Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 16
16
LAUGARDAGUR 22. JUNÍ 1996
Glatt á hjalla í vistarverum forsetaframbjóðendanna:
Eldhús forsetaframbjóðendanna
eru jafn ólík og þeir eru margir. DV
ákvað að líta inn í eldhúsið hjá
þeim öllum og kanna útlit þeirra og
sérkenni. Eldhúsin reyndust af öll-
um stærðum og gerðum og var eld-
hús Ólafs Ragnars áberandi minnst
þeirra sem áttu eldhús. Ástþór sagð-
ist hafa selt eldhúsið sitt í Bretlandi
og borða á veitingastöðum um þess-
ar mundir. Hann segist einnig láta
ofan í sig alls kyns skyndimat eins
og pitsur, pylsur og hamborgara þar
sem hann ætlaði að búa í ferðatösku
eitthvað um sinn. Guðrún Agnars-
dóttir státar af stóru og opnu eld-
húsi og borðstofu þar sem fjölskyld-
an safnast saman. Eldhús Péturs
Hafstein er látlaust og meðalstórt.
Samverustaður
fjölskyldunnar
„Eldhúsið er miðdepillinn í hús-
inu en þar vinna allir við borðið,
tala saman og borða. Þegar við inn-
réttuðum ákvað ég að eldhús og
borðstofa yrði ein heild,“ segir Guð-
rún Agnarsdóttir forsetaframbjóð-
andi þegar DV leit á eldhúsið henn-
ar.
í þessari stóru vistarveru Guð-
rúnar og fjölskyldu hennar er mikið
skápapláss. Hlýlegar innréttingar,
hvítir skápar og viðarborð ásamt
stofublómum setja hlýlegan heildar-
svip á herbergið. Rimlagardínurnar
eru í stíl við innréttinguna og auka
enn á heildarsvipinn. Eldhúsáhöld-
in hanga á risastórri viftu og mikið
er um smáhluti hér og þar sem allir
eiga sinn stað í eldhúsinu.
„Fyrstu árin höfðum við bókahill-
ur í stað innréttingar. Þegar hún
loksins kom vildum við hafa hana
svolítiö gamaldags og hlýlega. Ég er
kannski yfirverkstjóri I eldhúsinu
en í seinni tíð skiptumst við á að
elda og eigum vissa daga í viku.
Hver og einn sérhæfir sig í sínum
réttum þannig að við borðum mjög
fjölbreyttan mat,“ segir Guðrún.
Guðrún skiptir sér ekki af því
hvað og hvernig hinir meðlimir fjöl-
skyldunnar elda. Hún segist eiga öll
rafmagnstæki sem hún þurfi en hafi
fyrir stuttu fengið mixara sem hún
sé því miður ekki farin að læra á.
Einfaldur matur verður ofan á á
hennar heimili þar sem fjölskyldu-
meðlimimir vinna allir mikið. Guð-
rún segist hafa gaman af því að elda
fjölbreyttan og góðan mat en tíminn
hafi verið naumur undanfarið
vegna anna í forsetaframboði.
Guðrún Agnarsdóttir í rúmgóðu og hlýlegu eldhúsi sínu.
Ástbór seldi
eldbusið
Forseta-
frambjóð-
andinn
Ástþór
Magnús-
son sagðist
ekki eiga
neitt eld-
hús þegar
hann var
spurður
hvort
hægt væri
að taka
mynd af
honum í
eldhúsinu.
„Ég
seldi ein-
býlishúsið
mitt í
Bretlandi
þannig að ég á ekkert eldhús eins og
er. Ég bý hjá mömmu núna en ég
geri ekkert þar nema athuga hvort
hún á til karamellur. Ég borða á
veitingastöðum og fæ mér oft
skyndimat; pitsur, hamborgara og
pylsur. Ég er ekkert voðalega mikill
eldhúskarl og þetta á ekki við mig.
Ég á ekkert heimili á íslandi enn þá
og á mér ekkert sérstakt draumaeld-
hús. Mig dreymir frekar um góðar
konur en eldhús," segir Ástþór.
Minnsta eld-
húsið en
besti mat-
urinn
Astþór Magnússon ásamt Hörpu Karlsdóttur, unnustu sinni, boröar úti þar sem Astþór seldi
eldhúsiö sitt.
„Þetta
er
minnsta
eldhúsið
en þar er
fram-
leiddur
besti mat-
urinn.
Guðrún
Katrín
er for-
stjóri í
eldhúsinu. Við hin erum hjálpar-
kokkar hennar. Guðrúnu Katrínu
þykir eldhúsið stundum óþarflega
lítið en mér finnst það þægilega
stórt,“ segir Ólafur Ragnar Gríms-
son.
Eldhús Ólafs Ragnars og Guðrún-
ar Katrínar Þorbergsdóttur er á
nokkrum fermetrum. fnnréttingin
er frá 1969, úr viði með mahóní-
spónaplötum. Mahóní var ekki í
tísku þá en hefur komist í tísku
undanfarin ár. Eldhús Ólafs er
minna en hinna frambjóðendanna
sem eiga eldhús. Út af því er borð-
stofa þar sem fjölskylan borðar sam-
an morgunmat. Samverustundir er
vart hægt að stunda í eldhúsi Ólafs
því ekki komast fleiri fyrir en tveir
í einu. Plássið er vel nýtt og eldhús-
áhöld hanga á veggjum og skálar og
aðrir hlutir standa ofan á eld-
húsinnréttingunni. Þarna er á ferð
sjarmerandi lítið eldhús sem þó
gæti reynst erfitt í jólabakstrinum.
Ólafur og Guðrún Katrín státa af
uppþvottavél og algengustu raf-
magnstækjum sem heimili þarfnast.
„Þegar ég valdi innréttinguna bjó
ég hérna með foður mínum en við
skipulögðum eldhúsiö í samráði við
góða menn. Garðar Halldórsson,
sem nú er húsameistari ríkisins,
skólabróðir minn, teiknaði innrétt-
inguna," segir Ólafur Ragnar.
Sameiginleg yfirráð
„Við tókum þátt i skipulagningu
eldhússins og endurnýjuðum inn-
réttinguna þegar við fluttum inn.
Eldhúsið er mikið notað og er það
fjörugur samverustaður. Þeir sem
koma óvænt, vinir og kunningjar,
setjast gjarna í eldhúsið," segir Pét-
ur Kr. Hafstein forsetaframbjóðani.
Eldhús Péturs og Ingu Ástu er
rúmgott, ljósmálað með hvítum inn-
réttingum og hvítum flísum á veggj-
um. Eldhúsið er skrautlítið og ein-
falt. Viðurinn á innréttingunni og á
borðum brýtur upp hvíta litinn
ásamt bláleitum gluggatjöldum.
Borðkrókurinn er sér þar sem við-
arstólar og viðarborð í stíl við inn-
réttinguna standa.
Pétur og Inga Ásta deila með sér
ábyrgðinni á eldhúsinu. Þau eiga öll
helstu rafmagnstæki eins og ör-
bylgjuofn, uppþvottavél og vöfflu-
jám. Fjölskyldan borðar saman á
kvöldin f eldhúsinu.
-em
Pétur Kr. Hafstein tekur til hendinni í eldhúsinu sínu þar sem hann deilir yfirráðum með konu
sinni, Ingu Ástu Hafstein.
Olafur Ragnar Grímsson fær sér kaffi í litla eldhúsinu sínu meö mahóní-innréttingunni.