Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 4
4 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 Dagur með Ólafi Ragnari Grímssyni forsetaframbjóðanda: Anægður að eiginkonan er ekki í framboði gegn mér kerskála hittir Ólafur Ragnar starfs- mann, Gunnar Eyjólfsson að nafni. Gunnar segir Ólafi Ragnari að í sumar verði þeir sveitungar því hann búi i Bessastaðahreppi. Gunn- ar biður Ólaf Ragnar um að þegar hann verði kominn í Bessastaði reyni hann að koma í veg fyrir að æðarvarpið á staðnum verði eyði- lagt. Ólafur Ragnar tekur mjög vel í þetta. Næst á dagskrá hjá þeim hjónum er heimsókn á elliheimilið í Furu- gerði í Reykjavík. Þar er mikil há- tíðarstund þegar þau hjónin koma og gamla fólkið búið að punta sig upp fyrir heimsóknina. Ólafur Ragnar og Guðrún Katrín tala á svipuðum nótum og í ÍSAL fyrr um daginn og heilsa síðan upp á vist- menn og starfsmenn sem eru í heild um 60 talsins. Þau hjónin eru ekki ókunnug þarna því móðursystir Guðrúnar Katrínar, Svala Beck heitin, bjó í húsinu í nokkur ár og þau komu oft þangað i heimsókn. Ein gömul kona segist ánægð með að fá að kjósa til forseta því það sé mikilvægasti atburður á hverjum tíma. Önnur segist muna eftir Ólafi Ragnari í sjónvarpsþætti fyrir mörgum árum þegar hann tók bankastjóra og aðra fyrirmenn á beinið og spurði þá spjörunum úr. Ólafi Ragnari var greinilega skemmt þegar hann heyrði þetta en að hans sögn var þetta árin 1970 og ’71 þannig að minni gömlu konunn- ar var greinilega enn í lagi. Þau hjónin þágu kaffiveitingar 1 lok heimsóknarinnar en síðan var hald- ið af stað því mikil og löng dagskrá var fram undan. -RR Ólafur Ragnar og Guörún Katrín fylgjast vel meö lýsingum Guömundar Haraldssonar, starfsmanns ÍSAL, en hann er aö útskýra aöstæöur í kerskála. Ólafur Ragnar heilsar upp á vistmenn Furugeröis en þeir voru í sannkölluöu hátíöarskapi yfir heimsókn þeirra hjóna. DV-myndir GS Blaðamaður og ljósmyndari DV eru nýbúnir að taka sér stöðu í sól- skininu við vakthliðið á svæði ÍSAL í Straumsvík þegar Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi og eiginkona hans, Guðrún Katrin Þor- bergsdóttir, koma akandi að hlið- inu. Hádegisheimsókn þeirra í ÍSAL er að hefjast og þau fá aldeilis veðr- ið til þess. Ólafí Ragnari og frú, ásamt fylgdarmönnum þeirra frá DV, er því næst boðið í matsalinn þar sem þau heilsa starfsmönnum sem eru um 200 talsins. Ólafur Ragnar heldur fyrst stutta ræðu þar sem hann segir það ánægjulegt að finna að þjóðin sé í hátíðarskapi vegna forsetakosninganna. Ólafur Ragnar segir það mikilvægt að for- seti tryggi hagstætt stjómarfar og sé homsteinn lýðræðisins. Þá telur hann að forsetinn verði að vera virkur þátttakandi í þjóðlífinu en ekki fjarlægur embættismaður sem sé einungis bundinn formlegum embættisverkum. Ólafur Ragnar segir að verkskylda forsetans fari vaxandi í framtíðinni og að hann verði að stuðla að þátttöku íslands í gæðakapphlaupi veraldar. Forset- inn þurfí að tryggja virðingu og veg- semd þjóðarinnar. Það sé undir ís- lendingum sjálfum komið að sækja fram og ná betri lífsgæðum og sterk- ari stöðu á alþjóðavettvangi. Ólafur Ragnar fær gott hljóð í salnum meðan hann talar sem er frekar óalgengt i matartíma á svona um halda starfsmenn aftur til vinnu og Ólafur Ragnar og frú þakka vel fyrir góðar undirtektir. Þeim hjón- um og DV-mönnum er því næst boð- ið í mat og á boðstólum er indælis fiskur. Þau hjónin segjast vera hrifnari af því að borða fisk en kjöt og því sé þetta alveg eins og að hafa pantað mat á veitingahúsi. Næst er þeim hjónum fylgt um vinnusvæðið þar sem allt er á fullri ferð. I Olafur Ragnar og Guðrún Katrín spjalla við starfsmenn ÍSAL í matsalnum. líkir. Við vorum báðir taldir um- deildir stjórnmálamenn en þrátt fyr- ir orrahríðina 1952, þegar baráttan var miklu harðari en nú, endurkaus þjóðin hann sem forseta,” segir stórum vinnustað. Þegar hann hef- ur lokið ræðu sinni heldur Guðrún Katrín, eiginkona hans, stutta tölu. Hún talar m.a. um mikilvægi Bessa- staða og að þar sé nauðsynlegt að koma upp betri aðstöðu svo að ís- lendingar geti komið og skoðað þennan fallega og mikilvæga staö ís- lendinga. Eftir ræður þeirra hjóna er beðið um fyrirspurnir í salnum. Einn starfsmaður stendur upp og spyr Ólaf Ragnar hvort hann sé ekki hræddur um að fjölmargir andstæð- ingar hans í stjómmálum geti skað- að hann og embætti forseta ef hann verði kjörinn. Ólafur svarar því að það hafi verið mikil hvatning frá fólki úr öllum landshlutum, stéttum og stjórnmálaflokkum landsins sem hafi hvatt hann í framboð. Hann segist vera sá frambjóðandi sem hafi mesta breidd á bak við sig og það þurfi embætti forseta vissulega að hafa. „Ég og Ásgeir Ásgeirsson, fyrr- verandi forseti, vorum um margt Ólafur Ragnar. Þá er spurt úr sal hve lengi forsetinn eigi að sitja og hvort rétt sé að sitja í 16 ár. Ólafur Ragnar svarar því að honum fínnist persónulega að eðlilegur hámarks- tími sé 8 til 12 ár vegna hraðra breytinga í heiminum en það sé þó engum lögum háð og kosningar séu fjórða hvert ár. Næst er spurt hvaða skýringar Ólafur Ragnar hafi á miklu fylgi sínu. Ólafur Ragnar hlær og segir það ósanngjamt að reyna að svara því en hann endur- tekur það að hann hafi fundið mikla breidd og hvatningu víða að og úr öllum geirum þjóðfélagsins. Einn starfsmaður vill því næst koma því á framfæri að vinsældir hans séu ekki minni vegna góðrar og glæsi- legrar konu hans og þetta hittir vel í mark því allur salurinn hlær að þessari skemmtilegu athugasemd. Ólafur Ragnar hlær einna mest og svarar því að hann sé ánægöur aö konan hans sé ekki í framboði gegn sér. Eftir hátt i klukkutíma í matsaln- Ólafur Ragnar og Guörún Katrín heilsa upp á Gunnar Eyjólfsson, starfsmann ÍSAL.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.