Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 10
10
LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996
Hommar og lesbíur gifta sig hjá sýslumanni á fimmtudaginn:
Eðlilegt framhald á margra
ára ástarsambandi
„Strax í upphafi urðu tengslin
milli okkar svo mikil að mér fannst
ekki koma annað til greina en að
hjónavigsla yrði endapunkturinn
hjá okkur,“ segir Valgerður Mar-
teinsdóttir en hún og sambýliskona
hennar, Guörún Elisabet Jónsdóttir,
ætla að gifta sig á fimmtudaginn i
næstu viku þegar ný lög taka gildi
sem leyfa borgaralega vigslu
homma og lesbía á tslandi. Guðrún
og Valgerður verða fyrsta samkyn-
hneigða parið sem hlýtur borgara-
lega vígslu á íslandi en sama dag
munu Percy B. Stefánsson, einn af
forystumönnum Samtakanna ’78, og
sambýlismaður hans, Sigurður Rún-
ar Sigurðsson, ganga í hjónaband.
Guðrún og Valgerður hafa búið
saman í 13 ár. Þær kynntust fyrst
fyrir 14 árum í gegnum félagsskap-
inn Samhygö, sem þær störfuðu í á
þeim tíma, og segja að á milli þeirra
hafi strax þróast djúpt og innilegt
samband. Fyrir tveimur árum settu
þær upp hringa og hafa beðið eftir
því að hjónavígsla samkynhneigðra
yrði lögleidd til að fá samband sitt
staðfest að lögum. Þær segjast hafa
beðið lengi eftir þessum degi og
stefnt að því að verða fyrstar þegar
lögin loks tækju gildi.
Bæði pörin eru sammála um það
að hjónavígslan sé eðlilegt framhald
á margra ára ástarsambandi.
Freyðivín og jarðarber
Starfsmenn sýslumannsembætt-
anna í landinu munu sjá um hina
borgaralega vígslu og segjast Percy
og Sigurður búast við að athöfnin
geti farið fram hvar sem er, til dæm-
is í heimahúsi. Bæði pörin eru búin
aö panta tíma fyrir vígsluna. Guð-
rún og Valgerður eru fyrstar í röö-
inni þegar sýsluskrifstofan í Reykja-
vík verður opnuð og eru búnar að
skipuleggja athöfnina. Percy og Sig-
urður eru hins vegar ekki enn bún-
ir að ákveða endanlega hvernig
þeirra vígslu verður hagað. Það
verður ákveðið nú um helgina.
Það hefur verið í mörg horn að
líta fyrir giftinguna; ótal vottorð að
fá og margt að skipuleggja, láta
pússa hringana og fleira. Guðrún og
Valgerður ætla að gifta sig í spari-
klæðnaði, ekki brúðarkjólum, og
verða með gullnælur í barminum.
Guðrún verður með nælu sem móð-
uramma hennar fékk í morgungjöf
árið 1919 og Valgerður verður meö
nælu sem föðuramma Guðrúnar
átti. Athöfnin fer fram í húsnæði
sýslumannsembættisins að við-
stöddu nánasta skylduliðl
„Það verða settir dúkar á borð og
kerti og reynt að gera húsnæðið hlý-
legt,“ útskýrir Guðrún. „Strax að at-
höfninni lokinni ætlum við að fara
vestur á Snæfellsnes, snæða róman-
tískan kvöldverð á hótelinu á Búð-
um og eyða brúðkaupsnóttinni þar.
Við ætlum svo að ferðast um nesið,
fara í Stykkishólm og hafa það
gott,“ segir hún.
Boðið verður upp á veitingar,
freyðivín og súkkulaðihúöuð
jarðarber, að athöfninni lokinni.
Uppkomin dóttir Guðrúnar og
frænka Valgerðar verða
svaramenn og
verður
at-
Guörún og Valgeröur hafa búiö saman í 13 ár og veröa fyrstar samkynhneigðra til aö hljóta hjónavígslu á islandi. Pær láta gifta sig í húsnæöi sýslumanns-
embættisins og fara aö athöfninni lokinni vestur á Snæfellsnes. DV-mynd ÞÖK
Fyrsta skrefið
Percy hefur verið í forystusveit
Samtakanna '78 um árabil og látið
til sín taka í réttindabaráttu homma
og lesbía. Hann er ánægður með að
hommar og lesbíur hafi fengið sama
rétt og aðrir Islendingar til hjóna-
vígslu en segir að þeim finnist frá-
leitt að hafa ekki sömu réttindi og
aðrir hvað varðar tæknifrjóvgun og
ættleiðingu.
„Við lítum á nýju lögin sem
fyrsta skrefið i átt að fullum réttind-
um og reyndar er þetta mjög stórt
skref í þá átt. Við byrjum væntan-
lega að vinna í þessum málum strax
næsta haust og höldum áfram að
berjast fyrir fullum réttindum. Svo
megum við ekki gleyma því hvað
þetta er stórt skref - þetta er bara
einn áfangi að fullum réttindum,"
segir hann.
Svo skemmtilega vill til að Percy
og Guðrún eru skyld, afar þeirra
eru bræður, og má því segja að
þetta verði sannkallaður hátíðisdag-
ur. -GHS
brag á þessu og sameinum kannski
morgunverð og hádegisverð. Svo
ætlum við bara aö gleðjast þennan
dag og fara í Borgarleikhúsiö," seg-
ir Percy B. Stefánsson.
Bæði pörin taka sér náttúrlega frí
á giftingardaginn og telur Percy að
sama gildi um flestalla þá sem hafa
tekið þátt í réttindabaráttu homma
og lesbía því að þarna sé um svo
mikinn áfanga að ræða. Samtökin
’78 verða með móttöku í Borgarleik-
húsinu síðdegis þennan dag í tilefni
af gildistöku lag-
anna og vígslu fyrstu samkyn-
hneigðu paranna og þangað ætla
Percy og Sigurður að sjálfsögðu að
mæta ásamt ættingjum sínum og
vinum. Guðrún og Valgerður verða
hins vegar lagðar af stað í átt að
Jökli.
„Við gerum ráð fyrir að mæta í
Borgarleikhúsið því að við lítum á
fólkið í samtökunum sem okkar
aðra fjölskyldu," segir Percy. Hann
og Sigurður eiga von á gestum frá
Bandaríkjunum sem keyptu sér
helgarferð til íslands til að vera við-
staddir giftinguna.
Móttakan í Borgarleikhúsinu
hefst með opnun málverkasýningar,
ávörp verða flutt og svo verður há-
tíðardagskrá með tónlistarflutn-
ingi og söng. Lokapunkturinn
verður svo brúðarterta, kaffi
og aðrar veitingar. Að móttök-
unni lokinni verður opið hús á
veitingastaðnum 22.
höfnin tekin upp á myndband til
minningar. Guðrún og Valgerður
ætla að gefa Samtökunum ’78 afrit
af þessari fyrstu hjónavígslu sam-
kynhneigðra á íslandi.
Þær segjast hafa ákveðið að end-
urnýja dúnsængurnar sínar,
hreinsa fiðrið og láta sauma ný ver
utan um það, og gefa hvor annarri í
morgungjöf.
Smáveisla heima
Percy og Sigurður hafa áhuga á
því að láta giftingu sina fara
fram heima. „Við ætlum
að fá til okkar frekar
fáa gesti, bara nánasta
fólkið okkar, kannski
15 manns. Við höfum
rætt það að hafa hér
smáveislu með
kampavíni og ein-
hverju góðgæti eftir
vígsluna. Við höfum
hátíðar-
Percy og Siguröur vonast til þess aö geta látiö giftingu sína fara fram í heimahúsi að viöstöddum nánustu ættingjum og vinum. Peir hafa ekki skipulagt daginn í smáatriöum en ætla þó
aö fara í móttöku Samtakanna '78 í Borgarleikhúsinu síödegis. DV-mynd Pétur