Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1996, Síða 36
L«TT«
Vinningstölur
20.5/96
15) (20) (28)
KÍN
FRETTASKOTIB
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháð dagblað
ÞRIÐJUDAGUR 21. MAI 1996
Hafnarfjörður:
Sameining
Hlífar og
Framtíðar-
innar
- viðræður hafnar
Viðræður eru hafnar milli for-
ystufólks Verkamannafélagsins
Hlifar og Verkakvennafélagsins
Framtíðarinnar í Hafnarfirði um
sameiningu félaganna.
Sigurður T. Sigurðsson, formaður
Hlífar, og Guðríður Elíasdóttir, for-
maður Framtiðarinnar, sögðu í
samtali við DV í gær að unnið yrði
áfram að málinu og stefnt að því að
sameiningin gæti átt sér stað á
(næsta ári.
Félögin eru svipað stór. í Hlif eru
um 1400 félagar en í Framtíðinni
um 1200. -S.dór
Landhelgisgæslan:
Sótti konu
á Akranes
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
í gærkvöld konu sem fallið hafði af
hestbaki á Akranesi. Hún hlaút ein-
hver höfuðmeiðsl en ekki reyndist
unnt að fá upplýsingar um eðli
þeirra hjá Sjúkrahúsi Reykjavíkur í
morgun. -sv
Jón líklega
ekki í
framboð
Ekki náðist í Jón Baldvin Hanni-
balsson í morgun en samkvæmt
heimildum úr innsta hring Alþýðu-
flokksins fer hann ekki í framboð til
' l^^mbættis forseta íslands. Reiknað er
með yfirlýsingu þess efnis frá hon-
um í dag því á morgun fer hann til
Vilníus í Litháen þar sem hann
verður gerður heiðursborgari og
gata nefnd eftir honum.
Jón hefur viljað bíða eftir Bryn-
dísi konu sinni frá Cannes áður en
hann gæfi út yfirlýsingu. Bryndís
kom til landsins í gærkvöldi. Sam-
kvæmt helmildum DV hefur Jón
verið undir miklum þrýstingi frá
sínum flokksmönnum að fara ekki í
framboð og vegur það þyngra en
skoðanakönnun sem hann lét gera
um hugsanlegt forsetafylgi. Könnun-
in sýndi talsvert minna fylgi en
Ólafur Ragnar hefur haft en þó áber-
andi meira en aðrir frambjóðendur,
samkvæmt heimildum DV. -bjb
Frumvarpið um stjórn fiskveiða:
Fast i sjávarútvegs-
nefnd vegna deilu
stjórnarflokkanna
- deilt um samkomulag ráðherra við trillukarla
„Ég get staðfest að frumvarpið
um stjóm fiskveiða er í biðstöðu í
sjávarútvegsnefnd vegna þess að
stjórnarflokkarnir koma sér ekki
saman um hvernig það á að vera.
Um efnislegar deilur þeirra verður
þú að ræða við stjórnarliöa," sagði
Steingrímur J. Sigfússon, formað-
ur sjávarútvegsnefndar Alþingis,
aðspurður hvað liði afgreiðslu
þessa frumvarps.
Hér er fyrst og fremst um að
ræða samkomulag það sem Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra gerði við smábátaeigendur.
Landssamband íslenskra útvegs-
manna hefur farið hamförum
vegna þessa samkomulags og kraf-,
ist breytinga.
, „Við framsóknarmnenn viljum
að stjórnun fiskveiða verði skoðuð
í heild sinni. Ekki bara hvað við-
kemur smábátum heldur öllum
fiskiskipaflotanum. Og þótt það
yrði gert tel ég ekki aö breyta
þurfi samkomulaginu við smá-
bátaeigendur," sagöi Hjálmar
Árnason alþingismaður í morgun.
Samkvæmt heimildum DV vilja
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
ekki að gerðar verði neinar breyt-
ingar á þessu frumvarpi né hliðar-
málum eins og línutvöfölduninni.
HeUdarskoðun, eins og Hjálmar
talar um, er heldur ekki á þeirra
dagskrá.
Halldór Ásgrímsson, utanríkis-
ráðherra og formaður Framsókn-
arflokksins, er kominn í þetta mál.
Hann hefur sagt opinberlega að
hann telji að breyta þurfi frum-
varpinu. Þorsteinn Pálsson sjávar-
útvegsráðherra hefur sagt að hann
telji að það eigi ekki að gera.
Ekki náðist í Stefán Guðmunds-
son alþingismann í morgun. Hann
á sæti i sjávarútvegsnefnd Alþing-
is og mun honum hafa mislíkað
margt í vinnubröðum sjálfstæðis-
manna í þessum málum. Ýmsir
þingmenn, sem DV hefur rætt við,
segja að þessi hnútur verði ekki
auðleystur hjá stjórnarflokkunum.
-S.dór
ÍWi. .
*jSi.ru
smrn
f
r
r
'V*»vr
i
Sumarblíðan hefur góð áhrif bæði á andlega og líkamlega heilsu landans eins og glöggt mátti sjá í Sundlaug Kefla-
víkur í gær. Þar var hlaupinn galsi í mannskapinn og ungviðið tókst á með látum í grunnu lauginni.
DV-mynd Brynjar Gauti
Canada 3000:
Uppistand
þegar
farþegi hvarf
í
I
Farþegi hvarf úr vél Canada 3000
sem millilenti í Keflavík á leið til
Lundúna í gærdag. Starfsfólk hóf
þegar óformlega leit að sprengju í
vélinni og fólk var fengið til þess að
bera kennsl á farangur sinn. Sam-
kvæmt upplýsingum starfsmanns á
Keflavíkurflugvelli í morgun barst
tilkynning frá flugfélaginu ytra
skömmu eftir að leitin hófst um að
um væri að ræða íslending og að
hann hefði verið farangurslaus.
„Þetta kallar á nokkurt uppistand
og er mjög óþægilegt fyrir alla aðila.
Það hefði verið eðlflegt af þessum
farþega að láta vita af sér og spara
okkur vinnu og óþægindi. Canada
3000 hefur ekki leyfi til þess að fljúga
með farþega til landsins nema á
ákveðnum dögum og það leyfi var
ekki fyrir hendi í gær,“ sagði starfs-
maðurinn. -sv
Dyntótt eins og
embættismaður
„Hún er dyntótt og erfltt að hitta á
hana. Það er helst um hádaginn að
hún gefur sig,“ sagði Valentínus Óla-
son, stýrimaður á Höfrungi AK, í
samtali við DV í morgun.
Þeir á Höfrungi hafa einnig mátt
þola dynti embættismanna síðustu
daga því um helgina var þeim vísað
út úr lögsögunni við Jan Mayen
vegna þess að embættismönnum í
Noregi og á íslandi hafði ekki unnist
timi til að gefa út leyfi til veiðanna.
Höfrungur var með um 900 tonn
sem landað verður á Akranesi. Síldin
fékkst i þremur köstum um 15 mílur
suður af lögsögumörkunum við Jan
Mayen, inni í Síldarsmugunni. Er
síldin átufull og fer í bræðslu.
í gær var endanlega gengið frá
reglum varðandi veiðar íslensku bát-
anna við Jan Mayen og verður að til-
kynna með minnst sex tíma fyrirvari
ætli menn þar inn í landhelgi. -GK
Nýtt varðskip:
Danska nefndin
farin heim
Þriggja manna sendinefnd Dana
hélt af landi brott í gær eftir að hafa
átt fundi með fulltrúum Landhelgis-
gæslunnar og kynnt þeir tæknilega
kosti varðskipa eins og danska
varðskipsins Vædderen. Ekki var
rætt um verð á slíku skipi.
Að sögn viðskiptafulltrúa danska
sendiráðsins hafa Danir mikinn
áhuga á að selja skip af þessu tagi
til íslands og var fulltrúi skipa-
smíðastöðvarinnar, sem smíðaði
Vædderen fyrir þremur árum, með
í fór. -GK
Veðrið á mor^un:
Aðgerðalítið
veður
Gert er ráð fyrir austlægri
eða norðaustlægri átt. Dálítil
súld eða rigning verður með
suðaustur- og austurströndinni
en annars staðar að mestu
þurrt og skýjað með köflum.
Hiti verður á bilinu 3 til 5
stig á Norðaustur- og Austur-
landi en 7 til 13 stig annars
staðar.
Veöriö í dag er á bls. 36
HANN FÆR ÞÓ GÖTU-
NAFN í SÁRABÆTUR
FYRIR BESSASTADI!
Niðurrif
stálskipa
581-4757
BlSpHHRINGRÁS HF.
ENDURVINNSLA
brother |&
tölvu-
límmiða- ^
prentari
Nýbýlavegi 28 - Slmi 554-4443