Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1996, Síða 7
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
7
Fréttir
Sum veitingahús borga engin gjöld og skipta reglulega um kennitölu:
Taka a
in af
meistararettind-
þessum húsum
- segir Brjánn Jónsson, framkvæmdastjóri Iðnnemasambands íslands
„Við þekkjum þau dæmi þar sem
fyrirtæki borga engin gjöld og lít-
inn skatt. Dæmi eru til um að gefn-
ar séu upp tekjur á fulliærða meist-
ara, virta menn í sínu fagi, sem eru
undir skattleysismörkum og það
segir okkur að menn eru að þiggja
laun fram hjá skattinum. í ein-
hverjum tilvikum skipta menn ár-
lega um kennitölu og það er að
mínu mati ófært hversu langt
menn geta gengið i því sambandi,"
segir Brjánn Jónsson, fram-
kvæmdastjóri Iðnnemasambands
tslands.
Brjánn segir að víða sé svínað á
nemum í sambandi við auka-
greiðslur vegna mikillar auka-
vinnu og hann vill að tekið verði
hart á þeim fyrirtækjum sem
brjóta af sér.
Skekkir samkeppnisstöðu
„Það skekkir samkeppnisstöðu
fyrirtækja í bransanum að sumum
líðist að haga sér eins og þeim sýn-
ist, bæði varðandi laun og gjöld, og
þetta á ekki að fá að viðgangast.
Vissulega er stærsti hlutinn í heið-
arlegum atvinnurekstri en að minu
mati þarf að taka harðar á hinum,
t.d. með því að svipta þessa menn
meistararéttindum,“ segir Brjánn.
Ríkistryggð laun
Brjánn nefnir dæmi um veitinga-
hús við Vesturgötuna í Reykjavík
þar sem nemi hafi farið aö krefja
eigandann um laun eftir tveggja
mánaða vinnu en fengið þá þau
svör að hann sæi enga ástæður til
þess að eyða peningum í að borga
laun þar sem þau væru ríkistryggð.
Brjánn segir, vegna fréttar DV í
gær um framreiðslunema á A.
Hansen, að það sé ekki rétt að
þjónanefndin hafl ekki komið sam-
an til þess að afgreiða mál nemans.
A. Hansen hafi einfaldlega ekki
uppfyllt þau skilyrði sem nauðsyn-
leg hafi verið.
„Við höfum samúð með þeim
nemum sem lent hafa í því að
vinna hjá mönnum sem ekki hafa
nemaleyfi en við erum því alger-
lega mótfallnir að þeir fái að fara í
sveinspróf. Þar með væri verið að
gefa vont fordæmi og það gengur
einfaldlega ekki upp að okkkar
mati.“ -sv
Forsetaframbjóðendurnir eru komnir á fullt í baráttunni sinni um Bessastaði. Pétur Kr. Hafstein hefur gert víðreist
að undanförnu. Farið um Norðurland vestra, Borgarfjörð, Suðurland og heimsótt Skagamenn. Þá hélt hann vinnu-
staðafund á dögunum ásamt Ingu, eiginkonu sinni, með starfsfólki Sjúkrahúss Reykjavík, áður Borgarspítala. Mynd-
in var tekin við það tækifæri þegar hjónin heilsuðu upp á nokkra af starfsmönnum sjúkrahússins. DV-mynd S
Naktar kanadískar flugfreyjur í sjónum
DV, Suöurnesjum:
„Ég ætlaði ekki að trúa mínum
eigin augum þegar ég horfði út um
gluggann og sá stelpurnar vera að
svamla í sjónum. Þær voru naktar
og höfðu greinilega gaman af að vera
í sjónum. Veðrið líka mjög gott - sól
og hiti. Þær hljóta að vera vanar
þessu í Kanada en hér er engin nekt-
arströnd," sagði barþjónn við Hafn-
argötuna, sem er við sjávarsíðuna í
Keflavik, i samtali við DV.
Stúlkurnar sem þar voru að synda
eru flugfreyjur hjá flugfélaginu
Canada 3000 sem millilendir á Kefla-
víkurflugvelli á leið sinni til Evrópu.
Áhöfnin dvelur á Hótel Keflavík og á
ein eða tvær áhafnir eiga hér frí um
helgar. Þá nota stúlkurnar tækifærið
og skoða sig um í bænum. Þær hafa
líka stundaö likamsrækt í Perlunni í
Reykjanesbæ.
„Þetta eru glæsilegar stúlkur svo
þetta var fögur sjón. Gott að aðrir
vissu ekki af þessu því þá hefði orð-
ið troðfullt af fólki. Ég hefði ekkert
haft á móti því að henda mér i sjóinn
til þeirra,“ sagði heppni barþjónn-
inn. -ÆMK
Keflavíkurflugvöllur:
Viðbygging og breyting
ar fýrir 500 milljónir
vegna Schengen
DV, Suðurnesjum:
Á fundi Framsóknarflokksins um
framtíð Keflavíkurflugvallar í Fjöl-
brautaskóla Suðumesja 13. maí kom
fram í máli Halldórs Ásgrímssonar
utanríkisráðherra að áætlaður kostn-
aður vegna viðbyggingar við flug-
stöðina vegna Schengen-samkomu-
lagsins væri um 400 miiljónir.
Viðbyggingin verður byggð við
enda landgangsins. Halldór kynnti
vel og greinilega breytingar á flug-
stöðinni en einnig verða gerðar ýms-
ar breytingar inni í flugstöðinni sem
kosta um 100 milljónir. Þá kom einn-
ig fram hjá Halldóri að verkið yrði
líklega boðið út innan árs.
Fundurinn var einn af 9 í fundaröð
Framsóknarflokksins um málefni
ferðaþjónustunnar. Sá þriðji í röð-
inni. Auk Halldórs var Friðjón Ein-
arsson, framkvæmdastjóri Markaðs-
og atvinnumálaskrifstofu Reykjanes-
bæjar, frummælandi. Margir áihuga-
menn og starfsmenn í ferðaþjónustu
mættu og var skipst á skoðunum um
framtíð Keflavíkurflugvallar.
Hörð gagnrýni beindist að Flug-
leiðum vegna einkaleyfa félagsins á
mörgum sviðum. Steindór Sigurðs-
son, framkvæmdastjóri Sérleyfisbif-
reiða Keflavíkur, var ekki ánægður
með aðstöðuna við flugstöðina. Sagði
hcma hvorki gerða fyrir þá sem
vinna í flugstöðinni né þá sem vinna
í kringum hana. Steindór sagði að
það tæki 3 daga að taka grjótið um-
hverfis stöðina í burtu svo að hægt
væri að fá almennilega aðstöðu fyrir
langferðabíla og aðra. Annar bætti
við og sagði að oft myndaðist 150-200
metra röð frá flugstöðinni í roki til
að koma fólki í rúturnar sem væru
langt frá dyrum flugstöðvarinnar.
-ÆMK
Halldór Ásgrímsson að lýsa þeim breytingum sem yrðu gerðar á flugstöð-
inni vegna Schengen-samkomulagsins. DV-mynd ÆMK
Brauðostur kg/stk.
20%
LÆKKUN
VERÐ NU:
593 kr.
kílóið.
VERÐ AÐUR:
kílóið.
ÞU SPARAR:
149 kr.
á hvert kíló.
OSIA-OG
SMIÖRSAIANSF