátum ætlaði aldrei að linna að loknum tónleikunum í Háskólabíói í gærkvöld þegar Kristján Jóhannsson
þreytti frumraun sína á óperunni Otello eftir Verdi með Sinfóníuhljómsveit íslands, undir stjórn Ricos Saccanis. Auk
Kristjáns komu fram 8 einsöngvarar og Kór íslensku óperunnar. Eftir að söngvararnir höfðu margsinnis verið klapp-
aðir upp fór Kristján báksviðs, náði í reyktan lax og færði Rico og söngvurunum að gjöf. Kristjáni fannst laxinn meira
viðeigandi en blóm. Á myndinni veifar Kristján laxinum ásamt Luciu Mazzaria. Hann gaf þóknun sína í gærkvöldi til
Samtaka um byggingu tónlistarhúss og á seinni tónleikunum á morgun rennur þóknunin til styrktar uppbyggingu á
Flateyri. DV-mynd GVA
Veðrið á morgun:
Víöa
bjartviðri
Á morgun verður hæg breyti-
leg átt og víða bjartviðri, einkum
þó inn til landsins. Þó má reikna
með þokulofti með suður- og suð-
austurströndinni.
Það verða væn vorhlýindi á
landinu, víðast 10 til 15 stiga hiti
að deginum þar sem sólar nýtur.
Veðrið í dag er á bls. 36
Fundinn látinn
Sigurður H. Jónsson, maðurinn
sem lögreglan í Kópavogi lýsti eftir
í gær, fannst í nótt látinn.
Olís hækkar líka
Esso, Skeljungur og Olís hafa öll
ákveðið að hækka bensínverð um
1,90 kr. lítrann vegna hækkunar á
heimsmarkaði. Fjármálaráðuneytið
lækkar vegagjald um 82 aura á lítr-
ann og kemur í veg fyrir frekari
hækkun. Orkan bíður átekta.
-sv
Erlendrar konu saknað:
Kom hingað sem
nektardansari
Lögreglan í Reykjavík hefur lýst
eftir 24 ára gamalli ungverskri
konu, Angélu Csehó að nafni. Síðast
fréttist af henni á föstudag en þá
hringdi hún í íslenskan sambýlis-
mann sinn og sagðist vera á Sél-
fossi.
Angéla kom til Islands í janúar á
þessu ári. Hún vann hér fyrst sem
nektardansari á skemmtistað. Leit
lögreglu beinist bæði að Suðurland-
sundirlendinu en ekki er útilokað
að hún hafi farið úr landi. Vitni
segjast hafa séð hana í Leifsstöð en
það hefur ekki fengist staðfest.
Angéla var á bil af gerðinni Niss-
an Sunny, árgerð 1985, með númer-
inu Y-15733. Billinn er ófundinn en
hans hefur sérstaklega verið leitað
á svæðinu við Keflavíkurflugvöll.
-GK
btother.
Litla
merkivélin
loksins
með Þ og Ð
Nýbýlavegi 28, sími 554 4443
góðmálma
sími: 581-4757
HRINGRAS HF.
ENDURVINNSLA .