Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 53
lyv laugardagur 22. júní 1996
dagsönn «
Hægur vindur og láttskýjað
Ævi og ástir
stórurriðans
í dag kl. 15 heldur Össur
Skarphéðinsson fyrirlestur að
Alviðru undir Ingólfsfjalli um
ævi og ástir stórurriðans i Þing-
vallavatni. Fyrirlesturinn er
ókeypis og öllum opinn.
Jónsmessuvaka á Akureyri
Minjasafnið á Akureyri og
Zontaklúbbur Akureyrar standa
fyrir Jónsmessuvöku. Dagskráin
hefst í Minjasafnskirkjunni kl.
22 og síðan er farið í göngu.
Sjómaður sýnir netabætingu
Á morgun mun gamall sjó-
maður sýna netabætingu í Sjó-
minjasafni Hafnartjarðar frá kl.
13-17 og er stefnt að því að
kynna í safninu verklega sjó-
vinnu alla sunnudaga í sumar.
Samkomur
Notkun jarðfræðikorta
Hið íslenska náttúrufræðifé-
lag efnir til námskeiðs í notkun
mismunandi jarðfræðikorta í
dag kl. 13-18. Kynnt verða
berggrunns-, jarðgrunns- og
vatnafarskort sem unnin hafa
verið af höfuðborgarsvæðinu.
Síðan verður farið út á mörkina
í Elliðaárdal, Álftanes og suður
fyrir Hafnarfjörð og leiðbeint
þar um notkun kortanna.
Semen + Jóhann og Fester leika
á Kaffi Oliver annað kvöld.
Tónlist
ogljóð
Á Kaffi Oliver verður annað
kvöld flutt tónlist og ljóð. Um
tónlistarflutninginn sjá Semen +
Jóhann og Fester og með hljóm-
sveitinni koma fram fjögur ung
tónskáld og lesa ljóð sin, þau
eru: Andri Snær Magnússon,
Björgvin ívar, Magnúx Gezzon
og Davið Stefánsson.
Tónleikar
Djass á Jónsmessu
Annað kvöld mun Kvartett
Carls Möllers spila í Haukshús-
um á Álftanesi og verður í leið-
inni hægt að fylgjast með Jóns-
messubáli í ijörunni. Þeir félag-
ar hefja leikinn kl. 21.
Gengið
Almennt gengi Ll nr. 124
21.06.1996 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 66,990 67,330 67,990
Pund 103,080 103,600 102,760
Kan. dollar 48,990 49,290 49,490
Dönsk kr. 11,3950 11,4550 11,3860
Norsk kr 10,2520 10,3080 10,2800
Sænsk kr. 10,1020 10,1570 9,9710
Fi. mark 14,4130 14,4980 14,2690
Fra. franki 12,9490 13,0230 13,0010
Belg. franki 2,1322 2,1450 2,1398
Sviss. franki 53,3000 53,6000 53,5000
Holl. gyllini 39,1500 39,3800 39,3100
Þýskt mark 43,9000 44,1200 43,9600
ít. líra 0,04357 0,04385 0,04368
Aust. sch. 6,2350 6,2730 6,2510
Port. escudo 0,4274 0,4300 0,4287
Spá. peseti 0,5216 0,5248 0,5283
Jap. yen 0,61610 0,61980 0,62670
Irskt pund 106,050 106,710 105,990
SDR 96,49000 97,07000 97,60000
ECU 83,1300 83,6300 83,21000
Símsvari vegna gengisskráningar 5623270
Sumarblíðan á landinu heldur
áfram en skammt suðvesturundan
landinu er nærri kyrrstæð hæð. Það
verður í dag og á morgun hægur
vindur og léttskýjað víðast hvar.
Veðrið í dag
Inn til landsins verður mjög hlýtt og
mega sumir bændur eiga von á því
að sjá hitamælirinn fara yfir 20
gráður. Það er svalar úti við sjóinn
og ekki eins bjart og þar nær hitinn
sjálfsagt ekki upp yfir 15 gráður.
hlýjast verður á suðausturlandi, en
kaldast á annesjum norðan til á
landinu. Á Höfuðborgarsvæðinu
verður norðvestan gola eða kaldi og
bjart með köflum. Hiti 10 til 14 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 24.04
Sólarupprás á morgun: 2.56
Síðdegisflóð í Reykjavík: 23.31
Árdegisflóð á morgun: 12.09
Veörið kl. 12 á hádegi:
Akureyri skýjaö 11
Akurnes skýjað 12
Bergsstaöir alskýjaö 9
Bolungarvík skýjaó 9
Egilsstaöir léttskýjað 17
Keflavíkurflugv. skýjaó 12
Kirkjubkl. skýjaö 12
Raufarhöfn hálfskýjaöa 11
Reykjavík hálfskýjaó 12
Stórhöföi þokumóöa 12
Helsinki skýjaö 15
Kaupmannah. Ósló skýjaö 16
Stokkhólmur skýjaö 15
Þórshöfn Amsterdam skúr 12
Barcelona léttskýjaó 31
Chicago léttskýjaö 23
Frankfurt skýjaö 13
Glasgow skýjaö 14
Hamborg skúr 13
London skýjaö 16
Los Angeles alskýjaó 18
Lúxemborg skýjaö 13
Madríd léttskýjaö 22
París skýjað 16
Róm heiöskírt 27
Valencia léttskýjaö 30
New York alskýjaö 19
Nuuk alskýjaö 2
Vín skýjaö 21
Washington mistur 25
Winnipeg heiðskírt 13
Miklatún:
Fjölskylduhátíð nágranna
í fyrra var í fyrsta sinn haldin fjöl-
skylduhátíð á Miklatúni fyrir hverf-
in i kring, það er Hlíðar, Norðurmýri
og Holt, og þótti hátíðin takast svo
vel að ákveðið var að endurtaka
hana að ári liðnu. Nú er komið að
þvi og á morgun verður fjölskylduhá-
tíöin haldin á Miklatúni kl. 14 til 17.
Á hátíðinni veröur margt sér til
gamans gert, þar verða meðal annars
leiktæki fyrir börnin og þau geta lá-
tið mála sig i framan. Furðufuglar og
Georg fi:á íslandsbanka mæta á
Skemmtanir
svæðið og Möguleikhúsið verður
með leikþáttinn Kalli eignast vin. 500
blöðrur frá Búnaðarbankamun
munu síðan svífa til himins. Margt
fleira verður gert til að auka fjöl-
breytnina, farið i leiki, grillpylsur
verða seldar á vægu verði og enn
fremur ætla íbúarnir að bjóða hver
öðrmn upp á heimabakaðar kökur.
í fyrra var fyrsta fjölskylduhátíðin á Miklatúni haldin og var þessi
mynd tekin við það tækifæri.
Myndgátan
Lausn á gátu nr. 1541:
„G-RAI 03OR.N
' BARA ÞÆ.R. NOTA í
O/EÍSLUM FÍNUN7-
EVÞor-
Hófíjaörir
| George Clooney og Quentin Tar-
antino leika Bræður á flótta.
Skítseiði
jarðar
Regnboginn hefur sýnt að und-
anförnu Skítseiði jarðar (From
Dust till Dawn). Myndin segir frá
Gecko-bræðrum sem eru meðai
hættulegustu glæpamanna
Bandaríkjanna. Þegar myndin
hefst eru þeir á flótta undan lög-
reglunni. Þeir þurfa á skjóli að
halda og ræna því Fuller-fjöl-
skyldunni sem er á ferðalagi og
fara með henni yfir landamæri
| Bandaríkjanna og Mexíkó en þar
telja þeir bræöur sig eiga öruggt
skjól. Þegar kvölda tekur fara
; bræðurnir með gísla sína í gisti-
hús til næturgistingar. Þeim
I finnst það skrýtið að gistihúsið er
aðeins opið frá sólsetri til sólar-
upprásar. Skýringin kemur í Ijós
þegai' gestimir taka eftir því að
1 starfsfólk gistihússins er mikið-
Kvikmyndir
1 fyrir mannsblóð og í samanburði
við lýðinn sem þeir hafa óvænt
lent í slagtogi við eru Gecko-
bræður eins og kórdrengir.
í hlutverkmn bræðranna eru
George Clooney og Quentin Tar-
antino. Harvey Keitel, Juliette
| Lewis og Emest Liu leika fjöl-
skylduna sem rænt er og í öðruiju
hlutverkum eru Cheech Marin,
Fred Wiliamson, Salma Hayek,
1 Kelly Preston og John Saxon.
;• Nýjar myndir
Háskólabíó: Innsti ótti
Laugarásbió: Á síðustu stundu
Saga-bíó: Trufluð tilvera
Bíóhöllin: Fugiabúrið
Bíóborgin: í hæpnasta svaði
Regnboginn: Skítseiði jarðar
Stjörnubíó: Einum of mikið
L
Miðnætur-
hlaup á
Jónsmessu
Almenningshlaup veröa vin-
sælli með hverju árinu og svo er
nú komið að nánast um hverja
helgi er boðið upp á almennings-
hlaup einhvers staðar á landinu.
Eitt allra vinsælasta hlaupið er
miðnæturhlaup sem árlega er á
Jónsmessunótt. í ár fer það fram
annað kvöld og er hlaupið í
Laugardalnum. Boðið er upp á
tvær vegalengdir, 10 km með
tímatöku og flokkaskiptingu og 3
km skemmtiskokk sem er án
timatöku. Hlaupið er frá Sund-
laugunum í Laugardal og þar fer
skráning fram en hlaupið hefst
kl.23.
í dag fer fram á Vestfjörðum
Iþróttir
Óshlíðarhlaup og er það í fjórða
sinn sem það er haldið. Hlaupið
er frá Bolungarvík til ísafjarðar.
Um er að ræða þrjár vegalengd-
ir, 21,1 km, sem er hálfmaraþom
10 km og 4 km. Hálfmaraþomö
hefst við Sparisjóð Bolungarvík-
ur kl. 13.30, 10 km hlaupið hefst
kl. 14 við Vöruval í Hnífsdal og 4
km hlaupið hefst við Silfurberg á
ísafirði á sama tíma. Endamark
allra hlaupanna er við Silfur-
torg.