Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 25
JLÞ V LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 25 Heimsmeistaraeinvígið í Elista: Karpov hefur algjöra yfirburði - en Kamskyfeðgar leita að kvonfangi Anatoly Karpov hefur öll völd í einvíginu viö Gata Kamsky um heimsmeistaratitilinn, sem fram fer í Elista, höfuðborg Kalmikíu. Kam- sky tapaði illa í sjöttu einvígisskák- inni og varð að þola annan ósigur eftir gloppótta tafhnennsku í þeirri sjöundu. Áttunda skákin fór í bið á fimmtudag í eilítið betri stöðu fyrir Kamsky. Staðan í einvíginu er hins vegar ekki uppörvandi - 5 vinning- ar gegn 2 Karpov í vil. Tefldar verða tuttugu skákir, eða þangað til annar keppanda nær meira en tíu vinningum. Karpov er því nú þegar hálfnaður að settu marki. Líklegt er því að meiri ró færist nú yfir vígvöllinn I Elista. Fram til þessa hafa kappamir teflt fjörlega. í sjö fyrstu skákunum hef- ur aðeins í tvígang orðið jafhtefli. En nú hefúr Karpov enga ástæðu til þess að taka áhættu. Þeir feðgar Gata Kamsky og faðir hans Rustam, sem jafnan er syni sínum tii halds og trausts, láta vel af dvöl sinni í Kalmikíu. Rustam hefur hins vegar jafnframt öðru og ekki síður mikilvægu hlutverki að gegna, að því er fram kemur í við- tali við hann í dagblaðinu Izvestia í Kalmikíu. „Við komum til Elista til aö tefla, en einnig til þess að finna syni mínum framtíðareiginkonu," segir Rustam í viðtalinu. Hugmynd Rustams er að finna greinda, lítil- láta og heimakæra stúlku frá góðu foreldri, 13-14 ára gamla, sem kæmi með þeim feðgum til Bandaríkj- anna. Þeir myndu kosta hana til náms. Færi svo að þau Gata myndu síðar fella hugi saman gæti hún orð- ið eiginkona hans. Er Rustam var að því spurður hvort Gata væri samþykkur þessum ráðahag sagði hann: ,Það er ekki hans að taka ákvörðun í þessum efnum,“ og bætti viö: „Hann hefur ekki einu sinni tíma til að hugsa um kvenfólk." Staðan í áttundu einvígisskák- inni, er hún fór í bið á fimmtudags- kvöld, var þannig - Kamsky hafði hvitt og átti leik: Eins og sjá má á svartur hróki minna í stöðunni en getur endur- heimt hann í leiknum. Eftir 57. Dxd4 Dxh5 og nú 58. c4!? á hvítur vinningsvon en líklegast er þó að taflinu ljúki með jafntefli. í sjöundu skákinni tefldi Kamsky með svart kóngsindverska vöm en tókst ekki að jafna taflið. Karpov var í essinu sínu, þrengdi að svörtu stöðunni. Rétt fyrir fyrri tímamörk- in missti Karpov hins vegar af ör- uggri vinningsleið og Kamsky náði að klóra í bakkann. Lítum á taflið eftir 49. leik hvíts (Karpovs), sem enn virðist eiga undirtökin. 49. -Bxa5! Með þessum skemmtilega leik nær svartur að halda í horfinu. Ef nú 50. Bxa5 De3+ 51. Kxg2 De2+ 52. Kh3 Dfl+ og jafntefli með þráskák. 50. Hxg7 Bb6+ 51. Kxg2 Dxg7? En nú leikur Kamsky skákinni af sér. Eftir 51. -Hxg7 em góðar líkur á jafntefli. 52. Hg4 De7 53. Dh5+ Dh7 54. Hxg8+ Kxg8 55. De8+ Kg7 56. De7+ Kh8 57. Dxd6 Með einfaldri tilfærslu hefur Kar- pov unnið peð og nú blasir sigurinn í raun og vem við. Skákin fór nú í bið og áfram tefldist: 57. -Dg7+ 58. Bg3 Bc7 59. De6+ Kh7 60. d6 Bd8 61. Df5+ Kh6 62. Kh3 Df6 63. Dxf6 Bxf6 64. Kg4 b5 65. Kf5 Bd8 66. Kxe5 Kg6 67. Kd5 b4 68. Kc4 Ba5 69. Kb3 Kf5 70. Ka4 Ke6 71. h5! - Og Kamsky gafst upp. umsjon Jón L. Árnason Skoðum að lokum sjöttu einvígis- skákina, þar sem Kamsky var sleg- inn skákblindu. Eftir svona ósigur með hvítu mönnunum þarf sterk bein til að brotna ekki saman. Hvítt: Gata Kamsky Svart: Anatoly Karpov Rússnesk vörn. 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. d4 Rxe4 4. Bd3 d5 5. Rxe5 Rd7 6. Rxd7 Bxd7 7. 0-0 Bd6 8. Rc3 Dh4!? Þetta er óvenjulegur leikur í stöð- unni, i stað 8. -Rxc3. Heimildir geta þess að Karpov hafi hugleitt leikinn í 45 mínútur. Kannski hefur hann ekki treyst rannsóknum sínum full- komlega. 9. g3 Rxc3 10. bxc3 Dg4 11. Hel+ Kd8! Það er athyglisvert hve Karpov er óragur viö að höndla með hrókunar- réttinn. í sjöundu skákinni lét hann kónginn einnig dansa á miðjunni. Ekki er vist aö svona taflmennska hefði borið jafhmikinn árangur gegn sóknarsnillingum eins og Mik- hail Tal. í nýlegri skák Spánverj- anna Magem og Illescas á móti í Pamplona í ár vék svartur kóngn- um til f8. 12. Be2 Df5 13. Hbl b6 14. c4 dxc4 15. Bxc4 He8 16. Be3 Bc6 Báðir keppendur höfðu nú eytt klukkustund af umhugsunartíma sínum. Hvita staðan er eilítið þægi- legri. 17. d5 Bd7 18. Bfl h6 19. c4 He7 20. Bd3 Df6 21. Kg2 Ke8 22. Bc2 Dc4+3 23. Bb3 KfB 24. Hcl Df6 25. Bc2 Hae8 26. Dd3? Loksins þegar svarti kóngurinn er flúinn yfir á kóngsvænginn stenst Kamsky ekki freistinguna að sækja að honum. En honum sést yfir að svartur getur auðveldlega svarað „hótuninni" 27. Dh7 með 27. -g5! og engin hætta er á ferðum. 26. -Bg4! 27. Bd2?? Óskiljanlegur afleikur. 27. -He2 Enga haldbæra vörn er heldur að sjá við 27. -Bc5. 28. Hxe2 Hxe2 29. Hfl 29. -Hxd2! - Kamsky gafst upp. Ef 30. Dxd2 Df3+ 31. Kgl Bh3 og vinnur. -JLÁ Mars og Venus í svefnherberginu: Námskeið um samskipti kynja „Viðurkenning og hvatning örva ástríður karla, skilningur og sam- kennd örva ástríður kvenna," segir í bókinni Mars og Venus í svefnher- berginu sem nýlega leit dagsins ljós hjá bókaútgáfunni Vexti. Bókin hef- ur verið á metsölulista The New York Times síðan hún kom út í fyrra. „Fyrsta skrefið er að átta okkur á muninum á milli karla og kvenna. Karlar og konur tjá sig með ólíkum hætti. Það er eins og dr. John Gray segir - þótt aðeins sitji í minni eft- ir lestur bókarinnar að karlar eru frá Mars og konur frá Venus, þá er það mikilvægt. Þá skiljum við og virðum muninn á körlum og kon- um,“ segir Hallur Hallsson hjá bókaútgáfunni Vexti. Fyrir jólin gaf Vöxtur út metsölubókina Karlar eru frá Mars, konur eru frá Venus. Nýja bókin flallar um ástrík sam- skipti hjóna og para í svefnherberg- inu. „Bækurnar bæta samskipti kynj- anna. Þær hafa mikið fram að færa til kærleiksríkra samskipta. Þótt við tölum sama tungumálið þýða orðin ekki alltaf það sama. Öll þekkjum við óheppileg orðaskipti við ástvin sem fyrr en varir leiða til rifrild- is - og skömmu síðar rífumst við um það af hverju við erum að rífast! Allt út af mis- skilningi, sem einatt stíar fólki í sundur. Ef við erum meðvit- uð um þetta eigum við 1 meiri mögu- leika á að byggja upp farsæl og kærleiksrík samskipti," segir Hallur. Haliur Hallsson hjá bókaútgáfunni Vexti með Mars og Venus í svefn- herberginu. Leikrit og námskeið um samskipti Edda Björgvinsdóttir hefur, í samvinnu við Draumasmiðjuna, samið leikrit sem byggt er á Mars og Venus - leikrit um samskipti kynjanna. Menningar- og fræðslu- samband alþýðu styrkir gerð leik- ritsins og hugmyndin er að frum- sýna það í haust. Þá er verið að undirbúa námskeið um samskipti kynjanna. Þau hefjast í haust og veröa í samvinnu við Sig- trygg Jónsson sálfræðing, Önnu Valdi- marsdóttur sálfræðing, séra Braga Skúlason og Hlm Agnarsdóttur. „Á þessum námskeiðum verður lögð áhersla á að leiðbeina fólki um samskipti sín í milli og auka skiln- ing miúi karla og kvenna. Að bæta samskipti er leiðin til árangurs í líf- inu. Ef fólki líður vel heima þá líð- ur því líka vel í vinunni - og lífið er leikur," segir Hallur. -em er oóru visi. tvær umferð innan bi Langvarandi vörn gegn ryc Innbyggður ^ grunnur Slctt eðci hömruS óferð Lífeyrissj óðurinn Framsýn Ársfundurj C)C)(f Ársfundur Lífeyrissjóðsins Framsýnar verður haldinn að Scandic Hótel Loftleiðum, Reykjavíkurflugvelli, föstudaginn 28. júní 1996 og hefst kl. 16. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg ársfundarstörf. 2. Gerö grein fyrir endanlegu uppgjöri eldri sjóða við sameiningu þeirra 31.12. 1995: Lífeyrissjóðs Dagsbrúnar og Framsóknar Lífeyrissjóðs Hlífar og Framtíðarinnar Lífeyrissjóðs Sóknar Lífeyrissjóðs verksmiðjufólks Lífeyrissjóðs Félags starfsfólks í veitingahúsum Almenns lífeyrissjóðs iðnaðarmanna. 3. Breytingar á reglugerð sjóðsins. 4. Önnur mál löglega upp borin. Allir greiðandi sjóðfélagar svo og elli- og örorkulífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum með málfrelsi og tillögurétti. Þeir sjóðfélagar sem hyggjast nýta sér þennan rétt eru beðnir að tilkynna það skrifstofu sjóðsins eigi síðar en 26. júní nk. og munu þeir þá fá fundargögn við setningu fundarins. Þeir sjóðfélagar sem vilja kynna sér tillögur til breytinga á reglugerð sjóðsins sem lagðar verða fram á fundinum geta fengið þær afhentar á skrifstofu sjóðsins eða fengið x þær sendar í pósti með því að hafa samband við skrifstofu f sjóðsins. | o Stjórn Lífeyrissjóðsins Framsýnar. » LÍFEYRISSJÓÐURINN FRAMSÝN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.