Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 22
22 sérstæð sakamál LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 LlV Fritz Oldchewski var orðinn sex- tíu og þriggja ára gamall. Hann hafði fengist við margt um dagana og oft sýnt nær aðdáunarverða að- lögunarhæfni á atvinnusviðinu. Þar hafði hann komið víða við, en hann kom einnig víða við á öðrum vett- vangi, í samskiptum sínum við kon- ur. Fjórum sinnum hafði þessi Þjóð- verji skilið að borði og sæng, og í hvert sinn hafði það tekið á hann, en í öll skiptin hafði hann rétt úr bakinu og sagt að hann hlyti að eiga eftir að finna hamingjuna í hjóna- bandi. Og það taldi hann sig hafa gert fimm árum áður en það gerðist sem hér segir frá, þegar hann gekk að eiga fimmtu konuna. En þá vissi hann ekki að fram undan var alvar- legasta hjónabandskreppan af þeim öllum. „Nakta jómfrúin" sem kemur við sögu í þessari frá- sögn er ekki nafn á dansmey í næt- urklúbbi, heldur blómi sem algengt er í görðum á meginlandi Evrópu. Og „nakta jómfrúin" getur verið varhugaverð, eins og sumum mun vafalaust finnast nafngiftin gefa til kynna. í þessari ljósbláu jurt, sem líkist svo mjög krókus, er að finna sterkt eitur sem heitir colchicin. Það er lítt þekkt miðað við ýmsar aðrar tegundir eiturs, svo sem arsenik og blásýru, en getur haft sömu afleiðingar, þótt þær séu vandgreindari. En Fritz Olschewski þekkti vel til verkana colchicins, því hann var orðinn sérfróður um margar tegundir eiturefna og lyfja. Aldrei hafði hann þó numið lyfja- fræði, því sú grein sem hann hafði lært til var húsgagnasmíði. Þegar honum fannst ekki ganga nógu vel í henni sneri hann sér að sjó- mennsku, og sýndi þar með hluta aðlögunarhæfni sinnar. En hann fékk nóg af sjónum og kom aftur í land. Og þá sneri hann sér að því að selja efni til ljósmyndunar. Á skömmum tíma kom hann vel und- ir sig fótunum í þeirri grein, og þá ákvað hann að taka næsta skrefið fram á við og hefja líka lyfsölu. Hon- um tókst eins vel til með hana, og brátt var atvinnurekstur hans orð- inn allumsvifamikill. Einkalífsvandamálin En þótt atvinnureksturinn gengi vel og Olschewski hefði af honum góðar tekjur komu þær honum sjálf- um ekki að gagni nema að hluta til. Eiginkonurnar komu og fóru, eins og einhver komst að orði, og í hvert sinn sem hann skildi varð hann að semja um greiðslur til þeirrar konu sem frá honum var að fara. Þegar skilnaðarmálin voru orðin fjögur var honum orðið ljóst að nú mátti ekkert fara úrskeiðis ef hann ætti að eiga áhyggjulaus elliár. Og lík- lega hefði hann engu þurft að kviða hefði honum tekist að sannfæra sjálfan sig um að það væri hægt að njóta lífsins ókvæntur. En það tókst honum ekki, og því ákvað hann, fimmtíu og átta ára, að kvænast Ingrid Sachs, sem var þá fjörutíu og sex ára. Með henni ætlaði hann að njóta þeirra ára sem hann ætti eftir. Olschewski hugðist búa vel í hag- inn fyrir þau, og keypti hús í Cism- ar í Holsten við Eystrasaltið, en staðurinn er þekktur fyrir fegurð. Nú benti allt til þess að vel færi, enda var eiginkonan virt i samfélag- inu og sat í bæjarstjórninni. Og um hríð var ekki að sjá að neitt væri að, en svo fór skyndilega allt úrskeiðis hefði fengið byr undir báða vængi þegar hún hefði „sigaö á sig geð- lækni“, eins og hann komst að orði. Skömmu síðar hefði hann svo fund- ið glas með colchicin, en það sagðist hann telja að Ingrid hefði sjálf keypt, hugsanlega til að koma hon- um í einhver vandræði. Rannsóknarlögreglumenn hófu nú nýja leit. Þeir fóru i hvert ein- asta apótek í Hamborg þar sem eitr- ið fékkst, og þar kom að þeir fundu nafnið Fritz Olschewski i eiturefna- bók eins lyfsalans. Þar eð um hættu- legt eitur er aö ræða verða kaupend- ur að gera grein fyrir þörf sinni fyr- ir eitrið, sýna skilríki og skrá nafn sitt í bók. Olschewski hafði komið að máli við lyfsalann og sagt honum að hann þyrfti á colchicin að halda við ljósmyndagerð. Taldi lyfsalinn það gera staðist og seldi honum eitrið. Þegar hér var komið var á ný gengið á Olschewski og honum gerð grein fyrir því að fyrri skýring hans, sú að kona hans hefði keypt eitrið, fengi ekki staðist. Þegar hon- um var ljóst að rannsóknarlögreglu- mennirnir höfðu óyggjandi gögn um að hann var kaupandi eitursins sagðist hann hafa vilja leyna því að hann hefði keypt það, því það hefði gert sig enn grunsamlegri en hann var þá þegar orðinn. Sannleikurinn væri sá að hann hefði keypt eitrið til að útrýma illgresi. Fyrir rétt Ósamræmið í frásögnum Olschewskis, ásamt öðru sem fram var komið, varð til þess að saksókn- araembættið ákærði hann fyrir morðið á Ingrid, konu hans. Var því haldið fram að um ásetningsmorð hefði verið að ræða. I febrúar í ár var Fritz Olschewski sekur fundinn um morð að yfirlögðu ráði og dæmdur í ævi- langt fangelsi. í skrifum um málið hefur því verið haldið fram, á nokk- uð kaldhæðinn hátt reyndar, að á endanum hafi Olschewski tekist að tryggja sér elli án þess-að þurfa að hafa áhyggjur af peningum. Ríkið muni sjá fyrir þörfum hans fram- vegis. Húsið í Cismar. Colchicin-glasiö og sólberjavíns- glasiö. færi minnst af tekjunum til hans sjálfs eða til greiða það sem óborgað var af húsinu, heldur til eigin- kvennanna fimm. Draumamir um áhyggjulausa elli væru því úr sög- unni. Það má því með nokkrum sanni segja að væntanlegur skilnað- ur væri dropinn sem fyllti mælinn. Sé gripið til líkingamáls má segja að mælirinn hafi verið vínglas. Ingrid var vön því að fá sér glas af sólberjavíni í lok vinnuvikunnar. 24. febrúar í fyrra fékk hún sér að venju glas af þessum sæta drykk. Venjulega hafði sólberjavínið örvandi áhrif á hana, en í þetta skiptið varð hún lasin. Hún fékk innantökur og varð óglatt, og nokkru síðar var heimilislæknir kominn. Hann lét leggja hana á Old- enburg-sjúkrahúsið. Dularfull dánarorsök Læknar Oldenburg- sjúkrahúss- ins töidu að Ingrid væri með kóleru. Þeir létu því flytja hana á háskóla- sjúkrahúsið í Kiel. Þar komu sérfræðingar að málinu og ekki leið á löngu þar til þeir þóttust þess fullvissir að um einhvers konar eitrun væri að ræða. Var arsenik fyrsta eitrið sem þeim kom í hug. Á fimmta degi lést Ingrid Olschewski, án þess að fyrir lægi hvaða eitur hafði dregið hana til dauða. Og ástæð- an var sú að eitr- ið kom svo sjald- an við sögu saka- mála að enginn hafði enn prófað fyrir þvi. Dánar- orsökin þótti því í senn skelfileg og dularfull. Á meðan vísinda- menn reyndu að greina eitrið gerðu rannsókn- arlögreglumenn Ingrid Sachs. húsleit á heimili Olschewskis-hjóna, og þá kom í ljós lítið glas með colchicin. Leið nú skammur tími þar til tókst að sýna fram á að einmitt það eitur hafði bundið enda á líf Ingrid. Colchicin er unnið úr bláum blómum „nöktu jómfrúarinnar“. Það er notað sem móteitur í vissum tilvikum, en aðeins þegar um er að ræða eitrun sem annað móteitur reynist haldlaust gegn. Móteitrið er þá gefið í töfluformi, og er aðeins eitt millígramm í hverri töflu. Fari skammturinn yfir tólf millígrömm telst hann banvænn. Neitaði öllu Fritz Olschewski var nú tekinn til yfirheyrslu. Honum var borið á brýn að hafa gefið konu sinni eitur, en hann hafnaði þvi með öllu og sagðist enga skýringu geta gefið á því hvers vegna kona hans hefði dá- ið. Hann viðurkenndi þó að hafa sáldrað eilitlu colchicin yfir glas sem hún heföi drukkið sólberjavín úr föstudaginn sem hún veiktist. Það magn hefði hins vegar verið svo lítið að óhugsandi væri að það hefði orðiö konu hans að bana. Hann hefði aðeins strokið nokkur korn af barmi glassins sem hafði eitrið að geyma ofan i vínglas konu sinnar. Þau svöruðu engan veginn til þeirra sextíu og sex millígramma sem sér- fræðingar töldu að hefðu banað henni. Olschewski var nú beðinn að skýra hvað honum hefði gengið til með því að sáldra colchicin-kornum í vínglasið. Hann fór þá að greina frá þeim vanda sem kominn hafði verið upp í hjónabandinu, og sagð- ist hafa verið gripinn nokkurri skelfingu. Hann hefði ekki getað hugsað sér að skilja enn einu sinni, og sér hefði því komið til hugar að kenna Ingrid þá lexíu sem gæti orð- ið til þess að henni snerist hugur. Annað hefði sér ekki gengið til. Aldrei hefði að sér hvarflað að stytta henni aldur. Tvísaga Olschewski sagði að sér hefði fundist kona sín eiga skilið að fá smávegis aðvörun. Sú skoðun sín þess á leit að fá skilnað. Málið leit þannig út að allt benti til þess að hann yrði að fallast á beiðni hennar, og semja um greiðslur til hennar að auki, því erfitt yrði að koma sökinni á skilnaðinum á hana. Þetta varð Olschewski mikið áfall. Þótt tekj- ur hans væru enn góðar varð honum ljóst að eftir fimmta skiln- í þessu fimmta hjónabandi Olschewskis. Helgarsnafs- inn í ársbyrjun í fyrra voru áhyggjur tekn- ar að sækja á. Ols- chewski skynjaði að eitthvað var að í hjónabandinu, og hann virtist ekki geta lagfært það. Og brátt kom í ljós hvað það var. kona hans var búinn að fá sér elsk- huga, og fór
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.