Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 22.06.1996, Blaðsíða 12
12 LAUGARDAGUR 22. JÚNÍ 1996 JL>"V Vesturfarasetur verður opnað í byrjun júlí á Hofsósi: Býður aðstoð við folk sem vill finna ættingja sína „Eg hef áhuga fyrir öllu sem skýt- ur stoðum undir starfsemi úti á landi og getur haldið lífi í fólkinu þar auk þess sem umhverfið hér býður upp á ýmsa möguleika. Það er nýtt í safnamálum að þetta setur tengist viðskiptalífinu, einkaaðilar og fyrirtæki, sérfræðingar í safna- málum og stjórnvöld koma að þessu verkefni en það er samstarfsverk- efni 11 þjóða,“ segir Valgeir Þor- valdsson, framkvæmdastjóri Snorra Þorfinnssonar ehf. á Hofsósi. I byrjun júlí tekur til starfa á veg- um fyrirtækisins Vesturfarasetur á Hofsósi og hefur Háskólinn á Akur- eyri lýst yflr vilja sínum til sam- starfs við verkefnið, sérstaklega hvað varðar ættfræði og ættfræði- rannsóknir. Sýningin í húsinu mun segja sögu fólksins, sem fór vestur um haf fyrir og um aldamót. í setr- inu verður jafnframt fræðslumið- stöð fyrir þá sem vilja finna ætt- ingja sína og verður reynt að að- stoða þá eftir því sem tök verða á auk þess sem starfrækt verður verslun í gömlum stíl í húsinu. Vesturfarasetrið á Hofsósi verður til húsa í nýuppgerðu húsi, sem áður hýsti Kaupfélag Austur Skag- flrðinga í gamla þorpskjarnanum niðri við höfnina á Hofsósi, og hafa iðnaðarmenn verið að leggja síðustu hönd á endurbygginguna síðustu vikur, mála og smíða, múra og inn- rétta hæðir og kjallara. Húsið verð- ur því orðið hið reisulegasta þegar setrið loks verður opnað með við- Innan tíöar veröur opnaö á Hofsósi Vesturfarasetur sem rekur sögu fólksins, sem fór vestur um haf fyrir og um alda- mót, og veröa gestir leiddir gegnum safniö auk þess sem þeim veröur hjálpað aö finna ættingja sína hér á landi. Fjöldi iðnaöarmanna hefur veriö aö setja hús viö höfnina á Hofsósi í stand undanfarna mánuði. Valgeir er hér til hægri ásamt Friðbirni Jónssyni. höfn innan tíðar af Vigdísi Finn- bogadóttur, fráfarandi forseta. Gestirnir leiddir gegnum söguna Gestir, sem koma í setrið, geta farið í fræðslumiðstöðina til að leita ættingja sinna, verslað í krambúð- inni eða kynnt sér sýninguna og verða þá leiddir gegnum söguna. Þeir kynnast húsakynnum fólksins DV-mynd GHS á þessum tíma, heimsækja gamlan bóndabæ, fara í verbúðina til að sjá aðstæður fátækra sjómanna, svo út á bryggjusporðinn, áfram um borð í skip þar sem hafísinn blasir við, svo í hreysi landnemans í Vesturheimi með ýmsum munum úr híbýlum ís- lendinga fyrstu árin fyrir vestan, og svo framvegis. Kjallarinn er múraður á grófan og sérstakan hátt, að sögn Valgeirs, og segir hann að umgjörð sýningar- innar þar sé „gróf og hrá.“ Honum þykir eðlilegt að sagan sé sögð við slíkar aðstæður til að ná fram rétta andrúmsloftinu. Uppi verður fundarherbergi, fyr- irlestrasalur og skólastofa og í fram- tíðinni mun bryggja risa fyrir utan húsið þannig að hægt verði að sýna hvernig aðstæður voru áður en vesturfaramir stigu um borð í skip. Gestirnir geta þannig gert sér í hug- arlund við hvaða aðstæður fólkið fór frá íslandi. Starfrækt allt árið Valgeir segir að stefnt sé að því að starfrækja Vesturfarasetrið allt árið og það er greinilegt að hann stjómar uppbyggingunni á Hofsósi af áræðni og stórhug. Hann hefur fengið ýmis stórfyrirtæki til að leggja framkvæmdinni lið, til dæm- is Sjóvá Almennar og Skeljung, og hafa nú þegar safhast 20 milljónir króna í hlutafé. Hann segir að það sé nýlunda í safnamálum að stórfyr- irtæki leggi hugmynd af þessu tagi lið og vonast til þess að það verði framhald á því í framtíðinni. -GHS Stress styrkir ónæmiskerfi Lengi hefur verið hamrað á | því að streita veiki ónæmiskerfi líkamans. Nýjustu rannsóknir benda hins vegar til að þannig sé | því ekki alltaf farið. Þvert á móti eflist viðbúnaður ónæmiskerfis- ins á meðan og rétt á eftir streituvaldandi atburði. Vísindamenn benda í því sam- bandi á að fólk sem þurfi að ljúka mikilvægu verkefni standi af sér allar sýkingar á meðan á verkinu 1 stendur en að því loknu hrynji , allir vamir líkamans. En þótt streita í stuttan tíma I sé ekki skaðleg heilsu manna, þykir ekki leika vafi á að langvarandi streita er það aftur á ! móti. Taflmannadeila leyst Leyst hefur verið úr þrætu | fornleifafræðinga og skáklistar- : sagnfræðinga um aldur forkunn- arfagurra taflmanna sem fundust I í rómverskri gröf frá 1. öld. Skák- sagnfræðingar töldu taflmennina vera íslamska og frá 7. til 9. öld. Skáklistin var ekki fundin upp I fyrr en á 6. öld og taflmenn þess- ir hefðu þvl verið mikið undur ef fornleifafræðingar heföu haft rétt fyrir sér. Ný aldursgreining sýnir að taflmennirnir eru frá árunum 885 til 1017 eftir Krist en hvernig þeir komust í gröf frá 1. öld er enn hulin ráðgáta. Umsjón Guðlaugur Bergmundsson Iþróttamenn drekka of lítið á meðan á áreynslu stendur Þessir eru meö allt á hreinu. Þótt fáir þeirra sem stunda íþróttir sér til heilsu- bótar og yndisauka leggi svo hart að sér að vessaþurð í líkamanum komist á lífs- hættulegt stig, finna þeir sem hlaupa tíu kílómetra eða hjóla þrjátíu kílómetra oft fyrir einhverri vanlíðan vegna vökvataps, einkum þegar heitt er í veðri. Þorsti er því miður ekki nákvæmur mælikvarði á það þegar líkaminn þarf vökvunar við og hann gerir oft ekki vart við sig fyrr en líkaminn er farinn að nálg- ast hættustigið. Vökvatapið kann að nema tæpum tveim- ur lítrum áður en þorstinn knýr viðkomandi til að drekka. Sérfræðingar í íþróttalíf- eðlisfræði segja að fáir íþróttamenn, hvort sem það eru afburðamenn eða hinir sem stunda íþróttir í frí- stundum sínum, drekki nóg fyrir og á meðan þeir reyna á sig til að vega upp á móti þeim slæmu áhrifum sem of lítill vökvi í líkamanum hefur á bæði frammistöðu og vellíðan. Fólk sem svitnar mikið er eink- um í hættu og mestar líkur eru á að það drekki ekki nóg, segir Michael N. Sawka, sérfræðingur í hitalífeðl- isfræði við rannsóknarstofnun bandaríska hersins í umhverfis- lækningum. Eldra fólk sem stundar líkamsrækt er einnig í meiri hættu þar sem þorstatilfinning, svitafram- leiðsla og hæfni til að safna þvagi minnka með aldrinum. Sawka segir aö úrvötnun sem veldur þó ekki sé nema eins pró- sents tapi á líkamsþyngd gæti hækkað líkamshitann þar sem vökvatapið veldur því að aðalkæli- kerfi líkamans, blóðflæði út í hör- undið og svitaframleiðsla, verða ekki eins skilvirk. í stað þess að vera afslapp- aður og endumærður eftir líkamsræktina, eru allar líkur á því að sá sem verð- ur fyrir vessaþurrð sé stressaður, óeðlilega þreytt- ur og slappur, finni jafnvel fyrir höfuðverk, svima og ógleði. Og honum líður kannski heldur ekki mikið betur daginn eftir. Edward F. Coyle, sem strfar við rannsóknir við Texasháskóla í Austin, seg- ir að hjólreiðamenn drekki sjaldan nóg á meðan þeir séu úti að hjóla og fáir átti sig á því hversu mjög það dregur úr árangri þeirra. Sérfræðingar segja að best sé fyrir íþróttamenn að drekka hálfan lítra af vatni tveimur klukkustundum áður en þeir reyna á sig. Allur umframvökvi muni svo skila sér út með þvagi áður en íþróttaiðkunin hefst. Ef ekki sé hægt að drekka tveimur tímum áður en lagt er af stað, eigi aö drekka allt að hálfum lítra áður en byrjað er og síðan allt að kvart- lítra á fimmtán til tuttugu mínútna fresti. Vatnið á að vera svalt en ekki ískalt. Umfram allt verða íþróttamenn svo að muna að ekki er hægt að reiða sig á þorstatilfinninguna eina saman. Byggt á IHT. I á leið til jarðar Sænskur stjarnfræðingur við háskólann í Lundi hefur upp- götvaö útfjólubláan leysigeisla i sem stefnir í átt til jarðar. Geisl- | inn, sem uppgötvaðist fyrir til- stilli Hubble geimsjónaukans og er mörgum sinnum bjartari en i sólin, kemur frá deyjandi risa- stjörnu, Eta Carinae, sem er 100 sinnum þyngri en sólin. Risa- stjarna þessi er i átta þúsund ; ljósára fjarlægð frá jörðu. Leysigeislar úti í geimnum eru ekki alveg óþekkt fyrirbæri, þótt j þeir séu fremur sjaldséðir. Fyrsti innrauði leysigeislinn í geimnum | uppgötvaðist I fyrra og nú hefur fyrsti útfjólubái leysigeislinn sem sé bæst við. Alltof hár hiti í æSum Vísindamenn við læknadeild Texasháskóla hafa gert uppgötv- un sem gæti leitt til nýrra leiða j til að vara sjúklinga við yfirvof- andi hjartaáfóllum. Mörg hjartaáfóll orsakast af því þegar fita sem safnast hefur í æðaveggina losnar og stöðvar blóðflæðið. Sumar flögurnar eru með þunnt frumulag yfir sér en i aðrar eru óstöðugri og eru með j bólgufrumur innan í. j Við rannsókn á æðunum í 48 sjúklingum komust vísinda- j mennimir að því að óstöðugu j flögurnar voru heitari en hinar. 1 Þeir telja að hægt verði að þróa i próf sem segir til um hvort sjúkl- s ingur er með svona heitan punkt ! í æðunum og þar með líklegri til : að fá blóðtappa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.