Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 2
2 fréttir LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 J-j’V Skoðanakönnun Stöðvar 2 og DV á fylgi forsetaframbjóðenda: Olafur enn langefstur en Guðrún sækir mest á - bilið milli Ólafs Ragnars og Péturs styttist en fylgi Ástþórs mælist svipað Fylgi forsetaframbjóðendanna - niöurstaða skoðanakönnunar DV og Stöðvar 2 - Skoðanakönnun DV, maí '96 Skoðanakönnun DV 8. iún. '96 Ólafur Ragnar Grímsson Pétur Kr. Hafstein Guðrún flgnarsdóttir 2,1 3,2 3,0 Ástþór Magnússon DV Ólafur Ragnar Grímsson er enn langefstur í kapphlaupinu um for- setastólinn á Bessastöðum þótt bilið milli hans og Péturs Kr. Hafstein hafi minnkað. Guðrún Agnarsdóttir bætir mestu við sig en Ástþór Magnússon heldur sínu. Þetta eru helstu niðurstöður nýrrar skoðana- könnunar Stöðvar 2 og DV sem gerð var á fylgi forsetaframbjóðenda af markaðsdeild Frjálsrar fjölmiðlunar hf. í fyrrakvöld. Þetta er fyrsta könnunin sem gerð er eftir að Guð- rún Pétursdóttir dró framboð sitt til baka sl. miðvikudag. Úrtakið í könnuninni var 600 manns. Jafnt var skipt á milli kynja sem og höfuðborgarsvæðis og lands- byggðar. Spurt var: „Hvern af þess- um forsetaframbjóðendum kýst þú: Ástþór Magnússon, Guðrúnu Agn- arsdóttur, Ólaf Ragnar Grímsson eða Pétur Kr. Hafstein?" Af þeim sem tóku afstöðu nefndu 46,8 prósent Ólaf Ragnar, 30,8 pró- sent Pétur, 19,4 prósent Guðrúnu og 3 prósent nefndu Ástþór. Fleiri taka afstöðu AUs tóku 73 prósent úrtaksins af- stöðu í könnuninni sem þýðir að 27 prósent voru óákveðin eða neituðu að svara spumingunni. Þetta er heldur hærra hlutfall þeirra sem tóku afstöðu miðað við síðustu könnun Stöðvar 2 og DV sem fram fór 8. júní sl. Sé tekið miö af úrtakinu öllu þá sögðust 34,2 prósent ætla að styðja Ólaf Ragnar, 22,5 prósent Pétur Kr. Hafstein, 14,2 prósent Guðrúnu Agn- arsdóttur og 2,2 prósent sögðust kjósa Ástþór Magnússon. Miðað við síðustu könnun í byrj- un júní hefur fylgi Ólafs Ragnars minnkað úr 49,4 prósentum í 46,8 prósent, eða um 2,6 prósentustig. Frá könnun DV í april hefur fylgi Ólafs minnkaö um 14,2 prósentu- stig. Greinilegt er að fylgi Guðrúnar Pétursdóttur, sem var rúm 10 pró- sent miðað við könnun Stöðvar 2 og DV 8. júni, fer nokkuð jafnt yfir á Pétur og Guðrúnu Agnars. Fylgi Péturs fer úr 25,1 prósenti í 30,8 pró- sent nú, eykst því um 5,7 prósentu- stig. Eins og áður sagði bætir Guðrún Agnarsdóttir mestu við sig frá síð- ustu könnun. Hún var þá með 12,3 prósenta fylgi en er nú með 19,4. Hún bætir við sig 7,1 prósentustigi. Hlutfallslega eykst fylgi hennar um 58 prósent. Ástþór Magnússon heldur nokk- urn veginn sínu. í síðustu könnun mældist hann með 3,2 prósenta fylgi, miðað við þá sem afstöðu tóku, og er núna með slétt 3 prósent. Ólafur Ragnar vinsælastur á landsbyggðinni Sé litið á niðurstöðumar eftir kynjum kemur aftur í ljós að fram- bjóðendumir njóta allir meirihluta- stuðnings kynsystkina sinna. Frá síðustu könnun hafa hlutföllin þó ekki breyst mikið. Helst er að fylgi Péturs hefur jafnast eftir kynjum. Karlar em hlutfallslega fjölmenn- astir í liði Ástþórs og konur fjöl- mennastar hjá Guðrúnu, eða nær 70 prósent af hennar stuðningsmönn- um. Þetta sést nánar á meðfylgjandi grafi. Ef svörin em skoðuð eftir búsetu kjósenda er áberandi hvað Ólafur Ragnar nýtur mikils fylgis á lands- byggðinni, miðað við aðra frambjóð- endur, sem skipta fylgi sínu nokkuð jafnt milii landsbyggðar og höfuð- borgarsvæðis. Sömuleiöis er athygl- isvert hversu margir kjósendur á höfuðborgarsvæðinu em óákveðnir. Af hópi óákveðinna koma 60 pró- sent af höfuðborgarsvæðinu. í hópi óákveðinna á landsbyggðinni eru konur helmingi fleiri en karlar. Tæpur fjórðungur tilbúinn að kjosa annan í könnun Stöðvar 2 og DV var jafnframt spurt hvort kjósendur væra tilbúnir til að skipta um skoð- un ef þeirra frambjóðendur væru ekki aðrir af tveim^r efstu síðustu daga fyrir kosningar, miðað við skoðancikannanir. Spurt var hvort þeir myndu kjósa annan, og þá hvern. Miðað við allt úrtakið sögð- ust 22 prósent ætla að kjósa annan, rúm 64 prósent ætluðu ekki að kjósa annan, 9 prósent vora óákveðin og 4,8 prósent neituðu að svara. Ef svörin voru skoðuð innan hvers stuöningshóps frambjóðenda kom í ljós aö flestir fylgismanna Ólafs Ragnars, sem sögðust myndu kjósa annan, nefndu langflestir Guðrúnu Agnarsdóttur. Pétur Haf- stein var þar langt á eftir. Svipaða sögu er að segja af stuðn- ingsmönnum Péturs. Þeir sem ætl- uðu að kjósa annan vildu langflestir Guðrúnu og Ólafur var sjaldan nefndur. Þeir í hópi Guðrúnar, sem sögð- ust myndu kjósa annan ef kannanir sýndu að hún væri ekki í tveimur efstu sætum, skiptust jafnt á Ólaf Ragnar og Pétur. Engir nefndu Ást- þór í þessu sambandi. Meirihluti stuðningsmanna Ást- þórs var tilbúinn að kjósa annan. Af þeim nefndu flestir Guðrúnu, síðán Ólaf og loks Pétur. -bjb Fylgi frambjóðenda eftir kynjum Konur Karlar cf Ólafur Ragnar Grímsson cf Pétur Kr. Hafstein Guðrún Agnarsdóttir cf Astþór Magnússon L 43% 57/ 5S3íSSg§§p|||g|g 4 •5% 55°/< 68% 32% BaaMÍip^pa r í8% 62% 1 áÉlíÍi; DV stuttar fréttir Fer fyrir brjóstið Vigdís Finnbogadóttir, for- seti íslands, segir í Veru að um- ræða um að tími sé kominn til að fá karl í forsetaembættið fari í fyrir brjóstið á sér. Laxeldisfyrirtæki í þrot Sveinseyrarlax ehf. hefur óskað eftir að verða tekið til gjaldþrotaskipta. Nýrnaveiki hefur greinst i laxi í stöðinni og verð á eldislaxi hrunið. ; Vöruinnflutningur jókst Vörainnflutningur var 20% meiri fyrstu fjóra mánuðina miðað við sama tíma í fyrra. Innflutningur fólksbOa jókst langmest eða um 50%. Hagstæó vöruskipti Vöraskiptajöfnuður verður líklega hagstæöur um 3,6 millj- | arða í ár. Hann var hagstæöur um 13,4 milljarða í fyrra. -GHS Rangfærslur Astþórs Magnússonar leiðréttar í umræðuþætti Stöðvar 2, með for- setaframbjóðendum í fyrrakvöld, hélt Ástþór Magnússon því fram að fylgi hans hefði aukist mjög í skoð- anakönnunum DV. Þetta er ekki rétt hjá frambjóðandanum. Hann vitnaði til daglegrar atkvæðagreiðslu í blað- inu en ekki skoðanakönnunar. Þar er spurt: Hvaöa frambjóðanda viit þú sem forseta íslands? Á þessari at- Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 9041996. 39,90 kr. mínútan 1 Ástþór Magnússon Qðubrún Agnarsdóttlr ’Mólafur Ragnar Grímsson fSlpétur Hafsteln 904 1996 Hvaða frambjóðanda vilt þú sem forseta íslands? Þetta er dagleg atkvæöagreiðsla en ekki skoðanakönnun kvæðagreiðslu, þar sem fólk hringir inn að vild, og skoðanakönnun er reginmunur enda er það skýrt tekið fram i blaðinu. Ástþóri var bent á þetta á Beinni línu DV daginn fyrir Stöðvar 2 þátt- inn. Hann talaði því gegn betri vit- und í sjónvarpsþættinum þegar hann sagði fylgi sitt hafa aukistjí skoðanakönnunum DV. 28% AM ORG PH GA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.