Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1996, Page 5
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
5
BHdshðfða 20-112 Roykjavík - Sfmi 587 1410
Fréttir
Könnunar-
stig en ekki
viðræður
um kaup
Vegna fréttar DV í gær um að við-
ræður væru að hefjast á milli Land-
helgisgæslunnar og danska sjóhers-
ins um kaup á einu skipa hersins
vill Hafsteinn Hafsteinsson, forstjóri
Landhelgisgæslunnar, ítreka að að-
eins er um að ræða einn af fleiri
möguleikum vegna skipakaupa.
Hafsteinn sagði að aðeins væri
um að ræða könnun á ýmsum kost-
um hvað varðar danskt herskip. Því
sé ekki um að ræða viðræður við
Dani um kaup heldur athugun á
slíkum kosti jafnt sem öörum mögu-
leikum sem hugsanlega eru í boði.
Verið velkomin til okkar
Landhelgisgæslan hefur fullan hug að á að eignast stórt varðskip:
Þaö vantar bara að
ráðherra opni budduna
LDtríkair
og fallegar handunnar
tréstyttur til í miklu úrvali.
Margar gerðir til
frá kr. 500,- lOcm.
segir Helgi Hallvarðsson, framkvæmdastjóri gæsluframkvæmda
Vædderen var á Seyðisfirði á dögunum og reyndist fara vel í höfninni þar.
Að sögn Helga Hallvarðssonar er hægt að snúa þessu skipi á punktinum.
DV-mynd Jóhann Jóhannsson
„Við erum nú bara að spá og
spekúlera. Það vantar fyrst og
fremst að ráðherrann opni budd-
una," segir Helgi Hallvarðsson,
framkvæmdastjóri gæslufram-
kvæmda, í samtali við DV.
Menn frá Landhelgisgæslunni
hafa undanfarið verið að skoða
danska varðskipið Vædderen með
það í huga að Gæslan eignaðist
sams konar skip. Vædderen er
3.000 tonn að stærð og hafa skip af
þessari gerð verið notuð til gæslu í
landhelgi Grænlands og Færeyja
undanfarin ár.
„Við erum að skoða það sem er
á boðstólum. Það eru fleiri skip
sem koma til greina en þetta hefur
marga kosti sem myndu nýtast
okkur vel. Það hefur stærðina
fram yfír núverandi varðskip og
myndi því henta vel til gæslu á
djúpslóð. Það væri allt annað líf
fýrir mannskapinn um borð að fá
skip með veltitönkum,“ sagði
Helgi.
Hann sagði einnig nauðsynlegt
að Gæslan hefði yfir að ráða skipi
sem væri ekki minna en stærstu
togararnir. Varðskipin Ægir og
Týr voru svo stór á sínum tíma en
eru það ekki lengur. Þá benti Helgi
á að skip af sömu gerð og Vædd-
eren hefðu reynst vel við erfiðar
aðstæður í Norðurhöfum og hönn-
un þeirra byggðist á reynslu sem
Danir hefðu aflað sér á löngum
tíma.
„Við þurfum ekki allan þann
búnað sem er í Vædderen. Þar eru
hertól sem við þurfum ekki og eins
kæmumst við vel af með tvær aðai-
vélar í stað þriggja. Þannig búið
ætti skipiö að ná 18 til 19 mílna
hraða og halda honum í slæmum
sjó,“ sagði Helgi.
Hann sagðist ekki vita til að
Vædderen væri til sölu enda væri
ekki sérstaklega áhugi á að skoða
það skip. Það væri fyrst og fremst
þessi gerð af skipum sem vekti
áhuga og hefði raunar gert það um
árabil.
Vædderen er þriggja ára gamalt
skip. Það hefur að jafnaði viðkomu
í Reykjavik þegar skipt er um
áhafhir og undanfarið hefur það og
komið viö á ísafirði, Akureyri,
Seyðisfirði og Vestmannaeyjum
þar sem kannað var hvort skipið
kæmist fyrir í höfnum þar. Svo
reyndist vera.
„Við öfundum þá svolitið af
þessum skipum. Það mætti nota
varðskip af þessari stærð til haf-
rannsókna á djúpslóð auk annarr-
ar þjónustu. Minni varðskipin
yrðu áfram notuð á grunnslóð,"
sagði Helgi.
Hann sagði að skip af þessari
gerð myndi kosta nýtt um tvo
milljarða íslenskra króna. Það er
þá án þyrlu. Um borð í Vædderen
er búnaður til að afgreiða bensín á
þyrlur á flugi en það er ekki í eldri
varðskipum gæslunnar. GK
> HYUflDFJI ILADA
Greiðslukjör til allt að 36 mánaða án útborgunar
RENAULT
GOÐIR MOTABUM BILAR
BMW 520ÍA 2000 ‘91,
ssk., 4 d., grár, ek. 110 þús. km.
Verö 1.860.000
MMC Lancer EXE ‘92,
beinsk. 4 d., grár, ek. 66 þús. km.
Verð 870.000
Honda Civic ‘91,
beinsk., 4 d., grár, ek. 98 þús. km.
Verð 740.000
Hyundai Elantra 1600 ‘92,
ssk., 4 d., blágrænn, ek. 37 þús. km.
Verð 840.000
Honda Civic ESi 1600 ‘92,
ssk., 4 d., rauður, ek. 75 þús. km.
Verð 1.090.000
Chevrolet Corsica ‘91,
ssk., 4 d., blár, ek. 48 þús. km.
Verð 890.000
Lada Sport 1700 ‘95,
beinsk. 3 d., hvítur, ek. 7 þús. km.
Verð 840.000
Ú a
. á - i' '-V'
qsúpss
Mazda 323 ‘90,
ssk., 4 d., svartur, ek. 91 þús. km.
Verð 750.000
BMW 316i 1600 ‘89,
beinsk., 2 d., rauður, ek. 98 þús. km.
Verð 720.000
Renault 19 GTS ‘90,
beinsk., 5 d., grár, ek. 46 þús. km.
Verð 620.000
MMC Galant 2000 ‘89,
ssk., 4 d., grár, ek. 134 þús. km.
Verð 830.000
Toyota Camry 4x4 ‘88,
beinsk., 4 d., grár, ek. 116 þús. km.
Verð 790.000
Hyundai Accent GS 1500 ‘95,
ssk., 3 d., rauður, ek. 11 þús. km.
Verð 1.060.000
Lada Samara ‘95,
beinsk., 5 d., rauður, ek. 11 þús. km.
Verð 530.000
Nissan Sunny 1600 ‘93,
ssk., 4 d„ rauður, ek. 57 þús. km.
Verð 1.020.000
Opid virku dugtt fru kl. 9 - / ÍS,
Imtgardaga 10-14
’iíIíteSIÍN
VHtt
NOTAÐIR BILAR
SUÐURLANDSBRAUT 12, SÍMI: 568 1200, BEINN SiMI: 581 4060