Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1996, Qupperneq 11
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ 1996
11
DV
Fréttir
Nýtt aðalskipulag í vinnslu á Flateyri:
Meginuppistaðan þétting
byggðar neðar á eyrinni
- engin íbúðarhús byggð í sumar
DV, Flateyri:
„Svæðið hefur talsvert verið
hreinsað. Við höfum fengið hópa á
kvöldin og um helgar úr nálægum
björgunarsveitum til að vinna að
hreinsunarstarfinu. Við erum núna
að hreinsa síðustu flákana með
höndum og erum að verða búin að
fara í gegnum allt í rústunum,"
sagði Kristján J. Jóhannesson,
sveitarstjóri á Flateyri, í -samtali
viö DV.
Mikið hreinsunarstarf hefur ver-
ið unnið að undanförnu í rústunum
eftir snjóflóðið á Flateyri sl. haust
þótt enn sé mikið verk þar óunnið.
„Verkið stöðvaðist á meðan beðið
var niðurstöðu úr viðræðum Ofan-
flóðasjóðs og Viðlagatryggingar um
uppgjör á þeim húsgrunnum sem
hreinsa þarf burt. Við erum búnir
að hreinsa þarna tvo sökkla sem við
fengum leyfi fyrir. Fleira höfum við
ekki fengið að eiga við og höfum því
þurft að bíða með svæðið svona.
Starfsmenn Græðis sf. vinna við að fjarlægja húsgrunn við Tjarnargötu á
Flateyri.
DV-mynd GS
Lyíjaverslun opnuð í Glerárhverfi á Akureyri:
Knýjandi þörf í hverfinu
- segir Bergþór Haraldsson lyfsali
„Þetta er geysistórt hverfi og það
var einungis tímaspursmál hvenær
menn opnuðu lyfjaverslun hér,“ seg-
ir Bergþór Haraldsson en hann mun
veita nýrri lyfjaverslun Kaupfélags-
ins í Sunnuhlíð á Akureyri for-
stöðu. Reiknað er með að hún verði
opnuð í haust.
Bergþór segir að lyfjaverslunin
verði rekin í tengslum við kjörbúð
KEA en verði þó með sérinngangi.
Aðspurður um lyfjaverð sagði hann
menn ekki vera farna að ræða það
því nægur tími væri til stefnu.
Hann sagði vöruverð á lyfjum hafa
lækkað örlítið á Akureyri í kjölfar
verðkönnunar DV á dögunum en
þess má geta að KEA á stóran hlut í
Stjörnuapóteki, öðru apótekinu í
bænum.
-sv
Á fundi hreppsnefndar með full-
trúum Ofanflóðasjóðs var ákveðið
að fara þá leið að heimamenn til-
nefndu einn matsmann og sjóður-
inn annan til þess að meta verðgildi
þess sem eftir er óbætt af húseign-
um. Ætti því að fara að styttast i að
endanlegt hreinsunarstarf komist á
fullan skrið,“ sagði Kristján.
GS
Guðrún Agnarsdóttir forsetaframbjóðandi lagði leið sína til Flateyrar nú ný-
lega. Hér skoðar hún afleiðingar snjóflóðsins á Flateyri undir leiðsögn Krist-
jáns sveitarstjóra.
Gœhjdýiorieicufinn
""“904 1750
Hringdu í síma 904 1750 og taktu þátt í léttum
og skemmtilegum gœludýraleik.
Allir sem hringja og svara þremur léttum
spurningum fara í vinningspottinn.
Fjórir heppnir þátttakendur fá veglega vöru-
útekt frá eftirtöldum verslunum:
Tokyo
s Goggar og trýni
Amazon
Dýraríkið
Tilkynnt verður um nöfn vinningshafa í DV
fimmtudaginn 23. maí.
Géða
Hringdu I dma 9041750
Verð 39,90 mínútan.
DV, Flateyri:
„Við fjölluðum um tillögu að nýju
aðalskipulagi á hreppsnefndarfundi
15. maí. Þar var lögð fram tillaga að
skipulagi til ársins 2015. Hrepps-
nefndin samþykkti að sú tillaga yrði
fullunnin til auglýsingar og hefur
verið kynnt skipulagsstjóra ríkis-
ins. Unninn verður kynningarbæk-
lingur og dreift inn á hvert heimili
í þorpinu,1: sagði Kristján J. Jó-
hannesson, sveitarstjóri á Flateyri.
Teiknistofa Gylfa Guðjónssonar
var fengin strax eftir snjóflóðið í
haust til að vinna tilllögur að nýju
aðalskipulagi fyrir Flateyri þar sem
þess yrði freistað að þétta byggðina
neðst á eyrinni nóg til þess að koma
fyrir íbúðum fyrir alla þá er búa
vildu á staðnum.
„Meginuppistaða þessa skipulags
er þétting byggðar neðar á eyrinni
með nýrri aðkomu inn í plássið sem
verður til muna skemmtilegri en sú
sem fyrir er. Svo koma snjóflóða-
varnargarðarnir fram á þessum til-
lögum. Það hefur aðeins verið
spurst fyrir um lóðir hjá okkur en
það er ekkert sem bendir til þess að
byggð verði íbúðarhús hér í sum-
ar,“ sagði Kristján.
Hreinsunarstarf í fullum gangi á Flateyri:
Erum að verða búin að fara
í gegnum allt í rústunum
- segir Kristján J. Jóhannesson sveitarstjóri