Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 47

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 47
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 55 LAUGAVEGI 170 • SlMI 540 50 BO Skandia Þær ráöa ríkjum í Ríís-húsi. Margrét Guömundsdóttir og Jóhanna Guðmundsdóttir sem eitt sinn keppti um titilinn Feguröardrottning íslands. Það er óþarfi að standa í biðröð vegna innlausnar spariskírteina ríkissjóðs, komdu við og fáðu þér kaífibolla og ráðgjafar Skandia munu finna lausn sem hentar þér. Við erum að Laugavegi 170. DV, Hólmavík:______________________ Leitun mun að húsi sem tekið hefur jafnmiklum stakkaskiptum á jafnskömmum tíma og svonefnt Ríís-hús á Hólmavík. Frá því í mars, þegar fyrst var verulega haf- ist handa um endurbætur, hefur það breyst frá því að vera ein óhrjá- legasta bygging staðarins, með salt- og sementsleifum gömlu pakkhús- sáranna ásamt járnarusli og ein- angrunarsalla og hluti járnklæðn- ingarinnar blakti sem lauf í snörp- um vetrarvindum þessarar norð- lægu byggðar í það að vera, bæði hið ytra sem hið innra, eitt hið glæsilegasta hús þessa lands, sem myndi sóma sér vel sem móttöku- staður hvaða þjóðhöfðingja sem væri til veisluhalda sem og vin- mæla. Ríís-húsið á Hólmavík á sér merka sögu væri hún öll skráð. Það er kennt við danskan kaupmann, Richard Peter Ríís, sem var þar verslunarstjóri. Húsið var flutt til landsins tilhöggvið frá Noregi og fullbúið sem verslunarhús og íbúð verslunarstjóra 1897 eða fyrir tæp- um 100 árum. Þar var verslunar- starfsemi í áratugi eða þar til Kaup- félag Steingrímsfjarðar yfirtók nær alla þætti verslunarstarfsemi á þessu svæði fyrri hluta þessarar aldar. í áratugi bjuggu í húsinu ein og oft 2 fjölskyldur. Þá var jafnframt i þeim hluta sem upphaflega var pakkhús geymdur margs konar varningur fyrir ýmsa aðila, s.s. sem- ent. Þar var einnig um tíma unninn fiskur. Á áttunda áratugnum var gerð tilraun til að endurhefja þar verslunarrekstur en sú tilraun stóð aðeins í tæp 3 ár. Magnús H. Magnússon, rafvirkja- meistari á Hólmavík, og hans fjöl- skylda eignuðust húsið fyrir nokkr- um árum. Þau tóku í ár höndum saman við marga aðila, bæði innan héraðs og utan, sem ekki vildu að þessi merka bygging, sem er elsta hús staðarins, grotnaði niður á ein- hverju árabili og ylli sjónmengun og jafnvel slysahættu þeim sem um kauptúnið færu. Kallaðir voru til sérfræðingar til að kanna inn- og burðarviði hússins og komust þeir vísu menn að því að þeir væru með öllu óskemmdir. Aðeins fannst fúi og feyskja í timbri frá seinni tíma viðgerðum og endurbótum. Með samþykki húsfriðunarnefnd- ar var farið í endurbæturnar en reynt eftir megni að hin upphaflega ásýnd þess og útlit allt nyti sín sem best og væri í heiðri höfð. Allir burðarviðir eru þeir sömu og upp- haflega voru settir ásamt hluta veggklæðningar. Stigar eru þeir sömu og gólfborð efstu hæðar, önn- ur gólfklæðning er rekaviður, feng- inn hjá Pétri rekabónda og sögunar- manni í Ófeigsfirði á Ströndum. All- ir hafa hinir gömlu innanstokks- munir verið fágaðir og prýddir og nýir settir upp í sama stíl með hlið- sjón af starfsemi sem ákveðið er að verði í húsinu. Arkitekt við endurbygginguna var Arinbjörn Vilhjálmsson og hef- ur honum tekist einkar vel að að- laga nýtt og breytt hlutverk að um- gjörð þessarar gömlu byggingar. Þá sá Erlendur Magnússon frá Hvols- velli um smíðavinnu og útskurð sem er haglega unnið. Þar má m.a. sjá marga muni úr rekaviðnum af Ströndum og gott sýnishorn þeirra möguleika sem vinnsla úr þeim get- ur boðið upp á. í útskurðinum má sjá margs konar tákn, Ægishjálm- inn sem er merki sýslunnar, nokkr- ar útleggingar af honum ásamt ýms- um táknum frá galdratrú sem Strandamenn voru nokkuð kunnir fyrir á öldum áður. Flestir af iðnaðarmönnum staðar- ins komu að endurbyggingunni ásamt fjölmörgum ófaglærðum sem allir lögðu sitt af mörkum til að mögulegt yrði að hrinda þessu í framkvæmd á jafn skömmum tíma og raun bar vitni. Magnús H. Magnússon sagði við opnunina 16. júní að hann vonaðist til að þetta framtak yrði byggðarlag- inu til framdráttar og öllum íbúum þess til nokkurs sóma og hann tryði því að þetta, ásamt mörgu öðru, yrði lyftistöng atvinnulífinu með aukinni komu ferðamanna á þenn- an stað landsins sem væri um margt sérstakur og hefði upp á eitt og annað forvitnilegt og óvenjulegt að bjóða. í frásögn sinni af hinni margháttuðu starfsemi sem í hús- inu hefði verið gat hann þess að Hólmvíkingurinn fróði, Ragnar Valdimarsson, hefði sagt sér að eitt sinn hefði þar farið fram þrefalt brúðkaup. í húsinu verður alhliða veitinga- starfsemi. Það verður í sumar opn- að kl. 11.30 og um helgar verður boðið upp á lifandi tónlist. Húsið hefur fengið nafnið Café Ríís. Við opnunina spilaði og söng tríó staðarins nokkur lög, m.a. ljóð eftir sveitarstjórann á Hólmavík, Stefán Gíslason. Þar segir á einum stað: „Nú er aftur líf í Ríís“. Kjöldi gesta var við opnunina, sumir langt að KEYPTIR PÚ SPARISKÍRTEINI AF ÖNNU HEIÐDAL 1986? Anna og aðrir ráðgjafar Skandia bjóða skiptikjör á spariskírteinum og geta auk þess bent á aðra fj árfestingarmöguleika. jjpóy Auglýsing frá ® samgönguráðuneyti vegna stöðvunar á starfsemi dönsku ferðaskrifstofunnar Wihlborg Rejser hér á landi Eins og kunnugt er af fréttum hefur ráðuneytinu verið tilkynnt að hætt hafi verið við allar þær flugferðir milli íslands og Danmerkur sem danska ferðaskrifstofan Wihlborg Rejser seldi farmiða í en samstarfsaðili hennar hér á landi nefndist Bingó ehf. Ráðuneytið hefur þegar gert ráðstafanir til að tryggja heimflutning þeirra sem hafa byrjað ferð á vegum þessara aðila. Vegna þessarar starfsemi var lögð framtrygging en samkvæmt lögum um skipulag ferðamála nr. 117/1994 er tryggingunni ætlað að mæta kostnaði vegna heimflutnings farþega og til endur greiðslu farmiða sem kaupendur eiga ekki kost á að nýta sökum þessarar rekstrarstöðvunar. Ekki er Ijóst að hvaða marki tryggingarféð hrekkur til greiðslu krafna sem lýst kann að verða. Þeir sem keyptu farmiða af dönsku ferðaskrifstofunni Whilborg Rejser og hafa ekki getað nýtt sér farmiðann eða fengið hann endurgreiddan eiga þess kost að lýsa kröfum sínum vegna þessara viðskipta fyrir 1. ágúst nk. Kröfulýsing skal send Samgönguráðuneytinu, Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, 150 Reykja vík. Með kröfulýsingu skal fylgja frumrit greiðslukvittunar og farmiði. Samgönguráöuneytið, 20. júní 1996. Ríís-húsið á Hóimavík: Sæmandi þjóðhöfðingjum til veisluhalda og vinmæla komnir. Undruðust flestir það stór- virki sem unnið hefur verið á skömmum tíma við að bjarga frá eyðileggingu einu elsta og merkileg- asta húsi í þessum landshluta og gera það svo vel úr garði sem raun ber vitni. -GF *************************** GÍTARINN EHF. Laugavegi 45 - s. 552 2125 Útsala á kassa- og rafmagnsgíturum. Kynningarverð á ART Multieffectum. Vegna gífulegrar sölu vantar í sölumeðferð hljóðfæri og magnara af öllum gerðum. ************************ Ríís-húsið á Hólmavík. DV-myndir Guðfinnur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.